Morgunblaðið - 29.10.2002, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 29.10.2002, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fyrstu kynni mín af Kristni Gestssyni voru þegar Fjölnir Stefáns- son, þá nýráðinn skóla- stjóri Tónlistaskóla Kópavogs, bauð mér starf og kynnti mig fyr- ir yfirkennara sem þá var kallaður, en heitir nú aðstoðarskólastjóri. Þetta var Kristinn Gestsson. Hann var ákaflega mikill listamaður og afburða kennari sem leysti hvers manns vanda greiðlega. Það hefur verið okkur öllum ánægjuefni að sjá Tónlistarskóla Kópavogs dafna svo vel undir styrkri stjórn þessara mætu manna og kennara. Kristinn Gestsson var að mínu mati hvetjandi kennari og hafði örvandi áhrif á nemendur sína. Ég veit að þeim sem hjá honum lærðu og þeim mörgu sem kynntust Kristni Gestssyni þótti óendanlega vænt um hann. Þegar ég hitti gamla nemendur Kristins spyrja þeir ávallt: „Hvað er að frétta af kæra kennaranum okk- ar?“ KRISTINN GESTSSON ✝ Kristinn Gests-son fæddist á Dalvík 21. maí 1934. Hann varð bráð- kvaddur í Kópavogi 14. október síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Kópavogs- kirkju 25. október. Einnig minnist ég þess er Elísabet Er- lingsdóttir, sem þá var söngkennari við Tón- listarskóla Kópavogs, söng inn á sína fyrstu hljómplötu við undir- leik Kristins Gestsson- ar, meðal annars verk og útsetningar eftir Fjölni Stefánsson, en þá hlýnaði mörgum um hjartarætur. Árni Harðarson, sem nú er Skólastjóri Tón- listarskóla Kópavogs, var fyrsti nemandi sem Kristinn Gestsson útskrifaði í píanó- leik. Árni er auk þessa stjórnandi Karlakórsins Fóstbræðra og vax- andi tónskáld. Gamalt orðatiltæki segir: Lengi býr að fyrstu gerð. Það er ljúft að minnast góðra vina og ánægjulegs samstarfs um ára- tugaskeið. Elsku Ásdís mín, ég sendi þér og fjölskyldu þinni mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ég bið Guð að gefa ykkur styrk í sorginni svo og öðrum vinum og vandamönnum. Blessuð sé minning Kristins Gestssonar. Ef guðleg frækornin geyma vilt þú þá glæddu í sál þinni heilbrigða trú hún veitir þér ljós þegar leiðin er myrk. Hún léttir þér göngu með andlegum styrk. Anna Hansen. minningar yngri frændsystkinanna eru úr Efstalandinu, en heimili þitt og afa hefur ávallt og verður alltaf hluti af uppeldi okkar og sögu. Við finnum það nú þegar þú ert farin hversu stór hluti þú varst af okkur öllum. Þú varst alltaf til stað- ar, alltaf var gaman að hitta þig, þú varst áhugasöm um hagi okkar, varst afar stolt af okkur og hamingja okkar skipti þig miklu. Elsku amma, minning þín mun lifa með okkur. Ellert Örn, Dagný Dögg, Georg, Helgi Már, Vilmundur, Helga og Þorvaldur Sveinn. ✝ Ingibjörg Péturs-dóttir húsfreyja fæddist í Reykjavík 26. nóvember 1923. Hún lést á Landsspít- alanum í Fossvogi 12. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jódís Tómas- dóttir frá Austur- Eyjafjöllum og Pétur Pétursson, vatns- maður við Reykjavík- urhöfn, frá Bergvík í Leiru. Ingibjörg (Lilla) giftist 30. nóvember 1946 eftirlifandi manni sínum Jóni Þorsteinssyni frá Laufási í Vest- mannaeyjum. Þau eiga fimm börn, þau eru: 1) Þorsteinn, f. 1944, maki Elva Andrésdóttir, synir þeirra Andrés, Jón Elvar og Þorbergur. Áður átti Þorsteinn Georg Gísla. 2) Elínborg, f. 1949, maki Franklín Georgsson. Þeirra börn eru Dagný, Georg og Helga. 3) Erna, f. 1952, fyrri maki Erlingur Karlsson og synir þeirra eru Ellert Örn og Helgi Már. Seinni maður Ernu er Sveinn Sveinsson og eiga þau synina Vilmund og Þorvald Svein. 