Morgunblaðið - 19.10.2002, Side 49

Morgunblaðið - 19.10.2002, Side 49
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 49 ✝ Sigríður Guð-jónsdóttir fædd- ist í Voðmúlastaða- Austurhjáleigu í Austur-Landeyjum 19. október 1925. Hún lést á heimili sínu að kvöldi 11. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Jóna Guðmundsdóttir og Guðjón Guðmunds- son. Eignuðust þau hjón 12 börn og af þeim eru þrjú á lífi. Ung að árum var Sig- ríður tekin í fóstur til föðursystur sinnar, Sigríðar og hennar barna að Voðmúlastöðum í sömu sveit. Hjá þeim ólst hún upp ásamt ann- arri fósturdóttur. Vorið 1951 hóf Sigríður búskap á Selfossi með Ágústi Valmunds- syni og gengu þau í hjónaband 28. júlí það sama sumar. Þau eignuð- ust eina dóttur, Sigrúnu, f. 15. september 1952. Sambýlismaður hennar er Magnús Flosi Jónsson og synir hennar frá fyrra hjóna- bandi eru Jóhann Grétarsson og Ágúst Örn Grétarsson, kvæntur Ragnheiði Maríu Hannesdótt- ur. Þau eiga tvö börn, Davíð Arnar og Sigrúnu Elfu. Vorið 1959 flutt- ust Sigríður og Ágúst að Búlandi í Austur-Landeyjum og bjuggu þar sveitabúi uns heilsa Ágústar fór að gefa sig. Þau brugðu búi vorið 1974 og flutt- ust til Þorlákshafnar þar sem þau bjuggu síðan. Sigríður vann lengstum í fiski ásamt því að prjóna ósköpin öll af lopapeysum. Þau hjónin fluttu í íbúðir aldraðra að Egilsbraut 9 í febrúar 1995 þar sem Sigríður bjó til hinsta dags en Ágúst dvaldist á Kumbaravogi frá mars 1996 þar til hann lést 21. febrúar 1997. Útför Sigríðar verður gerð frá Þorlákskirkju í Þorlákshöfn í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30 Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Já, elsku mamma, nú er kallið þitt líka komið, svo snöggt en rétt eins og þú varst svo oft búin að óska. Þær óskir þínar eru það sem við huggum okkur við núna. Það er svo margs að minnast og margt að þakka. Þú varst alltaf bjargið í tilverunni, alltaf til taks, ekki allra en sannari vin vina sinna held ég að erfitt sé að finna. Þær voru ekki um langan veg „heimsreisurnar þínar“ og sum- arfríið ekki margar vikur en þitt or- lof var þér dýrmætt. Það voru nokkrir sumardagar ár hvert í bú- staðnum hjá Unni og Sigga, ásamt Gunnu frænku og nú í sumar var hún Lína líka. Hvað þú hlakkaðir alltaf til og hvað þú varst alltaf glöð að lokinni dvöl. Þú hittir marga vini þína í þessum ferðum, það var spjallað, spilað og hlegið í nálægð fjallahringsins fagra. Þetta held ég að hafi verið þér dýrmætustu dagar hvers árs nú í seinni tíð og vil ég þakka öllum þeim sem áttu þar hlut að máli. Þú vildir aldrei halda upp á af- mælið þitt og fannst mér það hálf leiðinlegt því að þegar pabbi varð fimmtugur hélduð þið feikna veislu þar sem mikið var sungið. En nú kveðjum við þig á afmælisdaginn þinn og drekkum afmæliskaffið með vinum þínum. Ég ætla að eiga minningarnar fyrir mig, þær verða aldrei frá mér teknar en ég vil þakka þér allt sem þú hefur gert fyrir mig og strákana mína. Án þín og pabba hefði líf okk- ar orðið ansi snautt er ég hrædd um. Og elsku mamma, hvað þú hugsaðir vel um pabba allan þann tíma sem hann þurfti hjáp, ég veit að Guð hjálpar mér að þakka fyrir það. Ég vil færa mínar bestu þakkir til starfsfólks og íbúa á Egilsbraut 9, sem og allra þeirra sem verið hafa mömmu svo góðir. Hún sagði oft „ég skil ekki hvað allir eru alltaf góðir við mig.