Morgunblaðið - 11.06.2002, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 11.06.2002, Qupperneq 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 25 BRÚÐUBÍLLINN, sem ferðast milli gæsluvalla og útivistarsvæða borg- arinnar á sumrin og sýnir brúðuleikrit fyrir börn, hóf aksturinn um götur borgarinnar í síðustu viku. Í ár eru tvær nýjar sýningar á dagskránni, Óþekktarormar, sem sýnd verður í júní, og Týnda eggið, sem sýnd verður í júlí. Við sögu koma nokkrar af ástsæl- ustu persónum Brúðubíls- ins, en einnig eru nýjar persónur kynntar til sög- unnar. Helga Steffensen hefur verið forsvarsmaður Brúðubílsins frá árinu 1980 og haft sýningar á hverju sumri síðan þá. Með henni starfa að sýningunni í ár þau Edda Björk Þórðardóttir, sem er brúðu- stjórnandi ásamt Helgu, og Birgir Ísleifur Gunnarsson, sem er bíl- stjóri og tæknimaður. Leikraddir eru í höndum Sigrúnar Eddu Björnsdóttur, Felix Bergssonar og Júlíusar Brjánssonar, auk Helgu sjálfrar, og tónlist og upptaka í umsjá Vilhjálms Guðjónssonar. „Ég sem handrit að nýjum sýn- ingum á hverju ári. Ég sest niður í janúar og skrifa og bý til brúð- urnar, en svo eru sumar sem verða svo vinsælar að þær verða helst alltaf að vera með, eins og til dæmis Úlfurinn, trúðurinn Dúskur sem er kynnir, og Lilli,“ segir Helga í samtali við blaðamann, sem að sjálfsögðu man eftir Lilla úr eigin barnæsku. „Svo eru alltaf margar nýjar brúður og þannig er það líka í ár. En ef vissar persónur eru ekki með vakna alltaf spurn- ingar hjá krökkunum um afhverju úlfurinn sé ekki með, eða Lilli, og svo framvegis.“ Helga telur mikilvægt að sýn- ingarnar fræði um leið og þær skemmti. „Ég reyni meðal annars að vera með lög sem þau kunna og geta sungið með. Einnig er gaman að vera með góð gömul íslensk kvæði. Til dæmis finnst mér alveg sjálfsagt að öll börn læri Guttavís- ur eftir Stefán Jónsson,“ segir hún en þær eru einmitt hluti af sýning- unni Óþekktarormar sem er sýnd nú í júní. Auk þess eru í sýning- unni tvær sögur sem Helga hefur snúið í leikrit, og leikrit sem hún hefur samið sjálf, um Úlfinn og hænuna Lóu Lipurtá. „Í því er al- veg sígild atburðarás, þar sem úlf- urinn setur hænuna í poka og hún reynir að sleppa, og krakkarnir hjálpa svolítið til,“ útskýrir hún. Margir af áhorfendum Brúðu- bílsins eru fastagestir á hverju sumri. Börn á öllum aldri fylgjast með sýningunum, allt niður í eins til tveggja ára gömul, og fyrir marga er þetta þeirra fyrsta leik- húsferð. „Það er því ákveðið upp- eldisstarf sem í þessu felst, börnin læra að hlusta og horfa og sitja kyrr. Í raun eru þau að læra að fara í leikhús,“ segir Helga og bætir við að framkoma hópsins í dag, sem er sá fyrsti í sumar, beri þess greinilega merki að þau þekki til sýninga Brúðubílsins. „Þetta er alveg yndisleg atvinna. Börn eru þakklátir áhorfendur en um leið kröfuharðir. Þú getur ver- ið viss um að ef þeim þykir ekki gaman þá standa þau bara upp og fara. Þau eru ekkert að horfa á sýninguna í þykjustunni,“ segir hún að lokum. Á ferð enn á ný Þessir ungu áhorfendur Brúðubílsins fylgdust með af einbeitingu. Trúðurinn Dúskur og bræðurnir úr hinni ástsælu sögu um Stúf. Morgunblaðið/Jim Smart Hópurinn sem stjórnar Brúðubíln- um í sumar: Edda Björk Þórðar- dóttir og Birgir Ísleifur Gunnars- son, ásamt Helgu Steffensen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.