4) Pétur, f. 1956, maki Sigrún Sigurðardóttir. Þeirra börn eru Ingibjörn, Rakel og Rebekka. 5) Jón Ragnar, f. 1967, maki Katla Margrét Þorgeirsdóttir og eiga þau soninn Berg Hrafn. Útför Ingibjargar verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku amma. Þegar við frændsystkinin samein- umst nú og minnumst þín þá rifjast upp ótal minningar um þig. Við höf- um öll okkar sögu að segja hvernig minning þín lifir meðal okkar. Minn- ingar um stundir í eldhúsinu þar sem mæður okkar og þú spjölluðuð löngum stundum, annaðhvort hlust- uðum við með stór eyru eða hlupum um allt hús. Við munum einnig öll eftir því að hafa dvalið hjá þér í lengri eða skemmri tíma í pössun þegar oft var spjallað eða spilað. Við eldri frændsystkinin munum eftir vist hjá ömmu í Ásgarðinum en INGIBJÖRG PÉTURSDÓTTIR KIRKJUSTARF Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 10–14 í neðri safnaðarsal kirkjunnar. Byrj- að á kaffisopa og kl. 10.30 er boðið upp á skemmtigöngu um Laugardalinn eða upp- lestur úr góðum bókum fyrir þá sem ekki treysta sér í gönguna. Bæna- og fyrir- bænastund kl. 12. Fólk sem býr eða starf- ar í sókninni er hvatt til að koma og eiga kyrrðarstund í önnum dagsins. Fyrirbæn- um má koma til starfsfólks kirkjunnar. Að lokinni bænastund gefst þátttakendum kostur á léttum hádegisverði. Tólfspora- fundur er kl. 19 í neðri safnaðarheimilinu. Bústaðakirkja. TTT-æskulýðsstarf fyrir 10–12 ára kl. 17. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris- ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður að samverustund lokinni. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Laugarneskirkja. Bænanámskeið kl. 20. Sr. Bjarni Karlsson fræðir um bænina. Engin skráning. Þægilegt að vera með. Gengið inn um dyr á austurgafli kirkjunnar. Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21. Lofgjörð- arstund þar sem Þorvaldur Halldórsson leiðir sönginn við undirleik Gunnars Gunn- arssonar, en sóknarprestur flytur guðs orð og bæn. Fyrirbænaþjónusta kl. 21.30 í umsjá Margrétar Scheving sálgæsluþjóns og hennar samstarfsfólks. (Sjá síðu 650 í Textavarpi.) Neskirkja. Litli kórinn – kór eldri borgara kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. All- ir velkomnir. Alfa-námskeið kl. 19. Umsjón Sr. Örn Bárður Jónsson. Foreldramorgnar miðvikudag kl. 10–12. Kaffi og spjall. Um- sjón Elínborg Lárusdóttir. Seltjarnarneskirkja. Foreldramorgunn kl. 10. Kirkjuprakkarar (7–9 ára) kl. 16. Kirkjustarf TTT (10–12 ára) kl. 17.30. Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í safnað- arheimilinu kl. 10–12. Hittumst, kynn- umst, fræðumst. STN – starf fyrir 7–9 ára börn kl. 16.15–17.15. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra hefst kl. 11.15 með leikfimi ÍAK. Léttur máls- verður. Samverustund í umsjá heima- manna. Kaffiveitingar. KFUM & KFUK í Digraneskirkju fyrir 10–12 ára krakka kl. 17–18.15. Fræðslusalur opinn fyrir leiki frá 16.30. Unglingakór Digraneskirkju kl. 17–19. Alfa-námskeið kl. 19. Kvöldverð- ur, fræðsla, umræðuhópar. Kennari sr. Magnús B. Björnsson. (Sjá nánar: www.digraneskirkja.is.) Fella- og Hólakirkja. Foreldrastund í safn- aðarheimili á þriðjudagsmorgun kl. 10–12 í umsjón Lilju G. Hallgrímsdóttur djákna. Kaffi og notalegheit þar sem heimavinn- andi foreldrar hittast í góðu umhverfi kirkj- unnar. Starf fyrir 11–12 ára stúlkur kl. 16.30. Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borg- ara kl. 13.30–16. Helgistund, handa- vinna, spil og spjall. Kaffiveitingar og alltaf eitthvað gott með kaffinu. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8. bekk Rimaskóla kl. 20– 22. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 9. og 10. bekk í Grafarvogskirkju kl. 20–22. Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra er í Hjallakirkju kl. 9.15–10.30. Umsjón Sig- urjón Árni Eyjólfsson. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 18. Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag kl. 10–12 í safnaðarheimilinu Borgum. Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús milli kl. 10 og 12. Kaffi og spjall. Æsku- lýðsfundur fyrir 13 ára unglinga (ferming- arbörn) kl. 20. Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 13–16 á vegum kirkjunnar. Spilað og spjallað. Helgistund kl. 16. Fjölbreytt æskulýðs- starf fyrir 9–12 ára stúlkur í safnaðarheim- ilinu Kirkjuhvoli kl. 17.30–18.30 í umsjón KFUK. Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára börn í dag kl. 17. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30–18. Æskulýðsstarf 8. og 9. bekkur kl. 20–22. Hveragerðiskirkja. Kl. 10 foreldramorg- unn. Þórður Birgisson tannlæknir ræðir um tannvernd barna. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15 kirkjuprakkarar, kirkjustarf 6–8 ára krakka. Söngvadagur. Sr. Þorvaldur Víð- isson og leiðtogarnir. Keflavíkurkirkja. Fermingarundirbúningur í Kirkjulundi kl. 14.30–15.10 8.B í Holta- skóla & 8. I.M. í Myllubakka. Kl. 15.15– 15.55 8.A í Holtaskóla & 8.B í Myllu- bakkaskóla. Áfallahjálp og sorgarvinna í minni sal Kirkjulundar kl. 20.30. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl. 10–12. Hveragerðiskirkja. Kl. 10 foreldramorg- unn. Þórður Birgisson tannlæknir ræðir um tannvernd barna. Borgarneskirkja. TTT tíu til tólf ára starf alla þriðjudaga kl. 17–18. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.15–19. Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl. 13.40. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Kefas. Bænastund kl. 20.30. Allir vel- komnir. Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9. Fermingarfræðsla kl. 15.30 í safnaðar- heimili. Hópur 1: 8.A Brekkuskóla og 8. bekkur A Lundarskóla. Víkurkirkja, Vík í Mýrdal. Safnaðarstarf FIMMTUDAGINN 31. október nk. kl. 20:30 halda Laufey Sigurð- ardóttir fiðluleikari og Elísabet Waage hörpuleikari tónleika í Vík- urkirkju. Á efnisskrá eru nokkur tónverk frá 18. og 19. öldinni og íslensk sönglög sem flestum eru að góðu kunn. Laufey er fastráðinn fiðluleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess sem hún kennir fiðluleik og heldur reglulega tónleika. Elísabet er nýflutt til Íslands eftir að hafa verið búsett í Hollandi frá því að hún lauk námi en hún hefur þó ver- ið reglulegur gestur hérlendis og leikið ýmist með Sinfóníuhljómsveit Íslands, ýmsum kammerhópum svo og á einleikstónleikum, auk þess að leika með hljómsveitum og halda tónleika erlendis. Laufey og El- ísabet hafa spilað saman í áraraðir og haldið saman tónleika bæði hér- lendis og í Hollandi, síðast léku þær saman í Amsterdam í nóvember 2001. Við hvetjum alla til að fjömenna. Sóknarnefndin. Tónleikar í Víkurkirkju Félag eldri borgara í Kópavogi Það er jöfn og góð þátttaka hjá eldri borgurum í Gjábakkanum. Þriðjudaginn 22. október spiluðu 26 pör. Lokastaða efstu para í N/S varð þessi: Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 372 Ingibjörg Halldórsd. – Sigríður Pálsd. 