Morgunblaðið - 11.06.2002, Page 28

Morgunblaðið - 11.06.2002, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Vísindatímaritið NatureGenetics birtir í júlí-hefti tímaritsins og áheimasíðu sinni í gær, grein eftir vísindamenn Íslenskr- ar erfðagreiningar, þar sem þeir lýsa fyrsta nákvæma erfðakort- inu af erfðamengi mannsins. Morgunblaðið greindi frá gerð erfðakorts ÍE og þýðingu þeirr- ar uppgötvunar 30. nóvember síðastliðinn. Í fréttafrásögn blaðs- ins af fundi sem Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, átti með fulltrúum fjölmiðla í Vísindaaka- demíu New York 29. nóvember sl., kom fram að vísindamönn- um ÍE hefði tekist að ljúka gerð erfðakorts- ins yfir genamengi mannsins, fyrst fyrir- tækja. Kom fram í máli Kára að um leið og samþykki fengist fyrir birtingu greinar um erfðakortið í vísinda- tímariti myndi fyrir- tækið veita öllum að- gang að þessum niðurstöðunum á Net- inu, á sama hátt og hið fjölþjóðlega samvinnu- verkefni vísindastofn- ana (Human genome project) veitir aðgang að raðgreiningu erfða- mengis mannsins. Greinin sem birt er í Nature Genetics ber titilinn: ,,A high-resol- ution recombination map of the human genome“. Í henni er kortinu lýst og þeim að- ferðum sem notaðar voru við smíði þess. ,,Gerð þessa erfðakorts bygg- ist á einstæðum aðferðum og að- stæðum Íslenskrar erfðagrein- ingar til erfðafræðirannsókna,“ segir í fréttatilkynningu sem ÍE sendi frá sér sl. sunnudag. ,,Kortið var unnið með því að greina nákvæma staðsetningu meira en 5.000 fjölbreytilegra erfðamarka í erfðamengi manns- ins. Upplýsingar um erfðir slíkra erfðamarka voru notaðar til að finna erfðaþætti sem hafa áhrif á sjúkdóma eða aðra eiginleika. Við þetta erfðakort var síðan bætt upplýsingum um staðsetn- ingu yfir tveggja milljóna svo- kallaðra einsbasa breytileika (e. single nucleotide polymorphism, SNP). Þau erfðakort sem til eru í dag hafa verið mjög mikilvæg við rannsóknir í mannerfðafræði og við raðgreiningu á erfðamengi mannsins. Nákvæmni þeirra hef- ur þó verið takmörkuð, einfald- lega vegna þess að enginn hafði aðgang að nægum upplýsingum eða hugbúnaði til að smíða kort af meiri nákvæmni. Erfðakort Íslenskrar erfðagreiningar er um fimm sinnum nákvæmara en áður hefur þekkst. Það er byggt á upplýsingum um arfgerðir mun fleiri einstaklinga en áður hafa lagt upplýsingar til slíkrar kortagerðar og auk þess var hægt að rekja erfðir þessara erfðamarka í gegnum mun fleiri kynfrumumyndanir en áður hef- ur verið hægt. Þetta hefur gert það mögulegt að smíða sérstök erfðakort fyrir hvort kyn. Við skoðun á þessum kynbundnu kortum koma í ljós áður óþekkt- ar upplýsingar um einkenni og staðsetningu blöndunar eða end- urröðunar litninganna, sem verð- ur við myndun hverrar kynslóð- ar,“ segir í fréttatilkynningunni. Sýnir þann slagkraft sem fyrirtækið býr yfir Að greininni standa 15 vís- indamenn ÍE og er Kári Stef- ánsson meðal höfunda hennar. Í gær kynntu vísindamenn á veg- um ÍE einnig nýja erfðakortið á stórri, alþjóðlegri líftækniráð- stefnu sem haldin er í Toronto í Kanada. Kári Stefánsson er mjög ánægður með þann árangur sem vísindamenn ÍE hafa náð. Hann segir erfðakortið myndarlegan áfanga í rannsóknum í mann- erfðafræði og sýna þann slag- kraft sem