Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. hér sérðu debetkort, skólaskírteini, afsláttarkort og alþjóðlegt stúdentaskírteini. 4kort F í t o n / S Í A Skemmtiferðaskip þurfa að vera hrein og í góðu standi. Á skemmtiferðaskipinu Astoria leggja menn ekki aðeins áherslu á að skúra það að innan heldur er það líka skúrað að ut- an. Myndin var tekin í Reykjavíkurhöfn í vik- unni þegar skipið var þvegið. Astoria er skráð á Bahamaeyjum, en þetta er önnur ferð skipsins til Íslands í þessum mánuði. Morgunblaðið/Arnaldur Allt hreint og fínt FRIÐRIK Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir m.a. í viðtali við Morgunblaðið í dag að Náttúru- verndarsamtök Íslands og samtökin World Wide Fund, WWF, hafi á undanförnum mánuðum „því miður sent frá sér rangar fullyrðingar“ um Kárahnjúkavirkjun og stóriðjuáform á Austurlandi. Telur Friðrik að um ófrægingarherferð sé að ræða þar sem tilgangurinn helgi meðalið. Ekki skipti máli hvort sagt sé satt og rétt frá. „Við erum einmitt um þessar mundir að tína saman það sem þessi samtök hafa sagt beinlínis í því skyni að koma röngum fullyrðingum á framfæri og svara þeim með fyrir- liggjandi staðreyndum. Við ætlum okkur að birta þessa samantekt fljót- lega á heimasíðu Kárahnjúkavirkj- unar,“ segir Friðrik. Hann segir að minnihlutahópur í röðum umhverfisverndarsinna virð- ist vera á móti öllum virkjunum hér á landi. „Þessi hópur mun áreiðanlega, hér eftir sem hingað til, reyna að halda úti áróðri gegn virkjunarhug- myndum. Fámennur hópur hér á landi semur yfirlýsingar, til dæmis í nafni World Wide Fund, WWF. Þær eru síðan sendar til útlanda og hing- að heim aftur í nafni alþjóðlegra samtaka. Út af fyrir sig er ekkert við þessu að segja en það verður að koma fram hvernig þessi mál eru unnin. Fæstir þeirra sem senda mót- mæli til okkar hafa komið hingað,“ segir Friðrik. Hann segir það liggja fyrir að for- maður Náttúruverndarsamtaka Ís- lands, Árni Finnsson, þiggi fjárhæð- ir frá alþjóðasamtökum til að standa straum af rekstrinum „og þar með kostnaði við þessa herferð“. Friðrik segist ekki vera að gagnrýna þetta en að hafa þurfi í huga að þessi sam- tök séu ekki að hugsa um íslenska hagsmuni. Aukinn stuðningur við virkjun Í viðtalinu segir Friðrik að stuðn- ingur hér innanlands við Kára- hnjúkavirkjun fari vaxandi. Í nýrri Gallupkönnun, sem birt verði fljót- lega, komi í ljós að 60% þeirra sem afstöðu taka séu hlynnt virkjuninni. Fyrir ári hafi hlutfall hlynntra í svip- aðri könnun verið 50%. Spurður um arðsemi virkjunar- innar segir Friðrik að verði samn- ingarnir við Alcoa á svipuðum nótum og þeir sem langt voru komnir við Reyðarál þá sé arðsemin á bilinu 12 til 14%. Sumitomo-bankinn hafi yf- irfarið alla útreikninga Landsvirkj- unar og talið þessa arðsemi eðlilega. „Þetta þarf að undirstrika því að öðru hefur verið haldið fram í blöð- um, þrátt fyrir skýra niðurstöðu bankans,“ segir Friðrik. Þá kemur fram í máli Friðriks að með álveri Alcoa gætu útflutnings- tekjur af áli þrefaldast frá árinu 2000 til 2010 og farið úr 26 í um 75 millj- arða króna. Hlutfall áls í útflutningi Íslendinga gæti tvöfaldast á sama tímabili. Forstjóri Landsvirkjunar í viðtali um Kárahnjúkavirkjun Náttúruverndarsamtök í ófrægingarherferð  Við þurfum / 12–13 ÚT frá upplýsingum um selt greiðslumark, eða mjólkurkvóta, er