Morgunblaðið - 29.10.2002, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.10.2002, Blaðsíða 19
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 19 sérsniðin innheimtulausn ERFÐABREYTT matvæli hafa verið notuð í þróunaraðstoð svo árum skiptir, segir tímaritið New Scientist. Hermt er að Filipps- eyjar, Indland og ýmis ríki Afr- íku og Suður-Ameríku hafi tekið á móti slíkum sendingum undan- farin misseri, jafnvel þótt fram- boð erfðabreyttra matvæla stríði í einhverjum tilvikum gegn landslögum. Þetta kemur á daginn þar sem sífellt fleiri Afríkuríki hafa að undanförnu neitað að þiggja erfðabreyttan maís með neyðar- aðstoð. Fulltrúi matvælasendinga hjá SÞ, Trevor Rowe, segir í New Scientist að bandalaginu sé ekki skylt að upplýsa viðtakandann hvort neyðaraðstoð innihaldi erfðabreytt matvæli eða ekki. Helmingur af korni sem notað er í neyðaraðstoð kemur frá Banda- ríkjunum þar sem fjórðungur maísuppskerunnar er erfða- breyttur. „Við erum þeirrar skoð- unar að fólk vilji heldur borða erfðabreytt matvæli en mold,“ er haft eftir Rowe. Grunur um að erfðabreytt- um maís sé sáð í Afríku Levy Mwanawasa, forseti Zambíu, hefur líkt erfðabreyttum matvælum við eitur, en hefur þurft að viðurkenna að slíkar sendingar hafi borist til landsins með neyðaraðstoð frá því á síð- asta áratug liðinnar aldar. Munu forráðamenn í Afríku óttast að bændur nýti erfðabreytta maís- inn til sáningar svo hann breiðist út í náttúrunni, sem gæti haft af- leiðingar fyrir útflutning á naut- gripum til Evrópu. Kemur fram að nautakjöt frá Afríku seljist vel vegna lífrænnar ræktunar og að sá markaður muni gufa upp á svipstundu berist fregnir af því að erfðabreytt fóður sé hluti af eldinu. Erfðabreytt matvæli í neyðaraðstoð 10–11, sem rekur tuttugu matvöru- verslanir víðsvegar um landið, hefur lengt afgreiðslutíma verslana sinna um eina klukkustund á dag og verða þær nú opnar frá kl. 9–23, segir í frétt frá 10–11. 10–11 lengir afgreiðslu- tímann TÆKI til að pakka matvæl- um í loft- tæmdar umbúðir fæst nú hjá Dan- berg ehf. í Reykjavík. Tækið, sem heitir Magic Vac, er frá ítalska framleiðandanum Flaem Nuova S.p.A. Í fyrstu verða seldar tvær gerðir af Magic Vac, annars vegar fyrir heimili og hins vegar fyrir veitingastaði, mötuneyti og stofn- anir. Samkvæmt upplýsingum frá framleiðandanum um geymsluþol matvæla heldur ósoðið kjöt fersk- leika sínum í níu daga ef það er geymt í kæliskáp í lofttæmdum umbúðum frá Magic Vac. Nýr fisk- ur heldur ferskleika sínum í 5 daga ef hann er geymdur í kæliskáp í lofttæmdum umbúðum. NÝTT Mat pakkað í lofttæmdar umbúðir NÚ HEFUR kókfjölskyldunni bæst liðsauki hér á landi, Diet Coke með sítrónubragði. Vífilfell hf. hefur hafið fram- leiðslu á drykknum sem heitir diet Coke Lemon og er frá Coca-Cola Comp- any. Drykkurinn er sykurlaus með fersku sítrónu- bragði og er framleiddur og seldur í 0,5 lítra umbúðum. „Ísland er fyrsta landið á Norðurlöndunum sem framleiðir og selur drykkinn en hann hefur verið á markaði í Banda- ríkjunum og Bretlandi að undan- förnu og fengið góðar undirtektir,“ segir í fréttatilkynningu. NÝTT Sykurlaust kók með sítr- ónubragði alltaf á föstudögum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.