Morgunblaðið - 24.09.2002, Blaðsíða 48
FÓLK Í FRÉTTUM
48 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ þykja kannski ekki tíðindi að
íslenskir raftónlistarmenn nái árangri
utan landsteinanna en þó fréttnæmt
þegar þeir eru komnir á mála hjá virt-
ustu útgáfum á því sviði. Þannig er
því farið með félagana í Einóma sem
eru búnir að gera
útgáfusamning við
breska fyrirtækið
Vertical Form, sem
er meðal annars
með Kit Clayton á
sínum snærum.
Fyrsta platan á þeim samningi, Undir
feilnótum, kom einmit út fyrir
skemmstu.
Litlar upplýsingar eru mér hand-
bærar um Einóma, en þó það að liðs-
menn eru tveir, Steindór og Bjarni,
félagar frá unga aldri sem kynntust
fyrir sameiginlegan áhuga á kvik-
myndagerð. Uppúr því fóru þeir að
spá í að gera tónlist saman og sendu
frá sér stuttskífu, Floating Point by
Zero, á vegum íslensku útgáfunnar
Uni:Form fyrir nokkru. Fyrsta breið-
skífan er aftur á móti sú sem hér er til
umfjöllunar, Undir feilnótum, og
kemur út hjá hinni virtu raftónlistar-
útgáfu Vertical Form sem getið er.
Tónlist Einóma er ekki ýkja ný-
stárleg, en skemmtileg engu að síður.
Þeir fara yfirleitt troðnar slóðir í
hljóðvali og taktskipan, en gera hlut-
ina vel. Skemmtilegur drungi er í
mörgum verkanna, tilfinningalegur
þungi sem gerir þau áheyrilegri, til að
mynda í öðru lagi skífunnar, „Gler-
borgir“. Öll vinnsla á tónlistinni er til
fyrirmyndar, hljóð vel unnin, dýpt í
hljómnum og hljóðskraut fjölbreyti-
legt. Þriðja lagið, „Hringlögun“, er
það sem lifir lengst í minningunni,
skemmtilega fjölbreytt, en klifun í
fjórða laginu, „Amonie“, (og reyndar
áttunda líka, „Undir engu“) er
heillandi skemmtileg. Sjötta lagið,
„Celvoir“, er líflegt, góður taktur og
skemmtileg tilbrigði við hann, en
besta lagið fyrir minn smekk er það
sjöunda, „Brot“, ekki nema hálf þriðja
mínúta en bráðskemmtilegt engu að
síður; kraumandi skelfing og nánast
óbærileg spenna – þeir félagar eru
ekki búnir að skilja alveg við kvik-
myndapælingar heyrist mér.
Tónlist
Skemmti-
legur
drungi
Einóma
UNDIR FEILNÓTUM
Vertical Form
Undir feilnótum með raftónlistardúóinu
Einóma sem samanstendur af Steindóri
og Bjarna. Vertical Form gefur út, 12 tón-
ar dreifa.
Árni Matthíasson
FYRSTA blaðsíðan í Epilectic eftir
David B. leggur grunninn að því sem
á eftir kemur. Þar hittir höfundurinn
bróður sinn í fyrsta sinn í mörg ár.
Bróðirinn er orðinn að vofu sem silast
um í lyfjamóki eftir áratuga baráttu
við veikindi. Samskipti þeirra á þess-
ari fyrstu síðu eru sorglega feimnis-
leg og David hrökklast frá honum
eins og hann hafi verið snertur
óþyrmilega af fortíðinni; fortíð sem
hann lýsir í bókinni. Minningarnar
flæða fram.
Þau eru þrjú systkinin; bræðurnir
og litla systir. Þau lifa áhyggjulausu
lífi í frönskum bæ á tímum stríðsins
við Alsíringa. David segir frá uppá-
tækjum þeirra með söknuði í röddinni
og lýsir draumum þeirra og vænting-
um. Allt breytist þetta þegar bróðir
hans fær sitt fyrsta flogaveikikast. Á
svipstundu umturnast líf fjölskyld-
unnar. Veikindi bróðurins útheimta
sífellt meiri athygli frá foreldrunum
eftir því sem sjúkdómurinn ágerist.
David leitar athvarfs í stríðssögum
sem hann myndskreytir með sjálfan
sig í fararbroddi; brynjaðan fyrir um-
hverfinu frá toppi til táar. Systirin
verður sífellt meira utanveltu. Gamlir
vinir þeirra forðast þau eins og heitan
eldinn. Í augum þeirra er flogaveiki
bráðsmitandi sjúkdómur. Sama gildir
um hina fullorðnu. Allt þetta mótlæti
umhverfisins gerir bróðurinn frá-
hverfan og harðan. Fyrst fólk lítur
hann þessum augum er eins gott að
hann gangist upp í hlutverkinu. Hann
sýnir stöðugt andfélagslegri hegðun
og dregur sig inn í skel en þegar hann
reynir að opna sig og ná til fólks virð-
ist hann hranalegur og ókurteis þann-
ig að einangrunin verður sífellt meiri.
Í framhaldinu lýsir David píslar-
göngu fjölskyldunnar í leit að lækn-
ingu. Ógeðfelldar en viðurkenndar
aðferðir læknislistarinnar reynast
ekki vel þannig að þau færast í átt að
ýmiss konar jaðarlækningum. Þau
gera víðreist og reyna meðal annars
að sameinast kommúnu, daðra við
búddatrú, smáskammtalækningar,
heildrænar lækningar, sálgreiningu
af mörgum toga og þar fram eftir göt-
unum. Sumt gerir bróðurnum gott en
annað miður en á meðan fjarlægist
fjölskyldan þann raunveruleika sem
hún hafði byggt sér áður en veikindin
fóru að láta á sér kræla.
Epilectic er sjúkdómsgreining.
Ekki aðeins tekur höfundur bróður
sinn fyrir heldur einnig hans nánasta
umhverfi sem veikist og hrörnar með
honum. Flogaveikin er eins og kvik-
syndi sem dregur þolandann sífellt
dýpra eftir því sem hann berst meira
um. Þeir sem reyna að kasta til hans
líflínu dragast einnig niður hvernig
sem þeir rembast. Englar alheimsins
eftir Einar Má lýsir þessum fjöl-
skylduharmleik með eindæmum vel
og að sama skapi hefur David B. kosið
að vera fullkomlega einlægur í frá-
sögn sinni. Ást og hatur á bróðurnum
togast á í brjósti hans þar sem hann
reynir að samsama fyrri tilfinningar
sínar í hans garð við það niðurrifsafl
sem hann er orðinn.
Myndirnar nálgast það að vera
skuggamyndir. Skjannahvítir og kol-
svartir fletir kallast á og líkjast mynd-
irnar stundum því að þær hafi verið
prentaðar með tréristum. Mynda-
söguhöfundurinn Charles Burns sem
teiknar Black Hole nú um stundir
hefur gert svona teikningar að aðals-
merki sínu þótt þær séu ívið myrkari.
Útlínur eru mjög sveigjanlegar og lif-
andi; fá hvöss horn að sjá í allri bók-
inni og andlitsdrættirnir draum-
kenndir eins og í verkum Edvards
Munchs. Þegar líður á bókina verða
myndirnar sífellt táknrænni og til-
finningalífi persónanna er lýst með
stílgerðum furðuverum sem hringa
sig í kringum þær. Rauntengingin
verður sífellt fjarlægari.
Epilectic er raunsæislegt verk með
súrrealískum undirtón eins og veik-
indin sem hún dregur nafn sitt af.
David sýnir ótrúlegt öryggi í mynd-
unum og sagan er sorgleg og ljúfsár
til skiptis. Þetta er uppgjör við æsk-
una sem verður ekki gert með meiri
hreinskilni.
MYNDASAGA
VIKUNNAR
Floga-
veiki og
fylgi-
kvillar
Myndasaga vikunnar er Epileptic 1 eftir
David B. L’Association gefur út 2002.
Bókin fæst í myndasöguversluninni Nex-
us og einnig er hægt að nálgast hana á
stærri bókasöfnum.
Veiki bróðirinn í baráttu við ára sína.
