Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablaðið „Út í heim“ frá Flugleiðum. Blaðinu verður dreift um allt land. FYRIRTÆKIÐ Sjávarleður hf. á Sauðárkróki sútar fiskroð úr laxi, hlýra og nílarkarfa, sem er fluttur inn alla leið frá Afríku, og býr til leður sem fremstu tískuhús heims hafa notað í hönnun sína. Stærstu viðskiptavinir Sjávarleðurs síðustu 12 mánuði hafa verið tískuhúsin Christian Dior, Prada og John Galliano, að sögn Friðriks Jóns- sonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Hann segir að mikið hafi verið fjallað um fyr- irtækið og framleiðslu þess í frönskum fjölmiðlum að undanförnu. Farið verði með framleiðsluna á sýningu í Frakklandi í september og mikils sé vænst í framhaldinu af því. „Ýmislegt bendir til þess að markaðurinn muni vaxa og taka enn betur við þessu efni en hann hefur gert. Fiskroð er í tísku. Við náðum inn hjá Dior og Galliano, sem eru virtustu tískufyrirtækin og segja mikið til um hvað verður í tísku á næstunni. Hærra kemst maður ekki og nú bíðum við eftir því að áhrifin fari að dreifast til hliðanna. Þegar fyrirmyndirnar eru farnar að viðurkenna þetta efni geta hin fyrirtæk- in farið að nota það líka,“ segir Friðrik. Undanfar- in tvö ár hafi tískuheimurinn hneigst að náttúru- legum efnum. „Það er að ganga yfir bylgja þar sem hönnuðir vilja fá meira af náttúrulegum efn- um og við höfum svolítið flotið á þeirri bylgju,“ segir Friðrik. Nílarkarfi fluttur inn frá Afríku Leðrið er notað í töskur, skó og fatnað og segir Friðrik að efnið hafi fengið góðar viðtökur. Sjáv- arleður vinnur úr laxa-, hlýra- og nílarkarfaroði. Nílarkarfinn lifir í Viktoríuvatni í Afríku og segir Friðrik að um 15-17 tonn af frystu nílarkarfaroði séu flutt inn á ári í framleiðsluna og það muni hugsanlega aukast. Laxaroðið kemur frá Færeyj- um. „Það er einfaldlega roð sem hentar okkur vel, við fáum ekki jafnstórt roð hér heima og við fáum frá Færeyingum,“ segir Friðrik. Aðferðina við verkun roðanna þróuðu Skagfirð- ingar sjálfir og hófst þróunarvinnan upp úr 1990. Sjávarleður hf. var stofnað árið 1995 og hófst framleiðslan ári síðar. „Frá þeim tíma hefur verið unnið markvisst að því að koma þessari vöru á markað, það hefur verið einblínt á að koma okkur inn á tískumarkaðina. Má segja að sú vinna hafi byrjað að skila sér fyrir alvöru í fyrra, en þá tók salan kipp.“ Veltan í ár um 30 milljónir Þetta er þriðja árið sem fyrirtækið tvöfaldar veltuna og er stefnt að því að velta fyrirtækisins í ár verði um og yfir 30 milljónir, að sögn Friðriks. Nýsköpunarsjóður og sveitarfélagið Skagafjörður eiga samanlagt um 90% hlut í Sjávarleðri hf. Frið- rik og Eggert Jóhannsson feldskeri eiga um 10%. Auk Friðriks starfa þrír í Sjávarleðri sem vinna við framleiðsluna. Þá er Sigrún Úlfarsdóttir, hönnuður í París, í hlutastarfi en hún er ráðgjafi fyrirtækisins í markaðsmálum. Hefur eftirspurn eftir leðri verið það mikil að í vor var um tveggja mánaða afgreiðslufrestur, sem Friðrik segir fullmikið. „Við erum að huga að því núna að stækka fyrirtækið og fjárfesta í nýjum framleiðslutækjum.“ Einnig komi til greina að flytja í stærra hús og fjölga starfsmönnum. Sjávarleður á Sauðarkróki áformar að stækka fyrirtækið á næstunni Framleiðir skinn fyrir stærstu tískuhús í heimi Jakki frá tískuhúsinu La Perla úr nílarkarfa- roði sem unnið var á Sauðárkróki. Friðrik Jónsson, framkvæmdastjóri Sjávarleðurs, segir að roðið sé sterkara en venjulegt leður og mjög endingargott. JÓN G. Tómasson, formaður stjórn- ar Sparisjóðs Reykjavíkur og ná- grennis, segist vænta þess að stjórn SPRON komi saman til fundar á mánudag þar sem tillaga Sveins Val- fells, stofnfjáreiganda í SPRON, um vantraust á stjórn verður rædd. Hann segist jafnframt reikna með viðbrögðum frá stjórninni í kjölfarið. Sveinn sendi stjórninni bréf á föstudag þar sem hann óskaði eftir að á fyrirhuguðum fundi stofnfjár- eigenda 12. ágúst næstkomandi yrði tekin fyrir tillaga um vantraust á stjórn sjóðsins. Verði tillagan sam- þykkt verður ný stjórn kjörin. Lýst yfir vantrausti fyrir að neita að brjóta lög Ástæðan er sögð sú, eins og Jón bendir á að fram komi í bréfinu, að stjórn SPRON hafi lýst því yfir að hún myndi ekki samþykkja framsal á stofnfé sem gert verður á grund- velli samnings þessara fimmmenn- inga og Búnaðarbankans frá 25. júní. „Þá segi ég með öðrum orðum að það eigi að lýsa vantrausti á stjórn Sparisjóðsins fyrir að neita að brjóta lög vegna þess að í greinar- gerð Fjármálaeftirlitsins kemur skýrt fram að stjórninni er ekki heimilt að samþykkja slík viðskipti. Það eigi sem sagt að sparka mönn- um út úr stjórn fyrir að neita að brjóta lög eða lýsa því yfir að þeir vilji fara að lögum,“ segir Jón enn fremur. Hann segist vænta þess að stofn- fjáreigendur í Sparisjóði Reykjavík- ur neiti að taka þátt í slíkum leik. Hann bendir á að í tillögunni komi einnig fram að það eigi að kjósa nýja menn í stjórn Sparisjóðsins sem fara vilji að vilja stofnfjáreigenda. Hann telur furðu sæta að Búnaðarbanki Íslands skuli enn og ítrekað vilja stuðla að því að víkja mönnum frá sem vilja fara að lögum og fá til þess aðra sem eru tilbúnir að sölsa undir sig Sparisjóðinn fyrir bankann. „Þá vek ég enn og aftur athygli á að þetta er banki í meirihlutaeigu rík- isins,“ bætir Jón við. Vantrauststil- lagan rædd í stjórn SPRON á mánudag GAMLA varðskipið Þór, sem lengi þjónaði Landhelgisgæslunni, hefur heldur betur tekið stakkaskiptum. Verið er að breyta skipinu en það er á leið til Bretlands þar sem það mun m.a. gegna hlutverki skemmti- staðar. Skipið, sem um tíma hét Sæ- björg og var notað af Björg- unarskóla sjómanna, verður málað í gylltum litum. Sem kunnugt er eru varðskip Landhelgisgæslunnar máluð í gráum lit. Breytingar gerðar á gamla Þór Morgunblaðið/Jim Smart 17 ÁRA ölvaður ökumaður var hand- tekinn í Hnífsdal um fjögurleytið í fyrrinótt. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði sinnti maðurinn ekki stöðv- unarskyldu lögreglu og ók í burtu. Lögreglan veitti honum eftirför og ók utan í bíl mannsins til þess að stöðva hann. Bíll ökumannsins er talsvert skemmdur eftir atvikið. Þá var rúmlega þrítugur maður tekinn höndum fyrir innbrot í Ís- borgina við höfnina á Ísafirði á föstu- dagskvöld. Hann hafði brotið upp lyfjaskáp í bátnum þegar að var komið og gerði vaktmaður í næsta skipi lögreglunni viðvart. Maðurinn gistir fangageymslur lögreglu. Lögreglan á Ísafirði handtók enn fremur rúmlega tvítugan karlmann sem hefur undanfarnar tvær helgar skrúfað númeraplötur af bílum í bænum. Honum tókst að skrúfa tvær númeraplötur af bílum um liðna helgi. Innbrot og ölvunarakstur á Ísafirði EIGENDUR Bonus Stores Inc. hafa samþykkt að stefna að því að auka hlutafé félagsins um sjö milljónir dala, jafnvirði 597 milljóna íslenskra króna. Tryggvi Jónsson, forstjóri Baugur Group, segir að það verði væntanlega einkum Bandaríkjamenn sem koma munu að hlutafjáraukning- unni en hún sé í höndum Kaupthing New York. Eignarhluti Baugur Group niður fyrir helming Í tilkynningu til Kauphallar Ís- lands segir að Baugur Group muni ekki taka þátt í þessari hlutafjáraukn- ingu þar sem ekki liggi fyrir ákvörðun um ráðstöfun hlutar Baugs í Arcadia og vegna frekari fjárfestingar félags- ins í sameinuðu félagi Þyrpingar og Stoða. Þá segir að við fyrirhugaða hlutafjáraukningu muni eignarhluti Baugur Group fara niður fyrir 50% og hann verði því ekki hluti af samstæðu- uppgjöri frá þeim tíma. Hagnaður Bonus Stores fyrir afskriftir og fjár- magnsliði (EBIDTA) nam sextán milljónum króna á tímabilinu 1. mars til 31. maí. Aðspurður segir Tryggvi Jónsson, forstjóri Baugur Group, að það hverj- ir koma munu að hlutafjáraukning- unni sé í höndum Kaupthing New York en gert sé ráð fyrir að það verði einkanlega Bandaríkjamenn. Baugur Invest, sem er 100% í eigu Baugur Group, á 56% í Bonus Stores en að- spurður segir Tryggvi aðra eigendur koma í gegnum Kaupþing og aðila á þeirra vegum. Hann segir að stefnt sé að hlutafjáraukningunni á næstu vik- um og mánuðum en það sé gert til þess að flýta umbreytingu á verslun- um Bill’s Dollar Stores í Bonus Su- percenters. „Þetta er spurning um uppbyggingu á stórmörkuðunum og við erum með fund um miðjan ágúst þar sem teknar verða frekari ákvarð- anir um málið.“ Kaupréttur starfsfólks hluti af launakostnaði Í tilkynningu til Kauphallar Ís- lands kemur fram að Baugur hefur ákveðið að færa framvegis kauprétt- arsamninga starfsfólks til gjalda í rekstri Baugur Group en almennt er þetta fært í gegnum eigið fé fyrir- tækja. Tryggvi segir að það hafi oft verið gagnrýnt erlendis, sérstaklega í Bandaríkjunum, að færa slíka samn- inga í gegnum efnahagsreikning en ekki rekstrarreikning. „Nokkur fyr- irtæki í Bandaríkjunum hafa tekið ákvörðun um að gjaldfæra kauprétt- inn á rekstur vegna þess að þetta sé einfaldlega ekki annað en hluti af launatengdum kostnaði. Við höfum ákveðið að stíga þetta skref líka þar sem við teljum eðlilegra og heilbrigð- ara að færa þetta til gjalda eins og annan kostnað vegna starfsmanna. Við teljum líklegt að innan fárra ára verði þetta sú leið sem fyrirtæki fara. Áhrifin af þessari breytingu,“ segir Tryggvi, „eru óveruleg fram að þessu en munu án efa skipta meira máli á komandi árum. Þetta hefur þó þau áhrif að afkoman verður lakari en ella en um leið raunhæfari að okkar mati.“ Erlendir fjárfestar með nýtt hlutafé í Bonus Stores
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.