Morgunblaðið - 24.09.2002, Side 35
að fara eigin leiðir við skipulagn-
ingu á andlegri ástundun.
Sú útbreidda skoðun að Falun
Gong sé peð í valdabaráttunni í
kringum upprennandi stjórnar-
skipti í Kína (The Economist,
27.7.02) er mikil einföldun. Það var
undir stjórn Jiangs Zemin að Falun
Gong spratt upp sem afl í kínversku
samfélagi og ávann sér tugi millj-
óna iðkenda áður en ástundunin var
bönnuð. Það var sömuleiðis undir
hans stjórn sem Falun Gong hlaut
ríkisstyrktar viðurkenningar. Jiang
Zemin harmar e.t.v. mjög að
ástundunin skuli hafa orðið svo vin-
sæl undir hans stjórn, en líkt og
bandarískir forsetar vill hann vænt-
anlega að sín verði minnst fyrir að
hafa bætt velferð almennings.
Hann efast bersýnilega um að til-
koma Falun Gong hafi verið góð.
Með vísan til nýrra uppgötvana um
heilsubót Falun Gong-iðkunar, má
Jiang Zemin þó vera ljóst að hans
yrði betur minnst sem leiðtoga
tímabils er Falun Gong blómstraði,
heldur en leiðtoga sem bældi hreyf-
inguna niður.
Larry Summer, rektor við Har-
vard, hefur nýlega gert samning við
Jiang Zemin um að þjálfa starfs-
menn ríkisstjórnar hans í stjórn-
máladeildinni við Harvard. Þar sem
atriði er snerta heilbrigðismál og
óhefðbundnar lækningar fléttast
saman við stjórnmál í Kína, þarfn-
ast framkvæmd samningsins ítar-
legrar umræðu við háskólann með
þátttöku heilbrigðisstéttarinnar.
Mín einlæga von er að þessi mis-
skilningur beggja vegna verði upp-
rættur með viðræðum vestrænna
og kínverskra vísindamanna, sem
og stjórnmálamanna.
Höfundur er dr. í taugasérfræðum
við læknadeild Harvard.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 35
PYLSUR
10 stk.
199-
LÁGT OG
STÖÐUGT
VÖRUVERÐ!
Bringur
-20%
Vængir
-40%
Læri og leggir
-35%
Nautakjöt
Kjöt
Kjúklingar
afsláttur við kassa
MARKAÐUR
OPIÐ
11-20
ALLA DAGA
Ódýrt fyrir alla!
Lambakjöt á
TILBOÐI!
229-
Súpukjöt ll fl.
399-
1/2 framp. DI
sagað súpukjöt
499-
1/2 skrokkar DIA
sagaðir
pr.kg.
pr.kg.
pr.kg.
299-
HAMBORGARAR
4 stk. m/brauði
998-
NAUTASNITSEL
pr.kg.
499-
BLANDAÐ NAUTAHAKK
nauta og svína
pr.kg.
998-
NAUTAGÚLLAS
pr.kg.
699-
SVÍNAKÓTILETTUR
1. fl. nýjar og ófrosnar
pr.kg.
299-
SVÍNABÓGAR
1. fl. nýir og ófrosnir
pr.kg.
399-pr.kg.
SVÍNABÓGAR
1. flokkur reyktir
399-pr.kg.
SVÍNALÆRI
1. fl. ný og ófrosin
pr.kg.898-
BRAUÐSKINKA
499-
HAMBORGARAR 10 STK.
ekta nautakjöt (frosnir)
799-
NAUTAHAKK
1 flokkur
pr.kg.
Svínakjöt
nýtt og ófrosið
299-pr.kg.
SVÍNAHAKK
1. fl. nýtt og ófrosið
LYNGHÁLSI 4 OG SKÚTUVOGI 2
HANN gerði sér skrítið erindi í
Morgunblaðið síðastliðinn sunnu-
dag sá mæti maður Einar Kára-
son rithöfundur. Þar sýndist mér
hann halda því fram, að sú meg-
inregla í mannheimi, að siðferði-
lega sé rangt að skrökva, eigi ekki
við stjórnmálamenn.
Svo stendur á, að fyrir nokkrum
dögum skrifaði ég smágrein í
blaðið, þar sem á það var minnst,
að borgarstjórinn í Reykjavík ætti
ekkert sérstakt hrós skilið fyrir að
hafa sagst ætla að standa við fyr-
irvaralausa yfirlýsingu, sem hún
gaf opinberlega fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar síðasta vor,
að hún ætlaði ekki í þingframboð á
vori komanda. Ég hafði nefnt í
leiðinni, að líklega væri það frem-
ur ámælisvert, að borgarstjórinn
skyldi hafa þurft að leggjast undir
feld í einhverjar vikur til að geta
ákveðið að orðin skyldu standa.
