Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ SVEINBJÖRN Sigurðssonbyggingameistari býr yfirlangri og ríkulegri reynslu.Sveinbjörn, sem er fæddurárið 1919, lauk sveinsprófi vorið 1940 og fyrirtæki hans, Svein- björn Sigurðsson ehf., elsta starfandi byggingarfyrirtæki á Íslandi, á 60 ára afmæli í ár. Hann rak fyrirtækið allt til ársins 1990 er þrír sona hans tóku við af honum og gerðu fyrirtæk- ið að einkahlutafélagi. Á löngum ferli hefur Sveinbjörn útskrifað fleiri húsasmiði en nokkur annar, um fimmtíu talsins. Nú starfa um 50 manns hjá fyrirtækinu við ýmis verk- efni á Reykjavíkursvæðinu og víðar. Morgunblaðið hitti Sveinbjörn að máli í tilefni sextugsafmælis fyrir- tækisins og bað hann að líta yfir far- inn veg. Fyrst rifjaði hann upp æsku- árin við Laugaveginn. Að sjá húsin rísa við Laugaveg „Ég ólst upp á Laugavegi 30, ská á móti Kirkjuhúsinu. Það stórhýsi byggði Kornelíus Sigmundsson byggingameistari fyrir Martein Ein- arsson kaupmann. Það tel ég vera eitt best byggða hús á landinu og var gaman að sjá það rísa af grunni. Nokkur glæsileg hús risu á þessum tíma við Laugaveginn, hús sem stað- ist hafa tímans tönn vegna vandaðra vinnubragða.“ Áhuginn á byggingum og húsasmíði vaknaði snemma hjá Sveinbirni. Aðrir í fjölskyldunni voru þó í öðrum starfsgreinum. „Pabbi var lóðsmaður á dönsku varðskipunum og ferðaðist með þeim um landið. Jón bróðir minn var sjómaður en Oddur bróðir fór í Verzlunarskólann. Móðir mín vildi ekki að ég færi til sjós og því fékk hún að ráða. Að vísu fór ég einu sinni á sjó, að sækja seglskipið Capit- ana ásamt Jóni bróður mínum til New York. Það var ævintýraleg ferð,“ segir Sveinbjörn og hlær. Þess má geta að Capitana var hið glæsi- legasta kaupskip, upphaflega í eigu tekaupmannsins sir Thomas Liptons en var keypt af Magnúsi Andréssyni til Íslands til flutninga í stríðinu. Hvar nam Sveinbjörn iðn sína? „Ég lærði hjá Ólafi Theodórs, bygg- ingameistara frá Borðeyri. Sumarið 1936 stóð fyrir dyrum að steypa kjallara aðalbyggingar Háskóla Ís- lands og ég fékk vinnu hjá Ólafi við þetta verk. Næstu fjögur árin var ég hjá honum og lærði húsasmíði í Iðn- skólanum.“ Sveinbjörn réðst til starfa hjá Al- menna byggingafélaginu hf. eftir sveinsprófið árið 1940. „Fyrsta húsið sem ég byggði er númer 8 við Nönnugötu. Fyrsta húsið fyrir eigin reikning byggði ég hins vegar ásamt bróður mínum, Oddi, árið 1942, húsið númer 7 við Bollagötu. Það er tveggja hæða hús með kjallara. Þar með hófst sjálfstæð starfsemi sem enn varir undir stjórn sona minna.“ Sveinbjörn vann þó enn fyrir Al- menna byggingafélagið um nokkurra ára skeið. Hann reisti einnig fjölda bragga fyrir breska herinn. Meðan á stríðinu stóð var mikill skortur á byggingatækjum. Bretarn- ir höfðu keypt nær öll tæki sem til voru. „Vorið og sumarið 1942 byggð- um við kexverksmiðjuna Frón, Ræs- ir við Skúlagötu, vélsmiðjuna Hamar og Hafnarhvol, aðeins með eina hrærivél,“ segir Sveinbjörn og hlær yfir dugnaðinum. Ekki tók betra við að stríðinu loknu. Tæki og efni af skornum skammti „Í lok stríðsins var lítið um bygg- ingaefni í Reykjavík, við urðum að nýta það sem hendi var næst,“ segir Sveinbjörn og hristir höfuðið. „Leif- ar herliðsins voru um allt, braggarnir margir auðir og nú rifum við þá. Gólf- plötur bragganna, braggabotnarnir, nýttust vel sem uppsláttarmót fyrir okkur. Við urðum að byggja húsin út frá þeim, einn botn var tveir og hálf- ur metri á lengd og við það miðuðust gluggar og veggir hússins.“ Að sama skapi var erfitt að fá sement og timb- ur. „Við þurftum leyfi fyrir öllu. Allt var skammtað og því meira sem þú áttir, því erfiðara var að fá efni.“ Húsnæðiseklan var mikil á þessum tíma og Sveinbjörn seldi húsin áður en þau byggðust. „Við vorum þefaðir uppi við steypuvinnuna og spurðir hvort þetta verðandi hús væri til sölu. Nokkrum dögum síðar gat mað- ur átt von á kaupanda, þrátt fyrir að húsið væri enn óbyggt.“ Minnisstæðir samferðamenn Margir arkitektar hafa unnið með Sveinbirni í gegnum tíðina. „Ég minnist sérstaklega Þóris Baldvins- sonar, hann var mikill hugmynda- smiður og mjög ákveðinn hvað varð- aði verklag og útfærslu. Þegar ég vann við húsin hans mátti oft búast við sérstökum óskum um steypu- vinnu og lausnir.