Morgunblaðið - 24.09.2002, Síða 45

Morgunblaðið - 24.09.2002, Síða 45
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 2002 45 Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433. Mikið úrval af buxum Handklæði & flíshúfur . Fáið sendan myndalista Myndsaumur Reykjavíkurvegur 62 220 Hafnarfjörður Sími 565 0488 www.myndsaumur.is Afmælisþakkir Ég sendi einlægar hjartans þakkir til þeirra sem minntust mín og glöddu mig með ýmsum hætti á 80 ára afmæli mínu, 13. september. Guð og gæfa fylgi ykkur. Anna Erlendsdóttir, Skerjabraut 7a, Seltjarnarnesi. Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 10–14 í neðri safnaðarsal kirkjunnar. Byrjað á kaffisopa og kl. 10.30 er boðið upp á skemmtigöngu um Laugardalinn eða upplestur úr góðum bókum fyrir þá sem ekki treysta sér í gönguna. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12. Fólk sem býr eða starfar í sókninni er hvatt til að koma og eiga kyrrðarstund í önnum dagsins. Fyr- irbænum má koma til starfsfólks kirkjunn- ar. Að lokinni bænastund gefst þátttak- endum kostur á léttum hádegisverði. Opinn 12 spora fundur í kvöld kl. 19. Bústaðakirkja. TTT-æskulýðsstarf fyrir 10–12 ára kl. 17. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris- ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður að samverustund lokinni. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Laugarneskirkja. Bænanámskeið kl. 20. Sr. Bjarni Karlsson fræðir um bænina. Gott að koma. Gengið inn um dyr á aust- urgafli kirkjunnar. Þriðjudagur með Þor- valdi kl. 21. Lofgjörðarstund þar sem Þor- valdur Halldórsson leiðir sönginn við undirleik Gunnars Gunnarssonar, en sóknarprestur flytur guðs orð og bæn. Fyr- irbænaþjónusta kl. 21.30 í umsjá Mar- grétar Scheving sálgæsluþjóns og hennar samstarfsfólks. (Sjá síðu 650 í Texta- varpi.) Neskirkja. Litli kórinn – kór eldri borgara kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. Allir velkomnir. Alfa-námskeið kl. 19. Skráning í síma 511 1560. Umsjón sr. Örn Bárður Jónsson. Foreldramorgnar miðvikudag kl. 10–12. Fræðsla í umsjón hjúkrunarfræðinga frá Heilsugæslustöð- inni á Seltjarnarnesi. Svefn og svefnvenj- ur barna. Umsjón Elínborg Lárusdóttir. Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í safnað- arheimilinu kl. 10–12. Hittumst, kynn- umst, fræðumst. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra. Starfið hefst að þessu sinni með ferða- lagi. Farið verður með Guðrúnu Ásmunds- dóttur á slóðir Einars Benediktssonar. Lagt af stað frá kirkjunni kl. 13. Heim- koma áætluð kl. 22. KFUM & KFUK í Digraneskirkju fyrir 10–12 ára krakka kl. 17–18.15. Fræðslusalur opinn fyrir leiki frá 16.30. Unglingakór Digraneskirkju kl. 17–19. Alfa-námskeið kl. 19. Kvöldverð- ur, fræðsla, umræðuhópar. Innritun og skráning. Kennari sr. Magnús B. Björns- son. Fella- og Hólakirkja. Foreldrastund í safn- aðarheimili á þriðjudagsmorgun kl. 10– 12 í umsjón Lilju G. Hallgrímsdóttur, djákna. Kaffi og notalegheit þar sem heimavinnandi foreldrar hittast í góðu um- hverfi kirkjunnar. Starf fyrir 11–12 ára stúlkur kl. 16.30. Grafarvogskirkja. Starf eldri borgara hefst í dag með haustferð á Stokkseyri og Eyrarbakka. Lagt verður af stað frá Graf- arvogskirkju kl. 11. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8. bekk Rimaskóla kl. 20–22. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10. bekk í Grafarvogskirkju kl. 20–22. Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra er í Hjallakirkju kl. 9.15–10.30. Umsjón Sig- urjón Árni Eyjólfsson. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 18. Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag kl. 10–12 í safnaðarheimilinu Borgum. Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús kl. 10–12. Kaffi og spjall. Æskulýðsfund- ur fyrir 13 ára unglinga (fermingarbörn) kl. 20. Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 13–16. Spilað og spjallað. Blöðin liggja frammi og heitt á könnunni. Stutt ferð á vegum starfsins einu sinni í mánuði í sumar. Allir velkomnir. Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára börn í dag kl. 17. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30–18. Æskulýðsstarf 8. og 9. bekkur kl. 20–22. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15 kirkjuprakkarar, kirkjustarf 6–8 ára krakka. Sr. Þorvaldur og leiðtogarnir. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl. 10–12. Hveragerðiskirkja. Foreldramorgnar þriðjudagsmorgna kl. 10–11.30. Borgarneskirkja. TTT, tíu til tólf ára starf alla þriðjudaga kl. 17–18. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.15–19. Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl. 13.40. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Kefas. Bænastund kl. 20.30. Allir vel- komnir. Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9. Safnaðarstarf Kópavogskirkja Gullsmárabrids Eldri borgarar spiluðu tvímenn- ing á tíu borðum fimmtudaginn 19. september sl. Meðalskor 168. Bezt- um árangri náðu í N/S: NS Karl Gunnarss. – Kristinn Guðmundss. 210 Páll Guðmundsson – Filip Höskuldsson 195 Sigurður Björnss. – Auðunn Bergsv. 191 A/V: Leó Guðbrandss. – Aðalsteinn Guðbr. 186 Jón Páll Ingibergsson – Björn Bjarnas. 179 Viðar Jónsson – Sigurþór Halldórsson 178 Spilað á mánudögum og fimmtu- dögum. Mæting kl. 12.45 á hádegi. Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Vetrarstarfið hófst með eins kvölds tvímenningi 16. sept. sl. Með- alskor 165 stig. Röð efstu para: Guðlaugur Sv. – Hermann Friðrikss. 211 Jón Stefánss. – Magnús Sverriss. 191 Stefanía Sigurbj. – Jóhann Stefánss. 191 Halldór Svanb. – Kristinn Kristinss. 190 Mánudaginn 23. sept. verður spil- aður eins kvölds tvímenningur sem er upphitun fyrir Hausttvímenning 2002 sem áformað er að fari af stað mánudaginn 30. sept. og standi yfir í 3-5 kvöld, fer eftir þátttöku. Spilað er alla mánudaga kl. 19.30 í Síðumúla 37. Skráning á spilastað ef mætt er stundvíslega kl. 19.30. Öll- um er heimil þátttaka. Framhaldsaðalfundi BR frestað Framhaldsaðalfundi Bridgefélags Reykjavíkur, sem áformað var að halda þriðjudaginn 24. september, hefur verið frestað um viku, til þriðjudagsins 1. október. Fundurinn hefst klukkan 18:00 í húsnæði Bridgesambandsins í Síðumúla 37. Fundarefni verður venjuleg aðal- fundarstörf og kosning nýrrar stjórnar. Bridsfélag Kópavogs Fimmtudaginn 19. september var spilað annað kvöldið af þremur í 11– 11-tvímenningnum þar sem verslan- ir 11–11 gefa vegleg verðlaun í formi vöruúttektar. Besta skori kvöldsins náðu N/S. Meðalskor 216: Vilhjálmur Sig. – Steingrímur Jónass. 258 Ísak Örn Sigurðsson – Ómar Olgeirss. 233 Elín Jóhannsd. – Hertha Þorsteinsd. 225 A-V Bernódus Kristinss. – Birgir Ö. Steingr. 258 Guðlaugur Sveinss. – Þórður Björnss. 245 Erla Sigurjónsd. – Sigfús Þórðarson 236 Staðan er þessi: Vilhjálmur Sig. – Steingrímur Jónass. 503 Guðlaugur Sveinss. – Þórður Björnss. 487 Gísli Tryggvason – Heimir Tryggvason 477 Bernódus Kristinss. – Birgir Ö. Steingr. 471 Erla Sigurjónsd. – Sigfús Þórðarson 463 Fimmtudaginn 26. sept. lýkur 11– 11-keppninni, spilað er í Þinghóli, Hamraborginni, og hefst spila- mennska kl. 19.30. Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði Glæsibæ mánud. 16. sept. 2002. 22 pör. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Sæmundur Björnss. – Olíver Kristófss. 272 Björn E. Péturss. – Hilmar Ólafsson 261 Oddur Jónsson – Ægir Ferdinantsson 258 Árangur A-V: Sigurleifur Guðjónss. – Guðm. G. Guðm. 281 Kristján Ólafsson – Ólafur Gíslason 246 Jón Karlsson – Valur Magnússon 236 Tvímenningskeppni spiluð fimmtud. 19, september. 22 pör. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Ingibjörg Stefánsd. – Þorsteinn Davíðss. 237 Halla Ólafsdóttir – Jón Lárusson 236 Oddur Jónsson – Ægir Ferdinantsson 236 Árangur A-V: Sigurleifur Guðjónss. – Guðm. G. Guðm. 253 Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 238 Haukur Guðmundss. – Gunnar Hersir 232 Aðalfundur Bridsdeildarinnar var haldinn fimmtud. 19. september. Ný- kjörin stjórn er þannig skipuð: For- maður Rafn Kristjánsson, ritari Júl- íus Guðmundsson, gjaldkeri Björn E. Pétursson, meðstjórnendur Ólaf- ur Ingvarsson, Sigtryggur Ellerts- son . BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.