Morgunblaðið - 19.10.2002, Blaðsíða 32
LISTIR
32 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞETTA er svolítil leiksýning þar
sem dýrin geta ekki talað heldur
bara gelt, baulað, jarmað eða gal-
að, sem er orðið heldur óvenjulegt
í leiknu efni þar sem dýr koma við
sögu,“ segir Bjarni Ingvarsson
leikstjóri Heiðarsnældu og vísar
þar til þess að dýr eru gjarnan með
ýmsa mannlega eiginleika í leik-
ritum og teiknimyndum fyrir börn.
„Okkur langaði einnig til að
kynna daglegt líf í sveitinni eins og
það er í dag, en ekki til forna þó í
upphafi sýningar séu börnin frædd
um leiki barna og leikföng sem
þau gerðu sér úr hornum og bein-
um, “ segir Pétur Eggerz leikari.
Auk hans leikur Stefán Örn Arn-
arson á lágfiðlu í sýningunni en
hann og Pétur eiga að baki langt
samstarf í sýningunni Völuspá sem
farið hefur víða um heim á und-
anförnum árum. Auk þess að leika
sér Stefán Örn um tónlist og hljóð-
mynd
Heiðarsnælda hefst með því að
Björn bóndi á bænum Hamri undir
Bröttuhömrum vaknar til morg-
unverkanna. Hann býr þar í friði
og ró ásamt húsdýrunum sínum,
hvolpinum Trygg, hænunum sem
vappa um á hlaðinu, kúnum í fjós-
inu, hestunum í haganum og kind-
unum sem komnar eru upp um öll
fjöll. Ekki þó alveg allar, því heim-
alningurinn, hún Heiðarsnælda,
býr heima á bænum með Birni.
Þennan dag kemst Björn bóndi
að því að Heiðarsnælda er horfin.
Þá er ekki um annað að ræða en að
leita að henni, því uppi í fjalli bíða
hennar ýmsar hættur. Refurinn á
sér greni í urðinni og krummi er
alltaf að sveima yfir gilinu.
Í sýningunni skipa leikbrúður og
búningar veglegan sess og höf-
undur þeirra er Katrín Þorvalds-
dóttir. Kjuregei Alexandra hann-
aði bakteppi og Justin Wallace sá
um módelsmíði. Sýningin er 35
mínútur að lengd og verður frum-
sýnd í Möguleikhúsinu við Hlemm
en verður síðan leikin fyrir leik-
skólabörn á höfuðborgarsvæðinu
og vítt og breitt um landið í vetur.
„Þrátt fyrir að við ferðumst mikið
um landið með sýningar okkar þá
erum við nær alltaf að leika fyrir
börn í þéttbýli. Lífið í sveitinni er
þeim því býsna framandi og fróð-
legt fyrir þau að kynnast því,“ seg-
ir Bjarni leikstjóri að lokum.
Lífið í sveitinni
Í dag kl. 14 frumsýnir Möguleikhúsið
Heiðarsnældu, leikrit fyrir börn á leik-
skólaaldri. Leikritið er samið af leikhópnum
undir leikstjórn Bjarna Ingvarssonar.
Morgunblaðið/Sverrir
Stefán Örn Arnarson og Pétur Eggerz í Heiðarsnældu.
Blíður á
manninn
LEIKLIST
Leikfélag Hveragerðis
KARDEMOMMUBÆRINN
Höfundur: Torbjörn Egner, þýðendur:
Hulda Valtýsdóttir og Kristján frá
Djúpalæk, leikstjóri: Sigurður Blön-
dal. Völundi, Hveragerði, 12. októ-
ber 2002.
ÞAÐ verður að telja eðlilegt
framhald af velgengni Leikfélags
Hveragerðis með Dýrin í Hálsa-
skógi í fyrra að ráðast næst í upp-
færslu á Kardemommubænum.
Fyrir utan hinn elskulega tón
sem gegnsýrir verk Egners eru
þetta reyndar ekki sérlega lík
leikrit. Í Kardemommubænum
er meira lagt upp úr kostulegri
samfélagslýsingu meðan Dýrin
eru meira afgerandi í boðskap
sínum, jafnvel um of. En sagan
sem þar er sögð er skýrari, fram-
vindan meira afgerandi og held-
ur trúlega betur athygli yngri
barnanna, sem mörg voru orðin
ansi óþreyjufull á frumsýning-
unni í Völundi á laugardaginn.
