Morgunblaðið - 29.10.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 29.10.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 11 Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222 Stærðir frá 36-60 Mussur KOLBEINN Kristinsson, forstjóri Myllunnar – Brauðs hf., er mjög ósáttur við þá umræðu sem átt hefur sér stað að undanförnu um hátt mat- vælaverð á Íslandi. Segir hann um- ræðuna snúast um villandi saman- burð við önnur lönd, sem byggður sé á röngum forsendum. Kolbeinn hefur starfað í matvæla- greininni í 25 ár og segir umræðuna um matvælamarkaðinn um þessar mundir óréttmæta og á villigötum. ,,Þeir sem starfa við matvöruverslun og matvælaframleiðslu eru úthróp- aðir af sumum stjórnmálamönnum og stofnunum fyrir of hátt verð og okur á neytendum. Þetta tal er rangt og þeir sem svona tala gefa sér forsendur sem eru rangar. Mað- ur hefur á tilfinningunni að menn byrji á að ákveða niðurstöðuna og síðan finna þeir forsendu sem styður hana,“ segir Kolbeinn. ,,Þegar Myllan hóf starfsemi var mönnum úthlutað bakarí í einhverju hverfi. Verðlagsstofnun ákvað verð- ið sem við áttum að selja vöruna á og allt var í föstum skorðum. Það var Alþingi sem ákvað að hafa þetta svona en það er jú Alþingi sem ákveður í hvaða starfsumhverfi við búum. Það ákveður hvort við nið- urgreiðum matvörur, hversu hár virðisaukaskattur er lagður á mat- væli og svo framvegis. Það má sem dæmi benda á þá ákvörðun Alþingis að veita grænmetisframleiðendum styrki í stað þess að halda uppi háum verndartollum eða beita öðr- um tiltækum aðgerðum. Þó tel ég að afskipti stjórnvalda eigi að vera í lágmarki. Grænmetið er alveg jafn- dýrt í framleiðslu í dag eins og það var fyrir þessa breytingu en það kostar minna út úr búð,“ segir hann. Hvorki matvælaframleiðendur né verslanir með háa álagningu ,,Við verðum að gera okkur grein fyrir því að Ísland er afar lítill mark- aður, þar sem erfitt er að koma við hámarkshagræðingu. Sá sem kaupir 50 gáma fær eðlilega betra verð en sá sem kaupir eitt bretti. Þetta er staðreynd sem ekki má gleyma þeg- ar forsendur eru gefnar. Landbún- aðurinn er erfiður á Íslandi og við búum langt frá öllum öðrum þjóðum. Þegar menn eru að bera saman mat- vælaverð á Íslandi við lönd í Evrópu eða annars staðar, eru menn að bera saman markaði sem eru alls ekki sambærilegir. Við stöndum okkur samt vel í öllum samanburði. Það er alveg ljóst að hvorki matvælafram- leiðendur né verslanir hafa verið með háa álagningu og taka ekki til sín mikinn afrakstur af rekstrinum. Það eru fáar aðrar greinar þar sem verið hafa fleiri gjaldþrot í gegnum tíðina og þar sem afraksturinn af fyrirtækjunum er minni,“ segir Kol- beinn. Aðspurður hvort umræðan um háa álagningu á matvöruverð sé þá á misskilningi byggð bendir Kolbeinn á að með auknu frjálsræði í atvinnu- lífi hafi menn frjálsari hendur um hvað þeir leggja á vöruna. ,,Það er alveg ljóst að allir þeir sem stunda viðskipti munu ávallt haga álagn- ingu í samræmi við rekstur sinn og hagnaðarkröfu sinna eigenda. Álagningin er þó innan heilbrigðrar skynsemi og í samræmi við mark- aðinn og á því verði sem neytandinn vill borga fyrir vöruna. Ef verðið er of hátt er vara ekki keypt, sam- keppnin sér um það. Ég hugsa ekki að menn vilji fara aftur til þeirra tíma þegar verðlagið var ákveðið af Verðlagsráði,“ svarar hann. Brauðvörur niðurgreiddar í mörgum löndum Kolbeinn segir einnig að hafa verði í huga þegar verð á brauði er borið saman við verð á öðrum mörk- uðum að brauð eru landbúnaðarvara og því víða niðurgreidd eins og aðrar landbúnaðarvörur. ,,Niðurgreiðslurnar hafa áhrif á verð á brauði í þessum löndum og sums staðar, t.d. í Bretlandi, hafa brauð verið seld undir kostnaðar- verði í áratugi. Þetta er stórvanda- mál hjá Bretum, sem hefur skaðleg áhrif bæði fyrir framleiðendur og neytendur. Þar framleiða bakaríin einsleita vöru eins ódýrt og kostur er og engin vöruþróun á sér stað því menn vita að það mun enginn hafa krónu upp úr henni þar sem hún verður seld á undirverði í verslun- um. Svo hafa aðilar á borð við Neyt- endasamtökin