Morgunblaðið - 24.09.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.09.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ STEFNT er að því að fjölga þver- faglegum námsleiðum innan Há- skóla Íslands á næstu árum, fjölga nemendum í meistara- og doktors- námi og námskeiðum og námsleið- um á ensku. Þá er gert ráð fyrir að hefja byggingu fyrsta áfanga Vís- indagarða í Vatnsmýrinni á næsta ári, taka í notkun Náttúrufræðahús fyrir árslok 2003 og reisa Háskóla- torg, þjónustumiðstöð háskóla- samfélagsins, fyrir mitt ár 2005. Á kynningarfundi sem haldinn var í hátíðarsal í Aðalbyggingu HÍ í gær voru þessar áætlanir og fleiri kynntar. Í ræðu Páls Skúlasonar rektors kom fram að frá því ný lög um Há- skólann tóku gildi árið 1999 hafi Há- skólinn unnið markvisst að stefnu- mótun á öllum sviðum starf- seminnar. Fyrsti áfangi þeirrar vinnu var samþykkt sameiginlegrar vísinda- og menntastefnu Háskólans í fyrra. Í framhaldi af því voru ít- arlegar þróunaráætlanir unnar af öllum deildum skólans sem kynntar voru á háskólafundi sama ár. Sértekjur Háskólans verði yfir 40% af heildarveltu árið 2005 Þriðji stóri áfanginn í stefnumót- unarstarfi skólans er áætlun um uppbyggingu háskólans, markmið og aðgerðir 2002–2005, sem kynnt var í gær. Í áætluninni eru sett fram þrjú meginmarkmið sem stefnt er að í öllu starfi HÍ á næstu þremur árum. Samkvæmt þeim á að gera skólann að enn öflugri rannsókn- arháskóla, auka fjölbreytni námsins og efla alþjóðleg samskipti og bæta starfsskilyrði allra í háskólasamfé- laginu. Á kynningarfundinum taldi Páll upp aðgerðir til að hrinda þessum markmiðum í framkvæmd. Stefnt er að því að innleiða strax í haust sam- ræmt gæðakerfi sem á m.a. að auka virkni og árangur rannsókna við skólann og bæta kennsluhætti. Ráð- gert er að fjölga brautskráðum framhaldsnemendum og að nemend- ur í meistara- og doktorsnámi verði orðnir 20% af nemendafjölda árið 2005 en þeir eru nú 10%. Stefnt er að því að tengja enn betur starfsemi rannsókna- og fræðasetra HÍ á landsbyggðinni við rannsóknir og kennslu við Háskólann. Auka á hlutfall sértekna, meðal annars úr innlendum og erlendum rannsóknarsjóðum, af heildarveltu skólans og er stefnt að því að hlut- fallið verði yfir 40% á árinu 2005. Það er í dag 35%. Ráðgert er að deildir leggi fram tillögur um þverfaglegar námsleiðir á meistarastigi sem háskólaráð taki síðan afstöðu til hvort styrktar verði sérstaklega. Bjóða á upp á meist- aranám í ensku í völdum námsgrein- um og kynna þær erlendis. Þá er stefnt að því að árið 2005 hafi fjórðungur brautskráðra nem- enda við HÍ tekið hluta af námi sínu erlendis. Um 250 erlendir skipti- nemar eru nú við nám í Háskólanum en 175 íslenskir nemendur sækja nám árlega við erlenda háskóla. Lagt er til að erlendum stúdentum við Háskólann verði fjölgað til árs- ins 2005 í a.m.k. 700 alls en þeir eru nú 500 talsins frá 63 löndum. Þá á að þróa nánara samstarf við erlenda háskóla en sem stendur eru í gildi á þriðja hundrað samningar við sam- starfsháskóla víðsvegar um heim- inn. Meðal háskóla sem rektor nefndi að ráðgert væri að efla tenglslin við eru háskólinn í Wisconsin í Madison og háskólar vítt og breitt um Kali- forníu. Páll ræddi einnig um áætlanir í tengslum við bætt starfsskilyrði á háskólasvæðinu. Sagði hann að stefnt væri að því að taka Náttúru- fræðahús í notkun fyrir árslok 2003. Þá væri einnig ráðgert að hefja byggingu Vísindagarða í Vatnsmýr- inni á árinu 2003 í samvinnu við fyr- irtæki og stofnanir. Hann sagði þó ekki tímabært að upplýsa á þessari stundu hvaða fyrirtæki tækju hugs- anlega þátt í því samstarfi. Reisa á Háskólatorg, þjónustu- miðstöð fyrir allt háskólasamfélagið, á lóð milli Aðalbyggingar og íþrótta- húss fyrir mitt ár 2005 og er mark- miðið að það muni tengja saman lóð- ir austan og vestan Suðurgötu. Gert er ráð fyrir að endurbótum á Læknagarði verði lokið fyrir árslok 2005, búnaður í tilraunastofum í VRI verði endurnýjaður fyrir árslok 2005 og að staða raunvísinda- og verkfræðideildar verði bætt. Þá er markmiðið að starfsemi sem er í leiguhúsnæði verði flutt inn á há- skólasvæðið fyrir árslok 2003. Fjárveitingar til rannsókna og kennslu verði sambærilegar Í kynningarbæklingi sem gefinn var út um markmið og aðgerðir Há- skólans í uppbyggingarmálum á næstu þremur árum kemur fram að skráðir nemendur við Háskólann voru 7.273 í fyrra. Að