Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 30
SKOÐUN 30 SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Á NÝLIÐNU kjörtímabili hefur Sjálfstæðisflokki og Framsóknar- flokki tekist að einsetja alla grunn- skóla Hafnarfjarðar fyrir utan Hvaleyrarskóla sem kemur til með að hafa 5 bekki eftir hádegi næsta vetur. Í skilgreiningu á einsetnum grunnskóla á grundvelli 27. gr. grunnskólalaga segir eftirfarandi: „Allir nemendur geta hafið nám í skólanum á sama tíma að morgni.“ Um 20.000 fm af grunnskólahús- næði hafa verið byggðir eða endur- nýjaðir á kjörtímabilinu. Ótalin er uppbygging leikskóla, sem var sambærilegt átak á kjör- tímabilinu. Enginn grunnskóli einsetinn vorið 1998 Þegar Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur komust í meiri- hluta árið 1998 var enginn grunn- skóli í Hafnarfirði einsetinn, 6 grunnskólar tvísetnir og þar af tveir við það að vera þrísetnir. Á sama tíma voru nágrannasveitarfélög ým- ist búin eða langt komin að einsetja sína grunnskóla. Hafnarfjarðarbær kom þá næst á eftir Reykjavík hvað nemendafjölda snerti. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks beittu sér fyrir byggingu var- anlegs húsnæðis á kjörtímabilinu. Byggt var við þrjá grunnskóla (Öl- dutúnssk. Engidalssk. og Set- bergssk.) og framkvæmdir við aðra grunnskóla samtals að upphæð yfir 1.500 milljónir. Nýr skóli í Áslandi byggður og nýr Lækjarskóli í bygg- ingu og verður fyrsti áfangi Lækjar- skóla (11 heimastofur) tekinn í notk- un haustið 2002 um leið og seinni áfangi Áslandsskóla verður afhent- ur. Báðir nýju skólarnir voru byggð- ir í einkaframkvæmd. Samtals 12– 13.000 fm. Einkaframkvæmd felur það í sér að Hafnarfjarðarbær leigir húnæðið af verktaka sem er eigandi. Leigan fyrir þessa tvo skóla þegar þeir eru fullbúnir er að meðaltali um 1.800 kr. á fermetra á mánuði (mið- að við neysluverðsvísitölu ág. 2001). Innifalið í leigunni, er húsnæðið, all- ur laus búnaður s.s.húsgögn samkv. ströngustu kröfum, rekstur hús- næðis ásamt þrifum, fullbúin skóla- lóð og viðhald til 25 ára. Möguleiki á einsetningu Á fundi skólanefndar hinn 18.4. sl. var samþykkt samhljóða í skóla- nefnd breyting á útdeilingu fjár- magns til grunnskólanna. Þetta er sambærilegt og kerfi fræðsluráðs Reykjavíkur, nema ívið hagstæðara fyrir grunnskóla Hafnarfjarðar. Samkvæmt nýju kerfi verður aukning á heildarstöðugildum í grunnskólum Hafnar- fjarðar. Nýtt kerfi breyttist úr því að vera tengt bekkjarfjölda í það að vera nemendatengt. Það gefur stjórnend- um skóla möguleika á því að hagræða í bekkjum. Á fundi skólanefndar hinn 16.5. segir: eftirfar- andi: „Skólanefnd ósk- ar eftir fyrstu áætlun skólanna um bekkjar- skiptingu næsta skóla- ár eftir nýju úthlutunarkerfi fyrir 1. júní nk. skólanefnd beinir því til skólastjóra þeirra skóla sem ekki eru einsetnir að þeir leitist við að komast sem næst einsetningu við skipulagninguna.“ Skólanefnd hafði þegar fengið undirskriftarlista frá foreldrum 6 ára barna í Setbergs- hverfi þar sem því var mótmælt að allir 6 ára bekkir yrðu eftir hádegi. Þegar tölur um fjölda nemenda birt- ust í lok maímánaðar, kom í ljós að ef bætt væri við lausum kennslu- stofum, þ.e. þremur við Setbergs- skóla og einni við Víðistaðaskóla og einni við Hvaleyrarskóla, næðist að einsetja alla grunnskóla í Hafnar- firði haustið 2002 fyrir utan Hval- eyrarskóla eins og áður er getið. Það er því blekking sem nýr meirihluti heldur fram að slegið hafi verið af gæðakröfum þó nota þurfi lausar kennslustofur um tíma þar til varanlegri uppbyggingu grunnskól- anna er lokið. Rangar áherslur Með byggingu nýs grunnskóla í Setbergshverfi sem síðar á að verða leikskóli samkvæmt tillögum nýs meirihluta er að mínu mati peningum kastað á glæ. Nemendafjöldi í Setbergshverfi hefur þegar náð hámarki en samkvæmt fæðingar- tölum verður fækkun barna