Morgunblaðið - 29.10.2002, Qupperneq 1
253. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 29. OKTÓBER 2002
PALESTÍNSKIR drengir freista
þess að bjarga einhverju nýtilegu
úr innbúi fjölskyldna sinna eftir
að ísraelskir skriðdrekar og jarð-
ýtur lögðu heimili þeirra í rúst í
fyrrinótt í Rafah-flóttamannabúð-
unum á Gazasvæðinu, nærri
landamærunum við Egyptaland.
Talsmenn Ísraelsstjórnar
greindu frá því í gær að þeir
hefðu handtekið alls 175 Palest-
ínumenn sem hefðu verið tilbúnir
að fórna sér í sjálfsmorðs-
sprengjuárásir. Sögðu þeir að
þetta eitt og sér sannaði hversu
staðráðnir herskáir Palest-
ínumenn væru í að gera vægð-
arlausar hryðjuverkaárásir á ísr-
aelska borgara. Frá því í
september 2000, er nýjasta bylgja
„intifada“-uppreisnar Palest-
ínumanna hófst sem enn stendur
yfir, hafa 83 Palestínumenn fram-
ið sjálfsmorðssprengjutilræði,
sem kostað hafa 296 Ísraela lífið, í
strætisvögnum, verzlunum, á
benzínstöðvum og kaffihúsum.
Talsmenn Palestínumanna
segja harkalegar árásir Ísr-
aelshers og útgöngu- og ferða-
bönn á Vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu kalla á frekari
sprengjutilræði og skotárásir.
Yasser Arafat Palestínuleiðtogi
hefur þó fordæmt árásir á
óbreytta borgara.
Reuters
Í rústum í Rafah
VLADIMÍR Pútín, forseti Rúss-
lands, lýsti því yfir í sjónvarpsávarpi
til þjóðarinnar í gær að hann myndi
ekki undir neinum kringumstæðum
beygja sig fyrir kúgun af hálfu
hryðjuverkamanna og að hann hygð-
ist fela hernum auknar valdheimildir
til að berjast gegn hryðjuverkaöfl-
um.
Reiði fór annars vaxandi í gær í
garð rússneskra yfirvalda meðal að-
standenda fólks sem sérsveitir rúss-
neska hersins björguðu úr gíslingu
tsjetsjenskra hryðjuverkamanna í
leikhúsi í Moskvu á laugardag. Eftir
því sem síðast fréttist í gær létu 118
gíslar lífið, allir nema tveir úr gas-
eitrun, en við upphaf áhlaups sér-
sveitanna dældu þær gasi inn í leik-
hússalinn og hefur enn ekki verið
upplýst hvers konar gas þetta var.
Alls 405 hinna frelsuðu gísla voru
enn undir læknishendi í gær, þar af
45 í alvarlegu ástandi, eftir því sem
Valentina Matvijenkó, aðstoðarfor-
sætisráðherra Rússlands, greindi
frá. Sagði hún 239 manns sem voru í
leikhúsinu hafa fengið að fara heim
af sjúkrahúsi fram til þessa og að
sögn Interfax-fréttastofunnar áttu
fleiri að útskrifast í gærkvöldi. Hafa
læknar á sjúkrahúsunum varað við
því að dauðsföllin kunni að verða enn
fleiri. Sjúkrahússtarfsfólk sagði að
margir hefðu látizt vegna þess að
engar upplýsingar fengust um það
hvers konar eitur það væri sem fólk-
ið hefði andað að sér og því hefði ekki
verið hægt að gefa því tímanlega rétt
mótefni eða meðhöndlun.
Í rússneskum fjölmiðlum var í
gær þó farið lofsamlegum orðum um
aðgerðir sérsveita hersins, en gagn-
rýnd sú handvömm sem leyniþjón-
ustan hefði gert sig seka um með því
að hafa ekki getað hindrað að slíkur
glæpur skyldi geta átt sér stað í
Moskvu, og það hvernig gasi var
beitt til að binda enda á gíslatökuna.
Þjóðarsorg var lýst yfir í Rúss-
landi í gær til að minnast þeirra sem
létu lífið í þessum harmleik, sem
hófst er um 50 manna hópur tsjetsj-
enskra hryðjuverkamanna réðst inn
á sýningu á vinsælum söngleik í leik-
húsi í Moskvu sl. miðvikudag og
hneppti alla sem í salnum voru – yfir
800 manns – í gíslingu. Kröfðust
gíslatökumennirnir þess að Rússar
hættu hernaði gegn aðskilnaðarsinn-
um í Tsjetsjníu, ella myndu þeir
sprengja leikhúsið í loft upp og
draga alla gestina með sér í dauðann.
Ný sókn í Tsjetsjníu
Í gær fréttist af nýrri sókn Rússa
á vígstöðvunum í Tsjetsjníu, þar sem
stríð hefur nú geisað óslitið í þrjú ár.
Voru 30 skæruliðar sagðir hafa verið
felldir austur af Grosní.
Bandarískir og brezkir ráðamenn,
í samræmi við harða afstöðu þeirra
gegn hryðuverkaöflum í heiminum,
báru í gær í bætifláka fyrir þær um-
deildu aðferðir sem Rússar beittu til
að binda enda á gíslatökuna. Þýzk
stjórnvöld hvöttu til þess að Evrópu-
sambandið (ESB) beitti sér af alvöru
fyrir því að finna varanlega lausn á
Tsjetsjníudeilunni. Ráðamenn ESB
reyndu í gær að sefa reiði ráða-
manna í Moskvu yfir því að dönsk
stjórnvöld, sem nú gegna for-
mennsku í ESB, skyldu ekki banna
óháða alþjóðlega ráðstefnu sem
hófst í Kaupmannahöfn í gær um
málefni Tsjetsjníu, en meðal þátttak-
enda þar var Aslan Mashkadov, einn
leiðtoga tsjetsjenskra aðskilnaðar-
sinna.
