Morgunblaðið - 24.09.2002, Page 19

Morgunblaðið - 24.09.2002, Page 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 19 S T Í L L E R E K K I S T Æ R Ð . . . H E L D U R V I Ð H O R F ! Stærðir 40-52 HAUST / VETUR O2 KYNNINGARDAGAR 18.-27. SEPT. Hverfisgötu 6, Reykjavík, sími 562 2862 Haustið í Prag frá kr. 25.450 með Heimsferðum Verð kr. 29.950 Flug og hótel í 3 nætur. M.v. 2 í herbergi á Quality Hotel, 11. nóvember, með 8.000 kr. afslætti. Skattar innifaldir. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Prag er nú orðinn einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga til að sækja heim enda ein fegursta borg heimsins sem geymir mörg hundruð ára sögu á hverju horni og mannlíf og andrúmsloft sem á ekki sinn líka í Evrópu. Gullna borgin, borg hinna þúsund turna, gimsteinn Evrópu, borg töfranna, það er ekki að undra að þessari stórkostlegu borg hafi verið gefin öll þessi nöfn. Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að kynnast þessari ótrúlegu borg. Í boði eru góð 3 og 4 stjörnu hótel og spennandi kynnisferðir um kastalahverfið og gamla bæinn, eða til hins einstaklega fagra heilsubæjar Karlovy Vary, með íslenskum fararstjórum Heimsferða. 8.000 kr. afsláttur Ef þú bókar í ferð frá mánudegi til fimmtudags fyrir 1. okt. getur þú tryggt þér 8.000 kr. afslátt. Flug fimmtud. og mánud. í okt. og nóv. Bókaðu meðan enn er laust 11 flug uppseld. Tryggðu þér sæti meðan enn er laust. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 25.450 Flugsæti til Prag, 14. október, með 8.000 kr. afslætti. Flug og skattar. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. VIÐ endurskipulagningu á rekstri fyrirtækja er allt of oft litið framhjá því hvað virk stýring viðskipta- krafna getur skilað miklum árangri, að sögn Hans Lindqvist, sem situr í stjórn Intrum á Íslandi fyrir hönd Intrum Justitia AB í Svíþjóð. Hann sagði á morgunverðarfundi Intrum á Íslandi í síðustu viku um virka stýr- ingu viðskiptakrafna, að hún leiði oft til lægri fjárskuldbindinga í van- skilakröfum, minni afskrifta, lægri kostnaðar og bætts fjárstreymis. Með því að útvista hluta innheimtu- aðgerða frá fjárreiðudeildum fyrir- tækja til innheimtufyrirtækja öðlist stjórnendur m.a. betri tíma til að sinna kjarnastarfsemi fyrirtækja sinna um leið og þeir geti varið meiri tíma í verðmætasköpun og stuðning við ákvarðanatöku. Intrum Justitia AB á 20% hlut í Intrum á Íslandi. Hans kynnti á morgunverðarfundinum áherslu- breytingar á starfsemi Intrum Just- itia, sem hann sagði að fælust í end- urskilgreiningu á starfsemi fyrir- tækisins frá því að sinna fyrst og fremst innheimtum í það að skil- greina sig sem fyrirtæki sem sér- hæfir sig í stýringu á flæði viðskipta- krafna. Hann sagði að í tengslum við áherslubreytingarnar hafi Intrum Justitia jafnframt breikkað þjón- ustuframboð fyrirtækisins og lagt aukna áherslu á greiningu ferla og mat á ferli viðskiptakrafna innan fyrirtækja. Fram kom í erindi Jóhannesar I. Kolbeinssonar, ráðgjafa hjá Intrum á Íslandi, að Intrum hafi nýtt sér samanburðarrannsóknir við innlend og erlend fyrirtæki til að vega og meta hvaða leiðir við innheimtu við- skitakrafna skili bestum árangri. Þar hafi berlega komið í ljós hversu skýr tenging sé á milli þess tíma sem varið er í stuðning við ákvarðana- töku og bætt upplýsingaflæði innan fyrirtækja við árangur þeirra og arð- semi. Hann lagði ennfremur áherslu á hve mikilvægt sé að greina vand- lega viðskiptakröfur fyrirtækja og viðskiptavini með tilliti til hvaða inn- heimtuleiðir henti best í hverju til- felli. Jörundur Jörundsson, deildar- stjóri fjárreiðudeildar Samskipa, kynnti á fundinum breytingar sem Samskip hafa innleitt varðandi inn- heimtuferla. Hann sagði að útvistun á ákveðnum þáttum innheimtuferla og markviss skilaboð um meðferð vanskilakrafna hafi skilað mjög góð- um árangri, bættu fjárstreymi, lægri afskriftum á viðskiptakröfum ásamt því að hafa góð áhrif á vinnubrögð starfsmanna. Markviss vinnubrögð í innheimtumálum gerðu kröfur um nákvæmni og vandvirkni sem einnig skilaði sér í færri vandamálum við innheimtu reikninga. Virk stýring viðskipta- krafna gefur góða raun Á fundi Intrum á Íslandi kom fram að útvistun á innheimtu viðskiptakrafna geti skipt miklu fyrir rekstur fyrirtækja TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN hf., TM, hefur stofnað Líftryggingamiðstöð- ina hf., líftryggingafélag sem er að 99,92% í eigu TM. TM átti 15% hlut í Sameinaða líf- tryggingafélaginu hf., Samlífi, þar til í apríl síðastliðnum þegar félagið seldi Sjóvá-Almennum tryggingum hf. eignarhlut sinn. Ágúst Ögmundsson, aðstoðarfor- stjóri TM, segir að ástæða þess að eignarhluturinn í Samlífi var seldur hafi verið að það hafi ekki verið talið samrýmast samkeppnissjónarmiðum að tvö tryggingafélög ættu saman fé- lag og seldu bæði tryggingar þess. Ágúst segir að TM hafi orðið að geta boðið þessa þjónustu og talið hafi verið best að hafa hana á eigin hendi. Hann segir að eftirspurn eftir líftryggingum hafi aukist mikið frá því sem var fyrir tveimur til þremur áratugum, en þá hafi ungt fólk ekki hugað að því að líftryggja sig ólíkt því sem nú gerist. Fyrirhugað er að Líftryggingamið- stöðin hefji starfsemi í upphafi næsta árs og Ágúst segir að gert sé ráð fyrir að hún fari rólega af stað og muni ekki hafa áhrif á afkomu TM á næst- unni að minnsta kosti. Hið nýja félag mun bjóða upp á líf- tryggingar og sjúkratryggingar, en ekki verður boðið upp á söfnunarlíf- tryggingar. „Við teljum að fjármála- stofnanir eigi að sjá um það, við erum tryggingafélag,“ segir Ágúst. Stjórn Líftryggingamiðstöðvarinn- ar skipa Gunnlaugur Sævar Gunn- laugsson formaður, Einar Sigurðsson varaformaður og Hreinn Loftsson, en þeir eru allir í stjórn TM. Fram- kvæmdastjóri félagsins er Gunnar Felixson sem jafnframt er forstjóri TM. Hlutafé þess er 250 milljónir króna. Tryggingamið- stöðin stofnar líf- tryggingafélag Tryggingamiðstöðin hefur stofnað nýtt líftryggingafélag. ● Í LOK ársins munu farþegar stræt- isvagna Strætós bs. geta fengið ná- kvæmustu upplýsingar sem völ er á um ferðir vagnanna og hvaða leið heppilegast sé að fara til þess að ná á áfangastað á sem skemmstum tíma, að því er segir í fréttatilkynn- ingu. Strætó og TrackWell Software skrifuðu nýverið undir samning er miðar að því að þróa upplýsingakerfi Strætós sem mun hafa í för með sér umtalsverðar nýjungar fyrir farþega vagnanna. Til að byrja með verða upplýsingarnar aðgengilegar á Net- inu en þegar fram líða stundir verða þær einnig aðgengilegar með fjar- skiptabúnaði á borð við farsíma og í rauntíma. Íslenska vefstofan mun hanna nýtt útlit á heimasíðu Strætós og annast uppsetningu á vefumsjón- artæki fyrirtækisins. Fyrirtækið Sjá ehf. hefur séð um undirbúning, grein- ingu og útboð verkefnisins og mun hafa yfirumsjón með verkefninu. Upplýsingar um strætó á Netinu ● KAUPÞING banki hf. keypti 19. september sl. hlutabréf í Baugi Group hf. að nafnverði 14.370.000 kr. Eignarhlutur Kaupþings banka hf. í Baugi Group hf. er nú 10,6% eða 253.875.000 kr. að nafnvirði en var áður 9,9% eða að nafnvirði 239.375.000 kr. Til viðbótar við framangreinda hlutafjáreign hefur Kaupþing banki hf. sölurétt og Gaumur hf. kauprétt á 150 millj- ónum að nafnverði hlutafjár í Baugi Group hf. Kaupþing banki hf. er því skráður eigandi að samtals 403.875.000 krónum. Kaupþing eykur hlut sinn í Baugi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.