“ Kæru vinir, við mamma þökkum ykkur og biðjum Guð að vera með ykkur. Elsku mamma, nú ertu komin til pabba og allra hinna vinanna þinna sem eru farnir og ég veit að þið er- uð hjá okkur, en við sjáumst síðar. Guð blessi minningu þína. Sigrún. Elsku Sigga amma, það er erfitt að kveðja kæran vin í hinsta sinn, en minningarnar getur enginn tekið frá manni. Þú hefur þekkt mig alla mína ævi og gefið mér meira en hægt er að ætlast til. Er ekki alveg magnað til þess að hugsa hvernig kona, rúmlega sjö- tug, vinnur sig upp úr veikindum og tekur upp þráðinn þar sem frá var horfið. Þú sagðir mér nefnilega stuttu fyrir andlát þitt að fyrir slys- ið hefðir þú prjónað um 120 lopa- peysur á ári, þær hefðu dottið niður í 50 árið sem þú slasaðist en nú stefndi í að þær næðu 100 í ár. Þetta létti svo sannarlega á sálu þinni því þú varst nú einu sinni þannig persóna að allt var í lagi ef þú hafðir nóg fyrir stafni. Þess naut líka körfuboltadeildin ríkulega því frá þeim tíma að ég fór að æfa körfubolta varst þú alltaf boðin og búin að leggja lið, ef ekki að baka pönnukökur við hin ýmsu tilefni deildarinnar, þá að flokka og telja dósir fyrir deildina. Elsku amma, takk fyrir það allt. Þegar ég var lítill var gott að hafa afa og ömmu í næsta húsi, tilbúin að gera eitthvað skemmti- legt með sér. Ferskt er í minning- unni þegar við vorum að spila hin ýmsu spil en oftast þó vist, við bræðurnir á móti þér og afa. Að sjálfsögðu var haldið bókhald, þú sást um það. Hvað sem ég tók mér fyrir hendur var ég alltaf hvattur til að gera mitt besta og leggja mig allan fram. Ég lærði smávegis á orgel og þú fylgdist með því hvað ég æfði og þú áttir þín óskalög sem þú baðst mig að leika fyrir þig. All- ar þessar minningar eru svo dýr- mætar. Þær standa upp úr í minning- unum allar leiðbeiningarnar um líf- ið og hætturnar sem því fylgja. Það er sárt að hafa þig ekki lengur hérna á meðal okkar en gott til þess að vita að nú eruð þið saman á ný, þú og afi. Ég óska þér velferðar í nýju hlutverki þínu og vona ég að þér gangi allt í haginn. Fyrir hönd ömmu vil ég að lokum þakka öllum þeim sem unnið hafa að starfi aldraðra í Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir það óeigingjarna starf sem þeir vinna dag hvern, því ég veit að amma var sérstaklega ánægð með hvernig var hugsað um hana á Egilsbraut 9. Með söknuði, þinn Ágúst Örn. Elsku Sigga mín, síminn hringdi um hálf ellefu, kvöldið þann 11. okt. og átti ég ekki von á því að kallið væri komið. Ágúst svaraði í símann og sagðist þurfa að fara til ömmu því eitthvað var ekki eins og það átti að vera. Ég hugsaði hvað skyldi vera að og fór að líða hálf illa. Tíu mínútum síðar hringdi Ágúst og sagði að amma Sigga væri dáin. Margt rifjast upp á svona stundu, t.d. þegar Davíð Arnar var lítill og við vorum að koma í heimsókn til þín þá var það til siðs hjá honum að fara í fataskápinn og skipta um inniskó á þér og þér fannst þetta at- ferli hans svo sniðugt. Eftir að þú fótbrotnaðir og dvaldir á sjúkra- húsinu á Selfossi átti ég von á mér og vonaðist þú til þess að ég kæmi með barnið til þín þegar það væri fætt. Það var svo 12. september að lítil stúlka fæddist um miðja nótt. Við ákváðum að bíða eftir að Sigga amma myndi vakna svo að hún gæti séð nýfædda sólargeislann okkar. Við vorum frammi á gangi, ég sá konu fara á salernið og gott var ef það var ekki hún Sigga mín. Elsku Sigga mín, við horfðumst í augu í rökkrinu smá tíma og mikið var gaman að sjá hvað þú varst glöð að sjá okkur og litla engilinn, sem fékk nafn dóttur