Morgunblaðið - 11.06.2002, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 11.06.2002, Qupperneq 56
Morgunblaðið/RAX Migel Lamb frá Ródesíu reynsluflaug flugvél Arngríms Jóhannssonar. NÝRRI sérsmíðaðri listflugvél var reynsluflogið í Mosfellsbæ í gær og var Arngrímur Jóhannsson, annar eigandi Flugfélagsins Atlanta og eigandi vélarinnar, hinn kátasti að fluginu loknu. Um íslenska smíði er að ræða og hafa 11 manns komið að verkinu, að sögn Arngríms. Vélin er byggð á svonefndri Pitts S2C vél, sem var fyrst smíðuð 1954, en henni hefur verið gjörbreytt með stærri vél og stærra stýri. „Þessi vél hefur verið fimm ár í smíðum og við köllum hana Pitts S2X því hún er miklu meiri en allar aðrar,“ segir Arn- grímur og bætir við að hjartað hafi hætt að slá þegar hann hafi horft á vélina fara í loftið í fyrsta sinn. Vélin er tveggja manna og fékk Arngrímur kennara sinn í listflugi, Ródesíumanninn Migel Lamb, til að reynslufljúga henni, en Arngrímur sýnir hana á Oshkosh-flugsýning- unni í Wisconsin í sumar. Sýningin stendur frá 23. til 29. júlí og er áætlað að um ein milljón gesta sæki hana. Horft til himins á eftir vélinni í gær. Frá vinstri: Hilary Lamb, Arngrímur Jóhannsson, Lárus Atlason, flug- rekstrarstjóri Atlanta, og Tristan Holbrook, flugmaður hjá Atlanta. Reynslu- flugið tókst vel MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. VÍSINDATÍMARITIÐ Nature Genetics birtir í júlíhefti sínu og á vef- síðu í gær grein eftir vísindamenn Ís- lenskrar erfðagreiningar þar sem lýst er hinu nýja erfðakorti, sem unnið var innan fyrirtækisins. Eins og Morgun- blaðið greindi frá 30. nóvember síð- astliðinn varð ÍE fyrst fyrirtækja til að ljúka gerð nákvæms erfðakorts af erfðamengi mannsins. Ákváðu stjórn- endur fyrirtækisins að erfðakortið yrði aðgengilegt vísindamönnum um allan heim þegar grein um smíði kortsins hefði birst í vísindatímariti. Í greininni kemur meðal annars fram að vísindamennirnir fundu 104 villur í útgefinni raðgreiningu á erfða- mengi mannsins, sem Human Gen- ome Project (HGP) og fyrirtækið Cel- era birtu upphaflega árið 2000. Í umfjöllun New York Times um erfða- kortið í gær kemur fram að ÍE hafi bent á villurnar og að leiðréttinga sé þörf á raðgreiningunni. Vísindamenn sem talað er við eru sammála um að erfðakort ÍE sé miklu nákvæmara en fyrri kort sem gerð hafa verið. Haft er eftir dr. Hungtington F. Willard, erfðafræðingi og fyrrverandi forseta Bandarísku mannerfðafræðisamtak- anna, að ekki komi á óvart að leiðrétt- inga sé þörf en þegar í ljós hafi komið svona margar villur vakni spurningar hvort takast megi að ljúka erfða- mengisrannsókninni fyrir apríl á næsta ári eins og vísindamenn hafa gert ráð fyrir. Erfðakortið er talið afar þýðingar- mikið við greiningu á erfðaþáttum sem tengjast sjúkdómum og skv. upp- lýsingum ÍE er það fimm sinnum ná- kvæmara en þau kort sem notuð eru í mannerfðafræðirannsóknum í dag. Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, sagði vísindamenn ÍE afar stolta af að geta nú gert kortið aðgengilegt vísinda- mönnum um allan heim. Gengi hlutabréfa í deCODE Genet- ics, móðurfélagi ÍE, hækkaði um 1,03% á Nasdaq-markaðinum í New York í gær, eða um fjögur sent hlut- urinn. NY Times fjallar um erfðakort ÍE Nákvæmara en fyrri kort  Byggist á/28 Meirihluti Húsa- smiðjunnar seldur Fyrirtæk- ið metið á 5,3 milljarða BÖRN Snorra Halldórssonar, stofn- anda Húsasmiðjunnar, hafa selt allan eignarhlut sinn í fyrirtækinu, um 55% fyrir tæplega 3 milljarða króna. Enn- fremur hefur Íslandsbanki selt eign- arhlut sinn en samtals tekur salan til 70% hlutafjár í Húsasmiðjunni. Kaup- endur eru Árni Hauksson, fjármála- stjóri Húsasmiðjunnar, og Hallbjörn Karlsson, starfsmaður á fyrirtækja- sviði Kaupþings, auk ónafngreindra fjárfesta. Greiða þeir rúma 3,7 millj- arða króna fyrir hlutinn í heild og er virði félagsins samkvæmt þessu met- ið á röska 5,3 milljarða. Stefnt er að því að gera yfirtöku- tilboð í hlutabréf minnihluta í félaginu þegar áreiðanleikakönnun og fjár- mögnun kaupanna liggur fyrir. Gert er ráð fyrir að það verði í ágúst en í kjölfarið verður félagið tekið af skrá Verðbréfaþings Íslands. Hlutabréfin voru seld á 19 krónur á hlut en lokaverð í viðskiptum á VÞÍ í gær var 18,6. Lokagengi föstudagsins var 18,2 en þá hafði verð bréfanna hækkað um 30% frá áramótum.  