Morgunblaðið - 24.09.2002, Blaðsíða 21
svæði í líkingu við kínversku borgina
Shenzhen. Deng heitinn Xiaoping,
fyrrverandi leiðtogi Kína, gerði hana
að sérstöku efnahagssvæði árið 1980
en þá var hún lítill fiskibær ekki langt
frá Hong Kong. Nú er hún orðin að
mikilli viðskiptamiðstöð.
N-kóreskir fjölmiðlar sögðu í gær,
að Yang Bin, kínverskur auðkýfingur
með hollenskt ríkisfang, yrði borgar-
stjóri og yfirmaður efnahagssvæðis-
ins og staðfesti hann það í viðtali við
CNN-fréttasjónvarpið. „Svæðið verð-
ur alkapítalískt með sín eigin lög,
dóms- og framkvæmdavald án nokk-
urra afskipta N-Kóreustjórnar,“
sagði Yang en á síðasta ári var hann
talinn annar auðugasti maður í Kína.
Fyrsta skrefið í átt frá áætlunarbúskap í N-Kóreu
Borgin Sinuiju gerð að
sérstöku efnahagssvæði
Seoul. AFP.
„Kapítalískt“ griðland undir stjórn kínversks auðkýfings
STJÓRNVÖLD í Norður-Kóreu hafa
ákveðið að gera borgina Sinuiju, sem
er rétt við kínversku landamærin í
norðvesturhluta landsins, að sérstöku
efnahags- og stjórnunarsvæði. Er hér
um að ræða fráhvarf frá miðstýrðum
áætlunarbúskap síðustu stalínista-
stjórnarinnar og sniðið eftir sams
konar aðgerðum í Kína.
N-kóreska fréttastofan sagði, að
tilkynning um þetta hefði verið gefin
út 12. september en efnahagssvæðið
mun ná til Sinuiju og nágrennis. Suh
Jae-Jean, sérfræðingur í n-kóreskum
málefnum við Kóresku sameiningar-
stofnunina í Seoul í Suður-Kóreu,
segir, að Sinuiju sé í raun orðin að
sérstöku efnahags- og stjórnunar-
Hefur stjórnin í Pyongyang jafnvel
heitið því, að erlendir ríkisborgarar
geti sóst eftir opinberum embættum í
Sinuiju.
Efnahagslífið í rústum
N-Kóreustjórn hefur áður reynt að
koma á sérstöku efnahagssvæði í
borginni Rajin-Sonbong en það mis-
tókst. Var ástæðan sú, að Rajin-Sonb-
ong var alveg einangruð og umgirt
gaddavír til að halda öðrum N-Kór-
eumönnum frá henni en engar höml-
ur verða á ferðum landsmanna til og
frá Sinuiju.
N-kóreski áætlunarbúskapurinn
hrundi þegar viðskiptin við Sovétríkin
lögðust að mestu niður fyrir áratug
og náttúruhamfarir, flóð og þurrkar,
hafa gert ástandið verra. Talið er, að
mörg hundruð þúsunda manna hafi
látist úr hungri og landsmenn hafa
verið komnir upp á aðstoð erlendra
ríkja og hjálparstofnana.
Yfirlýsingin um Sinuiju kemur í
kjölfar annarra ákvarðana, sem sýna
verulega stefnubreytingu hjá Kim
Jong-Il, leiðtoga N-Kóreu. Hefur
hann ákveðið að hætta eldflaugatil-
raunum og heimila kjarnorkueftirlit í
landinu, hann hefur viðurkennt, að N-
Kóreumenn hafi rænt japönskum
borgurum og samþykkt að koma á
járnbrautarsamgöngum milli kór-
esku ríkjanna.