tekið verðkannanir í Bretlandi og borið þær saman við brauð á Íslandi. Það er ekki hægt að bera þetta tvennt saman. Við getum ekki selt vöruna undir kostnaðar- verði hér á landi. Matvörubúðirnar geta það ekki heldur. Ég tel mjög mikilvægt að matvælaframleiðendur og þeir sem eru að veita aðhald á markaðnum, s.s. Neytendasamtök- in, komi sér saman um hvaða for- sendur eigi að nota í samanburði á milli landa,“ segir hann. Könnun sýnir lægst verð á brauði út úr búð á Íslandi Stjórnendur Myllunnar gerðu í vikunni sem leið samanburð á verði á algengu samlokubrauði í stór- mörkuðum á Íslandi, í Svíþjóð, Dan- mörku og Bandaríkjunum. Könnunin var gerð 23. október sl. og var annars vegar borið saman kílóverð án virðisaukaskatts á merkjavörubrauði sem er sambæri- legt við Heimilisbrauð Myllunnar og hins vegar á sérmerktu samloku- brauði. Kolbeinn bendir á að í ljós hafi komið að merkjavörubrauðið var ódýrast í Coop í Danmörku eða 173 kr./kg, en næstódýrast í Bónus á Ís- landi eða 193 kr./kg. Brauðið kostaði 194 kr./kg í Coop í Svíþjóð, 226 kr./ kg í Fjarðakaupum en reyndist dýr- ast í Stop & Shop verslununum í Bandaríkjunum, þar sem brauðið kostaði 259 kr./kg. Einnig var gerð- ur samanburður á sérmerktu brauði og þá kom í ljós að á Íslandi er lang- lægsta verðið eða 87 kr. í Bónus og 108 kr. í Fjarðakaupum. Í Banda- ríkjunum var brauðið meira en helmingi dýrara en á Íslandi eða 174 kr./kg. (Sjá töflu). Að sögn Kolbeins hefur einnig verið kannað meðalverð á Heimilis- brauði út úr verslunum hér á landi síðastliðin þrjú ár og það borið sam- an við þróun launavísitölunnar á sama tímabili. Í ljós kemur að smá- söluverð á Heimilisbrauði hefur ekk- ert breyst í þrjú ár en launavísitalan hækkaði á sama tíma um rúm 24%. ,,Svo er verið að úthrópa okkur fyrir það að brauðverð sé alltof hátt á Íslandi og að bakarar skuldi neyt- endum útskýringu á þessu háa verði. Bakarar á Íslandi eru miklir fag- menn og viðurkennt er að brauð á Íslandi séu í mjög háum gæðastaðli miðað við aðrar þjóðir ef ekki í hæsta gæðastaðli. Samt mega þeir sitja undir ásökunum um að vera okrarar, sem er rangt. Gefum okkur réttar forsendur og berum síðan saman verð á milli landa. Þessi um- ræða sem fram hefur farið að und- anförnu þjónar ekki hagsmunum neytenda. Þetta er niðurrifsstarf- semi. Ég lít svo á að sumir stjórn- málamenn séu að taka þetta upp vegna þess að kosningar eru í nánd,“ segir Kolbeinn. Mikil samkeppni Að sögn Kolbeins er mikil sam- keppni ríkjandi á milli bakaría og ekki síður vegna stóraukins inn- flutnings á brauði og kökum. Aldrei hafi verið flutt inn eins mikið af brauði og kökum og nú. ,,Neyslu- mynstur fólks hefur líka breyst. Í dag eru til dæmis frystar í versl- unum fullir af brauðum og hillur full- ar af kökum, en fyrir nokkrum árum var þetta í mjög litlum mæli og þar erum við í harðri samkeppni við er- lend stórfyrirtæki. Ég held að þótt það séu færri aðilar sem keppi í dag þá sé samkeppnin miklu harðari en áður.“ – Þeirri skoðun hefur verið haldið fram að undanförnu að hátt mat- vælaverð hér tengist þeirri stað- reynd að Ísland er ekki aðili að Evr- ópusambandinu. Hvaða áhrif telur þú að ESB-aðild hefði á matvæla- verð og verðmyndun matvöru? ,,Ég fæ ekki séð að það myndi hafa nein áhrif á matvælaverð þótt við gengjum í Evrópusambandið. Ég hefði frekar áhyggjur af því að skattaálögur myndu aukast frekar en hitt,“ svarar hann. ,,Ég hef ekki myndað mér skoðun á um hvort við eigum að ganga í Evrópusambandið eða vera utan þess en við verðum að gera okkur grein fyrir því að það eru ákveðin forréttindi að búa á Íslandi en það kostar meira. Við skulum hafa það í huga að þar sem afskipti stjórnmála- mannanna eru mest, þar kemur samanburðurinn á matvælaverði verst út fyrir Ísland. Landbúnaður á Íslandi hefði að sjálfsögðu gott af því að fá aukna samkeppni og hann mun standast hana ef hann fær eðlilegan aðlögunartíma, sem er mun styttri en nú er stefnt að. En þessi umræða um matvöruverð hefur líka þær nei- kvæðu afleiðingar að þegar búið er að telja fólki trú um að brauð á Ís- landi séu