Morgunblaðið - 11.06.2002, Side 36

Morgunblaðið - 11.06.2002, Side 36
MINNINGAR 36 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Hrefna DóraTryggvadóttir húsmóðir, kölluð sínu seinna nafni Dóra, fæddist í Reykjavík 7. júlí 1925. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfara- nótt 2. júní síðastlið- ins. Foreldrar henn- ar voru Guðrún Guðmundsdóttir húsmóðir, f. 10. júní 1901, d. 8. október 1983, og Tryggvi Gunnar Júní Gunn- arsson, smiður og vörubifreiða- stjóri, f. 10. júní 1895, dáinn 26. október 1967. Dóra ólst upp í stórum systkinahópi á Lokastíg 6 í Reykjavík. Alls voru systk- inin tólf, tvö dóu ung en tíu komust á legg. Af systkinum hennar eru látnar Svava, Lilja, Edda og Stella, eftirlifandi eru Gunnar, Sveinn, Guðmundur, Kristján og Erla. Dóra giftist 22. júní 1952 Einari Sveini Erlingssyni, vél- stjóra og vörubifreiðastjóra, f. 3.mars 1926. Þau skildu. Dóra og Einar áttu sex börn, þau eru: 1) Sveinbjörn Reynir, f. 3. febrúar 1953, sóknarprestur á Blönduósi, maki Ingibjörg Jónsdóttir, dóttir þeirra er Guðrún Dóra. Fyrir á hann soninn Guðbjart Einar af fyrra hjónabandi með Guðrúnu Ágústu Hólmbergsdóttur. 2) Kristjana, f. 26. mars 1954, ljós- móðir og hjúkrun- arfræðingur, maki Jóhannes Sólmund- arson, dætur þeirra eru Hrefna Dóra og Þórhildur. 3) Erla Guðrún, f. 12. júlí 1955, loft- skeytamaður og símritari, maki Jón Ingi Pálsson, börn þeirra eru Einar Sveinn, Páll Birgir og Selma Lind. 4) Lilja Kristín, f. 26. september 1958, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur, sambýlis- maður Axel Andrés Björnsson, sonur þeirra er Tjörvi Freyr. Fyrir á Lilja dótturina Kristínu Björk Kristjánsdóttur. 5) Birgir Óli, f. 22. janúar 1962, við- skipta- og hagfræðingur. Sam- býliskona Guðlaug Erla Gunn- arsdóttir, börn þeirra eru Gunnar Oddgeir og Þórunn Hvönn. 6) Dagný, f. 30. maí 1966, sjúkraliði og tækniteikn- ari, maki Jón Reynir Vilhjálms- son, synir þeirra eru Vilhjálm- ur, Kristinn og Stefán. Útför Hrefnu Dóru verður gerð frá Digraneskirkju í Kópa- vogi í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Í ljóði skáldsins Einars Bene- diktssonar ,,Móðir mín“, er eitt er- indi á þessa leið. Og þegar ég leiddi í langför mitt skip og leitaði fjarlægra voga, ég mundi alltaf þinna anda og svip. – Þú áttir hjarta míns loga. Og þitt var mitt ljóð og hvert gígjugrip. Þú gafst mér þinn streng og þinn boga. Þetta fallega erindi er mér of- arlega í huga þegar ég kveð móður mína. Minningu hennar og mynd varð- veiti ég í þakklátum huga og hjarta. Ég bið góðan Guð að leiða hana inn í ríki sitt, blessi hann minningu Hrefnu Dóru Tryggvadóttur móður minnar. Sveinbjörn Einarsson. Elsku mamma mín. Við fæðumst og hverfum. Við horfum í húmið í fáein ár. En örlögin rista rúnir í rökkrið bros og tár. En þegar mannssálir mætast, – þótt myrkrið sé autt og kalt – þá ganga þó titrandi geislar í gegnum rökkrið og allt. (Guðmundur I. Kristj.) Guð blessi minningu þína. Kristjana. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Með þessum orðum langar mig að kveðja mömmu mína, Hrefnu Dóru Tryggvadóttur, sem var yf- irleitt kölluð Dóra. Ótal minningar sækja á hugann, litríkar og góðar bernskuminningar. Þótt vega- lengdin í kílómetrum á milli okkar mömmu hafi verið löng vorum við góðar vinkonur og spjölluðum sam- an símleiðis nánast daglega, að ógleymdum öllum heimsóknunum. Mamma var einstök kona, hún kom til dyranna eins og hún var klædd, til þín frá mér var hún vön að segja og enga væmni. Hún var vön því að vera veitandi, þarfir annarra setti hún oftar ofar sínum eigin. Hún var mjög