Morgunblaðið - 29.10.2002, Síða 14

Morgunblaðið - 29.10.2002, Síða 14
AKUREYRI 14 ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Er veggjakrot vandamál? Lynghálsi 4, sími 588 8881. Við höfum lausnina. Seljum hreinsilög á 5 l brúsum. „Þannig að skilaboðin eru þau að fólk hefur gaman af öðrum menningarheimum. Við verðum að sinna nútímalistinni en það er alveg ljóst að það gleður mjög mikið að koma með gamla list,“ sagði Hannes. Ný sýning opnuð á laugardag Næsta sýning á Listasafninu verður opnuð nk. laugardag og er þetta jafnframt síðasta sýning ársins. Um er að ræða samstarfs- verkefni Íslands, Grænlands og Lapplands og heitir; Hraun-ís- skógur. Um er að ræða list- menntunarverkefni sem hefur verið hátt á þriðja ár í undirbún- ingi. Verkefnið er skipulagt af Listasafni Rovaniemi í Lapp- landi, Barnalistaskólanum í Rov- aniemi og Háskóla Lapplands í samvinnu við Listasafnið á Ak- ureyri og Verkmenntaskólann á Akureyri, ásamt ýmsum aðilum frá Narsaq á Grænlandi. RÍFLEGA tíu þúsund manns sáu sýninguna Rembrandt og samtíð- armenn hans – hollensk myndlist frá 17. öld, sem lauk í Listasafn- inu á Akureyri sl. sunnudag. Gríðarleg aðsókn var á sýninguna um helgina og talið að 700–800 manns hafi komið á sýninguna hvorn dag. Hannes Sigurðsson forstöðumaður Listasafnsins sagði að sýningin hefði vakið mikla athygli og að aðsóknin hefði verið mun meiri en gert var ráð fyrir. Verkin komu frá Lettneska heimslistasafninu í Ríga. Á sýn- ingunni var að finna málverk, æt- ingar og koparstungur sem sýna flest einkenni á þeirri myndlist sem stunduð var í Hollandi á 17. öld. Hannes sagði að sýningin hefði vakið athygli fólks um allt land. Hann sagði að arabasýn- ingin Milli goðsagnar og veru- leika og rússneska sýningin Draumar og tálsýnir hefðu einnig verið mjög vinsælar og vel sóttar. Sýningunni „Rembrandt og samtíðarmenn hans“ lokið Yfir 10 þús- und manns sáu sýninguna lagsráðgjöf og sálfræði. Norður- slóðamannfræðin tengist stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Heim- skautaháskólanum og stjórnsýslu- og byggðafræði tengist m.a. Byggðarannsóknastofnun og Byggðastofnun. Varðandi Evrópu- og alþjóðamál er bent á að vaxt- arbroddur sé í samfélagsumræðunni á þeim vettvangi, sem ekki er bund- in landfræðilegri staðsetningu en mun skipta sveitarfélög, ekki síst á landsbyggðinni sífellt meira máli, sem og einnig almanna- og hags- munasamtök. Heimskautaréttur, stjórnsýslu- réttur örríkja og mannréttindi Guðmundur Heiðar Frímannsson, deildarforseti kennaradeildar Há- skólans á Akureyri, var í undirbún- ingsnefnd vegna fyrirhugaðs laga- náms við háskólann. Hann sagði að náminu yrði skipt í tvennt, þriggja ára BA-nám og tveggja ára sérhæf- ing til embættisprófs. Lagði nefndin áherslu á þrjár hugmyndir varðandi sérhæfingu, ein þeirra er heim- skautaréttur, en undir hann falla umhverfisréttur, hafréttur, frum- byggjaréttur og samanburður á landsrétti þjóða á heimskautasvæð- um. Nefnt er að sérstök áhersla gæti orðið á hafrétti á Norður-Atl- antshafi, en þekking á slíkum rétti gæti orðið verðmæt fyrir Íslendinga í framtíðinni. Fiskveiðiréttur og strandréttur falla einnig þarna und- ir, þar á meðal íslenska löggjöfin um stjórn fiskveiða. Önnur hugmynd um sérhæfingu er réttarstaða og stjórnsýsluréttur örríkja, eða lítilla smáríkja og sú þriðja er mannrétt- indi, sögulega forsendur