í hverfinu á næstu árum. Á umliðnu kjörtíma- bili hefur tvívegis verið byggt við Setbergs- skóla, eða samtals 1.330 fm og 720 fm breyting á eldra hús- næði ásamt viðbót við skólalóð og bílastæði. Mikilvægara er að nýta fjármagnið í að ljúka einsetningu Hvaleyrarskóla, og hefja fyrirhugaðar framkvæmdir við Víðistaðaskóla. Geta valið grunnskóla Í skólanefnd í maí er ítrekað að foreldarar grunnskólabarna í Hafn- arfirði hafi frjálst val um það hvaða grunnskóla í Hafnarfirði þeir velja fyrir börn sín svo framarlega að skólastjórnendur viðkomandi skóla geti tekið við þeim. Nemendur hafa alltaf forgang í sinn hverfisskóla. Í dag eru um 300 börn í Hafnarfirði sem ekki eru í sínum hverfisskóla. Fráfarandi skólanefnd hefur lagt áherslu á að færa valdið meira út til stjórnenda skólanna, og næsta skref í þeim málum var að gera þjónustu- samninga við stjórnendur. Núver- andi valdhafar vilja kannski sjálfir stjórna þeim málum eins og skilja mátti á fyrsta fundi bæjarstjórnar þegar fulltrúar nýs meirihluta tóku við stjórnun Bæjarfélagsins. Helstu framkvæmdir 1998–2002 Sjálfstæðismenn og framsóknar- menn stóðu fyrir mestu fram- kvæmdum sem átt hafa sér stað í Hafnarfirði frá stofnun bæjar- félagsins í grunnskólamálum: Hér verða nefnd nokkur atriði.  Byggðir og endurnýjaðir yfir 20.000 fm af grunnskólahúsnæði í Hafnarfirði.  Skýrsla um skólabyggingar unnin, um hlutverk hvers og eins er kemur að skólabyggingum.  Ráðinn var verkefnisstjóri allra skólabygginga.  Byggingarnefnd grunn- og leikskóla stofnuð.  Þarfagreining var unnin í hverju skólahverfi fyrir sig og ein- setningaráætlun og forgangsröðun í byggingum breytt í samræmi við álag í hverfum.  Metnaðarfull rýmisáætlun gerð í samræmi við nýja aðalnáms- skrá grunnskóla sem tók gildi árið 1999. Haft í huga að grunnskólarnir verði nýttir sem hverfamiðstöðvar í sínum skólahverfum.  Útbúinn búnaðarlisti yfir laus- an búnað í grunnskólunum. Það auðveldar stjórnendum að fylgjast með búnaði og forgangsraða endur- nýjun búnaðar. Tilgreindur laus búnaður sem innifalinn er í útboði.  Ákveðin stefna var mörkuð við kaup á húsgögnum í grunnskólahús- næði, þar sem haft er í huga þær gæðakröfur sem tengjast vinnu- stöðu kennara og líkamsbyggingu nemenda.  Boðinn út kennsluþátturinn í Áslandsskóla til að auka fjölbreytni í skólastarfi. Samkvæmt skýrslum frá Svíþjóð, sem er líklega komin lengst í þessum málum, hefur það sýnt sig að þegar um meira en eitt skólaform er að ræða þá eru niður- stöðurnar þær að nemendur sýna fram á meiri árangur. Þrátt fyrir stuttan starfstíma Áslandsskóla og mikið áreiti utanaðkomandi, hefur stjórnendum og starfsfólki Áslands- skóla tekist að skapa góðan starfs- anda og metnað hjá nemendum, enda eru nemendur í Áslandsskóla glaðir og ánægðir og þar fyrirfinnst ekki einelti. Í Áslandsskóla hefur verið bryddað upp á fjölmörgum nýjungum. Nýlega fékk skólinn við- urkenningu foreldraráðs Hafnar- fjarðar fyrir starf í heilsdagsskóla sem er boðið öllum nemendum skól- ans og um 70% nemenda sækir. Ás- landsskóli var eini grunnskólinn í Hafnarfirði þar sem stjórnendur skóla buðu upp á heitar máltíðir fyr- ir nemendur frá byrjun skólastarfs.  Ráðinn var matsfulltrúi til skólaskrifstofu Hafnarfjarðar til að fylgjast með gæðamati í skólastarfi. Þegar hefur verið gerð úttekt af hálfu matsfulltrúa á kennslutíma- fjölda grunnskólanna.  Nýir skólabílar með öryggis- belti í hverju sæti voru teknir í notk- un.  Félagsmiðstöðvar voru opnað- ar í fimm grunnskólum.  Tölvuvæðing og tölvukostur jafnaður milli grunnskólanna. Samningur gerður við Skýrr vegna háhraðatenginga fyrir grunn- skólana.  Skólatorgi komið á fót í Öldu- túnsskóla.  Námsráðgjafar fengu fullt stöðugildi í grunnskólunum.  Umhverfisfulltrúar skipaðir í hverjum grunnskóla, samstarf haft við verkefnisstjóra Staðardagskrár 21 hjá Hafnarfjarðarbæ. Kostur gefinn á flokkun á úrgangi með til- komu gáma.  