fyrirtækið býr yfir. ,,Við erum mjög stolt af því að geta nú gert þetta kort aðgengi- legt vísindamönnum um allan heim,“ sagði Kári. ,,Birting á þessum niðurstöðum staðfestir hvers við erum megnug og hversu góðir vísindamenn starfa hjá fyrirtækinu,“ segir hann. Kári segir raðgreininguna á erfðamengi mannsins hafa verið mjög stórt skref í mannerfða- fræði. En röðin sem hún gaf hafi þó aðeins verið viðmiðunarröð erfðaefnisins í nokkurs konar vísitölueinstaklingi. ,,Það sem við höfum hins veg- ar gert er að búa til kort yfir það hvernig, hvar og með hvaða tíðni erfðamengið breyt- ist þegar það flyst frá einni kynslóð til annarrar. Til þess að geta elt uppi þann breytileika í erfðamenginu, sem leiðir til sjúkdóma, þá verð- ur að hafa þennan breytileika sem bakgrunn. Þetta er forsenda þess að það sé hægt að leita á kerfisbundinn hátt að meingen- um,“ sagði Kári í samtali við Morgunblaðið. Höfum aðgang að betri tækni- og hugbúnaði Kári segir ástæðuna fyrir því að ÍE er fyrst til að birta svona erfðakort þá að fyrirtækið hafi aðgang að betri tækni- og hug- búnaði til að smíða svo nákvæm kort en aðrir hafa. ,,Við höfum þegar notað svipaðar aðferðir til að kortleggja erfðavísa sem tengjast yfir tuttugu algengum sjúkdómum í mönnum og reynd- ar gerðum við þetta kort auðvelda okkur slíkar rann ir. Við lítum svo á að þ sjálfsagt og eðlilegt að gera ar upplýsingar aðgengilega sem það er líklegt að þær hafa veruleg jákvæð áh rannsóknir í mannerfðafr heild sinni. Að sjálfsögðu við þó ennþá yfir ákveðnu skoti þar sem enginn he raun möguleika á að stunda öflugar rannsóknir á þessu og Íslensk erfðagreining býr yfir þeim tækni- og hu aði sem þarf til að nýta þekkingu til hins ýtrasta. útgáfunni á þessu erfð undirstrikum við forskot ok rannsóknum á erfðafræð gengra sjúkdóma. Mark með þeim er að finna sjúk þætti og þróa nýja kynslóð og greiningarprófa.“ Bent á 104 villur í útgefinni raðgreining á genamenginu Í lýsingu Íslenskrar greiningar kemur fram að þess að veita lýsingar um setningu marka af svonefndra ört (e. microsate og einsbasa b leika, þá er í greininni bent villur í útgefinni raðgreini erfðamengi mannsins frá ágúst 2001. ,,Frá fræðilegu sjónar má þó segja að merkustu urstöðurnar megi lesa úr kortunum sem voru gerð staklega fyrir hvort kynið myndun kynfrumna á sér ákveðin uppstokkun á menginu, eða svokölluð e röðun, sem veldur því a kvæmi eru ekki nákv eftirmyndir foreldra sinna því að skoða þessi kort sé tíðni slíkra endurraðana er breytileg og eykst í öfugu falli við stærð litninganna. urröðunartíðnin reynist ver sinnum hærri hjá konum Nature Genetics birtir grein um erfðakort Íslensk Kortleggja breytile gerir mennina marg Fjallað var ítarlega um erfðakort Íslenskrar erfðagreiningar í Morgunbla sl. í frásögn af fréttamannafundi með Kára Stefánssyni, forstjóra ÍE, í Vís York. Þar greindi Kári í fyrsta skipti frá því að ÍE hefði fyrst fyrirtækja lokið við gerð erfðakorts sem sýnir breytileika í genamengi ma Tímaritið Nature Genetics birtir í júlíhefti grein um erfðakort Íslenskrar erfðagreinin af erfðamengi mannsins. Gerð þess er sög byggjast á einstæðum aðferðum og aðstæð ÍE til erfðafræðirannsókna. Kortið verður gengilegt vísindamönnum um allan heim Fimm sinnum nákvæmara