Morgunblaðið - 27.10.2002, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 2002 B 13
bílar
PORSCHE hefur lýst því yfir að fyr-
irtækið sé langt komið með að hanna
nýjan bíl sem á að etja kappi við nýjan
Bentley Continental GT Coupé. Orð-
rómur hefur lengi verið í gangi um að
Porsche hygðist smíða fjögurra sæta
sportbíl til að keppa við nýjan Bentley
en þetta er í fyrsta sinn sem slíkt er
staðfest af forystu fyrirtækisins.
Þegar Porsche Cayenne jeppanum
var formlega hleypt af stokkunum fyr-
ir skemmstu sagði Wendelin Wiedek-
ing, stjórnarformaður Porsche, að
framleiðslulína fyrirtækisins myndi
breikka á næstu árum. „Ef menn íhuga
þann bíl sem margir telja merkilegustu
nýjungina á bílasýningunni í París þá fá
þeir góða hugmynd um hvað er í
vændum frá okkur,“ sagði Wiedeking.
Eins og myndin að ofan ber með sér
dregur fjögurra sæta Porsche GT dám
af 911 bílnum hvað ytra útlit varðar. GT
verður flaggskip Porsche í sportbíla-
deildinni og má fastlega búast við að
bíllinn verði tæknilegt undur. Hann
verður smíðaður á sama undirvagn og
flaggskip Volkswagen, Phaeton, en
notar jafnframt tæknikerfi úr Cayenne
jeppanum, þar á meðal fjórhjólakerfið
sem getur dreift átaki milli fram- og
afturhjóla á marga mismunandi vegu.
Sömuleiðis verður bíllinn með Aisin-
gírkassanum sem var sérstaklega
hannaður fyrir Cayenne. Sú vél er gerð
til að þola V10 dísilvélina í VW Touareg
jeppanum sem skilar hvorki meira né
minna en 750 Nm hámarkstogi.
Vélar í GT verða væntanlega V8 for-
þjöppuvél sem skilar að hámarki 650
hestöflum og verður þá hámarkshrað-
inn 320 km á klst. Einnig er hugs-
anlegt að bíllinn fái enn aflmeiri vél,
þ.e. 5,5 lítra V10 vélina sem er að finna
í Carrera GT.
Þótt nýr Porsche GT verði hagnýt-
ari bíll að mörgu leyti, ekki síst vegna
fjögurra sæta, er búist við að þessi bíll
verði skólabókardæmi um hámarks-
aksturseiginleika og veggrip í ætt við
bæði 911 og Boxster.
Porsche GT verður flaggskipið.
Flaggskip Porsche í
burðarliðnum
BÍLANAUST hf. tók í ágúst síðast-
liðnum við Blaupunkt-umboðinu á
Íslandi. Blaupunkt hefur um ára-
tugaskeið verið leiðandi fyrirtæki í
heiminum með hljómtæki í bíla og
er vel þekkt á Íslandi. Gríðarleg
framþróun hefur átt sér stað á út-
varpstækjum í bíla og gefa þau full-
komnustu heimagræjum lítið eftir í
tærleika og afli. Blaupunkt býður
upp á fjölmargar gerðir kassettu- og
geislaspilara frá 4x45w upp í
4x65w. Nýjasta tækið er með MP3
spilara og MMC, (Mulimedia Card),
sem getur innihaldið tónlist sem
samsvarar 12–16 venjulegum geisla-
diskum og getur jafnframt spilað
venjulega geisladiska.
Antares T60 DJ er sambyggt út-
varp og GSM sími með 8W send-
istyrk, (venjulegur GSM sími er með
2W), og er handfrjáls. Við Antares
er hægt að tengja 5 diska magasín
af sömu stærð og venjulegt útvarp
og passar það í mælaborð flestra
bíla.
Blaupunkt býður einning upp á
útvarp með sjónvarpsskjá sem
hægt er að tengja við DVD spilar og
leiðsögukerfi. Einnig er hægt að fá
staka skjái sem hægt er að festa á
mismunandi staði í bílnum og tengja
við leikjatölvur og DVD spilara.
Bílanaust hf. rekur 10 verslanir og
verða útvörp og hátalarar til sölu í
þeim öllum en sérhæfðari tæki, við-
gerðir og ísetningar verða í Radio-
þjónustu Bílanausts að Síðumúla 17,
áður Radioþjónusta Bjarna ehf.
Bílanaust yfir-
tekur Blau-
punkt-umboðið
BANDARÍSKA bílatímaritið Motor
Trend valdi Volvo XC90 jeppa ársins
2003.
Volvo XC90 uppfyllir öll grundvall-
argildi Volvo varðandi öryggi, um-
hyggju fyrir umhverfinu og góð kaup.
