Morgunblaðið - 11.06.2002, Qupperneq 20
ERLENT
20 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
INDVERJAR sögðust í gær ætla að
leyfa flug pakistanskra véla í ind-
verskri lofthelgi á ný og fögnuðu
Pakistanar þessari ákvörðun, sögðu
hana „skref í æskilega átt“. Á hinn
bóginn hyggjast Indverjar ekki láta
sendiherra sinn hverfa aftur til höf-
uðstaðar Pakistans, Islamabad, en
vonir vöknuðu um að þeir myndu
gera það í liðinni viku eftir fund Rich-
ards Armitage, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Bandaríkjamanna, með
deiluaðilum.
Vonast er til að Donald Rumsfeld,
varnarmálaráðherra Bandaríkjanna,
takist að ýta undir frið í deilum
ríkjanna tveggja en hann er vænt-
anlegur í heimsókn til landanna síðar
í vikunni. Pakistanar gegna lykilhlut-
verki í baráttu bandamanna gegn al-
Qaeda samtökunum í Afganistan,
grannríki Pakistans. Undanfarna
mánuði hefur hvað eftir annað verið
talin hætta á styrjöld milli Indlands
og Pakistans sem bæði ráða yfir
kjarnorkuvopnum. Skotið hefur ver-
ið af fallbyssum yfir landamærin og
tugir manna hafa fallið. Alls er nú um
milljón hermanna á landamærum
ríkjanna og þúsundir óbreyttra borg-
ara í grennd við þau hafa flúið heimili
sín.
Fimm indversk herskip eru enn á
Arabíuhafi en vangaveltur hafa verið
um að indversk stjórnvöld hygðust
senda þau austur til Bengalflóa til að
sýna þannig vilja til að draga úr
spennu milli ríkjanna og afstýra
styrjöld vegna deilnanna um Kasmír.
Indverjar saka pakistönsk stjórnvöld
um að gera of lítið til að hefta ferðir
íslamskra hermdarverkamanna frá
Pakistan inn í indverska hluta Kasm-
ír-héraðs. Það er að mestu byggt
múslímum en er undir stjórn Ind-
verja þótt hluti þess lúti stjórn Pak-
istana. Hermdarverkamenninrir
krefjast þess að indverska Kasmír fái
að sameinast Pakistan eða fái sjálf-
stæði.
Talsmaður indverska utanríkis-
ráðuneytisins, Nirupama Rao, sagði í
gær að ákvörðunin um að leyfa flug
væri „mikilvægt skref“ en neitaði að
tjá sig um næstu skref. Hún sagði
stjórnina bíða þess að fá traustar vís-
bendingar um að Pakistansstjórn
hefði í raun reynt að hefta ferðir
hermdarverkamanna til Kasmír.
„Nokkuð hefur dregið úr starfsemi
þeirra en erfitt að sjá hvort staða
mála hefur með vissu breyst. Við
munum halda áfram að meta ástand-
ið. Við teljum að ekki sé hægt að velja
annan kost en frið,“ sagði Rao.
Pakistanar hafa lengi farið fram á
viðræður við fulltrúa Indverja um
deilur ríkjanna en Indverjar segja að
fyrst verði að stöðva hryðjuverka-
mennina. Pervez Musharraf, forseti
Pakistans, hét því í liðinni viku að
ekki yrði liðið að hryðjuverkamenn
herjuðu á Indland frá Pakistan og
ítrekaði í gær vilja sinn til að semja.
Indverjar saka leyniþjónustu Pakist-
ans um að styðja árásarhópana.
Pakistönum leyft að fljúga
í indversku lofthelginni
Vonir um að Donald Rumsfeld takist
að ýta undir friðarviðræður
Nýju-Delhí. AP.
ÞJÓÐIR heims mega engan tíma
missa ætli þær að standa við stóru
orðin og minnka fjölda þeirra, sem
líða hungur, um helming fyrir árið
2015. Kom þetta fram í ræðu Kofi
Annans, framkvæmdastjóra Sam-
einuðu þjóðanna, er hann setti Mat-
vælaráðstefnu SÞ í Róm í gær. Sitja
hana leiðtogar og aðrir fulltrúar
rúmlega 180 ríkja og þar á meðal Ro-
bert Mugabe, forseti Zimbabwe, þótt
honum hafi verið bannað að koma til
Evrópusambandsríkjanna.