Leiðrétt útdeiling fjármagns til stjórnunar í grunnskólunum.  Aukið hlutfall stjórnunar í stærstu grunnskólunum. Í Set- bergsskóla og Öldutúnsskóla eru tveir aðstoðarskólastjórar.  Foreldrar geta nú valið að senda börn sín í einkaskóla og fá greitt fyrir nemandann eins og sam- ræmdar greiðslur eru á milli sveit- arfélaga innan SSH. Í Svíþjóð er það val foreldra hvaða skólaform (einkaskóli–almennur skóli) þau velja fyrir börn sín. Fjárveiting af hálfu sveitarfélagsins er sú sama á nemenda, hvert sem skólaformið er.  Forskóli tónlistarskólans flutt- ur út í grunnskólann. Yfir 100 fleiri nemendum gafst kostur á að fara í forskólanám Tónlistarskólans. Nefnd undir forystu fagstjóra í tón- list skilaði af sér stefnumótun í tón- listarnámi grunnskólanema sem samþykkt var í skólanefnd á vor- dögum 2002.  Miðstöð símenntunar flutti í Flensborg, og möguleiki varð á að nemendur gátu nýtt sér tungumála- nám sem bara var kennt þar til ein- inga til stúdentsprófs. Stefnumótun var unnin í námsflokkum Hafnar- fjarðar sem fékk nafnið Miðstöð sí- menntunar. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks lagði til að sú starfsemi fullorðinsfræðslu flytti í núverandi húsnæði Lækjarskóla, þegar starfsemi grunnskólans er flutt í nýjan Lækjarskóla. Það eyk- ur möguleika Miðstöðvar símennt- unar að bjóða upp á kennslu frá morgni, eins og flest endurmennt- unarnámskeið miðast við sam- kvæmt kjarasamningum.  PMT (Parent Management Training) foreldrafærni komið á laggirnar. Samstarfsverkefni skólaskrifstofu, heilsugæslu og félagsþjónustu, við Oregon Social Learning center í Oregon í USA.  Rannsóknarverkefni gegn þunglyndi barna. Rannsókn á veg- um Eiríks Arnar Arnarsonar sál- fræðings. Verkefnið unnið af hálfu skólaskrifstofu Hafnarfjarðar á heilum árgangi nemenda.  Stefnumótun í móttöku nýbúa. Móttökudeild tekur til starfa haust- ið 2002. Hafnarfjarðarbær er einn af stofnaðilum alþjóðahúss.  Stefnumótun í sérkennslu, myndun athvarfa (smiðja) í hverjum skóla byrjað með stöðugildi í Setbergsskóla og Hvaleyrarskóla haustið 2002.  Stefnumótun fyrir sérdeildir (sem eru 4) í Hafnarfirði. Þær verða staðsettar haustið 2003 í nýjum Lækjarskóla (3 deildir), þar sem íþrótta- og sundaðstaða verður einnig fyrir hendi. Sérstaklega verði hugað að aðgengi fatlaðara í vænt- anlegri sundlaug. Ný sundlaug við nýjan Lækjarskóla sem er á áætlun árið 2004 kemur til með að sinna sundkennslu Lækjarskóla og Set- bergsskóla. Einnig verði skipuð nefnd til að athuga með stofnun verknámsdeildar.  Sundkennsla nemenda var felld inn í stundaskrá allra grunn- skólanema. Öllum nemendum frá 6 ára aldri var gefinn kostur á að fá sundkennslu, en nemendur ljúka sundnámi í 9 bekk í Hafnarfirði.  Árið 1998 greiddi Hafnarfjarð- arbær fyrir hvern nemanda 284.000 kr. en 465.000 kr. árið 2002.  Fjármagn til grunnskólanna hefur aukist um 70% á nýliðnu kjör- tímabili var um 900 milljónir 1998 er um 1.600 milljónir 2002 Ég vil taka það fram að þessi listi er ekki tæmandi. Að lokum vil ég þakka samstarfs- fólki mínu í skólanefnd, sviðstjóra fjölskyldusviðs, starfsfólki skóla- skrifstofu, stjórnendum og starfs- fólki grunnskóla Hafnarfjarðar, byggingarnefnd grunn- og leik- skóla, verkefnisstjóra skólabygg- inga, eftirlitsaðilum, Verktökum og öðrum sem ég hef átt samstarf við á undanförnum 4 árum fyrir ánægju- legt og árangursríkt samstarf. EINSETNING GRUNNSKÓLA HAFNARFJARÐAR Steinunn Guðnadóttir Það er því blekking sem nýr meirihluti heldur fram, segir Steinunn Guðnadóttir, að slegið hafi verið af gæðakröfum þó að nota þurfi lausar kennslu- stofur um tíma þar til varanlegri uppbyggingu grunnskólanna er lokið. Höfundur er bæjarfulltrúi og fyrr- verandi formaður skólanefndar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.