stolt af börnum sínum og barnabörnum, var amma fram í fingurgóma og vildi allt fyrir alla gera. Hún fylgdist vel með því sem var að gerast í fjölskyldunni og með þjóð- og heimsmálum. Það var gott að leita til mömmu með allt mögulegt, alltaf studdi hún mig og hvatti þegar þess var þörf, hún hefur alltaf verið til staðar og mun verða áfram. Mamma greindist með krabba- mein síðastliðið sumar og fór í mikla skurðaðgerð og geislameð- ferð í kjölfarið. Á sama tíma flutti hún í nýja íbúð í Gullsmáranum í Kópavogi sem hún var mjög ánægð með, kom hún sér þar vel fyrir og naut sín. En í fyrstu viku maí var hún lögð inn á Landspítala og fyrir hvítasunnu var okkur systkinunum tjáð í hvað stefndi. Þegar ég sat við sjúkrabeð hennar sá ég hversu mjög dró af henni þar til hún kvaddi þennan heim 2. júní síðast- liðinn. Þú hlærð svo himnarnir ljóma. Á heillandi dans minna öll þín spor orð þitt er ilmur blóma ást þín gróandi vor. Sál þín ljósið sem ljóma vefur löndin bræðir og hjartað kalt. Ein og sama eilíf tengir allt sem var og koma skal. Í hvílunni enginn jafn sólhvít sefur þú gefur og gefur allt. (Davíð Stef.) Elsku mamma, hvíl þú í friði. Guð blessi þig. Þín dóttir Erla. Hvernig kveður maður móður sína? Ég kvaddi hana með kossi og sagði henni hvað mér þætti vænt um hana. Mamma vildi engar lof- ræður eða skrif um sig, en hún átti svo marga góða kosti. Mamma mín var vel gefin og falleg kona. Hún var oft á undan sinni samtíð í hugs- un og orði og þar að auki mikill femínisti. Þó var hún ekki ánægð með hag kvenna og hvernig okkar kynslóð hefði klúðrað hlutunum, og mátti maður hafa sig allan við til að verja sig hvað það snerti. Í hennar forgangsröðun í lífinu voru börnin hennar fremst og lagði hún kapp á að við menntuðum okkur, enda öll systkinin vel menntuð. Mamma var mjög pólitísk og snerust umræður oft um pólitík og var reyndar oft rifist ef því var að skipta. Hún var ekki ánægð ef maður kaus vitlausan flokk, en gladdist ef maður þrosk- aðist og kaus rétta flokkinn að hennar mati. Mamma var ekki fé- lagslynd kona, þó fannst henni allt- af gaman að fara ýmislegt og vera innan um börnin sín, en oftast kaus hún frekar að fá sér göngutúra og lesa góðar bækur sem hún hafði mjög gaman af og gat maður gengið að því vísu að fá upplýsingar hjá mömmu um margar bækur, og hafði hún gaman af því að segja manni frá góðum bókum sem hún hafði lesið. Í spjalli við mömmu gegnum tíðina fann ég hvað hún gat komið vel fyrir sig orði ef henni sýndist svo, og alltaf var hún hrein- skilin. Hún fylgdist vel með þjóð- málum og tók virkan þátt í þjóð- félagsumræðum, og þegar hún var orðin mjög veik undir lokin vildi hún fylgjast með fréttum og út- komu úr sveitarstjórnarkosning- um. Ég er þakklát móður minni fyrir margt, og þó sérstaklega fyrir hvað hún hugsaði vel um og annaðist Kristínu dóttur mína þegar hún var lítil og studdi mig í veikindum hennar. Kristín á um sárt að binda við fráfall hennar og syrgir hana sárt. Mikið á maður margar minning- ar um mömmu, en þær verða ein- ungis geymdar í hjartanu, ekki á blaði. Þegar hún greindist með krabbamein og fór í aðgerð fyrir ári vonaði maður að allt gengi vel, hún var svo dugleg og æðrulaus í veik- indum sínum. Hún átti þokkalegt ár, og það voru ekki nema þrjár vik- ur sem við systkinin fengum til að kveðja hana. Gangur sjúkdómsins var hraður þegar hann tók sig upp. Ég er þakklát fyrir að hafa feng- ið að vera hjá henni og hlúa að henni eins og ég gat síðustu vikur og daga ævi hennar. Þar fann ég þann mikla styrk sem bjó innra með henni. Elsku besta mamma mín, mjúk er ávalt höndin þín. Tárin þorna sérhvert sinn sem þú strýkur vanga minn. Vertu sæl, mamma mín. Hvíl þú í friði. Þín dóttir Lilja. Morgunmaturinn bragðaðist misjafnlega þennan dag þegar lítill hnokki smakkaði leifar af morgun- mat systkinanna sem farin voru í skólann. Á boðstólum var hálfklár- að kornflex í skál sem var gegn- blautt í volgri mjólk og lint. Honum þótti það heldur betra nýtt og stökkt með kaldri mjólk eða nýr- istað brauð með rúllupylsuáleggi og beið þess vegna eftir að móðir hans kæmi til þjónustu reiðubúin eins og endra nær. Þegar svo var komið til- kynnti hann að nú væri kominn tími til að hann færi í skólann líkt og stóru systkinin og smurði hún þá líka nesti í poka fyrir hann í skóla- tösku sem í var bók og blýantur. Eftir að hafa kvatt móður sína fór hann út í kofa sem var í smíðum á lóðinni heima og kláraði samlok- una. Heldur fór lítið fyrir lestri og skrift þennan daginn því þegar mjólkurflaskan var tæmd var at- hyglin kominn í verklegar fram- kvæmdir sem ekki máttu bíða leng- ur. Farið var að moka sandi á pallinn á þríhjólinu og rótast í drullupolli sem hafði mikið aðdrátt- arafl fyrir peyja á þessum aldri. Ekki leið á löngu fyrr en honum var orðið kalt enda hreinu fötin hans öll orðin útötuð í mold og blaut í gegn en þá var bara farið heim þar sem ný og pressuð föt biðu rétt eins og þau byggjust við því að svona færi. Ekki var alltaf skynjað hvaðan gott kom og þakklætið lét oft á sér standa. Svona minningabrot streyma nú í gegnum hugann þessa síðustu og erfiðu daga eftir að móðir mín kvaddi þennan heim eftir erfið veikindi. Hún ólst upp í hópi níu systkina þar sem æskuheimilið ein- kenndist af miklum gestagangi og mannlífi. Þar undi amma sér vel í eldhúsinu og var heimilishaldið þá með allt öðrum hætti en tíðkast nú á dögum. Með sama hætti var mamma heimavinnandi húsmóðir og lagði allan sinn metnað í heimilið og þjónustu við sína nánustu. Hún hafði mikla þörf fyrir að hafa allt í röð og reglu og var mjög öguð í því sem hún tók sér fyrir hendur. Með alúð og umhyggju vann hún verk sín í hljóði en var jafnframt skap- mikil og ákveðin að eðlisfari. Henni var mjög umhugað um að börnum hennar vegnaði vel, öfluðu sér menntunar og tileinkuðu sér sam- viskusemi í því sem þau tækju sér fyrir hendur. Þegar veikindi henn- ar fóru að ágerast kom svo enn og aftur í ljós úr hverju hún var gerð. Með hugrekki og æðruleysi tókst hún á við að undirbúa sig undir langt ferðalag eins og hún orðaði það. Ég vil með þessum orðum þakka þér, elsku mamma mín, fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og vona að þú sért nú komin á leið- arenda til himnaríkis. Um jökla vafðist júnínóttin blá, úr jörðu spruttu silfurtærar lindir. Við áttum vor, sem aldrei líður hjá og elda sína bak við höfin kyndir. Ég þráði aldrei dagsins dyn og glaum, mig dreymdi líf, sem æðri fegurð spáir, og einni sál ég sagði þennan draum, og síðan á ég vin, er hjartað þráir. (Davíð Stef.) Kveðja. Óli. Elsku mamma. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Hvert blóm sem grær við götu mína er gjöf frá þér og á þig minnir allt hið fagra sem augað sér. Sól og jörð og svanir loftsins syngja um þig. Hvert fótspor sem ég færist nær þér friðar mig. (Davíð Stef.) Blessuð sé minning þín, elsku besta mamma mín. Þín dóttir Dagný. Amma okkar var frábær, hún var svo góð við okkur. Við fórum svo oft til hennar enda vorum við alltaf velkomnir. Við gerðum margt skemmtilegt saman. Stundum fórum við í strætó í Kringluna eða í Mjóddina. Oft horfðum við bara á sjónvarpið eða spjölluðum saman. Þegar við komum til hennar gaf hún okkur alltaf eitthvað gott að borða og snerist í kringum okkur svo að mömmu þótti nóg um. Ekki má gleyma því að við máttum líka vasast í eldhúsinu hennar eins og við vildum og var margt brallað þar. Amma átti alltaf nammi, það var gaman að fá að fara með henni út í búð og velja nammið í stóra nammi- boxið hennar. Amma var oft hjá okkur um jólin, það var svo gaman að hafa hana hjá okkur. Hún var svo stolt af okkur og var óspör á að segja okkur hvað við værum góðir og duglegir strákar. Já, hún amma okkar var besta amma í heimi. Elsku amma, við eigum svo margar góðar minningar um þig sem við munum geyma í hjörtum okkar. Þínir Vilhjálmur, Kristinn og Stefán. Elsku amma, hafðu þökk fyrir allt. Sjá, nóttin er á enda nú árdagsgeislar senda um löndin ljós og yl. Í nafni náðar þinnar ég nú til iðju minnar minn Guð, að nýju ganga vil. (H. Hálfd.) Hví í friði. Þínar Hrefna Dóra og Þórhildur. Elsku amma mín, ég sakna þín svo mikið. Þegar ég kem til Reykjavíkur hef ég enga ömmu til að heimsækja. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesú, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgr. Pét.) Guð geymi þig, elsku amma mín. Þín Selma Lind. Elsku amma. Við kveðjum þig með söknuði. Minningarnar koma upp í hugann. Við bræðurnir minn- umst þeirra ógleymanlegu stunda þegar við komum í bæinn með mömmu og pabba og vorum hjá þér í Strandaselinu. Við brölluðum svo margt. Hver dvöl rifjast upp fyrir okkur eins og lítið ævintýri. Þú svo hlýleg, elskuleg og passaðir að við fengjum alltaf nóg að borða. Eftir að við bræður fluttumst í höfuðborgina til að stunda okkar nám var þín einlæga gestrisni og ástúð enn í fyrirrúmi. Við varla komnir inn úr dyrunum þegar brauð, bakkelsi og hálfur ísskápur- inn var kominn á borðið. Þá var sest niður og farið yfir þjóðmálin. Þótt þú værir komin á efri ár náðirðu að fylgjast með málum ungu kynslóð- arinnar og lést ekkert framhjá þér fara.Við grínuðumst alltaf með það að amma ætti að vera á þingi. Þegar við heimsóttum þig á spít- alann, og þú orðin mjög veik, var samt alltaf stutt í grín og glens hjá þér. Gerðir grín að hversu litlum skóm Palli klæddist og spaugaðir með það að kominn væri tími á að Einar færi nú að gifta sig. Þrátt fyrir þín erfiðu veikindi áttum við þar góðar stundir. Elsku amma. Takk fyrir allt. Guð blessi þig. Einar Sveinn og Páll Birgir. Elsku amma mín. Nú ertu farin til guðs. Þó að ég eigi eftir að sakna þín mjög, þá á ég svo margar góðar minningar um þig. Þú varst dugleg að passa mig þegar ég var veik eða mamma þurfti að fara að vinna. Þú komst mér alltaf til að hlæja, sama hvað var að. Ég man að þegar ég gisti hjá þér þegar ég var lítil vaktir þú mig oft með tei eða heitu kakói og ristuðu brauði, eða kandís sem þú gafst mér í stað sælgætis. Hve oft gátum við ekki setið saman yfir kaffibolla og spjallað um allt milli himins og jarðar. Ég man hvað það var gaman að vera hjá þér, en nú verðum við ekki saman aftur fyrr en ég kem til guðs. Þú varst yndisleg kona og ég þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Nú kveð ég þig að sinni og bið guð að geyma þig. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Þín Kristín Björk. Elsku amma, því þurftir þú að deyja svona fljótt, gast þú ekki lifað aðeins lengur? Það var svo gaman að vera hjá þér og þú varst alltaf svo góð við mig. Þegar við komum í heimsókn gafstu mér og Þórunni kókópufs og nammi og svo passaðir þú líka Tíst páfagaukinn minn. Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson) Gunnar Oddgeir Birgisson. HREFNA DÓRA TRYGGVADÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.