Vissulega er boðskapur
Kardemommubæjarins samt
skýr. Tvær tilraunir eru gerðar
til að betrumbæta ræningjana,
sem eru það eina sem skyggir á
hinn óviðjafnanlega samhljóm
sem einkennir mannlífið í bæn-
um. Soffía frænka reynir fyrst
með offorsi og „fussumsveii“ og
hefur ekki erindi sem erfiði. En
Bastían og frú, með sínu blíða
fasi og hlýlegu leiðbeiningum, ná
umsvifalaust að gera góða og
gegna borgara úr þessum stjórn-
lausu og síbernsku bræðrum.
Bastían telur hverjum manni
skylt að vera „blíður“ á manninn
og með fordæmi sínu hefur hann
áhrif sem skipanir og frenju-
gangur Soffíu frænku megna
ekki.
Það er með miklum ólíkindum
hvernig Sigurði Blöndal og liðs-
mönnum hans hefur tekist að
koma þessum fjölskrúðuga bæ
fyrir á sviðinu í Völundi. Það var
greinilega nokkuð þröngt á þingi
en allt gekk þó snurðulítið fyrir
sig, enda eindrægni eitt helsta
einkenni bæjarbragsins. Það var
helst í söngatriðum sem sviðsetn-
ingin riðlaðist, þar hefði einbeitt-
ari umferðarstjórn skilað betri
árangri. Eins fannst mér leik-
stjóri og leikendur óþarflega
feimnir við að syngja beint til
áhorfenda, jafnvel þó textarnir
gefi tilefni til. Alltof oft stóðu
söngvarar með bakið í salinn og
sungu til hinna persónanna. Fyr-
ir vikið misstu söngvarnir margir
áhrifamátt sinn og texti fór for-
görðum.
Að þessum hnökrum frátöld-
um er sýningin hreint afbragð,
og helgast það helst af frábærri
frammistöðu helstu leikara. Sig-
urgeir Hilmar Friðþjófsson nýt-
ur sín vel í hlutverki Bastíans, og
það sama má segja um Ylfu Lind
Gylfadóttur, sem er Soffía eins
og Soffíur eiga að vera og syngur
aukinheldur afar vel. Jóhann Tr.
Sigurðsson gaf Tóbíasi sannfær-
andi hlýlegt gamalmennisyfir-
bragð. En stærsta hrósið fellur
samt ræningjunum í skaut. Þeir
Hjörtur Már Benediktsson,
Magnús Stefánsson og Steindór
Gestson eru óborganlegir Ka-
sper, Jesper og Jónatan, kraft-
urinn, leikgleðin og samleikurinn
óaðfinnanlegur, tónninn hárrétt-
ur.
Það má óska Leikfélagi
Hveragerðis til hamingju með
þennan Kardemommubæ. Þar
ríkir gleði, og með fordæmi sínu
gefur ungum sem gömlum for-
skrift af því hvernig hægt sé að
haga mannlífi þannig að allir uni
glaðir við sitt og njóti samvist-
anna við náungann.
Þorgeir Tryggvason
LÖNGU var tímabært að gera
merkilegri flugsögu landsmanna
skil af tilheyrilegri stærðargráðu
og fagmennsku. Það hefur verið
markmið heimildarmyndargerðar-
mannanna hjá Sagafilm og tveir
fyrstu þættirnir (af fjórum) bera
þess merki og standa fyllilega
undir væntingum. Aðatandendur
þessara stórfróðlegu og svipmiklu
þátta hafa ekki slegið slöku við
undirbúningsstarfið og viðað að
sér kvikmynduðu og ljósmynduðu
efni víðsvegar að frá einstakling-
um, fyrirtækjum og söfnum. Af-
raksturinn er ekki aðeins menn-
ingarlegur og fræðandi heldur
einstaklega skemmtilegur áhorfun-
ar.
Vænt innlegg eru viðtöl, ný og
gömul, við forkólfa í flugmálum Ís-
lendinga. Menn sem eru fyrir
margt löngu orðnir goðsagnir í Ís-
landssögunni: Þorstein E. Jónsson,
Berg G. Gíslason, Sigurð Jónsson,
Agnar Kofoed-Hansen, Jóhannes
R. Snorrason, Alfreð Gíslason,
Arngrím Jóhannsson, o.fl. o.fl.
