Morgunblaðið - 24.09.2002, Side 15

Morgunblaðið - 24.09.2002, Side 15
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 15 MIKIÐ hefur verið rætt um sam- skipti barna og foreldra að undan- förnu, ekki síst í tengslum við vanlíð- an barna og unglinga í skólum, aukna fíkniefnaneyslu og uppflosnun úr skólum. Vissulega virðist alltaf vera þörf fyrir bætt samskipti og sífellt verða til nýir og nýir foreldrar. Foreldrafélög grunnskólanna á Suðurnesjum héldu málþing í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja sl. laugar- dag sem bar yfirskriftina „Aftur í skóla“. Ýmsir málaflokkar voru ræddir og vildu foreldrafélögin með málþinginu benda á nauðsyn þess að foreldrar séu sífellt að mennta sig í foreldrahlutverkinu. Vanræksla hefur slæm áhrif á börn Vel á annað hundrað foreldrar sóttu málþingið og mátti heyra á mál- þingsgestum að þeir væru ánægðir með efni þess og framsetningu, ekki síst að boðið væri upp á barnapössun. Þó margvíslegar kenningar hafi verið reifaðar og ræddar má segja að nið- urstaða ráðstefnunnar hafi verið sú að ábyrgðin á uppeldinu sé alltaf hjá foreldrunum. Miklu máli skipti að foreldrar séu góðar fyrirmyndir sem kunni að setja mörkin þannig að barnið fái það svigrúm sem því er nauðsynlegt til að þroskast sem sjálf- stæður einstaklingur með ríka ábyrgðartilfinningu. Þetta kom ekki síst fram í sláandi stuttmynd eftir Helenu Stefánsdóttur kvikmynda- gerðarkonu, sem nefnist „Brot“ og fjallaði um fjögurra manna fjölskyldu í höfuðborginni og ýmsar brotalamir innan hennar. Það er svo sem ekki auðvelt að vera foreldri í dag, eins og Ólafur Grétar Gunnarsson, fjölskyldu- og stjórnunarráðgjafi, kom m.a. inn á í sínu erindi sem fjallaði um ofdekrun. Ólafur sagði að í raun væri það að vera foreldri í dag andfélagsleg hegð- un miðað við það samfélag sem við lif- um í nú, sem krefst sífellt meiri þátt- töku út á við, enda er ofdekrun ein tegund vanrækslu. Ólafur vitnaði í bandarísku Brede- hoft-Clark rannsóknina sem gerð var á 124 einstaklingum sem höfðu verið ofdekraðir í æsku og þau slæmu áhrif sem hún hafði á líðan þeirra. Íslend- ingar munu innan tíðar geta kynnt sér niðurstöður þessarar rannsóknar því væntanleg er á markaðinn bókin „Að alast upp aftur: Annast okkur sjálf, annast börnin okkar“ eftir J. I. Clarke og C. Dawson, sem Ólafur gefur út í samvinnu við félaga sinn, Bjarna Þórarinsson, fjölskyldu- og vímuefnaráðgjafa. Auk fyrrnefndrar rannsóknar verður í bókinni birt nið- urstaða rannsóknar um margföldun erfiðleika ef þungun er óskipulögð. Sjálfstraust foreldra þarf að vera gott Á málþinginu kom berlega í ljós hvað foreldrar á Suðurnesjum vilja leggja áherslu á, því mest aðsókn var í málstofu Hugos Þórissonar, sál- fræðings, „Samskipti foreldra og barna“. Blaðamaður Morgunblaðsins kom sér fyrir í þeirri málstofu og komst að því að í þessum efnum er aldrei ofsögum sagt. Í máli Hugos kom m.a. fram að ís- lenskir foreldrar einblíndu of mikið á það sem uppá vantaði í getu barna. Í stað þess að hrósa barninu fyrir verkið sem það hefur unnið, er það gagnrýnt fyrir það sem það gerði ekki eða foreldrum fannst það ekki gera nógu vel. Með þessu læra börn- in einungis að það sem þau inna af hendi sé aldrei nógu vel gert og sjálfsmynd þeirra veikist. Hugo mun ásamt Wilhelm Norðfjörð sálfræð- ingi bjóða foreldrum á Suðurnesjum upp á námskeið hjá Miðstöð símennt- unar á Suðurnesjum í næsta mánuði þar sem þessi mál verða skoðuð ofan í kjölin. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur ræddi í sinni málstofu um foreldra fullorðinna barna sem búa heima. Þar kom m.a. fram að það væri for- eldrum jafn nauðsynlegt að gera sáttmála við börnin/unglingana rétt eins og sín á milli. Hlutverk fjöl- skyldumeðlima verði að vera skýrt svo allir geti axlað sína ábyrgð. Í mál- stofu Þórdísar Sigurðardóttur, verk- efnastjóra, „Öflugt sjálfstraust“, var rætt um sjálfstraust foreldra og hvernig það þyrfti að vera í lagi svo hægt væri að efla sjálfstraust barnanna. Foreldrar í Reykjanesbæ munu fá að kynnast þessu viðfangs- efni betur á námskeiðum sem haldin verða fyrir foreldra grunnskólabarna í Reykjanesbæ á næstu vikum. Nám- skeiðin heita „Öflugt sjálfstraust“ og er markmið þeirra að gera foreldrum kleift að styrkja sig enn frekar í for- eldrahlutverkinu. Aftur í skóla, fjölsótt málþing sem foreldrafélög grunnskólanna stóðu fyrir Ábyrgð á uppeldinu er alltaf hjá foreldrunum Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Áhugasamir málþingsgestir hlýða á fyrirlestur Ólafs Grétars Gunnarssonar, „Hvernig verður ofdekrun til? – Hvaða áhrif hefur ofdekrun á nám barna?“. Vel á annað hundrað gesta tók þátt í málþinginu um helgina. Reykjanes Þótt margvíslegar kenningar hafi verið reifaðar og ræddar á málþingi foreldrafélaga grunnskólanna á Suð- urnesjum telur Svan- hildur Eiríksdóttir, sem sat þingið, að niðurstaða þess hafi verið sú að ábyrgðin á uppeldi barnanna sé alltaf hjá foreldrunum. STJÓRN Dvalarheimila Suðurnesj- um (DS) hefur samþykkt fyrir sitt leyti að Gerðahreppur fái að byggja tíu íbúðir fyrir aldraða á eignarlóð hjúkrunarheimilisins Garðvangs í Garði. Samþykktin er þó háð sam- þykki sveitarfélaganna fjögurra sem eiga aðild að heimilinu. Stjórn DS lagðist á sínum tíma gegn uppbyggingu sem Gerðahrepp- ur áformaði á lóð Garðvangs. Hrepp- urinn breytti síðar skipulagi og byggist samþykki stjórnarinnar á því og breyttri afstöðu Reykjanes- bæjar sem fallið hefur frá andstöðu sinni. Meirihluti stjórnarinnar, fimm fulltrúar af sex, samþykkti umsókn Gerðahrepps um að byggja íbúðirn- ar, að fenginni staðfestingu eignar- aðila sem eru Reykjanesbær, Sand- gerðisbær, Gerðahreppur og Vatns- leysustrandarhreppur. Fulltrúi Gerðahrepps í stjórninni vildi að samþykktin væri óháð staðfestingu eignaraðila. Sigurður Jónsson, sveitarstjóri í Garði, vonast til að afstaða sveitar- stjórnanna liggi fyrir eftir fundi bæj- arstjórna og hreppsnefnda í byrjun næsta mánaðar þannig að fljótlega verði hægt að hefjast handa við framkvæmdir. Bygging íbúðanna var boðin út í vor og býður verktak- inn eftir leyfi til framkvæmda. Stjórn DS samþykkir framkvæmdir Garður Í FRÁSÖGN hér á síðunni síðastlið- inn laugardag af köfun eftir stóru ankeri og fleiri munum úr ameríska kaupfarinu Jamestown sem fórst við Hafnir fyrir 120 árum misritaðist ein heimildin. Tilvitnuð grein Leós M. Jónssonar birtist í Skildi, tímariti um menningarmál. Beðist er velvirð- ingar á mistökunum um leið og vakin er athygli á því að Leó birtir umfjöll- unina á heimasíðu sinni, www.leo- emm.com, í kaflanum Frásagnir. Grein um Jamestown á heimasíðu Hafnir ♦ ♦ ♦ FJÖLMENNI var að vanda í Þór- kötlustaðaréttum sem fram fóru í fyrradag, og fleira fólk en fé. Gangnamenn smöluðu beitilöndin á laugardag en smalamennskunni seinkaði vegna þoku. Safnið kom því seinna til réttar á Þórkötlustöðum en venjulega og ekki var byrjað að draga sund- ur féð fyrr en síðdegis á sunnu- dag. Allt gekk þó vel úr því og hins sérstæða réttastemning sem Grindvíkingar eru þekktir fyrir myndaðist. Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Smalamennsku og rétt- um seinkaði vegna þoku Grindavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.