talið að kúabændur hafi á nýliðnu framleiðsluári keypt greiðslumark fyrir um 900 til 1.100 milljónir króna. Þetta kemur m.a. fram í nýútkom- inni ársskýrslu Landssambands kúabænda, LK, fyrir árið 2001. Á tímabilinu frá 1. september 2001 til 20. júní 2002, þegar frestur til að tilkynna sölu á greiðslumarki rann út, áttu sér stað mun minni viðskipti en á fyrra ári. Er sambærileg tala fyrir síðasta ár 5,7 milljónir lítra. Fram kemur í ársskýrslunni að fyrstu viðskipti með mjólkurkvóta eftir 20. júní sl. hafi farið fram á um um 180 kr. pr lítra, sem er lægra verð en greitt var á sama tíma í fyrra. Er það sagt benda til enn minni verðspennu en áður. Nautgripabændur ræða vanda sinn við landbúnaðarráðherra Innvegið nautgripakjöt í sláturhús nam 3.637 tonnum frá 1. júlí 2001 til sama tíma í ár, sem er 1,2% minna en árið áður. Birgðir nautakjöts voru 88 tonn 1. júlí sl., tveimur tonnum minna en á sama tíma í fyrra. Í skýrslunni segir að lágt verð á nautakjöti hafi valdið mörgum bændum verulegum erfiðleikum og ljóst að mikið tap sé á framleiðslunni um þessar mundir. „Sá vandi hefur verið ræddur við landbúnaðarráð- herra og er verið að leita leiða til þess að mæta þessum vanda bændanna. Sérstaklega er í því sam- bandi horft til framleiðslu á hágæða- kjöti,“ segir í ársskýrslunni. Mjólkur- kvóti seld- ur fyrir um milljarð BORIÐ hefur á kvörtunum frá sumarbústaðaeigendum sem hafa látið staðsetja bústaði sína með GPS-mælingum svo að Neyðarlínan geti flett upp og fundið staðsetningu þeirra ef eitthvað kemur upp á. Tengja átti öryggisnúmerin við kerfi Neyðarlínunnar, en með því var stefnt að því að sjúkraflutninga- menn, slökkvilið og lögregla gætu komist sem fyrst á staðinn ef eitt- hvað kæmi upp á. Sumarbústaða- eigendur hafa greitt fyrir númerin og sett þau upp á bústaðina. Morgunblaðinu er kunnugt um tvö dæmi um að fólk hafi fengið hjarta- áfall í sumarbústað og gefið Neyðar- línunni upp öryggisnúmer í von um að það flýtti fyrir að hjálp bærist. Hjá Neyðarlínunni fengust þær upplýsingar að þessi númer hefðu ekki enn verið virkjuð á þeim grunni sem Neyðarlínan fer eftir þannig að hún getur því ekki staðsett bústað- ina þótt sumarbústaðaeigendur gefi upp slík númer og standi í þeirri trú að þeim fylgi aukið öryggi. Beðið sé eftir að þessi grunnur berist Neyð- arlínunni en ekki liggi fyrir nákvæm- lega hvenær það verður. Ekki náðist í forsvarsmenn Landssambands sumarbústaðaeig- enda vegna málsins. GPS-staðsetning sumarbústaða Númerin ekki inni á kerfi Neyð- arlínunnar BÆRINGUR Guðvarðsson hefur hlotið eins árs skilorðsbundinn fang- elsisdóm á Spáni en sambýliskona hans féll til bana af svölum á hóteli á Kanaríeyjum í janúar síðastliðnum. Pétur Ásgeirsson hjá utanríkis- ráðuneytinu segir ljóst að Bæringur þurfi ekki að sitja af sér dóm á Spáni. Hann segist aðspurður ekki geta staðfest að í dómnum sé notað orða- lagið manndráp af gáleysi. Allt sé þetta spurning um þýðingar og túlk- anir en sér þyki þó líklegt að í dómn- um sé talað um slíkt. Hann segir að það megi orða það svo að samið hafi verið um málalyktir til þess að leysa málin enda mönnum orðið ljóst að um óhapp hafi verið að ræða. Bær- ingur sat í gæsluvarðhaldi um tíma og var síðan úrskurðaður í farbann. Eins árs skilorðs- bundið fangelsi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.