þinnar. Í síðustu viku gættir þú Sigrúnar Elfu sem var með hlaupabóluna og vil ég þakka þér fyrir að hafa pass- að hana og leikið við hana þá eins og svo oft áður. Ykkur þótti svo sér- deilis gaman að leika og náðuð þið ótrúlega vel saman þó aldursmun- urinn hafi kannski verið nokkur. Elsku Sigga mín, mér finnst gaman að hafa tekið þátt í lífinu með þér og átt þess kost að gefa þér þér tvö yndisleg langömmu- börn, þú tókst okkur alltaf svo fagnandi og varst svo glöð þegar við komum. Ég veit að þú ert ánægð og sátt, en við kveðjum þig með söknuði. Þín Ragnheiður María. Látin er í Þorlákshöfn mikil heiðurskona, Sigríður Guðjónsdótt- ir en hún var búsett í einni af íbúð- um eldri borgara að Egilsbraut 9. Það var alltaf gott að koma á Egils- brautina og ef erindið þangað var lítið og ekki beinlínis ætlunin að stoppa var viðbúið að Sigga spyrði eitthvað á þá leið hvort asinn væri virkilega svo mikill að það væri ekki tími fyrir einn kaffibolla? Og þá var auðvitað sest niður, skrafað og hlegið – fréttir sagðar, málin rædd og góð ráð þegin. Í blíðu var veðrið dásamað og haft á orði að fjallasýn- in austur í Rangárþingi hlyti að vera falleg þann daginn. Það var eiginlega ekki hægt að flýta sér á Egilsbrautinni, hlýtt viðmót og elska íbúanna með Siggu í farar- broddi gerði það að verkum að ann- að bara beið. Sigga hafði búið á Egilsbrautinni í mörg ár, þar líkaði henni vel að vera og umhyggja hennar fyrir vel- ferð íbúanna og heimilisins var mik- il. Að leiðarlokum eru Siggu þökkuð ánægjuleg kynni og samfylgdin í fjögur góð ár. Ég færi einkadóttur Siggu, Sig- rúnu Ágústsdóttur og fjölskyldu hennar, innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Sigríðar Guð- jónsdóttur úr Landeyjunum. Sesselja Jónsdóttir. „Meðan ég hef efni á að kaupa mér koníak skal ykkur ekkert skorta.“ Þetta var það veganesti sem ég fékk út í lífið frá ömmu. Ekki svo að skilja að hún væri að bera í mig koníak, það bauð hún mér afar sjaldan. Koníakið var handa prestinum og heldri bændum sem komu í heimsókn. Það segir mikið um ömmu að í þessum orðum eru engar reglur til að fara eftir, enginn Guð, engin hefðbundin lífs- speki. Þau eru miklu fremur yfir- lýsing fullorðinnar konu sem hefur sigrast á lífinu og stillir sér upp við hlið barnabarnsins. Ekki til að vernda það og leiða heldur vera þessi fasti punktur sem hægt er að líta til þegar þess er þörf. Þegar ég hugsa til ömmu kemur mér alltaf fyrst í hug hvað hún var hamingjusöm og alltaf í góðu skapi, aldrei leið og sjaldan mjög glöð, bara í góðu skapi. Hún virtist búa yfir einhverjum sannleika um lífið en þótti líklega svo vænt um okkur að hún sagði aldrei í hverju hann væri fólginn. Aðspurð hvers vegna hún væri svona hamingjusöm sagði hún bara: „Ég hef prjónana mína.“ Ég á ömmu svo margt að þakka og allt gott sem gerist í framtíðinni verður að stórum hluta hægt að rekja til hennar. Elsku amma. Allt mitt líf hefur verið á sporbraut um eitthvert afl sem hvort tveggja í senn hefur haldið mér í hæfilegri fjarlægð til þess að ég mætti þroskast en um leið passað að ég svifi ekki út í him- ingeiminn. Mér varð það ekki ljóst fyrr en nú hvaðan þetta afl er sprottið. Jóhann. SIGRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR Elsku amma er látin, en við eigum þó alltaf yndislegar minningar sem munu lifa með okkur. Við eldri sysk- inin bjuggum fyrstu árin í kjallaran- um hjá ömmu og afa, þar sem alltaf var hægt að leita til