Morgunblaðið - 23.06.2002, Blaðsíða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 29
VATNSVIRKINN ehf
Ármúla 21 · Sími 533 2020
www.vatnsvirkinn.is
BLANDARAR FYRIR
NUDDPOTTA OG
STURTUR
55
90
140
Heildsala - Smásala
L/Min fyrir 6 sturtur
L/Min fyrir 11 sturtur
L/Min fyrir 25 sturtur
Gasol®
Heimsendingarþjónusta ÍSAGA
nær til Stór-Reykjavíkursvæðisins.
Heimsendingargjald er kr. 500,-
Afgreiðslan Breiðhöfða 11
er opin virka daga frá kl. 8 til 17.
800 5555
Hluti af Linde Gas Group
ÍSAGA ehf. • Breiðhöfða 11
Sími 577 3000 • Fax 577 3001
www.aga.is
IS
A
-2
43
.1
–
ÍD
E
A
KARLAKÓR Reykjavíkur, eldri fé-
lagar, tókst á hendur tónleika-
ferðalag til Gautaborgar á dög-
unum. Héldu þeir þrenna tónleika í
förinni ásamt því að syngja í messu
íslenska safnaðarins í Gautaborg.
Stjórnandi eldri félaga Karlakórs
Reykjavíkur er Kjartan Sig-
urjónsson og stjórnaði hann kórn-
um í ferðinni. Undirleikari var
Bjarni Þór Jónatansson.
„Við vorum að endurgjalda
heimsókn,“ segir Kjartan í samtali
við Morgunblaðið, aðspurður
hvernig ferðin hafi verið til komin.
„Fyrir tveimur árum kom hingað
kór frá Gautaborg sem heitir Par
Bricole. Hann hélt tónleika ásamt
okkur í Reykholti í Borgarfirði og í
Ými, húsi Karlakórs Reykjavíkur.
Þá var talað um að við myndum
endurgjalda heimsóknina, og sú
ferð var farin núna í apríl.“ Alls
voru 45 kórfélagar í ferðinni ásamt
stjórnanda og undirleikara, auk
þess sem eiginkonur margra voru
einnig með í för.
Áður en lagt var af stað í ferðina
hélt kórinn tónleika í Ými, en
fyrstu tónleikar kórsins á sænskri
grundu voru haldnir í kirkju á
Styrsö, sem er eyja í skerjagarð-
inum fyrir utan Gautaborg. Eru
engir bílar notaðir á eyjunni, og
ferðast menn þar um á sérstökum
skellinöðrum sem notaðar eru til
ferða á eyjunni. Aðrir tónleikar
kórsins voru haldnir í sal Par Bric-
ole-kórsins, sem nefnist Valand.
„Báðir kórarnir tóku þátt í þessum
tónleikum,“ segir Kjartan og bætir
við að Svíum hafi þótt mikið til
söngs íslenska kórsins koma. „Eftir
tónleikana var okkur svo haldin
glæsileg veisla. Þar var mikið sung-
ið, en sænsku söngvararnir eru af-
skaplega söngglaðir í veislum og
ferst það mjög vel.“ Síðasti dagur
ferðarinnar, sem var sunnudagur,
hófst með guðsþjónustu íslenska
safnaðarins í Gautaborg. Þar söng
kórinn íslenskt stólvers ásamt
Svövu Ingólfsdóttur söngkonu, sem
búsett er þar í borg, auk þess sem
Kjartan lék á orgelið, en hann er
organisti að aðalstarfi og mennt.
Síðar um daginn hélt kórinn sam-
eiginlega tónleika í kirkjunni með
íslenska kórnum í Gautaborg, sem
tókust með glæsibrag.
„Ferðin í heild var virkilega vel
heppnuð og allir kórfélagar voru
mjög ánægðir með hana,“ segir
Kjartan. Hann segir að sú umræða
hafi komið upp í hópnum að gera
Kanadaferð að næsta viðfangsefni
kórsins, þó að ekkert hafi verið
ákveðið um það enn.
Sá hluti Karlakórs Reykjavíkur
er fór í þessa ferð nefnist Karlakór
Reykjavíkur, eldri félagar. Er hann
þannig til kominn að menn sem eru
hættir í Karlakór Reykjavíkur
starfa þar áfram, ef þeir vilja
áfram taka þátt að nokkru leyti í
kórstarfinu. „Þetta þýðir ekki að
menn séu í raun neitt eldri,“ út-
skýrir Kjartan. „En æfingar eldri
félaga eru ekki eins miklar og
henta því sumum betur. Í vetur
störfuðu með okkur 53 félagar og
starfið hefur verið mjög ánægju-
legt.“
Karlakór Reykjavíkur, eldri félagar, á góðri stundu á tónleikunum á Valand.
