Morgunblaðið - 27.10.2002, Blaðsíða 17
sem nefnist einmitt Halbe Treppe.
Samspil þessa fólks skapar þeim ör-
lög sem bæði eru kómísk og harmræn
og hefur myndin notið mikilla vin-
sælda í heimalandi og hlotið afburða
dóma. Leikstjórinn er Andreas Dresen
sem við þekkjum hér af Nacht-
gestalten og sýnd var á Kvik-
myndahátíð í Reykjavík. Sú var
prýðilega heppnuð hópsaga að hætti
Short Cuts Altmans en Halbe Treppe
er annars eðlis og einbeitir sér að
fáum persónum sem leikararnir mót-
uðu og spunnu að hætti Mikes Leigh.
Það er tilhlökkunarefni að eiga von
á þessum þýsku gestum, og vonandi
fleirum í vetur. Gaman væri ef í hóp-
inn bættist til dæmis Nirgendwo in
Afrika eða Hvergi í Afríku eftir Car-
oline Link sem sópaði til sín þýsku kvik-
myndaverðlaununum í ár og er einnig
vinsælasta þýska mynd ársins til
þessa með 1,1 milljón selda miða. Þá
væri ekki ónýtt að sjá nýjustu mynd
mannsins sem ýmsir telja upphafs-
mann endurreisnar þýskrar kvik-
myndagerðar, Toms Tykwer. Hún er
Heaven eða Himinn sem Tykwer gerði
eftir handriti Krzystofs heitins Kiesl-
owski.
Kannski förum við að sjá heið-
skíran himin yfir Berlín eftir áralang-
an sólmyrkva.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 2002 B 17
bíó
BEN Cronin virð-
ist hafa allt það í
hendi sér sem
ungir menn geta
óskað sér. Hann
er góður nemandi,
innsti koppur í
búri í vinahópnum
og kærastan
hans, Amy Miller,
er algjört æði. Í ofanálag hefur Ben
frábæra sundhæfileika, sem eru að
fleyta honum inn í góðan háskóla. Ben
lætur samt velgengnina ekki stíga sér
til höfuðs heldur leggur sig allan fram,
bæði við námið og sundþjálfunina. Ver
nánast öllum frístundum í æfingar og
heldur svo gott sem til í lauginni. Allt
gengur að óskum þangað til Madison
Bell flytur í bæinn. Hún er glæsileg og
veit hvað hún vill og er ekki vön því að
vera hafnað. Madison verður sam-
stundis hrifin af Ben og fyrr en varir
er hún byrjuð að beita öllum brögðum
til að góma hann. Það gengur ekki til
að byrja með svo klækirnir stigmagn-
ast uns markinu er náð eina kvöld-
stund. Madison verður aðalaðdáandi
sundgarpsins, en fljótlega hans helsta
martröð þegar aðdáunin og síðan
höfnunin breytist í þráhyggju og bilun
sem endar með morði. Þetta er sögu-
þráður unglingaspennumyndarinnar
Swimfan, sem frumsýnd verður hér-
lendis á næstunni. Með helstu hlut-
verk fara Erika Christensen, Shiri
Appleby, Dan Hedaya og Jesse Brad-
ford. Leikstjóri er John Polson.
Freistingarnar
leynast alls staðar
Swimfan: Jesse
Bradford í aðal-
hlutverkinu.
Stórstjörnurnar
Ben Affleck og
Samuel L. Jackson
fara með aðal-
hlutverk tveggja
þverhausa í spennu-
tryllinum Changing
Lanes, sem vænt-
anleg er í bíóhúsin.
Lögfræðingurinn og
framapotarinn Gav-
in Banek og heim-
ilisfaðirinn og alkóhólistinn Doyle
Gipson mega engan tíma missa á
þeytingi eftir hraðbrautinni til að ná
í dómsalinn á réttum tíma. Banek
þarf að fá afgreidda veigamikla
pappíra varðandi eignarhald fyr-
irtækis síns, en Gipson að láta ganga
frá fasteignakaupum í New York til
að afstýra því að kona hans og börn
flytji á brott frá honum til vestur-
strandarinnar. Þá gerist óhappið.
Bílar þeirra rekast saman, þó ekki
alvarlega, en nóg til þess að þeir tefj-
ast, eiga orðaskak og flýta sér síðan
á brott. Tímatapið á eftir að gera
þeim óleik því báðir mæta of seint til
að reka sín áríðandi erindi fyrir dóm-
stólum. Leikstjóri er Roger Michell.
Þverhausar
lenda saman
Changing Lan-
es: Ben Affl-
eck á frum-
sýningunni.
Ert þú að tapa réttindum
Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðsfélögum
yfirlit um iðgjaldagreiðslur á árinu 2002:
en dregið hefur verið af launum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyrissjóðum, eða ef launaseðlum ber
ekki saman við yfirlitið, skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið allra fyrsta og eigi síðar en
1. nóvember n.k.
Við vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er hætta á að dýrmæt réttindi tapist. Þar á meðal má nefna:
Ell i l ífeyri
Makalífeyri
Barnalífeyri
Örorkulífeyri
Fáir þú ekki yfirlit,
Gættu réttar þíns
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota,
skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ganga úr skugga um skil vinnu-
veitenda til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu
tímamarka leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil sem er í vanskilum.
Komi athugasemd ekki fram frá launþega er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur
fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi
lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.
Lífeyrissjóður Austurlands
Lífeyrissjóður Bolungarvíkur
Lífeyrissjóðurinn Framsýn
Lífeyrissjóðurinn Lífiðn
Lífeyrissjóður Norðurlands
Lífeyrissjóður Rangæinga
Lífeyrissjóður sjómanna
Lífeyrissjóður Suðurlands
Lífeyrissjóður Suðurnesja
Lífeyrissjóður Vestfirðinga
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja
Lífeyrissjóður Vesturlands
Sameinaði lífeyrissjóðurinn