Morgunblaðið - 29.10.2002, Page 22
Sjósókn og sjávarfang – saga sjáv-
arútvegs á Íslandi 1. bindi af þrem-
ur, er eftir Jón Þ. Þór sagnfræðing.
Höfundur fjallar um sem flesta
þætti í sögu sjávarútvegs á Íslandi,
ekki aðeins um fiskveiðar, einnig
skipsskaða og sorgir þeim tengdar.
Í þessu fyrsta riti tíundar hann upp-
haf fiskveiða við Ísland, fjallar um
allar hliðar árabátaútgerðarinnar
og ævintýrlega öld seglskipanna.
Í inngangi segir höfundur m.a. að
markmiðið með þessu ritverki sé að
rita sem ýtarlegast sögu íslensks
sjávarútvegs frá upphafi og fram
undir lok 20. aldar. „Nánari grein er
gerð fyrir fræðilegum forsendum
verksins í inngangskafla, en ætlunin
er, að það verði alls þrjú bindi. Þetta
1. bindi nær yfir sögu árabáta- og
þilskipaútgerðar, frá landnámi og
fram til öndverðrar 20. aldar. Annað
bindi mun ná frá upphafi vélaaldar
skömmu eftir aldamótin 1900 og til
loka heimsstyrjaldar og hið þriðja
frá 1946 og fram undir okkar daga.“
Útgefandi er Hólar. 243 bls., með
nafnaskrá, prentuð í Ásprent.
Jón Þ. Þór rithöfundur afhendir Þorsteini Pálssyni, fyrrverandi sjáv-
arútvegsráðherra, og Árna M. Mathiesen, núverandi sjávarútvegs-
ráðherra, fyrstu eintök bókarinnar Sjósókn og sjávarfang.
Sjávar-
útvegur
Morgunblaðið/Jim Smart
Heimir með saltfiskbragði
Morgunblaðið/Jim Smart
Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Davíð Ólafsson, Pétur Pétursson og Clive
Pollard koma að dagskránni Síðasta lag fyrir fréttir í Íslensku óperunni.
SÍÐASTA lag fyrir fréttir er yf-
irskrift Hádegistónleika í Íslensku
óperunni í dag. Það er fastráðinn
tenórsöngvari óperunnar, Jóhann
Friðgeir Valdimarsson, sem hefur
veg og vanda af skipulagningu há-
degistónleikanna og í dag fær hann
til liðs við sig Davíð Ólafsson bassa,
sem einnig var fastráðinn að Ís-
lensku óperunni nýverið. Efnisskrá
tónleikanna er rammíslensk, eins
og nafnið gefur til kynna, en þeir fé-
lagar fá til liðs við sig Pétur Pét-
ursson þul, en eins og alþjóð veit var
það hluti af starfi hans hjá Rík-
isútvarpinu um áratugaskeið að
kynna síðasta lag fyrir fréttir. Clive
Pollard leikur með þeim Jóhanni og
Davíð á píanó.
Davíð Ólafsson segir að hug-
myndin hafi strax verið að þeir Jó-
hann Friðgeir syngju íslensk lög, en
til að gera hana meira aðlaðandi
hefði þeim dottið í hug að skíra pró-
grammið Síðasta lag fyrir fréttir,
ekki síst þar sem þetta voru hádeg-
istónleikar. „Þá kom upp sú hug-
mynd að fá Pétur Pétursson þul til
að kynna tónleikana, því það var
hann sem á sínum tíma kom þeirri
hefð á. Það var á stríðsárunum, og
matsalir í borginni voru yfirleitt
með útvarpið á, en vegna skvaldurs
í sölunum heyrði fólk ekki hvenær
fréttirnar byrjuðu. Það var ákveðið
að spila alltaf íslenskt lag á undan
fréttunum, og þá vissu menn hve-
nær þeir ættu að lækka róminn.“
Dagskráin er sviðsett eins og út-
varpsþáttur, – þeir félagar syngja
einsöngslög og dúetta og Pétur
kynnir. „Ég valdi mín lög með hlið-
sjón af minningum mínum um síð-
asta lag fyrir fréttir. Ég syng til
dæmis Kirkjuhvol, en sú upptaka
sem oftast hefur verið spiluð í þess-
um dagskrárlið útvarpsins er með
Stefáni Íslandi, og gerð hér í Gamla
bíói. Við syngjum líka Sólset-
ursljóðið fræga sem þeir Stefán og
Guðmundur Jónsson sungu líka ein-
mitt hér. Þannig tökum við bæði
mið af húsinu og útvarpinu.“ Lögin
sem þeir félagar syngja eru öll vel
þekkt. „Og þegar komið er að Heimi
eftir Kaldalóns, – þá er maður nú
hreinlega kominn með saltfisk-
bragðið í munninn,“ segir Davíð.