Misjöfn viðbrögð við því hvernig bundinn var endi á gíslatökuna í Moskvu
Pútín herskár í garð
hryðjuverkaafla
Moskvu, Kaupmannahöfn. AFP, AP.
Ólöglegum efnavopnum/26
SADDAM Hussein „hefur haft Sam-
einuðu þjóðirnar að fífli“ sagði
George W. Bush Bandaríkjaforseti í
gær. Jafnframt brýndu talsmenn
Hvíta hússins fyrir efagjörnum
bandamönnum Bandaríkjanna að
trúverðugleiki þeirra væri undir því
kominn hvernig þeir haga sér við at-
kvæðagreiðsluna um nýja ályktun
um Írak í öryggisráði SÞ, en þess er
vænzt að hún fari fram fyrir vikulok.
„Sameinuðu þjóðirnar hafa rætt
þetta nógu lengi. Það er tími til kom-
inn að menn rétti upp hönd og greiði
atkvæði,“ sagði Ari Fleischer, tals-
maður Hvíta hússins.
Í lokaátaki til að fá aðra aðila að
öryggisráðinu á sitt band í málinu
reyndu fulltrúar Bandaríkjastjórnar
í gær að sannfæra bandamenn um að
Bandaríkjamenn myndu láta til
skarar skríða gegn Írak, hver sem
niðurstaða atkvæðagreiðslunnar í
öryggisráðinu yrði. Vonast stjórnin í
Washington til að geta knúið banda-
menn sína í þá stöðu að verða að
gjöra svo vel að sýna samstöðu með
sér, en virðast ómerkingar ella.
„Annaðhvort gera Sameinuðu
þjóðirnar þá skyldu sína að afvopna
Saddam Hussein eða Saddam Huss-
ein afvopnar sig sjálfur,“ sagði Bush
forseti. „Neiti þær að grípa til að-
gerða – í nafni friðarins, í nafni ör-
yggis framtíðarinnar, í nafni frels-
isins – munu Bandaríkin fara fyrir
bandalagi bandamanna og afvopna
Saddam Hussein,“ sagði Bush á
stjórnmálafundi repúblikana í Denv-
er í Colorado.
Einkum Frakkar og Rússar, sem
ásamt Bandaríkjamönnum, Bretum
og Kínverjum hafa neitunarvald í ör-
yggisráðinu, hafa hingað til ekki vilj-
að ganga að þeirri kröfu Bandaríkja-
stjórnar að í nýju Íraks-ályktuninni
verði búið svo um hnúta að sjálfkrafa
verði hægt að beita hervaldi, teljist
Írakar ekki hafa hlítt settum reglum
um vopnaeftirlitið. Talsmenn Hvíta
hússins hafa sagt að Bush sé við öllu
búinn og muni ekki hika við að
mynda bandalag án tilstyrks Sam-
einuðu þjóðanna til að fara með
hernaði gegn Írak, ef hann fær ekki
sitt fram í öryggisráðinu.
Blix hvetur öryggisráðið
til að sýna einingu
Hans Blix, formaður vopnaeftirlits
SÞ, sat fyrir svörum í öryggisráðinu
í gær. Hann hvatti ráðið eindregið til
þess að afgreiða samhljóða nýja
ályktun sem allra fyrst, sem skapaði
eftirlitsleiðangrinum sem hann
hyggst fara fyrir í Írak eins góð
starfsskilyrði og hægt er. Blix kom
sér þó hjá því að taka afstöðu í deilu
Bandaríkjamanna og annarra með-
lima öryggisráðsins sem vilja fara
öðru vísi að en þeir. Hann sagði þó að
það yrði til bóta ef í nýju ályktuninni
yrði kveðið á um hvaða afleiðingar
það hefði fyrir Íraka skyldu þeir ekki
reynast sýna fullan samstarfsvilja
við vopnaeftirlitsmenn SÞ.
Togstreitan um Írak í öryggisráði SÞ
Bandaríkja-
menn auka
þrýstinginn
Denver, Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP.
GESTIR í Maruyama-dýragarð-
inum í Sapporo á Hokkaídó-eyju í
Japan horfast í augu við vígalegt
karlljón sem ygglir sig bak við ör-
yggisgler í búri sínu í gær.
AP
Urr
NEMI í hjúkrunarfræði við
Arizona-háskóla tók upp byssu
í tíma í gær, skaut tvo kennara
og einn mann enn til bana áður
en hann batt enda á eigið líf,
eftir því sem lögregla greindi
frá. Kvað neminn hafa heitið
Robert S. Flores og hafa fallið á
mikilvægu prófi.
Skotárásin olli mikilli skelf-
ingu í skólanum. Lögregla leit-
aði í honum öllum að fleiri fórn-
arlömbum og fékk sprengju-
sérfræðinga til að ganga úr
skugga um að öllu væri óhætt.
Skaut
kennarana
Tucson. AP.
LAURENCE Foley, starfsmaður
Þróunarsamvinnustofnunar Banda-
ríkjanna (USAID) í Jórdaníu, var í
gær myrtur við heimili sitt í Amman.
Þetta er, eftir því sem bezt er vitað, í
fyrsta sinn sem vestrænn erindreki
er ráðinn þar af dögum. Verksum-
merki þykja benda til að morðið eigi
sér pólitískar ástæður.
Erindreki myrt-
ur í Jórdaníu
Amman. AP, AFP.
♦ ♦ ♦