Hún hlyti að hafa verið að hugsa
um að svíkja þau.
Einar virðist vera hliðhollur
Samfylkingunni og áhugamaður
um að borgarstjórinn fari í fram-
boð á vettvangi landsmála. Ekk-
ert er nema gott um það að segja.
Það er alveg rétt sem hann segir,
að margir stjórnmálamenn hafa
haslað sér völl á vettvangi sveit-
arstjórna og haldið svo út í lands-
málin. Og dæmi eru líka til um, að
menn hafi byrjað í landsmálum og
farið svo í framboð til sveitar-
stjórna. Það er allt sjálfsagt og
eðlilegt. Hafi einhverjir þeirra
hins vegar áður, til dæmis þegar
þeir sóttust eftir atkvæðum til
hinna fyrri trúnaðarstarfa, verið
búnir að gefa kjósendum sínum
loforð um að flytja sig ekki um set
við fyrirsjáanlegt tækifæri, breyt-
ist staðan. Þá tekur málið að snú-
ast um að vera maður orða sinna.
Það er eins og Einar Kárason
telji það í góðu lagi fyrir stjórn-
málamenn að lofa einu en gera
annað. Það er eins og hann telji
þýðingarmikla mannkosti, eins og
þá að standa við gefin fyrirheit,
ekki hafa gildi á vettvangi stjórn-
málanna. Ég er ósammála honum
um þetta. Ég tel að slíkir kostir
geti jafnvel skipt þar meira máli
en oft annars, einkum vegna þess,
að stjórnmálamenn biðla til
manna um að kjósa sig á grund-
velli loforða um, hvað þeir hyggist
gera í framtíðinni. Traustið skipt-
ir þar meginmáli. Sé stjórnmála-
maður fyrir kosningar spurður
spurningar, þar sem satt svar er
til þess fallið að draga úr kjörfylgi
hans, er það að mínu mati ekki
valkostur fyrir hann að skrökva. Í
besta falli getur hann neitað að
svara eða þá haft nauðsynlegan
fyrirvara á svari sínu. Kjósi hann
að veita efnislegt svar við spurn-
ingu er honum einfaldlega skylt
að segja satt og taka þá á sig út-
gjöldin ef einhver eru. Hann á
ekki kostinn, sem mér sýnist Ein-
ar ætla honum, að skrökva til að
sleppa við útgjöldin.
Og minn kæri Einar! Ekki taka
þátt í að halda því fram, sem svo
margir gera, að handritið að öllu,
sem þeir telja að aflaga fari í
mannlífinu, sé skrifað af samsær-
ismönnum í hópi pólitískra and-
stæðinga. Það er svo aumkunar-
vert.
Jón Steinar Gunnlaugsson
Er valkostur
að skrökva?
Höfundur er hæstaréttarlög-
maður.
Ríkislögreglustjóri,
Haraldur Johannes-
sen, hefur gagnrýnt
undirritaðan lögmann
fyrir að hafa sent sér
opið bréf um starfs-
hætti lögreglunnar.
Þó er hann opinber
embættismaður og
verður að una því þó
að embætti hans fái á
sig opinbera gagnrýni.
Bréfið sendi ég Har-
aldi í faxi síðla dags á
föstudag og frumritið
var sent með leigubíl
skömmu síðar. Ekki
veit ég hvenær Har-
aldur opnar póstinn
sinn, en bréfið á erindi við alla þá
sem vilja fylgjast með framkvæmd
þess opinbera valds sem Haraldi og
starfsmönnum hans hefur verið
treyst fyrir. Þess vegna var bréfið
birt í Morgunblaðinu á laugardag.
Athygli er þar vakin á veigamikl-
um atriðum sem nauðsynlegt hefði
verið fyrir lögregluna að huga að í
aðdraganda húsleitarinnar hjá
Baugi, en ég er lögmaður fyrirtæk-
isins. Baugur er skráð í Kauphöll
Íslands og um slík fyrirtæki gilda
strangar reglur varðandi innherja-
viðskipti. Þær reglur
hljóta að koma til
skoðunar gagnvart
þeim lögreglumönnum
og endurskoðendum
sem vinna að rann-
sókn málsins á vegum
Ríkislögreglustjóra
vegna þess að þeir
hafa fengið aðgang að
viðkvæmum trúnaðar-
upplýsingum um
rekstur fyrirtækisins.
Þetta er reyndar at-
riði sem hlýtur að
snerta öll þau fyrir-
tæki sem hafa þurft að
sæta húsleit af hálfu
stjórnvalda á undan-
förnum mánuðum og eru skráð á
Kauphöll Íslands. Eru rannsóknar-
menn á vegum yfirvalda undan-
þegnir reglum um innherjavið-
skipti? Einnig er í bréfinu vakin
athygli á því að lögregla hefur
fengið til liðs við sig við endurskoð-
unarfyrirtæki eins helsta sam-
keppnisaðila Baugs á matvöru-
markaði hér landi. Ástæða er til að
efast um að það atriði hafi komið til
skoðunar áður en rannsóknin hófst
og það er bara alls ekki nógu gott.
Þó að ekki sé ástæða til að efast um
endurskoðendurna sjálfa þá er
þessi nálægð óneitanlega óþægileg
fyrir alla hlutaðeigandi. Viðbrögð
Haraldar í fjölmiðlum sýna að hon-
um finnst óþægilegt að þurfa að
svara svona spurningum á opinber-
um vettvangi, en það er eðli þess
starfs sem hann gegnir og hann
getur ekki snúið sér undan því með
því að gera birtingarhátt opins
bréfs að umkvörtunarefni.
Hvenær opnar
Haraldur póstinn?
Hreinn
Loftsson
Lögregla
Eru rannsóknarmenn
á vegum yfirvalda,
segir Hreinn Loftsson,
undanþegnir reglum
um innherjaviðskipti?
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
upphæð sem þarf til að greiða laun
læknis og ritara, húsaleigu o.s.frv.
Hvorki Margrét S. Björnsdóttir né
nokkur annar virðist hafa reiknað þá
upphæð til enda, en það þarf töluvert
hugmyndaflug til að halda að hún sé
ekki hærri en þær 938 krónur sem
skattgreiðendur þurfa að greiða sér-
fræðingnum. Þá er enn eftir að
hugsa til faglegra sjónarmiða eins og
þeirra hvort sérfræðingur á ákveðnu
sviði veiti sambærilega þjónustu og
heilsugæslulæknirinn.
Það sem er svo ergilegt fyrir Mar-
gréti og hennar fylgismenn er að hið
opinbera – með Sighvat og Margréti
í fylkingarbrjósti – hefur með skatt-
lagningu reynt eins og hægt er að
stýra veiku fólki frá sérfræðingum til
heilsugæslulækna, en vitleysingarn-
ir sem veikjast láta sér samt ekki
segjast og fara til sérfræðinga þegar
þeim sýnist og eru þá tilbúnir til að
borga fyrir fjórum sinnum meir. Inn-
an sviga má bæta því við að hvernig
sem öllu þessu er nú varið þá þekkja
sérfræðingar fjölmörg dæmi um það
að jafnvel þeir stjórnmálamenn, sem
helst vilja leggja núverandi kerfi nið-
ur eftir uppskrift Margrétar, leita
sjálfir ólmir beint til sérfræðinga
þegar eitthvað amar að þeim eða
þeirra fólki – og þeir vilja fá tíma alls
ekki seinna en strax.
Þeir sem við heilbrigðismál starfa
vita að mikil miðstýring mun al-
mennt ekki þjóna hagsmunum heil-
brigðiskerfisins heldur aðeins
stjórnmálamannanna sjálfra því það
eru þeir, sem ætla að taka að sér
miðstýringuna. En læknar eru nú al-
mennt orðnir langþreyttir á
skemmdarverkum stjórnvalda á
heilbrigðiskerfinu og rógburði Mar-
grétar S. Björnsdóttur og hennar
líka, sem hafa t.d. gert sér sérstakt
far um að láta starfsheitið „sjálfstætt
starfandi sérfræðingur“ hljóma eins
og argasta skammaryrði.
Við læknar vitum a.m.k. að Mar-
grét er alls ekki ein um að viðhafa
málflutning um heilbrigðismál af því
tagi sem fram kemur í grein hennar.
Það fólk mun halda áfram að ráðast
m.a. að sjálfstætt starfandi læknum
með því að skjóta fyrst og spyrja svo
af því að það þjónar betur þeirra eig-
in hagsmununum. Því miður – fyrir
hið frábæra íslenska heilbrigðiskerfi.
Höfundur er læknir og sjálfstætt
starfandi sérfræðingur.