sögn Páls Skúlasonar eru hins vegar 8.048 skráðir til náms við Háskólann í haust. Þá kemur þar fram að fjár- veiting og sértekjur Háskólans voru rúmir 5 milljarðar í fyrra. Sagði Páll að fjárveitingar til skólans hefðu ekki haldist í hendur við aukningu nemenda á undanförnum árum. Fram kom í máli Páls að stefnt væri að því að fjárveitingar til rann- sókna yrðu sambærilegar fjárveit- ingum til kennslu, skýrir árangurs- mælikvarðar yrðu látnir ráða fjárveitingum og að sérstaða fá- mennra greina verði viðurkennd. Í fyrra var 2,2 milljörðum varið til kennslu við Háskólann en rúmum 1.300 milljónum til rannsókna. Þá kom fram að Háskólinn stefnir að því að nýr samningur verði gerð- ur við ríkisvaldið um fjármögnun kennslu þar sem tekið verði tillit til sérstöðu ýmissa námsgreina og þátttöku Háskólans í alþjóðlegu fræðastarfi auk þess sem einkaleyf- isgjald Happdrættis Háskóla Ís- lands verði lækkað og fjárveitingar fáist úr ríkissjóði til að standa undir viðhaldi húsnæðis sem notað er til rannsókna. Rektor kynnir markmið og aðgerðaáætlun í uppbyggingu Háskóla Íslands 2002–2005 Stefnt er að fjölg- un meistara- og doktorsnema Morgunblaðið/Kristinn Reisa á Háskólatorg, þjónustumiðstöð fyrir allt háskólasamfélagið, á lóð milli Aðalbyggingar og íþróttahúss fyrir mitt ár 2005, samkvæmt aðgerðaáætluninni sem Páll Skúlason háskólarektor kynnti í gær. HRÚTURINN þrjóski, sem sneri á leitarmenn á Gnúpverjaafrétti á dögunum og synti yfir Þjórsá, er nú allur en leitarmenn á Holta- mannaafrétti náðu hrútnum á laugardag þegar þeir leituðu Búð- arháls. Sagt var frá hrútnum í Morgunblaðinu í síðustu viku. Hrúturinn náðist eftir að hann slasaðist á flóttanum og aflífuðu leitarmennirnir hrútinn, sem var réttdræpur þar sem hann hafði farið yfir sauðfjárveikivarnarlínu. Jónas Jónsson frá Kálfholti, fjallkóngur Áshreppinga og odd- viti í Ásahreppi, segir að hrút- urinn hafi verið við Manntapa- hellu þegar hann sást, beint á móti bólinu sínu við Ófærutanga. Tveir vanir og hraustir fjallmenn, Hallgrímur Birkisson frá Króki og Sigfús Davíðsson, sem er ætt- aður frá Sumarliðabæ en býr á Hellu, hafi hlaupið á eftir hrútn- um í tvo og hálfan klukkutíma, um erfitt landslag. „Þeir eltu hann í klettum og náðu hrútnum fyrir rest eftir að hann hafði slas- ast þegar honum skrikaði fótur. Þarna eru háar bríkur og kletta- belti. Mestu skiptir að mennirnir skyldu ekki slasast,“ segir Jónas. Hann segir að Manntapahella sé einmitt kölluð svo þar sem sagan segi að þeir sem reyndu að fara yfir Þjórsá á þessum stað hafi runnið í hana. „Þjórsá rennur víða í þröngum gljúfrum, sem eru víða há. Sum- staðar er hengiflug, annars staðar eru erfiðar brekkur með lausu grjóti. Þarna er víða mikil hætta fyrir menn að fara og þangað eru ekki sendir nema þaulreyndir og ólofthræddir menn. Það hefur oft komið til þess að þarna hefur þurft að fara í bönd og síga eftir kindum,“ segir Jónas. Urðaður í gljúfrinu þar sem hann vildi vera Eftir að leitarmennirnir náðu hrútnum aflífuðu þeir hann og urðuðu í gljúfrinu, þar sem hrút- urinn vildi jú sjálfur vera. Í fyrra voru margar árangurslausar til- raunir gerðar til að ná hrútnum og kom hann sér fyrir í skúta í Þjórsárgljúfri þar sem hann hafð- ist við yfir veturinn. Jónas segir að hrúturinn hafi ekki verið neitt lamb að leika sér við. „Hann var einfari, var orðinn svo villtur að hann sætti sig ekki við að sjá manninn nálægt sér og samlag- aðist engu fé. Það er óvenjulegt að lenda í svona kindum sem ekki er hægt að höndla. Ég hef oft lent í þrjóskum kindum og þær ganga stundum frekar í opinn dauðann en að láta taka sig,“ segir Jónas. Hann segir að leitarmennirnir hafi ákveðið að skynsamlegast væri að aflífa hrútinn þarna á staðnum, en ekkert beið hans annað en að fara í sláturhús þar sem hann var kominn yfir varn- arlínu. „Ef hann hefði ekki náðst hefði náttúran séð fyrir honum, það er óvenjulegt að hrútar lifi þarna af veturinn. Okkur er skylt að koma í veg fyrir að hann þjá- ist, sé hungraður yfir veturinn og dagi þarna uppi,“ segir Jónas. Leitarmenn á Holtamanna- afrétti réttuðu á sunnudag í fyrsta skipti í nýrri rétt, Haldrétt, skammt frá nýju brúnni yfir Tungnaá, en þar var áður kláf- ferja yfir ána. Þrjóski hrúturinn sem synti yfir Þjórsá er allur Náðist slasaður á flótta undan leitarmönnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.