369 Friðrik Hermannss. – Kristján Ólafsson 354 Hæsta skorin í A/V: Ólafur Ingvarss. – Þórarinn Árnason 413 Helga Helgadóttir – Sigrún Pálsdóttir 407 Vilhjálmur Sigurðss. – Þórður Jörundss. 393 Sl. föstudag mættu einnig 26 pör og þá urðu úrslitin þessi: Vilhjálmur Sigurðss. – Þórður Jörundss. 381 Lárus Hermannss. – Sigurður Karlss. 366 Magnús Halldórss. – Þorsteinn Laufdal 361 Og í austur/vestur: Guðjón Kristjánss. – Magnús Oddsson 413 Jón Stefánsson – Eysteinn Einarss. 375 Ólafur Ingvarss. – Þórarinn Árnason 361 Meðalskor báða dagana var 312. Sunnudaginn 20. október var hald- in bæjarkeppni milli eldri borgara í Gjábakka og Reykvíkinga. Spilað var á 20 borðum eða 80 manns. Lokatölur urðu þær að Reykvíking- ar sigruðu með 184 stigum gegn 116. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Félag eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði í Glæsibæ mánud. 21. okt. 24 pör. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Óskar Karlsson – Ólafur Ingvarsson 269 Sæmundur Björnsson – Olíver Kristóf. 248 Ingibjörg Stef. – Þorsteinn Davíðss. 239 Árangur A-V: Kristján Ólafsson – Ólafur Gíslason 262 Þórarinn Árnas. – Sigtryggur Ellertss. 244 Magnús Oddsson – Friðrik Herm. 242 Tvímenningskeppni spiluð fimmtud. 24. október. 23 pör. Með- alskor 216 stig. Árangur N-S: Sigurleifur Guðjónss. – Friðrik Herm. 251 Aðalbjörn Benediktss. – Leifur Jóh. 243 Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 235 Árangur A-V: Magnús Oddss. – Magnús Halldórss. 268 Björn E. Pétursson – Hilmar Ólafsson 257 Jóhann M. Guðm. – Hjálmar Gíslason 233 Bridsfélag Kópavogs Sl. fimmtudag var spilaður eins kvölds tvímenningur á 12 borðum. Sigurvegararnir í báðum riðlum fóru hróðugir til síns heima, hver með sína rauðvínsflösku. Efstu pör: NS: Vilhjálmur Sig. jr. – Hermann Láruss. 315 Sigurður Sigurjónss. – Jón P. Sigurj. 312 Þórður Björnss. – Þröstur Ingimarss. 289 AV: Soffía Gísladóttir – Páll Valdimarsson 347 Valdimar Sveinss. – Friðjón Margeirss. 314 Ingólfur Hlynsson – Snorri Sturluson 287 Nk. fimmtudag hefst 4-5 kvölda Barómeter tvímenningur og eru bridgespilarar hvattir til að fjöl- menna, því það er gott að spila í Kópavogi. Spilað er í Þinghól, Hamraborg 11 og hefst spila- mennska kl. 19.30. Félag eldri borgara í Hafnarfirði Eldri borgarar í Hafnarfirði spila brids-tvímenning í Hraunseli, Flata- hrauni 3, tvisvar í viku, á þriðjudög- um og föstudögum. Það vantar fleiri spilara. Mæting kl. 13:30. Spilað var 25. okt., þá urðu úrslit þessi: Árni Bjarnason – Þorvarður. S. Guðm. 102 Auðunn Guðmundss. – Bragi Björnsson 97 Sófus Berthelsen – Einar Sveinsson 92 Jóna Kristinsdóttir – Sveinn Jensson 83 28. okt. Sófus Berthelsen – Einar Sveinsson 94 Maddy Guðmundsd. – Guðm. Árnason 83 Jóna Kristinsdóttir – Sveinn Jensson 81 Hera Guðjónsdóttir – Árni Guðmundsson 80 MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudagana, frá þriðjudegi til sunnudags. Greinunum er hægt að skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist), á disklingi eða í vélrituðu hand- riti. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Bréfsími fyrir afmælis- minningargreinar er 569 1115. Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík. Birting afmælis- og minningargreina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.