Morgunblaðið - 11.06.2002, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 11.06.2002, Qupperneq 48
DAGBÓK 48 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag er Helgafell væntanlegt og út fer Akraberg. Hafnarfjarðarhöfn: Í gær komu Gerarda, Sel- foss og Tasirmiut. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Hamraborg 20a. Fataúthlutun í dag kl. 17–18. Mannamót Norðurbrún 1 og Furu- gerði 1. Farið verður í Húsafell fimmtud. 13. júní steinasafn Páls skoðað og í gömlu kirkj- una að Húsafelli. Um nestisferð er að ræða, þ.e. fólk taki með sér nesti. Uppl. í Norð- urbrún s. 568 6960 og í Furugerði s. 553 6040. Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, kl. 9.30 bað, kl. 10.15 Búnaðarbanki og kl. 13 vinnustofa. Kirkjuferð, farið verður í Seltjarnarneskirkju mið. 12. júní kl. 13.30. Kaffi- veitingar í boði sókn- arnefndar. Árskógar 4. Kl. 9 bók- band og öskjugerð, kl. 13 opin smíðastofa. Bingó er 2 og 4 hvern föstudag í mánuði. Púttvöllurinn er opin alla daga. Allar uppl. í s. 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8.30– 14.30 böðun, kl. 9–16 handavinna kl. 9–17 fóta- aðgerð, kl. 14–15 dans. Farið verður á Hólmavík fim. 20. júní kl. 8. Skrán- ing í s. 568 5052. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10 samverustund, kl. 14 félagsvist. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 13 fönd- ur og handavinna. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Golf- námskeiðið hjá GKG byrjaði í gær mánudag- inn 10. júní og verður næstu 4 daga. Mæting hjá Golfskálanum í Vetr- armýrinni kl. 13. Fótaaðgerðarstofan tímapantanir eftir sam- komulagi s. 899 4223. Félagsstarf aldraðra í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Jónsmessuferð á Þingvöll, Selfoss og Stokkseyri, mánudag- innn 24. júní. Lagt af stað kl. 15 frá Damos. Uppl. og skráning hjá Svanhildi í síma 558 68014 e.h. Félag eldri borgara á Suðurnesjum og tóm- stundastarf eldri borg- ara fara í sameiginlega óvissuferð miðvikudag- inn 19. júní. Þátttaka til- kynnist fyrir 15. júní. Farin verður 4 daga ferð á Vestfirði, Suðurfirðina, 22., 23., 24. og 25. júlí, nánar auglýst í Suð- urnesjafréttum. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli , Flatahrauni 3. Í dag, brids og frjáls spila- mennska kl. 13.30. Pútt á Hrafnistuvelli kl. 14. Á morgun línudans kl. 11 og pílukast kl. 13.30. Op- ið hús „Sumarfagnaður“ fimmtudag 13. júní kl. 14. Fjölbreytt skemmti- atriði og kaffisaga. Dags- ferð að Skógum miðviku- daginn 19. júní. Allar uppl. í Hraunseli í síma 555 0142. Vest- mannaeyjaferð 2.-4. júlí. Munið að greiða farmið- ana í ferðina í dag eða á morgun kl. 13 í Hraun- seli. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan op- in virka daga frá kl. 10– 13. Kaffi, blöðin og mat- ur í hádegi. Vestmannaeyjar 11.- 13.júní. Brottför frá Ás- garði Glæsibæ kl. 10.30 í dag þriðjudag. Miðviku- dagur: Göngu-Hrólfar fara í létta göngu frá Hlemmi kl. 9.45. Línu- danskennsla Sigvalda kl. 19.15. Fimmtudagur: Brids kl. 13.00. Fundur með fararstjóra Vest- fjarðaferðar verður í Ás- garði Glæsibæ fim. 13. janúar kl. 14. Söguferð í Dali 25.júní, dagsferð. Skráning hafin. Silfurlínan er opin á mánu- og miðvikud. kl. 10-12. í s. 588 2111. Skrifstofa félagsins er flutt að Faxafeni 12, sama símanúmer og áð- ur. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Upplýsingar á skrifstofu FEB. Félag eldri borgara Kópavogi. Farið til Vest- mannaeyja mán. 24. júní með Herjólfi og komið til baka mið. 26. júní. Vin- samlega skráið ykkur sem fyrst. Rútuferð frá Gjábakka kl. 10.15 og Gullsmára kl.10.30, Þátt- tökugjald greiðist til Boga Þóris Guðjóns- sonar fyrir 14. júni. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 opin vinnustofa m.a. tré- skurður, kl. 9–13 hár- greiðsla, kl. 10 leikfimi kl. 12.40 Bónusferð, kl. 13.15 bókabíll. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar,kl. 13.30 „Mann- rækt, trjárækt“ Gróð- ursetning í „Gæðareit- inn“ með börnum frá Leikskólanum Hraun- borg. Á eftir bjóða börn- in upp á veitingar. Kaffi- húsastemmning í Hraunborg. Uppl. á staðnum og í s. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, kl. 14 þriðjudagsganga. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið frá kl. 9–17 há- degismatur alla virka daga, heitt á könnunni og heimabakað meðlæti. Handuvinnustofan er op- in kl. 9.15–16 á þriðju- dögum og mið. kl. 13-16 og fim. kl. 9.15–16. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun, kl. 9.45 banka- þjónusta, kl. 10:30 Söng- stund við píanóið, kl. 13 handavinna. Fótaaðgerð, hársnyrting. Hraunbær 105. Kl. 9 postulínsmálun, kl. 9 glerskuður og trémálun, kl. 10 boccia, kl. 11 leik- fimi, kl. 12.15 versl- unarferð í Bónus, kl. 13 myndlist, kl. 13–17 hár- greiðsla. Mið. 12. júní verður farið í Seltjarna- neskirkju, lagt af stað frá Hraunbæ kl. 13.15. Kaffiveitingar. Jóns- messuferð. 20. júní. Ekið til Þorlákshafnar – Eyr- arbakka – Selfoss og komið við í Kaupfélag- inu. Jónsmessukaffi í Skíðaskálanum. Kaffi- hlaðborð – skemmti- atriði – dans. Lagt af stað frá Hraunbæ kl. 13.30. Skráning á skrif- stofu eða í síma: 587 2888. Háteigskirkja eldri borgarar. Á morgun miðvikudag, samvera, fyrirbænastund í kirkj- unni kl. 11, súpa í Setr- inu kl. 12, spil kl. 13. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 tréskurður og opin vinnustofa, kl. 10 boccia, kl. 9–17 hárgreiðsla. Vesturgata 7. Kl. 9 fóta- aðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15–16 almenn handavinna, kl. 13 spila- mennska. Dagsferð 19. júní kl. 9. Ekið að Skóg- um með viðkomu í kaup- félaginu á Selfossi. Létt- ur hádegisverður Fossbúanum við Skóg- arfoss. Byggðarsafnið á Skógum skoðað. Farið í rjómabúið á Baug- stöðum og leiðsögn þar. Ekið um Eyrarbakka, Stokkseyri og Óseyr- arbrú að Hótel Örk í Hveragerði þar sem snæddur verður kvöld- verður. Heitir pottar og sundlaug á staðnum. Dansað undir stjórn Sig- valda. Leiðsögumaður Nanna Kaaber. Ath. tak- markaður sætafjöldi. Uppl. í s. 562 7077. Sækja miða í síðasta lagi 14. júní. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan, kl. 9.30 morgunstund, og handmennt, kl. 10 leik- fimi, kl. 10.30 boccia, kl. 14 félagsvist. Mið. 19. júní verður farið í rútu- ferð og ekið umÁlftanes, Hafnarfjörð, Heiðmörk, Hafravatn, Mosfellsbæ og nýju hverfin í Graf- arvogi. Kaffihlaðborð verður í Ásláki í Mos- fellsbæ. Allir velkommn- ir. Uppl. í síma 561 0300. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra, leik- fimi kl. 11 í Bláa salnum. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, á mið. kl. 20, svarað í s. 552 6644 á fundartíma. Rangæingafélagið í Reykjavík. Gróðursetn- ingarferð í Heiðmörk, í dag 11. júní. Félagar hittast við reit félagsins við Landnemaslóð kl. 20. Uppl. í síma 847 2548. Í dag er þriðjudagur 11. júní, 162. dagur ársins 2002. Barnabasmessa. Orð dagsins: Ef von vor til Krists nær aðeins til þessa lífs, þá erum vér aumkunarverðastir allra manna. (I.Kor. 15, 19.) LÁRÉTT: 1 kom við, 4 sveia, 7 lestr- armerki, 8 dánarafmæli, 9 lík, 11 numið, 13 púkar, 14 sitt á hvað, 15 líf, 17 þyngdareining, 20 rösk, 22 tálga, 23 sameina, 24 háðsk, 25 tré. LÓÐRÉTT: 1 veiru, 2 sár, 3 spilið, 4 falskur, 5 garfar, 6 gróði, 10 hæðin, 12 guð, 13 stefna, 15 snauð, 16 rög- um, 18 lýkur upp, 19 hafni, 20 veit, 21 ávíta. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 bagalegur, 8 legil, 9 auður, 10 ann, 11 týnir, 13 sorti, 15 dreng, 18 smára, 21 lát, 22 nugga, 23 unaðs, 24 lastabæli. Lóðrétt: 2 angan, 3 aular, 4 efans, 5 Urður, 6 hlýt, 7 grói, 12 inn, 14 orm, 15 dund, 16 eigra, 17 glatt, 18 stubb, 19 áfall, 20 ansa. K r o s s g á t a Víkverji skrifar... LÍFIÐ er fótbolti. Helstu spark-endur þessa heims hafa heldur betur haldið manni við efnið í Japan og Suður-Kóreu. Heimsbikarmótið fer vel af stað. Það vekur ekki minnsta athygli hversu böksulega mörgum af „stóru“ sparkþjóðunum gengur að fóta sig þar eystra. Þjóð- verjar eru hvergi öruggir um að komast áfram í 16 liða úrslit, Ítalir og Argentínumenn eru í vandræðum í sínum riðlum og líf sjálfra heims- meistaranna, Frakka, hangir á blá- þræði. Þeir þurfa að leggja Dani, með tveimur mörkum, til að skríða áfram. Og það verður hvorki létt verk né löðurmannlegt, eins og við Íslendingar vitum þjóða best. Þar að auki hafa blessaðir heimsmeistar- arnir ekki enn gert mark í keppninni, eru þar samskipa Sádum, sem seint teljast til framsækinna sparkenda. Frakkar eiga þó tromp á hendi, Zin- edine Zidane, ókrýndan knattkóng heimsins, sem gróinn er sára sinna og reiðubúinn að klekkja á Dönum. Víkverji vonar að Frakkar skili góðu dagsverki, því jafnvel þó hann sé al- inn upp við ást og virðingu fyrir Dön- um, eru heimsmeistararnir, þrátt fyrir allt, með sprækustu sparksveit heims, þegar sá gállinn er á þeim. x x x ANNARS er Víkverji á bandiEnglendinga í keppninni. Hann varð því ekkert lítið glaður þegar örgustu andstæðingarnir, Argent- ínumenn, voru beygðir í torf fyrir helgina. Þar var komið fram sætum hefndum – loksins. Argentínumenn gerðu Englendingum nefnilega þann óleik að slá þá út úr heimsbikar- mótinu árin 1986 og 1998. Kunni Vík- verji þeim litlar þakkir fyrir. Enn jók það á beiskjuna að báðir sigrar voru umdeildir. 1986 gekk sjálft almættið í lið með Argentínu, tók sér bólfestu í fyrirliðanum, Diego Maradona, og gerði útslagið. Fyrst með höndinni, en almættið gegnir bersýnilega ekki lögmálum sparksins, og síðan með ógleymanlegum einleik. Ræðir hér um tvö af frægustu mörkum heims- bikarmótssögunnar. 1998 þurfti síð- an vítaspyrnukeppni til að skilja sveitirnar að eftir að David Beckham var vikið af velli að undangengnum lævísum látbragðsleik Diegos Sim- eone. Rivaldo er ekki fyrsti Suður- Ameríkumaðurinn sem særir rétt- lætiskennd manna á HM. En hefndin er sæt og hafi almætt- ið gengið í lið með Jakobi lambhærða forðum var réttlætið svo sannarlega við völd er Beckham skaut erkióvin- inn niður að þessu sinni. Fjögurra ára farg fauk út í vindinn. x x x OG FYRIR þá sem fylgja forlög-unum má geta þess að síðast þegar England lagði Argentínu á HM, með marki Geoffs Hurst 1966, kom heimsbikarinn sjálfur í kjölfar- ið. Engin lognmolla var yfir þeim leik, frekar en endranær, og er hans helst minnst fyrir eina umdeildustu brottvísun sem um getur á heimsbik- armóti. Fyrirliði Argentínu, Rattin, var þá sendur í bað af þýskum dóm- ara leiksins, öllum á óvörum. Upp- hófst mikil rekistefna. Eftir dúk og disk gekk Rattin af velli, hægum skrefum, felmtri sleginn, enda lag- anna verðir farnir að baða út öngum á hliðarlínunni. Og ástæða brottvís- unarinnar? „Ég kunni ekki við augnaráðið,“ sagði dómarinn. Áfram England! Er þetta leyfilegt? ELLILÍFEYRISÞEGI kom á Tryggingastofnun með nótur fyrir læknishjálp og fékk endurgreiðslu og