Morgunblaðið - 29.10.2002, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 29.10.2002, Blaðsíða 48
Morgunblaðið/Golli Ingólfur er fyrstur Þokkabótarmanna til að senda frá sér sólóskífu. ÞOKKABÓT er mörgum enn of- arlega í minni þótt rúmir tveir ára- tugir séu síðan söngveitin lagði upp laupana. Einn höfuðpaura hennar, Ingólfur Steinsson, gaf fyrir skemmstu út Kóngsríki fjallanna, og varð þá fyrstur Þokkabótarmanna til að senda frá sér sólóskífu. Ingólfur segist aldrei hafa hætt að semja tónlist og texta en hefur haft í ýmsu að snúast frá því Þokkabót hætti laust fyrir 1980, bjó í Banda- ríkjunum um tíma og eftir heimkom- una tók við langt og strangt brauð- strit. „Ég átti orðið mikið af lögum en þau höfðu aldrei forgang,“ segir hann og bætir við að þau hafi verið orðin ansi þungur farangur. Hann tók svo til við upptökur fyrir nokkru og und- anfarin tvö til þrjú ár hefur hann ver- ið að taka upp, mikið til hjá vinum eins og Ásgeiri Óskarssyni og Villa Guðjóns. Hann lauk svo við plötuna hjá Axel í Stöðinni í vetur, en þrjú laganna eru upptökur sem Ingólfur gerði með Steingrími Guðmundssyni eftir að hann sneri heim frá Banda- ríkjunum 1987. Lög frá ýmsum tímum „Lögin eru annars samin á ýmsum tímum,“ segir Ingólfur. „Textinn við „Nútímarímu“ er t.d. gerður í Am- eríku, knúinn af heimþrá og sterkri tilfinningu fyrir eyðingarmætti tím- ans. „Sjoppulagið“ er líka samið úti svo og „Kóngsríki fjallanna“ sem er reyndar nýtt nafn á gömlu lagi. Þannig eru textarnir gjarnan í þróun hjá mér. Lög eins og „Ísaland“ og „Leikur í lyndi“ eru nýleg. Nýjasta lagið er þó „Skáldalaunin“ við kvæði Steins Steinarr. Það gerði ég í vetur sem leið. Ég á heilmikið safn af lög- um við eigin texta og annarra. Hef t.d. samið mikið við kvæði Davíðs Stefánssonar. Var búinn að taka upp ein tuttugu lög en setti ellefu þeirra á diskinn.“ Meðal laga á plötunni eru þrjú sem segja frá æsku- og unglingsárum á Seyðisfirði, heimabæ Ingólfs, og hann tekur undir að þau séu honum hugleikin. „Ég býst við að æskuárin verði mörgum hugleikin þegar þeir fullorðnast. Ég byrjaði að semja lög og texta um þennan tíma skömmu eftir að Þokkabót lagði upp laupana. Æskan er sjóður sem hægt er að leita í og þar er margt djásnið að finna. Hér áður fyrr var í mér eftirsjá eftir þessum horfnu dögum en ekki leng- ur. Ég er sáttur við líf mitt í dag og æskuárin eru kóróna sem varð eftir í garðinum heima en ég er hættur að leita hennar. Ég á góðar minningar.“ Undanfarin ár hefur Ingólfur ekki bara samið tónlist og texta, því hann hefur líka skrifað bækur. „Það er gaman að semja þegar andinn er yfir, stundum er það óskaplega létt, stundum ekki. Að setja saman einn texta getur kostað svita og tár en erf- iðast er þó að skrifa skáldsögu. Það hef ég gert einu sinni, reyndar skáld- ævisögu eins og það er kallað í dag. Mig langar að skrifa annað bindi við tækifæri. Annars er mesta puðið að gefa þetta út. Ég stofnaði mína eigin útgáfu sem heitir Tunga og þar hafa komið út þrjár bækur og svo núna platan, auk margs konar kennslu- efnis á vef í tengslum við þessi verk.“ Eins og getið er í upphafi er Kóngsríki fjallanna fyrsta sólóskífa liðsmanns Þokkabótar. Ingólfur seg- ir að margir félagar hafi verið í Þokkabót á þeim fjórum-fimm plöt- um sem komu út og hann hafi lítið samband við flesta þeirra. „En gamli kjarninn frá fyrstu árunum, æskuvin- irnir, ég, Gylfi, Maggi og Dóri sem kom tvítugur á Seyðisfjörð til að vinna í fiski; það eru alltaf einhverjar taugar sem tengja þennan hóp. Við komum meira að segja saman þegar bærinn okkar varð 100 ára, héldum mikla tónleika í Herðubreið og spil- uðum á böllum með fleiri gömlum vinum. Ætli æskuvinaböndin slitni ekki seinast.