Morgunblaðið - 21.07.2002, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 21.07.2002, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. hér sérðu debetkort, skólaskírteini, afsláttarkort og alþjóðlegt stúdentaskírteini. 4kort F í t o n / S Í A SKÝLI veita skjól, eins og nafnið gefur til kynna. Þess vegna geta þau verið betri en engin. Sér- staklega þegar regnið dynur á borginni og atorkusamir krakkar hafa verið við leik og störf. Þá get- ur verið notalegt að ræða aðeins um það sem ungt fólk ræðir um. Kannski var Guðrún að láta lita á sér hárið, Bergur að fá sér ógeðs- lega flotta skó eða Gunni að koma heim frá útlöndum. Að minnsta kosti er Sigga „þokkalega svöl“. Morgunblaðið/Kristinn Skjólgóðar umræður TÓNLISTARHÁTÍÐIN árlega Ice- landic Airwaves verður haldin í fjórða sinn hér á landi dagana 16. til 20. október næstkomandi. Fjöldi hljómsveita og tónlistar- manna mun koma fram á hátíðinni, bæði innlendir og erlendir. Að sögn Kára Sturlusonar, hjá Hr. Örlygi sem skipuleggur hátíðina, verða þar fremstir meðal jafningja breski tónlistarmaðurinn Fatboy Slim, sænska hljómsveitin The Hiv- es og íslenska hljómsveitin Gus Gus. Fatboy Slim og The Hives á Airwaves  Fatboy Slim/52 VALGERÐUR Sverrisdóttir við- skiptaráðherra telur það sjálfgefið að ræða þurfi mál sparisjóðanna á Alþingi vegna niðurstöðu Fjármála- eftirlitsins í málefnum SPRON. Um stórt mál sé að ræða. Hún vill ekki kveða upp úr með það nú hvort laga- breytinga sé þörf en segir að sér sýn- ist í fyrstu að áform stofnfjáreigenda gangi ekki upp óbreytt. Valgerður segir að ráðuneyti hennar muni fara gaumgæfilega yfir málið eftir helgi. Hún segist einnig ætla að fela nefnd, sem er að yfirfara löggjöf um starfsemi fjármálafyrir- tækja, að fara í gegnum niðurstöð- una. „Það er afgerandi í niðurstöðunni að hagsmunir sparisjóðsins eru hafð- ir í fyrirrúmi, sem er í sjálfu sér gott, og teknir fram yfir hagsmuni stofn- fjáreigenda,“ segir Valgerður. Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, segir það mikil- vægt að missa aldrei sjónar á því grundvallaratriði að sparisjóðirnir hafi sprottið upp úr félagslegum samtökum og byggðarlögum til þess að þjóna þeim en ekki að skapa eig- endum sínum arð. Síðan hafi stofn- fjáreigendur komið til sögunnar og enginn beri brigður á að þeir geti fengið greitt út stofnfé sitt. Þeir eigi hins vegar ekki tilkall til meginhluta eigna sparisjóðanna. „Hjá Fjármálaeftirlitinu kemur einkum fram tvennt. Annars vegar að ekki virðist vera hægt að banna það að stofnfjárhlutir séu seldir á yf- irverði og hins vegar er skýrt tekið fram að stofnfjáreigendur eigi ekki tilkall til eigna sparisjóðanna á sama hátt og hlutafjáreigendur í hluta- félagi. Af yfirlýsingum talsmanna stóru bankanna, ekki aðeins Búnað- arbanka heldur einnig Landsbanka og Íslandsbanka, má ráða að þeir vilji komast yfir eignir sparisjóðanna fyrir milligöngu stofnfjáreigend- anna. Þetta tel ég vera rangt og ósið- legt og ekki í samræmi við stofn- skrár sparisjóðanna. Verið er að hlunnfara raunverulega eigendur sparisjóðanna með þessu brölti,“ segir Ögmundur. Frumvarp lagt fram í haust Vilhjálmur Egilsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Al- þingis, segist ekki geta tjáð sig efn- islega um niðurstöðu Fjármálaeftir- litsins um málefni