dýr fer það að hafa áhrif á neysluna. Staðreyndin er sú að það eru fáar matvörur eins ódýrar og brauðið og neysla á brauði á Íslandi er alltof lítil miðað við önnur Evr- ópulönd og það sem næringarfræð- ingar mæla með. Neysla á brauði er miklu minni hér en á hinum Norð- urlöndunum og löndum í norður- hluta Evrópu. Svona umræða, sem fer fram á röngum forsendum, getur haft slæmar afleiðingar og því miður er þessi umræða nú á villigötum,“ segir Kolbeinn að lokum. Kolbeinn Kristinsson, forstjóri Myllunnar, í viðtali um matvöruverð á Íslandi Umræðan á villigötum Kolbeinn Kristinsson, forstjóri Myllunnar – Brauðs hf., segir umræðuna um hátt mat- vælaverð á Íslandi í samanburði við önnur lönd óréttmæta og villandi. Mikilvægt sé að menn komi sér saman um hvaða forsendur eigi að nota í samanburði á milli landa.                                 "  #   $% $& $' $ $ % & '   ()   *+   - #   ./0 1+ /- 1+ /- 2 ,  .340 2 ,  - 5 6- "  $' ()   $'$ ()   $'% ()   $77 ()  %8 ()   $% ()   $8' ()   Morgunblaðið/Golli Kolbeinn Kristinsson, forstjóri Myllunnar – Brauðs hf. DAGANA 1. – 11. nóvember n.k. efnir vísinda- og tæknisamfélagið á Íslandi í fyrsta sinn til Vísindadaga þar sem almenningi gefst kostur á að fræðast um gróskuna í heimi vís- indanna hér á landi. Rannsóknarráð Íslands hefur haft frumkvæðið að Vísindadögum en stefnt er að því að gera þá að árlegum viðburði. Fjöl- margar stofnanir, skólar, fyrirtæki og einstaklingar taka þátt í dag- skránni. Boðið verður upp á fyrir- lestra um efni sem tengjast vísind- unum, víða verður opið hús og sýningar og vettavangsskoðanir verða í boði auk annarra uppákoma. Fyrsta nóvember n.k. verður opið hús hjá tannlækna- og lyfjafræði- deild í Læknagarði. Annan nóvem- ber verður opið hús hjá Líffræði- stofnun í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og kynning á rannsóknum Raunvísindastofnunar í Tæknigarði svo fátt eitt sé nefnt. Sama dag verð- ur fjölbreytt dagskrá undir yfir- skriftinni Vísindi fyrir unga og aldna um borg og bý, í Kennaraháskóla Ís- lands og opið hús hjá Iðntæknistofn- un og Reykjavíkurakademíunni. 3. nóvember munu Háskólasetrið og Jöklasýning á Höfn í Hornafirði standa fyrir opnu húsi á Jöklasýn- ingunni og fyrirlestrum í Nýheim- um. 4. nóvember efnir Borgarfræða- setur til málþings milli kl. 17 og 19 í hátíðarsal H.Í. um stöðu Reykjavík- ur og landsbyggðar. Vísindahlaðborð Dagana 5. og 6. nóvember verður Vísindahlaðborð í Ráðhúsi Reykja- víkur þar sem vísinda- og fræðimenn bjóða til veislu og fólk á öllum aldri getur skoðað, snert og fræðst um fjölmargt úr heimi vísindanna. Síð- degis báða dagana munu vísinda- menn troða upp með vísindaspjall á hálftímafresti. Þá verður opið hús hjá Byggðastofnun á Sauðárkróki 6. nóvember og 7. nóv. verður boðið up á fyrirlestra í Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands. 8. nóvember verður kynning á starfsemi og verkefnum Lífefna- og sameindalíffræðistofu Læknadeild- ar í húsnæði stofnunarinnar, Læknagarði, milli 13 og 17 og á sama tíma efnir Háskólinn í Reykja- vík til rannsóknardags þar sem opn- ir fyrirlestrar verða í þremur sölum. 9. nóvember verður m.a. opið hús og ýmsar uppákomur í Nýja Garði og Árnagarði milli 10 og 16. Milli 13 og 17 sama dag verður Vísindadagur í Háskólanum á Akureyri. 10. nóvem- ber efnir verkfræðideild HÍ og Barnasmiðjan m.a. til hönnunarsam- keppni milli mið- og efsta stigs ólíkra grunnskóla þar sem byggt verður úr Lego Dacta tæknikubb- um. Dagana 1.–10. nóvember verður tilraunaaðstaða Landbúnaðarhá- skólans og Rannsóknastofnunar landbúnaðarins á Hvanneyri og Hesti í Borgarfirði opin almenningi. Á Vísindadögum verður einnig starf- rækt verkefnið Vísindamaður að láni, þar sem grunnskólar fá í heim- sókn vísindamann sem varpar ljósi á afmarkað efni innan vísindanna. Vísindadagar 2002 Hægt að fræðast um heim vísindanna TENGLAR ..................................................... Allar nánari upplýsingar um dagskrá Vísindadaganna má finna á slóðinni: www.visindadagar.is.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.