en áður hefur þekkst MIKILVÆG STARFSEMI Í ALÞJÓÐAHÚSI Alþjóðahúsið verður opnað formlega áföstudag, en starfsemi þess hefur að mörgu leyti þegar verið hleypt af stokk- unum. Innflytjendum hefur fjölgað mjög hér á landi á undanförnum árum og því er enginn vafi á þörfinni á Alþjóðahús- inu, sem á að verða miðstöð fjölmenning- arlegs samfélags hér á landi. Í nágranna- ríkjunum, þar sem mun lengra er síðan innflytjendum tók að fjölga, eru árekstr- ar vegna þeirra algengir og hafa málefni þeirra orðið vatn á myllu pólitískra lýð- skrumara. Slík vandamál hafa ekki gert vart við sig hér á landi og verður að leggja allt kapp á að koma í veg fyrir að svo verði. Í samtali við Bjarneyju Friðriksdótt- ur, framkvæmdastjóra Alþjóðahúss, í Morgunblaðinu á sunnudag kemur fram að markmiðið með starfsemi þess sé að koma hér á fjölmenningarlegu samfélagi og að fólki af erlendum uppruna verði gert kleift að taka virkan þátt í íslensku samfélagi. Starfsemin í Alþjóðahúsinu er af ýms- um toga. Í brennidepli verður að sinna þörfum útlendinga þegar þeir koma til landsins og aðstoða fólk af erlendum uppruna við að leita upplýsinga um ís- lenskt samfélag. Þar verður löglærður ráðgjafi, sem mun veita ráð og aðstoða fólk við að greiða úr málum sínum. Þá verður þar rekin túlkaþjónusta, sem sér um að útvega túlka á um 50 tungumálum fyrir bæði stofnanir og einstaklinga. Einnig verður starfandi fræðimaður í húsinu og mun hann rannsaka hagi fólks af erlendum uppruna og stöðu þess á vinnumarkaði sem og í félagslegum mál- efnum. Hlutverk hússins mun ekki að- eins snúa að innflytjendum. Þar verður veitt fræðsla fyrir bæði fólk af erlendum og innlendum uppruna. Markmiðið er að vinna gegn fordómum gagnvart fólki af erlendum uppruna og stuðla að jákvæð- um og uppbyggjandi viðhorfum í garð hins fjölmenningarlega samfélags. Bjarney Friðriksdóttir segir að hún hafi orðið vör við það erlendis að uppruni hafi oft áhrif á framkomu gagnvart fólki og það eigi einnig við hér: „Það er tölu- vert um fordóma á Íslandi í garð útlend- inga en þeir eru þó ekki tjáðir á mjög op- inskáan hátt, eða með ofbeldi. Við heyrum það hjá útlendingum að þeir verði fyrir áreiti í hversdagslífinu vegna uppruna síns. Það er ef til vill hrópað á þá úti á götu eða það er ekki sóst eftir sam- skiptum við þá á vinnustað eða fjallað um fólkið á neikvæðan hátt í fjölmiðlum. Svo heyrum við líka um mjög jákvæð viðhorf til útlendinga sem er alltaf gleðilegt,“ segir hún og bætir við: „Öll samfélög hafa gott af því að hafa fjölbreytileika.“ Fordómar eru afl sundrungar og á þeim verður helst unnið með því að auka samgang og efla fræðslu. Í Alþjóðahús- inu verður unnið að því markmiði, en í þessu sambandi má einnig nefna Fjöl- menningarsetrið á Vestfjörðum, sem var opnað í fyrra og er ætlað að finna og þróa leiðir til að koma fólki af erlendum upp- runa um allt land til aðstoðar. Gagnsemi þeirrar starfsemi, sem fer fram í þessum stofnunum, má ekki vanmeta og þeim verður að gera kleift að dafna. RÉTTARVITUND ALMENNINGS OG DÓMSTÓLA Athyglisverðar umræður fóru framá málþingi lögmanna og dómarasl. föstudag, þar sem refsingar við glæpum voru til umræðu. Þar fjallaði Sigurður Tómas Magnússon héraðsdóm- ari m.a. um þann mun á réttarvitund al- mennings