Morgunblaðið - 11.06.2002, Qupperneq 50
UNDIRBÚNINGUR fyrir brúðkaup
fyrrverandi Bítilsins Sir Pauls
McCartneys og Heather Mills hefur
verið í fullum gangi síðustu daga
en þau verða gefin saman í dag.
Hjónaleysin ræddu við fjölmiðla í
gær en talsmaður Sir Pauls sagði
að parið hefði ákveðið að ræða við
aðdáendur og blaðamenn í þakk-
arskyni fyrir þolinmæði þeirra en
fjöldi manna hefur haldið sig við
kastalann síðustu daga.
Ekki eru þó allir á eitt sáttir með
framkvæmd brúðkaupsins en ein-
hverjir þorpsbúar í Glaslough hafa
kvartað yfir því að hjónakornin til-
vonandi styðji ekki nægilega við
bakið á verslun í héraðinu og flytji
alltof mikið af hlutum inn fyrir at-
höfnina.
Blómasölukona í þorpinu, Aileen
Scott, kvartaði yfir því að blómin
væru sérstaklega flutt inn frá Hol-
landi. „Þau versla ekkert á svæð-
inu. Það er meira að segja búið að
senda starfsfólk kastalans í burtu,“
sagði hún.
Leslie-kastali, sem er nú lúx-
ushótel, hefur verið umsetinn
blaðasnápum síðan fregnir láku út
í síðustu viku um að brúðkaups-
veislan færi þar fram.
McCartney, 59 ára, og Mills, 34
ára, verða gefin saman í St. Salva-
tor-kirkju, sem er inni á landareign
Leslie-kastalans í Monaghan-sýslu
á Írlandi.
Um 300 gestum er boðið til brúð-
kaupsveislu í kastalanum að athöfn
lokinni en í boðskortinu er þó farið
þess á leit við gestina að skilja
myndavélarnar eftir heima.
Fyrrverandi Bítillinn Ringo
Starr flaug frá Bandaríkjunum til
að vera viðstaddur brúðkaup fé-
laga síns en hann mun að sögn
flytja ljóð brúðhjónunum til heið-
urs. Ljóðið er frumsamið en byggt
á textanum við lagið „All You Need
Is Love“, sem einhverjir telja sig
hafa vissu um að sé uppáhalds
Bítlalag McCartneys.
Sir Paul McCartney og Heather Mills
Pússuð saman í dag
Reuters
Kastalinn í Monaghan-sýslu þar sem veislan mun fara fram í dag.
Hjónin tilvon-
andi kysstust
innilega er þau
ræddu við
blaðamenn utan
við kastalann
góða í gær.
FÓLK Í FRÉTTUM
50 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Leikgerð: Guðrún Vilmundard. og Hilmar Jónss.
Fi 13. júní kl 20
ATH: Síðustu sýningar í vor
COSI FAN TUTTE - W.A. Mozart
Óperustúdíó Austurlands
Stjórnandi Keith Reed
Lau 15. júní kl 20 - Frumsýning í Rvík
Su 16. júní kl 17 - Síðasta sýning
JÓN GNARR
Fi 13. júní kl 20 - SÍÐASTA SINN
Ath. Afsláttur sé greitt með MasterCard
PÍKUSÖGUR Á VOPNAFIRÐI
Í kvöld kl 20:30 í Miklagarði
Stóra svið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
LEIKFERÐ
3. hæðin
Í HLAÐVARPANUM
„Pure grass“
Bruce Noll flytur dagskrá ljóð-
skáldsins Walt Whitman
Í kvöld, þriðjudaginn 11. júní kl. 21.00
" #
$
%
&
%
%
'
%
HÁPUNKTUR sumarsins er í
margra hugum árleg tónlistarhátíð í
bænum Hróarskeldu í Danmörku.
Sem fyrr munu Íslendingar eiga sína
fulltrúa á svæðinu, bæði meðal gesta
og gangandi, en einnig munu tvær ís-
lenskar hljómsveitir leika fyrir við-
stadda, Mínus og múm.
Mikill spenningur er yfirleitt fyrir
því hvaða hljómsveitir muni láta sjá
sig á hátíðinni og hafa þær stærstu
verið að staðfesta komu sína á síðustu
vikum. Endanlegur listi yfir þær
hljómsveitir og tónlistarmenn sem
fram koma á hátíðinni liggur nú fyrir
og telur hann tæplega 160 nöfn.
Stærstu númerin í ár eru án efa til-
vonandi Íslandsvinirnir í Travis, fyrr-
verandi Íslandsvinirnir í Garbage og
Rammstein auk Red Hot Chili Pep-
pers, The Cemical Brothers, P.
Diddy, Primal Scream, Pet Shop
Boys og Manu Chao.
Auk þessara stóru nafna munu
heiðra samkomuna með nærveru
sinni hinn sænskættaði Bob Hund,
söngkonurnar Erykah Badu, Aimee
Mann og Nelly Furtado, Alec Emp-
ire, The Beta Band, Spiritualized,
Starsailor, Kent, þungarokkarsveit-
irnar Manowar og Slayer, dúettinn
White Stripes svo fátt eitt sé nefnt.