þeirra. Þegar við fluttum svo inn í Steinahlíð fór- um við samt oft í heimsókn út í Þórsmörk, þar sem alltaf var hægt að fá kakó og pönnukökur og njóta návistar ömmu og afa. Við hugsum til baka um allar stundirnar sem við áttum þar, bæði með söknuði og líka með gleði fyrir að hafa fengið að taka þátt í þeim. Hún var alltaf með ÁSDÍS BÖÐVARSDÓTTIR ✝ Ásdís Böðvars-dóttir fæddist 28. mars 1928 í Vest- mannaeyjum. Hún lést á Landspítalan- um við Hringbraut hinn 8. október sl. Foreldrar hennar voru Böðvar Ingv- arsson og Ólafía Halldórsdóttir. Hún var fimmta í röð níu systkina: Ásdís, f. 1919, d. 1925, Ólafía Dóra, f. 1921, d. sama ár, Ásta, f. 1922,d. 1993, Marta Sigríður, f. 1924, d. 2002, Guð- mundur Ármann, f. 1926, Aðal- heiður Dóra, f. 1929, Hilmar, f. 1931, og Bergþór Reynir, f. 1934. Ásdís giftist Þórði Snjólfssyni frá Djúpavogi, f. 1922, og þau eiga þrjú börn, Ásdísi, Ólaf Böðvar og Lindu Heiðrúnu en fyrir átti hún Sigmar Ægi. Barnabörnin eru tíu og langömmubörnin þrjú. Útför Ásdísar verður gerð frá Djúpa- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. hugann við velferð okkar, hvort sem var í leik eða starfi og vildi allt fyrir okkur gera. Hún var mjög stolt af okkur og hrósaði og hvatti okkur áfram, og þótti okkur mjög vænt um það. Amma var söngelsk og raulaði fyrir okkur öll í æsku þar sem hún sat með okkur. Hún átti sín uppáhaldslög sem hún ýmist söng fyrir okkur eða leyfði okkur að hlusta á. Hún var mikil listakona í höndunum og er alveg ótrúlegt hve miklu hún kom í verk, allar jólagjafirnar sem hún gaf okkur var hún búin að vinna við yfir árið og báru þær vitni um mikið hugmyndaflug, en betri gjafir var ekki hægt að hugsa sér. Það verður erfitt að hugsa til þess að nú sé hún farin og við sjáum hana ekki framar standa á pallinum fyrir utan Þórs- mörk og kalla á okkur inn til sín. Þegar langömmubarnið þitt, hann Bjartur Elí fæddist og fékk nafnið sitt varstu svo ánægð með nafnið, því þér fannst hann svo mikill ljós- geisli. Elsku amma, við þökkum þér fyr- ir þær ánægjustundir sem við höf- um átt með þér og munum alla tíð sakna þín og meðan við lifum munt þú lifa með okkur, því þú varst okk- ur mikil og góð fyrirmynd. Megi minning þín lifa og guð vera með þér. Þín barnabörn og barnabarna- barn Gunnlaugur Rúnar, Þórdís, Ragnhildur, Ingunn og Bjartur Elí. Djúp spor í snjó eins og sett í stein fyrir mig. Þú gafst mér mikið og fyrir það er ég þakklátur. Síðast- liðinn sunnudagsmorgun var ég vaknaður allt of snemma eins og venjulega eða hvað. Við eldhús- krókinn settist ég með minn Mogga og las um hörmungar heimsins en allt í einu birtist minning um þig STEINDÓR ÁGÚSTSSON ✝ Steindór Ágústs-son fæddist 26. október 1933. Hann lést á sjúkrahúsi í Las Palmas á Kanaríeyjum 13. september síðastlið- inn og var útför hans gerð 1. október í kyrrþey að ósk hins látna. kæri vinur og ótrúlegi lífsförunautur. Frá því að ég naut þess, það herrans ár 1974, að komast að sem vinnu- maður í sveit hjá þér að Miðkrika II í Rang- árvallasýslu hefur þú verið mér mikilsverð- ur. Þennan dag sem ég las um að þú værir far- inn frá okkur áttaði ég mig á því að þú ert mér það sem ég hef í því sem kallað er á okkar ylhýra, umburð- arlyndi. Að sjálfsögðu er ég eingöngu lærisveinn, en sá sem lærir af full- trúa eins og þér hefur notið forrétt- inda sem vart eiga sína líka. Með innilegu þakklæti. Karl Gunnarsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.