Morgunblaðið - 19.10.2002, Side 1
Reuters
ÞÚSUNDIR íbúa á Balí í Indón-
esíu komu saman til bænaathafn-
ar í gær, skammt þar frá sem
sprengja sprakk á laugardaginn
og varð hátt í tvö hundruð manns
að bana.
Forseti Indónesíu, Megawati
Sukarnoputri, skrifaði í gær und-
ir tvær neyðartilskipanir til þess
að berjast gegn hryðjuverka-
starfsemi og munu þær ná til
hryðjuverkanna á laugardaginn.
Fá yfirvöld heimild til að dæma
til dauða þá sem eru dæmdir sek-
ir um hryðjuverk og halda grun-
uðum hryðjuverkamönnum í
varðhaldi í nokkra mánuði án
réttarhalda. Yusril Ihza Mah-
endra, dómsmálaráðherra
Indónesíu, sagði í gær, að tilskip-
anirnar kynnu að skerða einhver
réttindi „en þeim er ætlað að
vernda mikilvægustu réttindi
manna“.
Áhyggjur af mannréttindum
Mannréttindasamtökin Human
Rights Watch sögðu að viðbrögð
indónesískra stjórnvalda við
hryðjuverkinu á Balí mættu ekki
grafa undan mannréttindum í
landinu, sem væru þegar fyrir
borð borin. En Megawati sagði að
þau lög sem fyrir hendi væru
dygðu skammt til að kljást við
hryðjuverkastarfsemi, og hefðu
tilskipanirnar, sem hún skrifaði
undir í gær, legið fyrir áður en
voðaverkin voru unnin á Balí
hefði e.t.v. verið hægt að koma í
veg fyrir þau.
Bæna-
athöfn
á Balí
245. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 19. OKTÓBER 2002
PAKISTANAR gerðu leynilegan
samning við Norður-Kóreumenn
árið 1997 um að útvega þeim bún-
að, sem kann að hafa gert þeim
kleift að þróa kjarnavopn, að því er
The New York Times hafði eftir
bandarískum embættismönnum í
gær.
Heimildarmennirnir segja að
Pakistanar kunni að hafa séð
Norður-Kóreumönnum fyrir tækj-
um, sem nauðsynleg eru til að
vinna úran í kjarnavopn. Í staðinn
hafi Pakistanar fengið norður-kór-
eskar eldflaugar.
„Alrangt“
Talsmaður pakistanska sendi-
ráðsins í Washington sagði að ekk-
ert væri hæft í þessari frétt. Emb-
ættismenn í Hvíta húsinu vildu
ekkert segja um málið.
Heimildarmenn The New York
Times sögðu að Rússar og Kínverj-
ar hefðu veitt Norður-Kóreumönn-
um minni aðstoð við þróun kjarna-
vopna. Talsmaður rússneska
utanríkisráðuneytisins sagði það
„alrangt“ að Rússar hefðu aðstoðað
Norður-Kóreumenn. „Við hættum
jafnvel samstarfi okkar við Norð-
ur-Kóreumenn á sviði friðsamlegr-
ar notkunar á kjarnorku árið 1993
eftir að þeir tilkynntu að þeir væru
ekki lengur aðilar að samningnum
gegn útbreiðslu kjarnavopna,“
sagði talsmaðurinn.
Kínverjar hafa alltaf vísað slík-
um ásökunum á bug og talsmaður
utanríkisráðuneytisins í Peking
sagði í gær að þær væru „algerlega
tilhæfulausar“. Bandaríkjamenn
höfðu áður sakað Kínverja um að
hafa séð Norður-Kóreumönnum og
fleiri ríkjum fyrir eldflaugum.
Michele Alliot-Marie, varnar-
málaráðherra Frakklands, sagði í
gær eftir viðræður við bandaríska
embættismenn í Washington að
þeir hefðu áhyggjur af því að
Norður-Kóreumenn kynnu að hóta
að selja hugsanlegum hryðjuverka-
mönnum gereyðingarvopn í því
skyni að kúga fé af Vesturlöndum.
Segja Pakistan
hafa aðstoðað
N-Kóreumenn
Washington. AFP.
„Sólskinsstefnan“/27
Angóla
Tugir
milljarða
hurfu úr
ríkissjóði
Í VINNUSKÝRSLU Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins, IMF, kem-
ur fram að nær milljarður
dala, andvirði 88 milljarða
króna, hafi horfið úr sjóðum
ríkisstjórnarinnar í Angóla í
fyrra, að sögn fréttavefjar
BBC í gær. Er þetta þrisvar
sinnum meiri fjárhæð en
heildarverðmæti þeirrar að-
stoðar sem Angóla fær í ár af
mannúðarástæðum.