Heimir Snorrason
HÓTEL HÚSAVÍK Bubbi Morthens
og Hera kl. 21.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Hafnarstræti 15, sími 551 3340
Restaurant
Pizzeria
Gallerí - Café
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
ÁSKRIFTARKORT VERTU MEÐ Í VETUR
7 sýningar á 10.500 og ýmis fríðindi innifalin.
10 miða kort á 16.400. Frjáls notkun
Nýja sviðið - Komið á kortið! 4 miðar á 6.000
Stóra svið
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna Su
29.sept kl 14 UPPSELT
Su 29. sept kl 18
Su 6. okt kl 14
KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Lau 28.sept kl 20
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Fi 24. okt kl 20 - Næst síðasta sýning
Fi 31. okt kl 20 - Síðasta sýning
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Fi 26. sept kl 20
Lau 28. sept kl 20
Fö 4. okt kl 20
Lau 5. okt kl 20
Fö 11. okt kl 20
Lau 12. okt kl 20
Síðustu sýnngar
MERCE CUNNINGHAM DANCE COMPANY
Þri. 24. sept kl. 20. UPPSELT
VIDEODANS
Sýning og fyrirlestur Rita Kramp
Fö 27. sept kl 20
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Frumsýning fö 4. okt UPPSELT
2. sýn lau 5. okt
AND BJÖRK, OF COURSE ..
e. Þorvald Þorsteinsson
Lau 28. sept kl 20
Fáar sýningar eftir
Nýja sviðið
Litla svið
Hausthátíð Borgarleikhússins
Miðasala: 568 8000
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opin frá kl. 10-16 alla virka
daga, miðapantanir í s. 562 9700
frá kl. 10 og á femin.is
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar
Fös 27/9 kl. 21 Uppselt
Fös 27/9 kl. 23 Aukasýning Uppselt
Lau 28/9 kl. 21 Uppselt
Lau 28/9 kl. 23 Aukasýning Örfá sæti
Fös 4/10 kl. 21 Uppselt
Fös 4/10 kl. 23 Aukasýning
Lau 5/10 kl. 21 Uppselt Uppselt
Lau 5/10 kl. 23 Aukasýning Örfá sæti
Sun 6/10 kl. 21 Aukasýning
Fim 10/6 kl 21 Aukasýning Lau sæti
Fös 11/10 kl. 21 Uppselt
Fös 11/10 kl. 23 Aukasýning Laus sæti
Lau 12/10 kl. 21 Uppselt
Lau 12/10 kl. 23 Aukasýning Laus sæti
Lau 19/10 kl. 21 Uppselt
Lau 19/10 kl. 23 Aukasýning Lau sæti
Sun 20/10 kl. 21 Örfá sæti
Mið 23. okt kl 21.00 Aukasýning Laus sæti
Fim 24/10 kl. 21 Örfá sæti
Sun 27/10 kl. 21 Uppselt
Rakarinn í Sevilla
eftir Rossini
3. sýn. 4. okt. kl. 20 laus sæti
4. sýn. 5. okt. kl. 19 laus sæti
5. sýn. 12. okt. kl. 19 laus sæti
6. sýn. 13. okt. kl. 19 laus sæti
Enn eru nokkrir miðar lausir á hátíðarsýn-
ingarnar 29. og 30. nóv. —aðeins fyrir
félagsmenn í Vinafélagi Íslensku óperunnar.
Miðasalan opin kl. 15-19 alla daga nema
sunnudaga og fram að sýningu sýningar-
daga. Símasala kl. 10-19 virka daga.
Sími miðasölu: 511 4200
Hamlet
eftir William Shakespeare.
Leikstjóri: Sveinn Einarsson.
Frumsýning föstud. 27/9
kl. 20.00 uppselt
2. sýn. lau. 28/9 kl. 19.00 örfá sæti
Takmarkaður sýningarfjöldi
Miðasölusími sími 462 1400
www.leikfelag.is
Í Loftkastalanum kl. 20
Miðasala:
552 3000
„Sprenghlægileg“
„drepfyndin“
„frábær skemmtun“
fim. 19
fim. 26/9 örfá sæti laus
fim. 3/10
fim. 10/10
sun.13/10