“ Aðrir teiknarar koma upp í hugann þegar Sveinbjörn rifjar upp skilyrðin um 1940-1950. „Hafliði Jóhannsson húsasmíða- meistari teiknaði fjölda húsa, sér- staklega í Norðurmýrinni. Hann fékk varla svefnfrið á þessum árum, fólk elti hann uppi og bað hann um að rissa upp teikningu fyrir sig eða gefa sér góð ráð. Atgangurinn var slíkur við að fá teikningar í hendur og byrja að byggja.“ Einar V. Sveinsson, húsameistari Reykjavíkurbæjar, berst einnig í tal. „Aldrei klikkaði hjá honum samlagningin, sama hvað flóknar teikningarnar voru hjá hon- um,“ segir Sveinbjörn og kímir. „Ég byggði nokkrar blokkir eftir Einar. Íbúðirnar voru í spegil, líkt og enn tíðkast, og við notuðumst við sömu teikninguna aftur og aftur, snerum henni bara eftir hentugleikum.“ Samstarfið við DAS Fyrstu byggingar Hrafnistu, Dvalarheimilis aldraðra sjómanna (DAS) í Laugarási, voru opnaðar árið 1957. Sveinbjörn sendi inn tilboð að byggja nýjar deildir við dvalarheim- ilið og hlaut verkið, fyrst árin 1959-60 og svo aftur á 7. áratugnum. Meg- inhluti Hrafnistuhússins reis undir hans stjórn. „Þetta var mikið fyrir- tæki, enda um stórhýsi að ræða. Ég sá fljótlega að upphaflegar teikning- ar voru óhagkvæmar vegna þess að enginn kjallari átti að vera undir hús- unum. Ég benti forsvarsmönnum DAS á að sprengja út kjallarann og fékk það í gegn. Að sjálfsögðu gagnast kjallarinn feykivel og gott að málin leystust farsællega.“ Hús DAS Byggingar um alla „Mér hefur samið við alla menn,“ segir Svein- björn Sigurðsson bygg- ingameistari þegar hann lítur yfir farinn veg. Bjarni Benedikt Björnsson ræddi við Sveinbjörn, sem er stofnandi elsta starf- andi byggingafyrirtækis landsins. Borgarleikhúsið í byggingu, mynd frá árinu 1983. Morgunblaðið/Þorkell Sveinbjörn Sigurðsson byggingameistari. ALLS eiga Sveinbjörn Sigurðsson og kona hans, Helga Kristinsdóttir, fimm börn. Anna María er gull- smiður, Kristinn er byggingafræð- ingur, og Árni, Sigurður og Svein- björn eru allir byggingameistarar og eigendur fjölskyldufyrirtækisins ásamt föður sínum. Þeir bræður voru teknir tali varðandi þau verk- efni sem nú eru á döfinni hjá fyrir- tækinu, líkt og sjá má á heimasíðu fyrirtækisins, www.verktaki.is. „Það er margt í gangi núna,“ segir Sigurður. „Það er Víkurskóli við Hamravík í Borgarholti og leikskóli í Grafarholti,“ bætir Sveinbjörn við, „og fyrir nokkrum dögum tókum við að okkur endurbætur á Þórisvatns- miðlun fyrir Landsvirkjun og ákváðum samstarf um byggingu fjögurra blokka í Grafarholti. Við er- um meira að segja búnir að auglýsa eftir mönnum.“ Verkefnið við Þóris- vatn er þriðja hálendisverkefnið sem þeir bræður taka að sér, fyrri voru yfirfall á Blöndu og botnrás á Há- göngum. Nokkrum tilboðum er enn ósvar- að. „Við erum alltaf með nokkur verkefni í farvatninu, en það er ekki þar með sagt að þau séu tryggð. Til- boðunum er ýmist tekið eða ekki,“ segir Sveinbjörn. Fyrirtækið hefur byggt fjölda aksturs- og göngubrúa undanfarin ár. „Við byrjuðum á brúnni við Rauðavatn og höfum síðan byggt þrjár brýr yfir Miklubraut og núna erum við búnir að ljúka okkar hluta af nýju brúnni milli Grafarvogs og Grafarholts, á Víkurvegi,“ segir Árni. Útboðin eru lífæð verktakanna Líkt og faðir þeirra eru bræðurnir iðnir við að senda inn tilboð í verk sem boðin eru út. „Útboð eru lang- algengasti vettvangurinn á þessum markaði. Við reynum eftir megni að hafa þau nógu lág svo að við fáum verkið,“ segir Sigurður. „Samt sem áður er markaðurinn mun óvægnari nú en í tíð föður okkar,“ bætir Árni við, „og mikið um undirboð og óraunhæfa kostnaðarliði; allt er gert til þess að ná verkefninu.“ Fjölskyldufyrirtæki eins og Sveinbjörn Sigurðsson ehf. hefur reynt eftir megni að keppa við stóra verktaka á markaðnum. Liðsheildin er mjög góð og fjöldi starfsmanna hefur unnið hjá fyrirtækinu um lengri tíma. „Það er ekki algengt í þessum bransa að hafa menn svona lengi hjá sér. Menn sem unnu hjá föður okkar hafa haldið áfram hjá okkur og við erum með starfsmenn með yfir 25 ára starfsreynslu,“ segir Árni og þeir bræður gleðjast yfir því Bræðurnir Árni, Sveinbjörn og Sigurður Sveinbjörnssynir stjórna nú fyrirtæki föður síns, Sveinbirni Sigurðssyni ehf. Byggjum á far- sælli reynslu Morgunblaðið/Þorkell Sveinbjörn Sigurðsson ásamt sonum sínum, (f.v.) Árna, Sveinbirni og Sigurði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.