Fastur punktur í tilverunni
Hann kveðst enn hlusta á síðasta
lag fyrir fréttir, og það gerði hann
jafnvel gegnum Netið meðan hann
bjó í útlöndum. „Í öllum þeim ara-
grúa af miðlum sem við heyrum í í
dag, er þetta ennþá eins og fastur
punktur í tilverunni, og það finnst
mér frábært. Ef ég á að skilgreina
mig sem Íslending og eitthvað sem
mér finnst sér-íslenskt, þá er það að
hlusta á síðasta lag fyrir fréttir og
komast í heitan pott.“ Davíð segist
gera eins og svo margir að reyna að
giska á hver syngur meðan lagið
hljómar fyrir fréttirnar. „Ég veit
líka um vinnustaði þar sem þetta er
gert. Kunningi minn var til dæmis
að vinna hjá Ríkiskaupum og þar
var alltaf veðmál í kaffiteríunni um
það hver væri að syngja. En svo er
líka alltaf spennandi að heyra í
söngvurum sem maður hefur ekki
heyrt í áður.“ Davíð segist ekki hafa
sungið í þessum vinsæla dag-
skrárlið, en einhvern tíma var hann
spurður að því hvað hann teldi há-
tind frægðarinnar. „Ég svaraði því
að það yrði þann dag sem ég fengi
að syngja síðasta lag fyrir fréttir.
Þá myndi ég bara hætta, lengra
yrði ekki komist!“
Hádegistónleikarnir hefjast kl.
12.15 og standa í rúman hálftíma.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. og hægt
verður að kaupa hádegissnarl í and-
dyri fyrir eða eftir tónleika.
Söngdagskráin Síðasta lag fyrir fréttir í Íslensku óperunni í hádeginu
LISTIR
22 ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Nóvembertilboð
16 tímar kr. 8.500
FULLTRÚARÁÐSFUNDUR
Listahátíðar í Reykjavík var haldinn í
gær. Á fundinum var lagt fram upp-
gjör Listahátíðar í maí sl. sem var sú
umfangsmesta hingað til. Velta hátíð-
arinnar var rúmar 120 milljónir og
hefur tvöfaldast frá árinu 1998. Jafn-
framt var met í miðasölu, tæpar 40
milljónir, en til samanburðar má
nefna að hún var tæpar 18 millj. árið
1998 og rúmar 24 millj. árið 2000.
Listahátíð 2002 skilaði tekjuaf-
gangi og er það þriðja hátíðin í röð
sem það gerir. Er þetta fyrsta hátíðin
sem undirbúin og unnin er sam-
kvæmt nýjum samþykktum og undir
stjórn listræns stjórnanda.
Hátíðin hefur sem fyrr tekjur sínar
af framlögum ríkis og borgar og jafn-
framt af framlögum styrktaraðila og
miðasölu. Opinber framlög hafa verið
aukin en jafnframt hafa eigin tekjur
Listahátíðar vaxið mjög og stefna nú í
fyrsta sinn í ár að verða meira en
helmingur af veltu hátíðarinnar.
Rúmlega 40 viðburðir voru á dagskrá
hátíðarinnar í ár, sem stóð í 3 vikur.
Valur Valsson
formaður stjórnar
Á fundinum fóru fram formleg
stjórnarskipti eins og jafnan á haust-
fundi fulltrúaráðs á hátíðarári. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri,
sem verið hefur formaður fulltrúa-
ráðsins frá árinu 2000, verður nú
varaformaður og menntamálaráð-
herra, Tómas Ingi Olrich, tekur við
formennsku í ráðinu, en ríki og borg
skipta með sér formennsku í fulltrúa-
ráði Listahátíðar. Jafnframt lætur
Halldór Guðmundsson af formennsku
stjórnar hátíðarinnar.