„Meira en 800 milljónir manna,
þar af 300 milljónir barna, þjást dag
hvern af hungri og þeim sjúkdómum,
sem vannæringin veldur. Áætlað er,
að allt að 24.000 manns deyi daglega
af þessum sökum,“ sagði Annan í
setningarræðu sinni en ráðstefnan
stendur í fjóra daga.
„Fátt er meiri svívirða við mann-
lega reisn en hungur. Í þessum heimi
allsnægtanna ætti okkur að vera í
lófa lagið að útrýma því og við skul-
um ekki láta þá skömm henda okkur
að sitja auðum höndum,“ sagði Ann-
an og bætti við, að draga mætti úr
hungrinu með bættum landbúnaðar-
háttum og aðstoð við bændur og
landbúnaðarsamfélög í þróunarlönd-
unum. Lagði Annan áherslu á, að
sérstaklega yrði hugað að hlutverki
kvennanna, sem oft ynnu miklu
lengri vinnudag en karlarnir og
væru í raun burðarás fjölskyldunnar
í matvælaöflun.
Rík lönd styrkja sinn landbúnað
með 27.000 milljörðum kr.
Carlo Azeglio Ciampi, forseti Ítal-
íu, hvatti til meiri aðstoðar við fátæk
ríki en Jacques Diouf, yfirmaður
Matvæla- og landbúnaðarstofnunar
SÞ, benti á, að ríku þjóðirnar styrktu
sinn landbúnað með 27.000 milljörð-
um ísl. kr. árlega og það samsvaraði
tæplega 1,1 milljón kr. í styrk við
hvern bónda.
„Til samanburðar má nefna, að að-
stoð ríku þjóðanna við þróunarlöndin
er um 720 milljarðar kr. árlega og
það gerir 540 kr. á hvern bónda,“
sagði Diouf.
Angelo Sodano, kardináli og utan-
ríkisráðherra Páfagarðs, flutti ráð-
stefnunni yfirlýsingu frá Jóhannesi
Páli páfa II en í henni er lögð áhersla
á, að fátækt og hungur séu oft upp-
spretta hryðjuverkastarfsemi.
Mugabe á ráðstefnuna
Mugabe, forseti Zimbabwe, fór frá
Harare, höfuðborg landsins, á föstu-
dag og ætlaði að vera kominn til
Rómar í gær þótt Evrópusambandið,
Bandaríkin og fleiri ríki hafi bannað
komu hans vegna alls kyns mann-
réttindabrota. Ríki, sem halda ráð-
stefnur á vegum SÞ, eru hins vegar
skyld til að leyfa öllum þjóðarleiðtog-
um að sitja þær þótt þau geti tak-
markað ferðafrelsi þeirra við við-
komandi flughöfn og sjálfan
ráðstefnustaðinn.
Talið er, að allt að helmingur
Zimbabwebúa líði hungur og horfur
eru á, að maísuppskeran, uppistaðan
í mataræðinu, verði ekki nema
510.000 tonn á þessu ári. Er það að-
eins 28% af meðaluppskeru síðasta
áratugar. Er ástæðan þurrkar og
þau hervirki, sem Mugabe og menn
hans hafa unnið í landbúnaðinum.
Hafa hvítir bændur verið flæmdir
burt af jörðum sínum og stundum
drepnir og þær afhentar stuðnings-
mönnum Mugabes. Við það hefur
framleiðslan hrunið.
Við þessar hörmungar bætist síð-
an alnæmisfaraldurinn en fjórði hver
landsmaður er sýktur. Búist er við,
að hungrið og vannæringin muni
stórauka mannfallið af völdum sjúk-
dómsins.