Endurguldu tón-
leikaheimsókn
ÁRLEGIR Kammertónleikar á
Kirkjubæjarklaustri verða haldnir í
tólfta sinn, dagana 9., 10. og 11. ágúst.
Í fréttatilkynningu segir að þessi
tónleikaröð hafi skapað sér fastan
sess í íslensku tónlistarlífi yfir sum-
armánuðina.
Mismunandi efnisskrá er á hverj-
um tónleikum og hafa tónlistarunn-
endur komið og dvalið á Kirkjubæj-
arklaustri þessa helgi til að njóta
tónlistarinnar, sumir hverjir ár eftir
ár.
Flytjendur í ár verða þau Signý
Sæmundsdóttir sópran, Sigurður
Flosason saxófónleikari, Pétur Grét-
arsson slagverksleikari, Sif Túlíníus
fiðluleikari, Þórunn Ósk Marínósdótt-
ir víóluleikari, Scott Ballantyne selló-
leikari, Richard Simm píanóleikari og
Edda Erlendsdóttir píanóleikari sem
er einnig listrænn stjórnandi tón-
leikanna.
Í fréttatilkynn-
ingu segir enn-
fremur að efnis-
skráin verði
fjölbreytt að
vanda þar sem
saman fléttast
ljóðatónlist og
kammerverk. Í ár
verður í fyrsta
skipti á efnis-
skránni spuni
þar sem þeir Sigurður Flosason og
Pétur Grétarsson munu sækja efni í
þjóðlegan tónlistararf okkar Íslend-
inga og spinna frjálslega við gamlar
upptökur með stemmum, sálmum,
sögum og kvæðum.
Loks er tekið fram í fréttatilkynn-
ingu að tónleikagestum sem óska eft-
ir að dvelja á svæðinu þessa helgi er
ráðlagt að panta gistingu með góðum
fyrirvara.
Klassík og spuni
á Kirkjubæjar-
klaustri í sumar
Edda
Erlendsdóttir
ANNA Guðný
Guðmundsdóttir
píanóleikari var
tilnefnd sem bæj-
arlistamaður
Mosfellsbæjar
2002.
Í fréttatilkynn-
ingu segir meðal
annars að Anna
Guðný hafi verið
dugleg við að efla
tónlistarlíf í Mosfellsbæ, bæði með
eigin tónlistarflutningi og jafnframt
með því að vera talsmaður og þátt-
takandi í verkefnum eins og Tónlist
fyrir alla, sem miðar að því að efla
uppfræðslu og áhuga barna og ung-
menna á tónlist. Hún er, að því er
segir í tilkynningu, mjög eftirsóttur
samstarfsaðili við flutning á marg-
víslegri tónlist, hvort sem um er að
ræða þátttöku í léttu veislutríói,
kammermúsík, samleik í sinfóníu-
hljómsveit, einleik með eða án
hljómsveitar, eða undirleik hvers
konar.
Ennfremur segir í tilkynningu að
í slíku samstarfi komi fram styrk-
leiki hennar. Þá hefur hún yfir að
ráða miklum sveigjanleika og lipurð,
sem byggð er á mikilli tónlistarlegri
yfirsýn, sem gerir henni kleift að
aðlaga sig að hverju því tónlistar-
formi og tónlistarflytjanda sem hún
starfar með hverju sinni.
Þetta er í sjöunda sinn sem bæj-
arlistamaður Mosfellsbæjar er út-
nefndur en áður hafa hlotið útnefn-
ingu Skólahljómsveit Mosfells-
bæjar, Leikfélag Mosfellssveitar,
Inga Elín myndlistarmaður, Sigrún
Hjálmtýsdóttir söngkona, Sigurður
Þórólfsson silfursmiður, Karlakór-
inn Stefnir og hljómsveitin Sigur
Rós.
Anna Guðný bæjarlista-
maður Mosfellsbæjar
Anna Guðný
Guðmundsdóttir
KARÍBAHAF - sept. uppselt
Hópferð á hálfvirði - næst 7. feb. 03
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA
STÓRA THAILANDSFERÐ
Frábær ferð 16. okt. Lægsta verð.
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA