Morgunblaðið - 27.10.2002, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 27.10.2002, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 2002 B 7 ferðalög skúrssölu en þegar því er ekki að heilsa er frábært að geta komið við á grænmetismarkaði, en yfir upp- skerutímann eru þeir haldnir víða um borgina. Þekktustu markaðirn- ir eru þó í miðborgum tvíborganna, St. Paul og Minneapolis. Eitt af hverri tegund Ég stóðst ekki mátið í þessari heimsókn á markaðinn og bað einn bóndann sem var með hvað fjöl- breyttast eplaúrval að velja auk Harison-eplanna handa mér eitt af hverri tegund. Hann tók bón minni vel og valdi af kostgæfni hvert epli. Bændur sem rækta epli og selja á markaðnum leggja sig fram um að nota sem minnst af eiturefnum við ræktunina og þess vegna eru mörg epli ormétin. Þótt þeir flokki þau auðvitað úr yfirsést þeim stundum og því vandaði bóndinn sig vel, ekki síst þegar hann frétti að eplin ættu að fara til Íslands. Að þessu loknu völdum við ný- kreistan epla- og trönuberjasafa sem var afburðagóður og ég freist- aðist síðan til að kaupa mér hálft kíló af nýjum og blönduðum chili- pipar því það kostaði ekki nema einn og hálfan dollara eða sem nemur um 130 krónum. Hvítlaukurinn lofaði líka góðu en þennan sunnudag var hægt að velja úr að minnsta kosti tíu af- brigðum. Mér varð hugsað til stór- markaðanna heima þar sem yfir- leitt er ein tegund á boðstólum og kannski tvær þegar best lætur. Margir kjósa lífrænt Vinkona mín bendir á að margir í Minnesota velji nú orðið að kaupa beint af bændum sem framleiða ekki í stórum stíl og rækta lífrænt eða leggja sig fram um að tak- marka efnanotkun. Hún spyr nautakjötsbóndann með lífrænu framleiðsluna hvað fjórðungur úr nauti kosti og hann slær á 350 doll- ara sem eru ríflega þrjátíu þúsund íslenskar krónur. Bændamarkaðurinn í miðborg St. Paul hefur verið lengi við lýði en talið er að hann hafi verið stofn- aður árið 1852 en með öðru sniði en nú. Þá var einnig hægt að kaupa þar mjólkurvörur, hveiti, kökur og sætindi og á uppskerutímanum voru þar eins og nú seldir ávextir og grænmeti. Staðsetning markaðarins hefur nokkrum sinnum breyst en hann hefur þó alltaf verið í miðborginni. Hann er opinn frá því snemma á vorin og fram í nóvember. Eigi Ís- lendingar leið til tvíborganna í Minnesotaríki á þessu tímabili ættu þeir endilega að drífa sig á markaðinn. Hann er að minnsta kosti tilbreyting frá stærstu versl- unarmiðstöð heims, Mall of Am- erica, sem margir landar heim- sækja. Morgunblaðið/GRG Hægt var að velja um á annan tug eplaafbrigða hjá þessum feðgum sem voru með bás á bændamarkaðnum. Eplin koma frá Bob’s Bluebird Orchard en á þeim bæ er líka framleitt síróp, sinnep, sultur og ljúffengur epla- og trönuberjasafi. Garry og Debbie Urban eru grænmetisbændur og voru m.a. með úrval af papr- ikum og chili-pipar þessa helgi.  Bændamarkaður í mið- borg St. Paul 5th & Wall Streets Minnesota Markaðurinn er opinn frá sex á morgnana og fram til eitt á laugardögum og á sunnudögum frá átta til eitt. Vefslóð markaðarins í miðbæ St.Paul er: www.stpaulfarmers- market.com/ Listi yfir flesta bændamark- aði sem haldnir eru í Minnesota er fáanlegur á vefslóðinni: www.ams.usda.gov/ farmersmarkets/states/ minnesot.htm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.