Kofi Annan setur matvælaráðstefnu SÞ og hvetur þjóðir heims til að standa við stóru orðin
300 milljónir barna
þjást af hungri
Mugabe til Róm-
ar þrátt fyrir
ferðabann
Róm. AP, AFP.
Reuters
Robert Mugabe, forseti Zimbabwe, á Matvælaráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna í Róm. Hann situr ráðstefnuna þrátt fyrir ferðabann ESB.
TAÍLENSKIR byggingaverkamenn
klifra á vinnupöllum í Bangkok.
Byggingaverkamenn í Taílandi geta
fengið 300 bat, andvirði 630 króna, í
laun á dag. Lágmarksdaglaunin í
landinu eru andvirði 360 kr.
Klifurfimi í Bangkok AP
HÓFSAMIR hægriflokkar,
sem fylgja Jacques Chirac
Frakklandsforseta að málum,
unnu afgerandi sigur í fyrri
umferð þingkosninganna er
fram fór í Frakklandi á
sunnudaginn, samkvæmt end-
anlegum tölum, er birtar voru
í gær. Flokkar sem styðja
Chirac, er var endurkjörinn
forseti í síðasta mánuði,
fengu 43,6% atkvæða, en
vinstriflokkar, með sósíalista
í broddi fylkingar, hlutu 36%.
Þjóðernisöfgamenn hlutu um
12% atkvæða, samkvæmt
upplýsingum innanríkisráðu-
neytisins.
Seinni umferð kosninganna
fer fram næstkomandi sunnu-
dag, en í ljósi úrslitanna um
helgina eru allar líkur á að
Chirac fái nú fullan stuðning
á þinginu, en síðasta kjör-
tímabil voru andstæðingar
hans, vinstrimenn, með meiri-
hluta á þingi og sósíalisti for-
sætisráðherra. Fari sem horf-
ir getur Chirac nú ótrauður
fylgt þeirri stefnu sinni að
auka veg viðskipta og herða á
löggæslu.
Þjóðernisöfgamenn
guldu afhroð
Líkt og vinstrimenn guldu
þjóðernisöfgamenn afhroð á
sunnudaginn, en um mánuður
er síðan einn helsti leiðtogi
þeirra, Jean-Marie Le Pen,
kom öllum á óvart með því að
komast ásamt Chirac áfram í
aðra umferð forsetakosning-
anna. Margir kjósendur tóku
þann kostinn að mæta ekki á
kjörstað núna um helgina,
tæplega 35% greiddu ekki at-
kvæði, og telja fréttaskýrend-
ur að þetta geti þýtt að eitt-
hvað óvænt komi í ljós þegar
talið verður upp úr kjörköss-
unum eftir síðari umferðina á
sunnudaginn kemur.
Afger-
andi sig-
ur hægri-
manna
AFP, AP.
Fyrri umferð þing-
kosninganna í
Frakklandi
HERINN á Filippseyjum hóf í gær
liðsflutninga til suðurhluta eyjanna
og hyggur á stórsókn gegn skærulið-
um Abu Sayyaf. Hafa þeir ekki leng-
ur neina gísla á sínu valdi en í síðustu
viku féllu tveir gíslar í átökum
skæruliða við stjórnarhermenn en
einum tókst að bjarga.
Filippseyska konan Ediborah Yap
og Bandaríkjamaðurinn Martin
Burnham biðu bana er stjórnarher-
menn reyndu að koma þeim til bjarg-
ar síðastliðinn föstudag en Gracia,
eiginkona Burnhams, komst lífs af
nokkuð særð.
Hélt Gracia Burnham heim til
Bandaríkjanna í gær og sagði við
brottförina, að múslímsku skæru-
liðarnir, sem höfðu haldið þeim hjón-
um í meira en ár, væru ekkert annað
en glæpamenn og skyldi refsað í
samræmi við það.
Ernesto Carolina hershöfðingi
sagði í gær, að nú þegar skæru-
liðarnir hefðu enga gísla á sínu valdi
yrði látið til skarar skríða gegn þeim
af fullum þunga.
Filippseyjar
Stórsókn
gegn skæru-
liðunum
Zamboanga. AFP.