SPRON þar sem hann hafi ekki haft tækifæri til að lesa hana. Hann bendir á að löggjöf um starfsemi fjármálastofnana sé til endurskoðunar. Til standi að flytja frumvarp á Alþingi um fjármálafyr- irtækin og um leið verði málefni sparisjóðanna tekin fyrir og m.a. hvernig fara beri með hluti stofnfjár- eigenda. Vilhjálmur reiknar með að ríkisstjórnin muni leggja þetta frum- varp fram í upphafi þings í haust. Sjálfgefið að málið verði rætt á Alþingi Viðskiptaráðherra um niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins í máli SPRON ÁRNI Tómasson, bankastjóri Bún- aðarbanka Íslands, vísar því alfarið á bug í samtali við Morgunblaðið að bankinn hafi brotið lög um bankaleynd eins og fram kemur í kæru Norðurljósa til Fjármálaeftirlitsins á hendur bank- anum. Hann segir að kæra Norður- ljósa hafi komið sér verulega á óvart. Bankinn hafi ekki með nein- um hætti farið með upplýsingar að fyrra bragði út um hagi einstakra viðskiptavina. Það sé af og frá, eft- ir að hann hafi rætt við þá starfs- menn sína sem hann náði sambandi við í gær. „Sigurður G. Guðjónsson vísar í kærunni til samkomulags sem við erum sagðir hafa gert. Hann kom að máli við mig fyrir tveimur vik- um og sýndi mér þessi plögg. Mig rak í rogastans að sjá þau. Á þeim virtist þetta einhliða yfirlýsing frá tilteknum aðilum þar sem bankinn kom hvergi að. Ég gat heldur ekki séð neina undirritun á þeim,“ segir Árni. Hann segist hafa komið að þeirri ákvörðun bankans að setja umrætt lán til Norðurljósa í innheimtu. Það hafi gerst eftir að Landsbanki Ís- lands ákvað að gjaldfella lán til fé- lagsins í apríl sl. Sigurður hafi þá verið kallaður á fund og krafinn um ársreikninga. Gjaldfelling heimil samkvæmt skilmálum í lánasamningi Árni segir að í lánasamningum hafi verið skilmálar sem Búnaðar- bankinn og lögfræðingar hans töldu gefa heimild til þess að gjald- fella lánið. Vegna laga um banka- leynd segist hann ekki geta greint frá þessum skilmálum. „Sigurður sagðist á þessum fundi ætla að senda okkur árs- reikning innan skamms tíma. Þeg- ar sá tími leið og enginn reikningur barst kom ég að því að gjaldfella lánið. Á fundinum fyrir hálfum mánuði sagði ég Sigurði síðan að ef um eitthvert meint samkomulag væri að ræða væri það ekki meira samkomulag en svo að ef hann gæti sýnt fram á að þær trygg- ingar sem voru fyrir láninu væru góðar skyldi ég samstundis aftur- kalla gjaldfellinguna. Það eina sem bankinn hefur áhuga á er að fá lán- ið greitt. Þetta tilboð stendur ennþá en síðan hef ég ekkert heyrt frá Sigurði,“ segir Árni. Annarra úrræða leitað Aðspurður vísar Árni því einnig á bug að Búnaðarbankinn og starfsmenn hans hafi þá fyrirætlun uppi að knýja Norðurljós í gjald- þrot í þágu þriðja manns, eins og það er orðað í kærunni. Eina markmið bankans sé að fá skuldina greidda eða einfaldlega tryggða. Komi fram fullnægjandi tryggingar verði gjaldfelling á láninu dregin samstundis til baka. „Ef einhver getur ekki borgað skuldir sínar eða lagt fram trygg- ingar fyrir þeim leita menn ann- arra úrræða, eðli málsins sam- kvæmt,“ segir Árni Tómasson. Bankastjóri Búnaðarbankans um kæru Norðurljósa Bankinn braut ekki lög um bankaleynd  Höfum engan/4 Markmið bank- ans að fá lánið greitt eða trygg- ingar fyrir því
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.