af- sláttarkort. Var hann rukk- aður um kr. 300 fyrir kortið. Er þetta leyfilegt? Stefana. Fyrirspurn HVERNIG gengur smíði nýs varðskips, hvenær er von á því til landsins og hvar er verið að smíða það? Þar sem óhöppin gera ekki boð á undan sér, af hverju eru ekki áhafnir þyrlunnar á vöktum úti á flugvelli í staðinn fyrir að vera heima hjá sér og bíða eftir útköllum? Hvað er langt í það að nætursjónauki verði keypt- ur fyrir þyrluna? Hvað er það sem tefur? Hvar er fyr- irhuguð framtíðarhafnarað- staða varðskipanna? Með von um að einhver geti svarað þessum spurn- ingum. Hafliði Helgason. Styttan lagfærð SVOLEIÐIS er að í borg- inni hafa margar styttur verið lagaðar en ég hef tekið eftir því að það er aldrei neitt hlúð að styttunni af Jóni Sigurðssyni á Austur- velli en styttan er að grotna niður. Fyrir 2 árum gekk ég yfir Austurvöll og spurði þá mig útlendingur af hverjum styttan væri og sá ég þá að styttan var ómerkt. Er ekki kominn tími til að lagafæra styttuna því þetta er til skammar? Jóna. Sumarspegillinn HVERNIG stendur á því að Sumarspegillinn er auglýst- ur í dagskrá dagblaðanna en er ekki á dagskrá? Kristín. Dýrt í strætó ÉG er ung stelpa sem ferðast mikið með strætó því að ég er ekki komin á bílprófsaldur. Ég vil koma því á framfæri hvað mér finnst ótrúlega dýrt að kom- ast leiðar sinnar nú til dags. Ég þarf að borga 200 krón- ur aðeins til þess að komast aðra leiðina og svo aftur 200 krónur til baka. Ég vil bara hvetja þá sem ráða þessu að lækka þetta verð. Ein óánægð. Sammála Björk ÉG er hjartanlega sammála Björk sem skrifar um barnasíður Morgunblaðsins og myndina Spiderman. Ég las um daginn myndagagn- rýni um Spiderman sem bönnuð er innan 10 ára. Það var 7 ára gamall gutti sem sá um hana þann daginn! Þetta tel ég algjörlega óvið- eigandi af umsjónarmanni barnasíðunnar. Guðrún. Tapað/fundið Reebok-skór týndust SVARTIR erobik-skór, Rebook, týndust föstudag- inn 17. maí, líklega í leigu- bíl. Skilvís finnandi hafi samband í síma 552 3678. Fundarlaun. Gullkross og vettlingar á Seltjarnarnesi FYRIR nokkrum vikum tapaðist gullkross á Sel- tjarnarnesi. Krossinn er með faðirvorið áletrað á bakhliðinni og hefur mikið tilfinningalegt gildi fyrir eigandann sem fékk kross- inn í fermingargjöf. Einnig töpuðust í vetur svartir ull- arvettlingar með öðrum hvítum ullarvettlingum inn- aní. Skilvís finnandi vinsam- legast hafi samband í síma 865 4859 eða 562 2176. Gleraugu GLERAUGU, með rauðri spöng, í svörtu hulstri með spegli, týndust sl. miðviku- dag, sennilega í Heiðmörk á Urriðavatnslandi. Skilvís finnandi hafi samband við Maríu í síma 557 1001 eða 824 6990. Dýrahald Dimma er týnd DIMMA er eins árs læða, hún hvarf að heiman frá Garðhúsum 14 í Grafarvogi aðfaranótt fimmtud. 30. maí. Hún var með rauða ól um hálsinn og gulllitaða tunnu með nafni sínu í. Ef þið sjáið hana eða hafið séð hana, vinsamlegast hafið samband í síma 557 9224 eða 847 0794. Fundarlaun. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 ÞAÐ BER víst að þakka fyrir það sem vel er gert. Þess vegna ætla ég nú að koma á framfæri innilegu þakklæti til dag- skrárdeildar Ríkissjón- varpsins fyrir að taka þáttinn Leiðarljós aftur á dagskrá 1. ágúst. Svo finnst mér að þeir sem hafa verið að kvarta und- anfarin ár yfir því að Morgunblaðið kæmi ekki út daginn eftir frídaga ættu nú að stinga niður penna og þakka fyrir mjög svo bætta þjónustu blaðs- ins í þessum efnum. Ég ætla að nota tækifærið og þakka nú fyrir frábært framtak Morgunblaðsins. Sævar Halldórsson. Það sem vel er gert

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.