Flugið skipti sköpum í jafn erf-
iðu landi yfirferðar og okkar, jafn-
framt var það jafnan sannkallað
hættuspil langt fram eftir síðustu
öld, fyrir tíð flugvalla og nútíma
staðsetningar – og annars nauð-
synlegs tæknibúnaðar. Þá var ein-
göngu um að ræða sjónflug, oft við
hrikalegar aðstæður skýjum neð-
ar.
Allt þetta stórbrotna sjónarspil
og atvinnusaga fer einkar vel af
stað í fyrri helft þáttaraðarinnar.
Við sjáum þróunina frá vordögum
flugsins á Íslandi, sem hefjast 3.
september 1919 og þá þegar vakna
menn til meðvitundar um hið
mikla notagildi þess hérlendis.
Nánast ekkert vegakerfi fyrir
hendi annað en troðningar, óbrúuð
stórfljót í öllum landsfjórðungum
og fjallvegir illfærir mönnum og
skepnum. Aðeins sárafáar bifreiðir
skröltandi um reiðgötur, einkum á
suðvesturhorninu.
Flugið festist í sessi á þriðja
áratugnum; erlendir flugkappar
heimsóttu þetta fjarlæga land og
meðal okkar risu upp eldhugar
einsog dr. Alexander Jóhannesson,
aðalhvatamaður að Flugfélgi Ís-
lands (hinu fyrsta), árið 1928.
Fyrstu áratugina varð einungis
notast við sjóflugvélar þar sem
flugvellir komu ekki til sögunnar
fyrr en síðar. Junkers-, Grumman-
og síðar Katalínuflugbátar setja
mark sitt atvinnulífið og bæta úr
lélegum samgöngum. Síðan kom
kreppan mikla og drap allt í dróma
og gekk frá FÍ.
Eftir langa lægð blés Agnar
Kofoed-Hansen mönnum kapp í
kinn og var, ásamt Vilhjálmi Þór,
aðalhvatamaður að stofnun Flug-
félags Akureyrar árið 1937, sem
síðar varð FÍ nr. 2. Um svipað
leyti voru stofnuð svifflugfélög
sem urðu e.k. útungunarstöð nýrr-
ar starfstéttar flugmannna.
Seinna heimsstríð hafði mikil
áhrif á framþróunina. Kvikmynda-
gerðarmennirnir hafa úr miklu að
moða varðandi þá byltingu sem
varð í landinu með tilkomu flug-
vallanna í Vatnsmýrinni, á Mið-
nesheiði og síðan vítt um byggðir.
Landflugvélar leysa sjóflugvélar af
hólmi, vélarnar stækka, hreyflun-
um fjölgar.
Það er býsna fróðlegt og spenn-
andi að fylgjast með eldhugunum
sem eygðu ný tækifæri á upphafs-
árum millilandaflugsins er FÍ og
hið nýstofnaða félag Loftleiðir
lögðu undir sig vænan hluta af
Norður-Atlantshafsfluginu. Menn
sáu sóknarfæri í nýrri atvinnu-
grein sem hefur verið til ómæl-
anlegra hagsbóta fyrir land og
þjóð og er enn sem fyrr veigamik-
ill þáttur í atvinnulífi, samgöngum
og alþjóðaviðskiptum.
Farið í loftiðSJÓNVARPSMYNDSjónvarpið
1. þáttur: Draumur sérhvers manns. 2.
þáttur: Einangrunin rofin. Handrit og um-
sjón: Rafn Jónsson. Framleiðendur: Anna
Dís Ólafsdóttir og Jón Þór Hannesson.
Kvikmyndataka: Freyr Arnarson o.fl.
Hljóðsetning: Nick Carthcart-Jones.
Hljóðupptaka: Freyr Arnarson. Tónlist:
Máni Svafarsson. Grafík: Bjarki Guð-
jónsson og Ómar G. Samsetning: Örn
Sverrisson. Þulir: Kristján Franklín Magn-
ús og Jón B. Guðlaugsson. Kvikmyndir:
Kvikmyndasafn Íslands o.fl. Ljósmyndir:
Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Flugleiða
o.fl. 2X30 mín. Sjónvarpið, 6. og 13. okt.
2002. Íslensk heimildarmynd. Sagafilm
2002.