Keyptu 70% hlut /17 Á FUNDI með lögreglu í gær ósk- uðu félagar í Falun Gong m.a. eftir því að fá að mótmæla í Hljómskála- garðinum fyrir framan skrifstofur forseta Íslands, á Austurvelli og við Tjörnina í Reykjavík í tengslum við heimsókn Jiang Zemin, forseta Kína. Stefán Eiríksson, skrifstofu- stjóri í dómsmálaráðuneytinu, segir að ráðuneytið hafi ekkert við þetta að athuga. Stefán segir að yfirlýsingar frá Falun Gong um hvernig mótmæl- unum verði háttað séu mjög misvís- and og talsmenn hreyfingarinnar séu orðnir nokkuð margir. Sumir segist ætla að hlíta fyrirmælum lög- reglu í einu og öllu og ætli aðeins að stunda æfingar. Aðrir segi að fái Falun Gong ekki þau svæði sem þau hafa óskað eftir muni þau reyna allt til að komast eins nálægt kínverska forsetanum og hægt er. Dómsmálaráðuneytið býst við miklum fjölda Falun Gong-félaga til landsins í dag og á morgun og hefur verið rætt um að halda fólkinu í Njarðvíkurskóla meðan það bíður eftir fari til baka. Dagskrá heim- sóknar kínverska forsetans verður væntanlega ekki birt opinberlega. Ingimundur Einarsson, varalög- reglustjóri í Reykjavík, og fleiri yf- Falun Gong vill skipuleggja mótmæli í Hljómskálagarði, á Austurvelli og við Tjörnina Ráðuneyti gerir ekki at- hugasemdir við staðarvalið Morgunblaðið/Arnaldur Zhi-ping C. Koulouch og Joel Chipkar, fulltrúar Falun Gong, á fundi með þeim Ingimundi Einarssyni, vara- lögreglustjóra í Reykjavík, Karli Steinari Valssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni og Jóni Ólasyni aðalvarðstjóra. irmenn hjá lögreglunni áttu fund með tveimur liðsmönnum Falun Gong í gær þar sem þeir settu fram óskir um að fá ákveðin svæði til að stunda æfingar sínar meðan á heim- sókn forseta Kína stendur. „Í þeirra máli kom fram að þau myndu alfarið fara eftir fyrirmælum lögreglu,“ segir Ingimundur. Ákvörðun um hvar þau fái að mótmæla þarf að taka í samráði við borgaryfirvöld og gatnamálastjóra og ætlar lögreglan að ganga frá erindi til þeirra í dag. Þýskur karlmaður, iðkandi Falun Gong, sem kom með síðdegisfluginu frá Frankfurt, var stöðvaður við Leifsstöð í gær í samræmi við ákvörðun íslenskra stjórnvalda um að synja Falun Gong-félögum um landgöngu hér á landi. Þar sem hann var þegar kominn inn í landið þegar hann var stöðvaður, var að betur athuguðu máli ákveðið að leyfa honum að halda för sinni áfram. Á blaðamannafundi sem Falun Gong-iðkendur héldu í Reykjavík í gær, kom fram að þeir hyggist í einu og öllu hlíta íslenskum lögum og reglum meðan þeir koma boð- skap sínum á framfæri hér á landi. Einnig kom fram að aðgerðir ís- lenskra stjórnvalda, að meina iðk- endum Falun Gong inngöngu í land- ið meðan á heimsókn Jiang Zemin stendur, séu einsdæmi að Hong Kong undanskildu.  Rætt um að halda/10–11 SKIPULAGSSTOFNUN telur að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu geti ekki ákveðið að flytja Reykja- víkurflugvöll í trássi við stefnu stjórnvalda. Stofnunin mælir með því við um- hverfisráðherra að hann setji fyrir- vara við staðfestingu á Svæðisskipu- lagi höfuðborgarsvæðisins 2001–2024, sem nú bíður staðfesting- ar hans, vegna þessa. Flutningur ekki á valdi sveitar- stjórna  Sveitarfélög/12 Reykjavíkurflugvöllur ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.