Menntamálaráðherra skipaði Val
Valsson nýjan formann stjórnar.
Varaformaður og fulltrúi borgar-
stjóra í stjórn verður fráfarandi for-
maður Halldór Guðmundsson.
Sveinn Einarsson hverfur úr stjórn
Listahátíðar, en hann hefur verið
fulltrúi menntamálaráðherra undan-
farin sex ár og setið í mörgum fyrri
stjórnum hátíðarinnar.
Listahátíð var á síðasta ári tekin
inn í Evrópusamtök listahátíða, EFA,
og starfar nú á hliðstæðan hátt og
stærstu hátíðir í Evrópu. Erlent sam-
starf og kynning er mjög vaxandi og
er hátíðin í samvinnu við ýmsar er-
lendar hátíðir og listastofnanir.
Íslenskir tónlistarmenn á
Listahátíð í Trentó á Ítalíu
Á fulltrúaráðsfundinum var farið
yfir liðna hátíð og ýmis ný verkefni
sem unnin hafa verið og framundan
eru hjá Listahátíð í Reykjavík. Má
þar nefna að í þessari viku fara utan
sjö íslenskir tónlistarmenn til að taka
þátt í Listahátíð í Trentó á Ítalíu, en
það verkefni er afrakstur samstarfs
sem hófst á Listahátíð í vor, þegar
ítalskir og íslenskir tónlistarmenn
sameinuðu krafta sína á lokatónleik-
um hátíðarinnar. Íslensku tónlistar-
mennirnir eru Anna Guðný Guð-
mundsdóttir, Bergþór Pálsson, Edda
Erlendsdóttir, Eggert Pálsson, Garð-
ar Thór Cortes, Pétur Grétarsson og
Steef Van Oosterhout auk Heiðrúnar
Harðardóttur, starfsmanns Listahá-
tíðar. Síðar í vetur hefur Listahátíð í
Reykjavík verið boðið til afmælishá-
tíðar Listahátíðarinnar í Beirút í Líb-
anon, í flokki tíu evrópskra listahátíða
sem hafa valið listamenn eða stofn-
anir til þátttöku. Íslenski dansflokk-
urinn hefur verið valinn til að taka
þátt í hátíðinni fyrir Íslands hönd.
Listahátíð í Reykjavík hefur einnig
með höndum umsýslu með Menning-
arborgarsjóði, sem ríki og borg stofn-
uðu að loknu menningarborgarári, og
er úthlutað árlega úr sjóðnum til ým-
issa menningarverkefna um allt land.
Listrænn stjórnandi Listahátíðar
er Þórunn Sigurðardóttir og fram-
kvæmdastjóri Hrefna Haraldsdóttir.
Þórunn
Sigurðardóttir
Valur
Valsson
Velta Listahá-
tíðar tvöfaldast
á fjórum árum
BÓKAÚTGEFANDINN
Siegfried Unseld, einn virt-
asti útgefandi Þjóðverja, lést
nú um helgina 78 ára að aldri
eftir alvarleg veikindi.
Unseld var ekki bara
þekktur sem útgefandi heldur
var hann einnig rithöfundur
sjálfur og gaf m.a. út ritgerð-
ir um rithöfundinn Hermann
Hesse.
Siegfried Unseld setti
mark sitt á þýskt menningar-
líf á árunum eftir heimstyrj-
öldina síðari og átti sinn þátt
í að beina athyglinni að rit-
höfundum á borð við Peter
Handke, Uwe Johnson og
Martin Walser.
Gaf út Frisch, Götz,
Wess og Bernhard
Unseld gekk til liðs við
Suhrkamp útgáfufyrirtækið
1952 og tók það yfir 1959, en
auk ofangreindra höfunda
voru einnig gefnar út hjá fyr-
irtækinu verk margra þýskra
bókmenntajöfra á borð við
Max Frisch, Rainald Götz,
Peter Wess og Thomas Bern-
hard.
Siegfried
Unseld
allur