FLUGSAGA ÍSLANDS
Sæbjörn Valdimarsson
Í HAFNARBORG, menningar-
og liststofnun Hafnarfjarðar,
stendur yfir sýning á verkum fjög-
urra Eistneskra samtímalistar-
manna, þeim Juri Ojaver, Jan
Paavle, Paul Rodgers og Jan
Toomik. Sýningin nefnist KUU og
er liður í samstarfi listamannanna
sem hefur verið að þróast undan-
farin ár og hafa þeir sýnt saman í
Evrópu og Bandaríkjunum síðan
1999, síðast í Kunsthalle í Vínar-
borg.
Goðsagnir og ævintýri svífa yfir
sýningunni í ýmsum myndum.
Myndbandsverk Jan Paavle, „I
dream: I am a Minotaurus when...“,
sýnir grísku goðsögnina Minotau-
rus ganga úr helli sínum með gyllt-
an og reistan drjóla. Í goðsögunum
kom Minotaurus undir þegar Pa-
siphea drottning Minosar átti mök
við naut. Afkvæmið varð hálfur
maður og hálft naut. Aþenubúar
hræddust hann mjög og héldu hon-
um í skefjum með því að færa hon-
um sjö meyjar og sjö sveina á ári.
Hér er því um ógnvekjandi „kyn-
orku“ að ræða sem Jan Paavle set-
ur í kómískan búning. Verk Paul
Rodgers sýna samskonar afmynd-
un eða ummyndun og Paavle. Eitt
verka hans er höfuð af fyrirbæri
sem er að hluta maður og dýr líkt
og við þekkjum í sögunum um
„Fríðu og dýrið“ og „Eyju Dr.
Moreau“. Höfuðið hangir á veggn-
um sem sigurtákn veiðimanns og er
eyrnamerkt með númeri eins og
dýr á leið til slátrunar. Rodgers
sýnir líka myndband sem hann
nefnir „The impossibility of finding
a common language when faced
with the inevitability of separ-
ation“. Myndbandið sýnir síamství-
bura á hlaupum og undir hljómar
lagið „I only have eyes for you“.
Tvíhöfða fyrirbæri má finna í
mörgum goðsögum og ævintýrum,
en hér eru það saklaus börn að leik
og vekur verkið jafnt óhugnað og
samúð. Myndbandsverk Jan Toom-
ik, sem er án titils, sýnir nakinn
mann með snæri bundið í annan
endann við kynfæri sín og hinn
endann festan við staur. Hann
gengur svo í hringi svo langt sem
snærið nær, heimskulegur á svip
eins og eistnesk útgáfa af Ingjalds-
fíflinu. Rifjast upp fyrir mér að-
ferðir sem notaðar eru til að halda
dýrum föngum eigin huga. T.d. eru
nýfæddir fílar á Indlandi bundnir
með reipi um hálsinn við staur.
Þegar þeir eru fullvaxnir hafa þeir
nægan styrk til slíta keðjur og rífa
upp tré með rótum, en reipið og
staurinn heldur þeim í stað alla ævi
vegna þess að minningin segir þeim
að frelsið nái ekki lengra. Kannski
er Toomik að benda okkur á með
glettnu myndbandi sínu að þannig
höldum við mannfólkið okkur sjálf-
um föngum, þ.e. með því að trúa
takmörkum hugans. Verk Juri
Ojaver nefnist „Everything is the
same, nothing has changed“.
Gúmmíbátur þakinn kúaskinni ligg-
ur á gólfinu og á veggnum er
myndband í örlitlu sjónvarpi sem
hann hefur komið fyrir í eftirprent-
un af klisjukenndu hafnarmálverki.
Myndbandið sýnir mann leggja frá
landi á kúaskinnsbátnum. Í báðum
tilfellum er Ojaver að hylja nútíma-
legt efni með hefðbundnu efni eða
þá að dulbúa nútímann í gömlum
hefðum. Vafalaust liggur margt
annað að baki verkum Ojaver, en
líkt og með öll verkin á sýningunni
þá sit ég frekar eftir með spurn-
ingar en svör. Verk fjórmenning-
anna eru ekki rökleg heldur tilfinn-
ingaleg og ganga þau jafnvel
óþægilega nálægt manni.
Samtíminn er gráglett-
inn og goðsagnarlegur
MYNDLIST
Hafnarborg
Sýningin er opin alla daga nema þriðju-
daga frá 11–17 og stendur til 4. nóv-
ember.
MYNDBÖND OG BLÖNDUÐ TÆKNI
JURI OJAVER, JAN PAAVLE, PAUL
RODGERS OG JAN TOOMIK
Jón B.K. Ransu
Verk eftir Paul Rodgers á sýning-
unni KUU í hafnarborg.