En ekki síður eins og Motor Trend
orðaði það, „er þetta jeppi með sam-
visku.“
Er þar vísað í hinar mörgu örygg-
isnýjungar sem eru enn mikilvægari
en áður í kjölfar umræðu um falskt ör-
yggi jeppa, en Volvo tekur sérstaklega
á helstu áhættuþáttunum sem eru
árekstur við minni fólksbíla og hættu
á veltu. Þetta er gert á tvennan hátt.
Í fyrsta lagi er Volvo XC90 búinn
sérstökum búnaði í framhluta sem
gerir það að verkum að í árekstri að
framan þá lendir alltaf sterkari hluti
jeppans á sterkasta hluta fólksbílsins,
þ.e. stuðurum.
Í öðru lagi er Volvo XC90 búinn
tölvustýrði veltivörn sem skynjar þeg-
ar líkur aukast á að bíllinn velti og
dregur umsvifalaust úr hraða bílsins,
löngu áður en ökumaður hefði getað
brugðist við. Ef svo vill til við mjög
óvenjulegar aðstæður að bíllinn veltur
er yfirbygging hans gerð úr svoköll-
uðu boron-stáli sem er fjórum sinnum
sterkara en hefðbundið stál og þolir
Volvo XC90 yfir 30 tonna álag á yf-
irbyggingu án þess að leggjast sam-
an.
Motor Trend prófaði 14 jeppa og til
þess að komast í prófið urðu þeir að
vera annaðhvort alveg nýir eða veru-
lega breyttir fyrir sölu á árinu 2003.
Motor Trend sagði: „Enginn annar
jeppi hefur breytt jafn miklu í þessum
flokki bíla. Hann hefur aksturseig-
inleika fólksbíls, dráttargetu eins og
pallbíll, hæfileika til utanvegaaksturs
eins og öflugustu jeppar og hefur
rými og sæti fyrir sjö manns eins og
stærsti fjölnotabíll.“
Brimborg hf., umboðsaðili Volvo,
fær takmarkað magn af XC90 á
næsta ári vegna mikillar eftirspurnar
um allan heim. Fyrstu bílarnir koma í
janúar. Þegar hafa verið seldir 16 bílar
hér á landi, samkvæmt upplýsingum
frá Brimborg, en verðið á bílnum er
5.490.000 kr. til 5.990.000 kr.
Volvo XC90 var sýndur á bílasýningunni í París.
Volvo XC90
bíll ársins hjá
Motor Trend
Málning
fyrir vandláta
Saw
Palmetto
FRÁ
Fyrir
blöðruhálskirtilinn
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
FRÍHÖFNIN
-fyrir útlitið
Ódýr djúphreinsun, bón
og tjöruþvottur á bíla
Upplýsingar í síma 899 9667
Skoda Fabia Comfort 1.4,
f.skr.d. 04.05. 2001,
ek. 39 þús. km., 5 dyra, bsk.,
15" álfelgur, sóllúga,
vindskeið o.fl.
Verð 1.210.000
Auglýsing um sveinspróf í
matvæla- og framreiðslugreinum
Sveinspróf verða haldin í bakaraiðn,
framreiðslu, kjötiðn og matreiðslu 7.-9. janúar
2003 í Hótel- og matvælaskólanum
í Kópavogi.
Umsóknarfrestur er til 1. des. nk.
Ekki verður tekið við umsóknum
eftir þann tíma.
Upplýsingar og umsóknir:
Fræðsluráð hótel- og matvælagreina,
Stórhöfða 31, 110 Reykjavík.
Sími 580 5254. Fax 580 5255.
http://www.fhm.is
Fræðsluráð hefur heimild til að fresta prófi í
einstökum greinum ef þátttaka verður ónóg.
Með umsókn skal fylgja afrit af
námssamningi og brautskráningarskírteini
eða námsferilsblað iðnmenntaskóla.
Fræðsluráð hótel- og matvælagreina.
Reiki-, heilunar- og sjálfstyrkingarnámskeið
Skráning á námskeið í síma 553 3934 kl. 10–12 virka daga.
Guðrún Óladóttir, reikimeistari.
Hvað fá þátttake
ndur út
úr slíkum námsk
eiðum?
Læra að nýta sér orku til að lækna sig
(meðfæddur eiginleiki hjá öllum)
og/eða koma sér í orkulegt og tilfinningalegt jafnvægi.
Læra að beita hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggi-
legan hátt í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs.
Læra að hjálpa öðrum til þess sama.
Einkatímar í sjálfstyrkingu - Áhrifarík meðferð fyrir eyrnaveik börn
09. — 10. nóv. 1. stig. Helgarnámskeið.
16. — 17. nóv. 2. stig. Helgarnámskeið.
Námskeið í Reykjavík