Það er líka tímanna tákn, að í gær
komu 173 n-kóreskir íþróttamenn til
að taka þátt í Asíuleikunum í borginni
Pusan í S-Kóreu. Þá hafa stjórnvöld í
N-Kóreu lofað að skýra frá dauðdaga
átta Japana, sem þau létu ræna á sín-
um tíma. Hafa grunsemdir vaknað
um, að einhverjir þeirra hafi verið
teknir af lífi og meðal annars vegna
þess, að upplýsingar frá N-Kóreu
segja, að tveir þeirra hafi látist sama
daginn. N-kóreski Rauði krossinn
segist hafa upplýsingar um 13 Japana
en japönsk samtök telja, að meira en
60 Japönum hafi verið rænt.
BJÖRGUNARMENN í Kákasus-
lýðveldinu Norður-Ossetíu í Rúss-
landi fundu í gær einn mann á lífi en
mikil aurskriða féll úr skriðjökli í af-
skekktu fjallahéraði þar á laugardag.
Litlar líkur eru hins vegar taldar á því
að fleiri finnist á lífi og er óttast að allt
að 140 manns hafi farist í náttúru-
hamförunum.
Talið er að hluti ísjökuls, sem hylur
hæstu tindana í Koban-skarði í Norð-
ur-Ossetíu, hafi brotnað í burtu og
rutt sér leið niður hlíðarnar, þannig
að úr varð heljarmikil aurskriða sem
náði yfir meira en 30 km svæði. Flest
fórnarlamba hamfaranna voru íbúar
þorpsins Nizhny Karmadon, suðaust-
ur af höfuðstaðnum Vladikavkaz, en
það fór nánast alveg á kaf.
„Þeir sem sluppu lifandi eru þegar
komnir fram. Skyggni til björgunar-
starfsins hefur verið það gott,“ sagði
einn af björgunarmönnunum, Sergej.
Ættmenni fólks, sem talið er af, neit-
uðu hins vegar að gefa upp vonina.
„Ég ætla að bíða þar til ég fæ fréttir
af bróður mínum,“ sagði miðaldra
kona, Zalina, en bróðir hennar er
meðal þeirra sem taldir eru af.
Nokkurn tíma mun taka að finna
lík fórnarlambanna enda flest grafin
undir fjörutíu metra hárri breiðu af
aur, grjóti og ís.
AP
Örvæntingarfullar konur bíða eftir fréttum af ástvinum sínum. Meira en 100 manns var saknað í gær eftir að
stór hluti af falljökli brotnaði af síðastliðinn föstudag og steyptist niður gljúfur, sem var fjölsótt af göngufólki.
Allt að 140 fórust í N-Ossetíu
Koban-skarði. AFP.
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 21
FJÓRIR hófsamir stjórnmála-
flokkar í Slóvakíu ákváðu í gær að
mynda nýja ríkisstjórn og hunsa
um leið þjóðernissinnann Vladim-
ir Meciar en flokkur hans hlaut
mest fylgi, 19,5%, í þingkosning-
unum á föstudag og laugardag.
Nýja stjórnin hyggst einbeita sér
að því að tryggja Slóvakíu aðild að
Evrópusambandinu (ESB) og Atl-
antshafsbandalaginu (NATO).
Næstmest fylgi hlaut nokkuð
óvænt flokkur kristilegra demó-
krata, SDKU, undir forystu
Mikulas Dzurinda, fráfarandi for-
sætisráðherra, eða rúm 15%.
Flokki hans hafði verið spáð mun
færri atkvæðum vegna þess að
ýmsar ráðstafanir stjórnvalda í
efnahags- og atvinnumálum hafa
valdið miklu atvinnuleysi og
ókyrrð meðal launafólks.
Með flokki Dzurinda í stjórn
verða þrír hægriflokkar. Sam-
bandsflokkur Ungverja (SMK)
fékk 11,6% stuðning, Kristilega
lýðræðisfylkingin (KDH) hlaut
8,25% og Bandalag nýs borgara
(ANO), undir forystu fjölmiðla-
kóngsins Pavol Rusko, fékk rúm
8%. Samanlagt hafa flokkarnir
fjórir 78 þingsæti af alls 150 á
þingi Slóvakíu.
Talið var að líkur Slóvaka á að
fá aðild að ESB og NATO myndu
verða að engu ef Meciar, sem var
forsætisráðherra 1994-98, tæki
aftur við stjórnartaumunum.
Meciar tapaði miklu fylgi í Slóvakíu
Líklegt að Dzurinda
myndi nýja stjórn
Bratislava. AFP.