Fulltrúar Íslands eru að þessu
sinni tveir eins og áður sagði. Þar er
um að ræða rokk og raftónlist, Mínus
og múm.
Þó að tónlistin verði vissulega í að-
alhlutverki á Hróarskelduhátíðinni
verður margt annað í boði fyrir tón-
leikagesti. Hátíðina ber að þessu
sinni upp á helgina 27. til 30. júní og
glöggir knattspyrnuáhugamenn gefa
því trúlega gaum að heimsmeist-
arakeppninni í fótbolta verður ekki
lokið þá. Áhugasamir geta þó fylgst
með leikjum helgarinnar á stórum
skjám sem komið verður fyrir víðs-
vegar um tónleikasvæðið. Einnig
gefst tónleikagestum kostur á að fara
í bíó og eyða tímanum í alls komar
útivist á borð við körfubolta og blak.
Það eru Stúdentaferðir, Exit.is,
sem sjá um að útvega íslenskum Hró-
arskelduförum aðgöngumiða þetta
árið. Að sögn Ingu Engilberts hjá
Stúdentaferðum hafa þegar selst um
200 miðar og er hún sannfærð um að
talan eigi eftir að hækka þegar líða
tekur á mánuðinn.
„Salan hefur verið aðeins dræmari
en í fyrra en þá seldust á sjötta
hundrað miðar,“ segir Inga. „Ég
ímynda mér að þetta verði svona í
kringum 300 manns sem fara frá Ís-
landi en það er alveg hægt að verða
sér úti um miða fram að brottför.“
Miðinn á Hróarskeldu kostar 12
þúsund krónur og tryggir hann eig-
andanum aðgang að öllum tónleikum
hátíðarinnar og plássi á tjaldstæði
svæðisins.
Hróarskelduhátíðin í Danmörku
Rokkað í Danaveldi
Shirley Manson mun leiða hljóm-
sveitina Garbage á Hróarskeldu-
hátíðina í sumar.
TENGLAR
.....................................................
www.exit.is
www.roskilde-festival.dk
ÞAÐ sem einkennir vinsælustu bíó-
myndirnar vestanhafs síðustu helgi
er fjölbreytnin. Njósnamynd með
tilheyrandi hasar og hryðjuverka-
ógn, ljúf „kvennamynd“, grínlöggu-
hasar, geimstríðsmynd, teiknimynd
um frelsisþrá hesta og kolrugluð
gamanmynd í anda lélegra blökku-
mannalöggumynda áttunda áratug-
arins. Eitthvað fyrir alla, eða því
sem næst.
The Sum of All Fears hélt örugg-
lega í efsta sæti tekjulistans eftir að
talið hafði verið upp úr peninga-
kössum kvikmyndahúsanna í
Bandaríkjunum á sunnudagskvöld-
ið. Myndin er nú komin yfir 60
milljóna dollara markið í tekjum,
eða 5,4 milljarða króna, og er við
það að hala inn fyrir kostnaðin-
um sem var tiltölulega lágur mið-
að við það sem Hollywood eyðir
orðið í gerð stórra hasarmynda.
Velgengni myndarinnar kom
mönnum lítið á óvart enda hefur
hún almennt mælst mjög vel fyrir,
bæði meðal gagnrýnenda og al-
mennra áhorfenda. Tvennt kom þó
verulega á óvart þegar tekjur
myndanna sem frumsýndar voru
um helgina lágu fyrir. Annars veg-
ar velgengni litlu „konumyndarinn-
ar“ Divine Secrets of the Ya-Ya
Sisterhood og hins vegar dræmar
viðtökur við Bruckheimer-fram-
leiðslunni Bad Company með Chris
Rock og Anthony Hopkins.
Menn höfðu jafnvel búist við að síð-
arnefnda myndin, sem er löngu
tilbúin en var frestað vegna atburð-
anna 11. september, yrði ein af
stóru myndum sumarsins en að
lenda í fjórða sæti um frumsýning-
arhelgina með 10 milljónir dollara
(890 milljónir króna) í tekjur hlýtur
að teljast mikið áfall fyrir aðstand-
endur, enda hafa fjölmiðlar vestra
talað um að fyrsti stóri skellur sum-
arsins sé orðinn að veruleika.
Spekingar telja skýringuna á vel-
gengni Divine Secrets
of the Ya-Ya Sister-
hood, sem er stjörnum
hlaðin og skartar m.a.
Söndru Bullock, Ashley
Judd, Ellen Burstyn og
Maggie Smith, liggja í augum uppi,
allt íþróttaefnið sem er í boði þessa
dagana, úrslitakeppni í íshokkíi og
körfubolta vestanhafs, bardagi
Lewis og Tyson og HM í knatt-
spyrnu hljóti hreinlega að hafa
hrakið konur úr húsi og í bíó, en
samkvæmt aðstandendum sást
varla karlmaður á myndinni um
helgina.
Bíóaðsókn í Bandaríkjunum
Hryðju-
verk og
sauma-
klúbbur
! "#"$$$
% & !' $$$
()*+ ,
+ )#-
+ & *
. )!(
/
0 1
2 (,
Bandarísk kvenþjóð
tók Leyndarmál Ya
Ya-saumaklúbbsins
fram yfir íþrótta-
veislu helgarinnar.
skarpi@mbl.is