BBC segir að í skýrslunni
komi fram að á síðustu fimm
árum kunni alls fjórir millj-
arðar dala, um 350 milljarðar
króna, að hafa horfið úr op-
inberum sjóðum Angóla.
Stjórn landsins neitar þessu.
Stjórnvöld í Angóla hafa oft
verið sökuð um spillingu en
þetta er í fyrsta sinn sem virt
stofnun eins og IMF kemst að
þeirri niðurstöðu að fjármála-
óstjórnin sé eins mikil og fram
kemur í skýrslunni.
Skýrslunni var dreift innan
IMF fyrr á árinu en hún hefur
ekki verið gerð opinber.
AÐ minnsta kosti þrír létust og
tuttugu til viðbótar slösuðust
þegar sprengja sprakk í stræt-
isvagni í Quezon-borg, sem er
eitt úthverfa Manila, höfuðborg-
ar Filippseyja, í gær. Ekki er
vitað hverjir bera ábyrgð á
ódæðinu en það er framið einum
degi eftir að sjö manns féllu og
meira en 100 slösuðust í
sprengjutilræði í borginni
Zamboanga í suðurhluta Fil-
ippseyja.
Atburðurinn átti sér stað um
kvöld að staðartíma en um miðj-
an dag að íslenskum tíma. Roilo
Golez, þjóðaröryggisráðgjafi
Gloriu Arroyo, forseta Filipps-
eyja, var tregur til að fullyrða að
um hryðjuverk væri að ræða en
allar líkur virtust þó á því.
„Þetta er verk illra manna,“
sagði Napoleon Castro, lög-
reglumaður í Quezon.
Telja embættismenn að einn
hinna látnu sé sá sem kom með
sprengjuna um borð í strætis-
vagninn.
Mikill öryggisviðbúnaður hef-
ur verið á Filippseyjum frá því
að 180 manns biðu bana í
sprengjutilræði á eyjunni Balí í
Indónesíu sl. laugardag. Arroyo
forseti fundaði í gær með stjórn
sinni en umræðuefni fundarins
voru viðbrögð við hryðjuverkinu
í Zamboanga í fyrradag. Talið er
að Abu Sayyaf-samtökin hafi
verið þar að verki en þau eru
sögð tengjast al-Qaeda, hryðju-
verkasamtökum Sádí-Arabans
Osama bin Laden.
Þrír
létust í
sprengju-
tilræði
Manila. AFP, AP.
Filippseyjar
SEXTÁN ára drengur vopnaður
skammbyssu tók fjögur 12 ára börn í
gíslingu í barnaskóla í Þýskalandi
síðdegis í gær, en sex klukkustund-
um síðar hafði hann látið alla gíslana
lausa og gafst upp, að því er lögregl-
an greindi frá. Engan sakaði. At-
burðirnir áttu sér stað í Waiblingen,
um fimm km norðaustur af Stutt-
gart.
Um eitt hundrað nemendur voru í
skólanum þegar ræninginn, 16 ára
fyrrverandi nemandi þar, kom inn í
tölvuver á annarri hæð um kl. 15.30,
að því er sjónarvottar greindu frá.
Nokkrum mínútum síðar dró hann
upp byssu og bað alla sem í tölvu-
verinu voru að halda ró sinni. Rak
hann kennarann og alla nemendur,
nema fjóra, út úr verinu og hringdi í
lögregluna úr farsíma. Talsmaður
lögreglunnar sagði drenginn hafa
„virst rólegan“ er hann talaði við lög-
regluna og krafðist þess að fá eina
milljón evra í lausnargjald og bíl til
þess að komast undan.
Eftir að 120 lögreglumenn höfðu
setið um skólann í um fimm klukku-
stundir og talað við drenginn í gegn-
um síma lét hann tvo af gíslunum
lausa gegn því að fá nýjan farsíma,
þar sem síminn sem hann var með
var orðinn rafmagnslaus, pítsu og
símanúmer hjá manni sem hann
treysti. Um kl. 21.20 gafst hann svo
upp, lét síðustu gíslana lausa og gaf
sig fram við lögregluna.
Atburðurinn vakti mikinn óhug í
Þýskalandi, en í apríl sl. myrti fyrr-
verandi nemandi í skóla í bænum
Erfurt 16 manns áður en hann skaut
sjálfan sig til bana.
Waiblingen í Þýskalandi. AP, AFP.
AP
Einn nemendanna fjögurra, er unglingur hélt í gíslingu í Þýskalandi í gær,
er hér ásamt foreldrum sínum eftir að hann var látinn laus.
Unglingur tók fjög-
ur börn í gíslingu