sem og STOFNUN Félagsvísinda- og laga- deildar við Háskólann á Akureyri var formlega samþykkt á hátíðar- fundi Háskólaráðs í gærmorgun, en það var jafnframt 200. fundur ráðs- ins. Tómas Ingi Olrich menntamála- ráðherra, Páll Skúlason, rektor Há- skóla Íslands, og deildarforsetar laga- og félagsvísindadeilda HÍ, Ei- ríkur Tómasson og Ólafur Þ. Harð- arson, voru viðstaddir fundinn. Háskólinn á Akureyri mun því frá og með næsta hausti bjóða upp á BA nám í félagsvísinda- og lagadeild og skiptist hún í tvö skor, félagsvís- indaskor og lagaskor. Markmiðið er, að sögn Þorsteins Gunnarssonar, rektors Háskólans á Akureyri, að bjóða í fyrsta sinn upp á víðtækt félagsvísindanám á há- skólastigi utan höfuðborgarsvæðis- ins. Námið sker sig að því leyti til frá náminu í Háskóla Íslands að norðan heiða er áhersla lögð á sam- félagslegt notagildi námsins, án þess að slegið sé af akademískum kröfum. Markmiðssetning og sér- staða námsins er að talsverðu leyti miðuð við Akureyri og Norðurland, en reynslan hefur sýnt að náms- framboð í háskólanum hefur til þessa verið of takmarkað fyrir marga Norðlendinga. Af þeim sök- um hafa margir talið sig þurfa að leita annað og flutt af svæðinu. Einnig hafi verið fyrir hendi þörf fyrir ákveðið nám sem ekki sé í boði annars staðar. Félagsvísindaskor mun bjóða upp á nám í félagsfræði, fjölmiðlafræði, mannfræði/norðurslóðafræði, nú- tímfræði, alþjóða- og Evrópufræði og stjórnsýlsu- og byggðafræði og frá og með haustinu 2004 einnig fé- röklega og helstu alþjóðasamningar um mannréttindi. Búist við mikilli aðsókn frá upphafi Undirtektir og fyrirspurnir sem þegar hafa borist sýna að verulegur áhugi er á þessu námi og miðað við könnun meðal framhaldsskólanema á Akureyri er búist við mikilli að- sókn í námið allt frá upphafi og þyk- ir ekki ólíklegt að deildin verði ein af þeim stærri við háskólann að nokkrum árum liðnum. Ljóst þykir því að mikil sóknar- færi skapast fyrir háskólann með stofnun deildarinnar. Tómas Ingi Olrich menntamála- ráðherra sagði það sérstaka ánægju að slík deild tæki til starfa við Há- skólann á Akureyri og að góð sam- vinna hefði verið við félagsvísinda- og lagadeildir HÍ, „það skilar báðum aðilum ákveðnum virðisauka“, sagði ráðherra. Lögfræði væri ein af mik- ilvægustu greinum háskólanáms og hún væri því áhugaverð viðbót við þá starfsemi sem þegar væri í boði við háskólann. Hið sama mætti segja um félagsvísindin en Tómas Ingi nefndi að áhugavert yrði að rannsóknir á því sviði beindust að sérstöðu Íslendinga og að sérstök rækt yrði lögð á að kanna það svið. Slíkt hefði mikið gildi á tímum al- þjóðavæðingar. Þá taldi hann að fé- lagsvísindin gætu nýst við uppbygg- ingu náms í ferðaþjónustu. „Ég sé fyrir mér að nám í ferðaþjónustu og félagsvísindum gætu með áhuga- verðum hætti fléttast saman,“ sagði Tómas Ingi. Áfangi í auknu samstarfi háskólanna Páll Skúlason háskólarektor sagði fátt jákvæðara hafa gerst á sviði byggðamála en sú þróun sem orðið hefði í Háskólanum á Akureyri. Taldi hann stofnun félagsvísinda- og lagadeildar nú rétt skref fram á við og sagði þörf fyrir aukna þekkingu og rannsóknir á þessu sviði. „Ég vona að stofnun deildarinnar nú sé enn einn áfanginn í auknu samstarfi háskólanna tveggja,“ sagði Páll. Eiríkur Tómasson deildarforseti lagadeildar og Ólafur Þ. Harðarson deildarforseti félagsvísindadeildar HÍ lýstu