“ Ingólfur Steinsson gaf nýverið út sólóskífuna Kóngsríki fjallanna Æskuárin eru kóróna í garðinum TENGLAR ..................................................... www.tunga.ismennt.is 48 ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ 26.10. 2002 13 3 8 8 6 0 9 1 6 4 1 21 27 35 38 37 23.10. 2002 5 22 29 30 44 48 9 18 Fimmfaldur 1. vinningur næsta laugardag Einfaldur 1. vinningur næsta miðvikudag VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4507-4500-0030-3021 4507-4500-0030-6776 4741-5200-0002-4854 4548-9000-0059-0291 4539-8500-0008-6066 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 fyrir að klófesta kort og vísa á vágest VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. Sýnd kl. 6. FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN Í SÖGU HANNIBAL LECTER. Sýnd kl. 7.  Kvikmyndir.com  HK DV  HJ Mbl 1/2 HK DV  SFS Kvikmyndir.is Sýnd kl. 4.50, 8 og 10.15. Bi 12. Yfir 40.000 áhorfendur  SV Mbl  SK RadíóX Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16. Frábær kvikmynd um umtalaðasta Íslandsvin allra tíma, broddgöltinn og klámkónginn Ron Jeremy 1/2 Kvikmyndir.is  ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 5.45 og 8.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16. Sýnd kl.10. Sýnd kl. 8. B.i. 12. Sýnd kl. 10.20. B.i. 14. ÞriðjudagsTilboð kr. 400 ÞriðjudagsTilboð kr. 400 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 448 Kvikmyndir.com 1/2 Kvikmyndir.is  SV. MBLDV Það verður skorað af krafti. Besta breska gamanmyndin síðan „Bridget Jones’s Diary.“ Gamanmynd sem sólar þig upp úr skónum. Sat tvær vikur í fyrsta sæti í Bretlandi. ÞriðjudagsTilboð kr. 400 E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P S Ý N D Í S A L 1 Sýnd kl. 8 og 10.10. Bi. 16. Vit 453 Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. Vit 460  SK RadíóX ÞriðjudagsTilboð kr. 400 Sýnd kl. 6. Vit 435 örugg stýring viðskiptakrafna ÍRSKI stórleikarinn Richard Harr- is lést á föstudag en hann er ekki síst þekktur fyrir hlutverk sitt í myndinni Harry Potter og visku- steinninn, sem hinn alvitri skóla- stjóri Albus Dumbledore. Hann var 72 ára og hafði gengist undir með- ferð við Hodgkins-sjúkdómi en hann veiktist fyrir tveimur mán- uðum. Minningarathafnir um Harris verða haldnar bæði í London og Dublin í kjölfar jarðarfararinnar, sem að- eins fjölskylda og nánir vin- ir verða viðstödd. Ekki er búið að ákveða hvenær það verður. Aska Harris verður flutt að heimili hans á Bah- ama-eyjum og dreift þar. Forsætisráðherra Ír- lands, Bertie Ahern, harm- aði dánarfregnina. Hann sagði að Harris hefði verið „einn mesti listamaður Ír- lands“ og að „framlag hans til listaheimsins og skemmtanaiðnaðarins væri mikið“. „Ég votta fjölskyldu hans og vinum dýpstu samúð,“ sagði hann. Harris var tvisvar tilnefndur til Óskarsverðlauna, fyrir This Sport- ing Life og The Field. Íslenskir kvikmyndaunnendur munu enn- fremur sjá Harris innan tíðar á hvíta tjaldinu í hlutverki sínu í Harry Potter og leyniklefanum, en hann lauk við aðra myndina um galdrastrákinn áður en hann lést. Richard Harris mætir til frumsýningar á fyrstu myndinni um Harry Potter í London í nóvember í fyrra en hann lék prófessorinn Albus Dumbledore í myndinni. Richard Harris látinn 72 ára að aldri AP „Einn mesti lista- maður Írlands“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.