Morgunblaðið - 19.10.2002, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 19.10.2002, Blaðsíða 53
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 53 HAFNARFJARÐARKIRKJA verð- ur böðuð bleiku ljósi fram á sunnu- dagskvöld. Kveikt var á lýsingunni í fyrrakvöld í tilefni af árveknis- átaki um brjóstakrabbamein, en þá var að hefjast fræðslufundur um sjúkdóminn á vegum Krabbameins- félags Hafnarfjarðar og Sam- hjálpar kvenna. Hátt á þriðja hundrað manns sóttu fundinn. Fyrstu helgina í október var Perlan lýst upp á þennan hátt og í fyrra Hallgrímskirkja. Um næstu helgi bætist gamla sjúkrahúsið á Ísafirði í þennan hóp. Þekkt mannvirki í meira en 40 löndum hafa verið lýst upp. Kirkja í bleikum lit Ó. JOHNSON & Kaaber hefur tekið við innflutningi og heildsölu- dreifingu á Philips-ljósaperum og lýsingarbúnaði á Íslandi. Stofnuð hefur verið sérstök deild innan Ó. Johnson og Kaaber sem mun sinna heildsöludreifingu til fyrirtækja og stofnana ásamt því að veita faglega ráðgjöf um flest sem varðar lýsingu. Starfsmenn munu fyrst um sinn verða tveir: Bjarni S. Ásgeirsson og Benedikt Benediktsson en báð- ir hafa reynslu af sölu Philips- ljósapera, segir í fréttatilkynn- ingu. Tekur við umboði fyrir Phil- ips-ljósaperur LÖGREGLAN í Keflavík lýsir eftir bifreiðinni VJ-095, sem er lítil hvít sendibifreið af gerðinni Ford Fiesta Courier, árgerð 1997. Bifreiðinni var stolið í Keflavík að morgni þriðju- dagsins 15. október sl. Þeir sem hafa orðið bifreiðarinnar varir eða geta gefið upplýsingar um hvar hún er niðurkomin, eru vinsam- lega beðnir um að hafa samband við lögregluna í Keflavík í síma 420 2400. Lýst eftir stolinni bifreið SVAVAR Gestsson sendiherra hefur afhent Alfred Moisiu, forseta Alban- íu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Albaníu með aðsetur í Stokkhólmi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá utanríkisráðu- neytinu. Afhenti trúnaðar- bréf í Albaníu RÆÐISSKRIFSTOFA Íslands í Múrmansk hefur verið formlega opnuð. Kjörræðismaður Íslands í borginni er Vitaly Kasatkin, fram- kvæmdastjóri sjávarútvegsfyrirtæk- isins JSC SFEN. Á ræðisskrifstof- unni er aðstaða fyrir íslenska við- skiptaaðila og þá sem þurfa vinnu- aðstöðu vegna erindreksturs í Múrmansk, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá utanríkisráðu- neytinu. Umdæmi ræðisskrifstofunnar er Múrmanskhérað, Karelíuhérað og Archangelskhérað, þ.m.t. höfuð- borgir þessara héraða, Múrmansk, Petrozavodsk og Archangelsk. Ræðisskrifstofa í Múrmansk HAFIÐ hefur göngu sína nýtt vef- rit viðskiptaskrifstofu utanríkis- ráðuneytisins sem ber heitið Stikl- ur. Þar verða fréttir af því sem er efst á baugi hverju sinni á skrifstof- unni. Er þar helst til að taka mál- efni er varða viðskiptaþjónustu ráðuneytisins, EES-samninginn auk ýmissa alþjóðlegra samninga viðskiptalegs eðlis, s.s. gerð frí- verslunarsamninga, fjárfestingar- samninga og tvísköttunarsamninga. Einnig er áformað að vera með reglulegar fréttir af viðskipta- fulltrúum ráðuneytisins sem starfa í sendiráðum Íslands erlendis. Þá verður það markmið vefritsins að kynna hvaða þjónusta stendur þeim fyrirtækjum til boða sem eru að hasla sér völl á erlendum mörkuð- um. Nálgast má vefritið á heimasíð- unni stiklur.is eða utan.is, segir í frétt frá utanríkisráðuneytinu. Stiklur, nýtt vefrit EFTIRFARANDI ályktun vegna áforma um hvalveiðar, flutt af Ás- birni Björgvinssyni, var samþykkt með öllum atkvæðum nema einu á Ferðamálaráðstefnu Ferðamálaráðs í Stykkishólmi, en fundinn sitja á annað hundrað fulltrúar ferðaþjón- ustunnar á Íslandi, segir í fréttatil- kynningu. „Ferðamálaráðstefnan 2002 hald- in í Stykkishólmi 17. október skorar á stjórnvöld að láta fara fram mat á efnahagslegu gildi hvalaskoðunar- ferðamennsku fyrir þjóðarbúið. Ennfremur að áhrif hvalveiða á greinina verði metin áður en ákvörð- un verður tekin um að hefja veiðar hér við land að nýju. Ráðstefnan hvetur stjórnvöld til að hafa náið samráð við samtök í ferðaþjónustu og hvalaskoðunarfyrirtækin áður en endaleg ákvörðun um hvalveiðar verður tekin.“ Vilja meta efnahagslegt gildi hvala- skoðunar JEEP GRAND CHEROKEE Nýskr.: 02/04/2001 4700 cc5 dyra Sjálfskiptur, GRÆNN, Ekinn: 18 þ 4.980 þ. Land Rover Range Rover 4,6 HSE Nýskr.:14/03/2000 4554 cc 5 dyra Sjálfskiptur BRONS Ekinn: 39 þ. 4.650 þ. Mitsubishi Pajero 2,8 langur Dísel ýskr.:04/06/1999 2835 cc 5 dyra Sjálfskiptur GRÆNN Ekinn: 77 þ. 2.650 þ. 575 1230 Opið mán.-fös. frá kl. 9-18 Bílaland Lúxusbílar og jeppar bilaland.is Nissan Patrol SE+ Dísel Nýskr.: 26/03/1998 2826 cc 5 dyra 5 gíra GRÆNN Ekinn: 154 þ. 2.750 þ. BMW 750iA Innfl nýr af umb. Nýskr.: 18/08/1997 5397 cc 4 dyra Sjálfskiptur SVARTUR Ekinn: 50 þ. 3.900 þ. Mercedes Benz ML320 Nýskr.: 08/09/1999 3199 cc 5 dyra Sjálfskiptur GRÆNN Ekinn: 55 þ. 3.990 þ. BMW Z3 2.8 Nýskr.:22/04/1998 2793 cc 2 dyra Sjálfskiptur SVARTUR Ekinn: 27 þ. 2.850 þ. Mercedes Benz SLK 230 Kompressor Nýskr.: 26/03/1997 2295 cc 2 dyra 5 gíra GRÁR Ekinn: 52 þ. 2.900 þ. Land Rover Discovery II TD5 S Dísel Nýskr.: 29/09/1999 2495 cc 5 dyra Sjálfskiptur LJÓSBLÁR Ekinn:77 þ. 2.990 þ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.