ánægju með stofnun deild- arinnar við Háskólann á Akureyri, samstarfið hefði verið gott „og ég fagna því að hafa eignast nýja bandamenn,“ sagði Ólafur, en fé- lagsvísindin væru ung á Íslandi, ein- ungis um 30 ára. Eftirspurn eftir fólki með nám á því sviði sem og rannsóknum væri hins vegar mikil. Morgunblaðið/Kristján Guðmundur Heiðar Frímannsson, deildarforseti kennaradeildar HA, ann- ar f.v., ræðir við gestina úr Háskóla Íslands, þá Ólaf Þ. Harðarsson, deildarforseta félagsvísindadeildar t.v., Pál Skúlason rektor og Eirík Tóm- asson, deildarforseta lagadeildar. Félagsvísinda- og lagadeild stofnuð við Háskólann á Akureyri Áhersla lögð á samfélags- legt notagildi FYRSTA útsending Ríkisútvarps- ins á Akureyri úr nýju húsnæði við Kaupvangsstræti 1 var í gær. Starfsemin var flutt um helgina úr Fjölnisgötu, en þar hefur Út- varpið verið til húsa síðustu 18 ár. Undanfarna mánuði hefur verið unnið við það að koma nýjum og fullkomnum tækjabúnaði fyrir í nýja húsnæðinu og sagði Jóhann Hauksson dagskrárstjóri Rásar 2 og forstöðumaður Útvarps Norð- urlands að nýi búnaðurinn hefði virkað vel. „Við renndum blint í sjóinn með hvort hægt yrði að senda beint héðan út í dag (í gær) en það tókst,“ sagði Jóhann, en fyrsta fréttin úr nýju höfuðstöðvunum var í hádegisfréttum útvarps í gær. Öll tæki eru ný og sagði Jóhann að stöðin á Akureyri færi nú fremst í flokki innan Ríkisútvarps- ins varðandi stafræna tækni. Eng- in segulbönd væru lengur notuð nyrðra og allt hljóð tekið upp á tölvur svo dæmi væri tekið. Þegar lokið hefur verið við að tengja all- an tæknibúnað verður í fyrsta sinn í sögunni hægt að breyta út- varpsstöðinni á Akureyri í móð- urstöð; útsending þarf ekki lengur að fara í gegnum Efstaleitið. „Við munum geta sent út beint og milliliðalaust frá Akureyri og það hefur mikla þýðingu varðandi ör- yggishlutverk Ríkisútvarpsins,“ sagði Jóhann. Alls starfa á bilinu 10 til 12 manns hjá útvarpinu á Akureyri. Það sinnir svæðisfréttum, kemur inn í dagskrá Rásar 1 og Rásar 2 og nú er fréttamaður Sjónvarps einnig orðinn hluti af daglegri starfsemi. Fréttamenn sjá nú um útvarps- og sjónvarpsfréttir, svæðisfréttir, netfréttir og fréttir á textavarpi Rúv. „Við erum ánægð með að vera hér í hjarta bæjarins, þar eiga fjölmiðlar að vera og fólk er því mjög ánægt með flutninginn,“ sagði Jóhann. Nýr og fullkominn tækja- búnaður tekinn í notkun Morgunblaðið/Kristján Starfsfólk Ríkisútvarpsins á Akureyri, f.v. Hulda Sif Hermannsdóttir, Freyja Dröfn Axelsdóttir, Jóhann Hauksson, Karl Eskill Pálsson, Björgvin Kolbeinsson, Gestur Einar Jónasson, Björn Sigmundsson, Björn Þorláks- son og Pétur Halldórsson. Starfsemi Ríkisútvarpsins flutt í miðbæinn BÆJARSTJÓRN Akureyrar hefur skipað fimm manna starfshóp til að fara yfir framtíðaráherslur bæjarins í atvinnumálum og er starfshópnum ætlað að skila tillögum sínum til bæj- arráðs fyrir 1. desember nk. Í starfshópnum eru Bjarni Jónas- son formaður atvinnumálanefndar, Valur Knútsson fyrrverandi formað- ur atvinnumálanefndar, Guðmundur Ómar Guðmundsson formaður Fé- lags byggingamanna í Eyjafirði og fyrrverandi bæjarfulltrúi, Oktavía Jóhannesdóttir bæjarfulltrúi og Oddur Helgi Halldórsson bæjar- fulltrúi. Starfshópurinn kemur sam- an til síns fyrsta fundar í vikunni. Starfs- hópur fari yfir at- vinnumálin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.