Morgunblaðið - 11.06.2002, Blaðsíða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 21
Á góðum bíl í Evrópu
Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Pantaðu AVIS bílinn þinn áður en þú ferðast – Það borgar sig
(Verð miðast við lágmarksleigu 7 daga)
Innifalið í verði er ótakmarkaður
akstur, trygging, vsk.
og flugvallargjald.
Bretland kr. 3.000,- á dag
Ítalía kr. 3.700,- á dag
Frakkland kr. 3.000,- á dag
Spánn kr. 2.200,- á dag
Portúgal kr. 2.600,- á dag
Danmörk kr. 3.500,- á dag
www.avis.is
Við
reynum
betur
SAMKOMU afganska þjóðarráðs-
ins, Loya Jirga, var frestað í gær
um sólarhring vegna krafna um, að
Mohammed Zahir Shah, fyrrver-
andi konungi landsins, yrðu falin
æðstu völd. Hann lýsti því hins veg-
ar yfir í gær, að hann sæktist ekki
eftir því og styddi Hamid Karzai,
núverandi forsætisráðherra bráða-
birgðastjórnarinnar.
Þeir, sem sæti eiga í ráðinu, um
1.550 ættbálkahöfðingjar og öld-
ungar, tóku frestuninni með stó-
ískri ró og sögðu, að dagsbið skipti
engu fyrir þá, sem búið hefðu við
stanslausan ófrið og ofbeldi í 23 ár.
„Fólki er alveg sama um frest-
unina. Það lætur fara vel um sig í
búðunum, snæðir saman og skiptist
á skoðunum,“ sagði einn þátttak-
endanna.
Samkomunni var frestað vegna
þess, að sumir vildu, að konung-
urinn fyrrverandi tæki aftur við
völdum, og rökstuddu það með því,
að hann einn gæti tryggt stöð-
ugleika í landinu. Sjálfur hefur
Zahir Shah oft lýst yfir, að hann
vilji ekki verða konungur á ný og
styðji Hamid Karzai sem oddvita
nýrrar stjórnar.
Zalmay Khalilzad, sérstakur
sendimaður Bandaríkjastjórnar í
Afganistan, sagði í gær, að Zahir
Shah ætlaði að staðfesta þennan
vilja sinn með yfirlýsingu og lýsa
jafnframt yfir stuðningi við Karzai.
Gerði konungurinn það nokkru síð-
ar og ítrekaði, að hann sæktist
hvorki eftir völdum né hefði hann
hug á að endurreisa konungdæmið
í landinu. Kvaðst hann eiga þá einu
ósk að geta orðið löndum sínum að
liði með einhverjum hætti.
Karzai sagði, að litið yrði á kon-
unginn fyrrverandi sem eins konar
„landsföður“ og honum sýnd virð-
ing í samræmi við það.
Fundur þjóðarráðsins verður í
geysistóru, loftræstu tjaldi við
tækniháskólann í Kabúl og hafa
hinir kjörnu fulltrúar verið að
streyma til borgarinnar, ekki að-
eins frá Afganistan, heldur einnig
frá hinum fjölmennu flótta-
mannabúðum í nágrannaríkjunum.
Konungurinn styður Karzai
AP
Um 200 konur voru kjörnar í afganska þjóðarráðið en þar ætla þær að
berjast fyrir auknum réttindum kvenna í landinu. Þessar tvær konur
eru meðal fulltrúanna, Malalai Eshaqzai og Nadia Salih.
Kabúl. AFP.
DOMINGO Cavallo,
fyrrverandi efnahags-
ráðherra í Argentínu,
var sleppt úr fangelsi
fyrir síðustu helgi en
þá vísaði alríkisdóm-
stóll frá ákærum gegn
honum fyrir aðild að
vopnasmygli. Var það
gert vegna skorts á
sönnunum.
Cavallo, höfundur
þeirrar efnahags-
stefnu í tíð forsetanna
Carlos Menems og
Fernandos de la Rua,
sem leiddi að lokum
til kreppu í landinu,
var handtekinn fyrir rúmum
tveimur mánuðum og sakaður um
aðild að vopnasmygli til Ekvadors
og Króatíu á árunum 1991 til 1995.
Þá var vopnasala til þeirra ólögleg
samkvæmt ákvörðun Sameinuðu
þjóðanna. Átti Cavallo yfir höfði
sér 12 ára fangelsi yrði hann fund-
inn sekur.
Alríkisdómstóllinn vísaði mál-
inu frá vegna sannanaskorts og
áminnti jafnframt dómarann, sem
lét handtaka Cavallo í aprílbyrj-
un. Ekki er þó ljóst hvað verður
um það fé, um 22
millj. ísl. kr., sem
lagt var hald á er
hann var fangelsað-
ur.
Fleiri sakargiftir
Cavallo er ekki
laus allra mála þrátt
fyrir þetta því að
hann er sakaður um
að hafa ekki staðið
rétt að skuldaskipt-
um, er vörðuðu
meira en 2.700 millj-
arða ísl. kr. í ríkis-
skuldabréfum í júní í
fyrra. Þá er hann
einnig sakaður um að hafa ráðið
bönkunum að hunsa dómsúrskurð
í desember sl., sem kveðinn var
upp til að takmarka fjárstreymi
frá Argentínu.
Menem, fyrrverandi forseti, var
í stofufangelsi vegna vopnas-
myglsins í 167 daga en hæstirétt-
ur landsins ákvað þá, að honum
skyldi sleppt. Vakti sá úrskurður
furðu en skýringin sögð sú, að
fimm dómarar af níu eru fyrrver-
andi skjólstæðingar Menems og
skipaðir af honum.
Ákærur um vopnasmygl fyrr-
verandi ráðamanna í Argentínu
Cavallo laus
vegna skorts
á sönnunum
Buenos Aires. AFP.
Domingo Cavallo