og dómstólanna, sem fram kæmi í málum, þar sem andlegar afleið- ingar brots væru ekki síðri en þær lík- amlegu eða fjárhagslegu. Kynferðisbrot eru líklega sá mála- flokkur af þessu tagi, þar sem mest bil er á milli réttarvitundar almennings og dómstólanna, í þeim skilningi að dómar fyrir t.d. hrottafengnar nauðganir og sí- endurtekin kynferðisbrot gegn börnum þykja í vaxandi mæli vægir og vekja hörð viðbrögð. Skemmst er að minnast þess að hátt í 20.000 manns undirrituðu áskorun til dómsmálaráðherra á Netinu, þar sem vægum dómum í kynferðis- brotamálum var mótmælt. Það er ekki sízt samanburðurinn við dóma í fíkniefnamálum, sem kynt hefur undir umræðum um þessi mál. Refsingar fyrir innflutning og sölu fíkniefna hafa þyngzt mjög á síðustu árum, enda hefur komið æ betur í ljós hversu alvarlegar afleiðingar slík brot geta haft. Refsi- ramminn í fíkniefnamálum var nýverið hækkaður úr 10 ára fangelsi í 12 ára og hefur einu sinni verið fullnýttur í héraði, en Hæstiréttur hefur mest dæmt mann í tíu ára fangelsi fyrir fíkniefnabrot. Í kynferðisbrotamálum er refsiramminn hins vegar sextán ár fyrir hrottalega nauðgun, en fátítt er að nauðgarar hljóti svo þungan dóm. Í fyrra hlaut maður fjögurra og hálfs árs dóm fyrir nauðgun, sem var svo svívirðileg að það er vandséð hversu langt brotamaður þyrfti að ganga til að refsiramminn yrði nýttur hlutfalls- lega jafnmikið og í alvarlegustu fíkni- efnamálunum. Þegar vakið er máls á þessum mun og hvatt til þess að refsingar í kynferðis- brotamálum verði þyngdar, benda þing- menn og ráðherrar gjarnan á að það sé varla fær leið að víkka refsirammann; hann sé þegar mjög víður. Þeir geti ekki gengið inn á starfssvið dómstóla. Hins vegar eru svör dómara oft á þá leið, að dómaframkvæmd taki mið af hefð og for- dæmi og byggist líka á jafnræðissjónar- miðum; ekki megi skyndilega byrja að kveða upp verulega þyngri dóma fyrir sömu brot og menn hafi áður fengið til- tölulega vægan dóm fyrir. Þegar svo er komið, hljóta menn að velta fyrir sér til hvers lagaákvæði um hámarksrefsingar séu og hvort annað mat á alvarleika af- brota sé í gildi hjá löggjafarvaldinu en hjá dómsvaldinu. Athyglisvert sjónarmið kom fram hjá Sigríði J. Friðjónsdóttur saksóknara á áðurnefndu málþingi. Hún benti á að mikil fastheldni dómstóla á fordæmi væri varhugaverð. Jafnræðissjónarmið mættu ekki valda stöðnun og þau birtust í fleiri myndum en þeirri að sama brota- lýsing þýddi sömu refsingu. Sigríður sagði umhugsunarvert hvort hugsanlega væri verið að brjóta jafnræðisregluna með því að beita lögmæltum refsiákvæð- um af fullum þunga í málum eins og fíkniefnamálum en ekki í öðrum, til dæmis kynferðisafbrotamálum. Þetta sjónarmið mætti gjarnan verða fleirum til umhugsunar. Afleiðingar kyn- ferðisafbrota eru ekki síður alvarlegar en fíkniefnabrotanna. Með báðum teg- undum brota er líf fólks, gjarnan ungs fólks, lagt í rúst, þótt með mismunandi hætti sé. Ef eitthvað er, eru kynferðis- brotin enn freklegra og afdráttarlausara brot gegn mannhelgi en fíkniefnabrotin. Ef dómstólar fella að almenningsáliti of væga dóma í slíkum málum, getur dóms- kerfið glatað því trausti, sem nauðsyn- legt er að það njóti hjá almenningi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.