Morgunblaðið - 29.10.2002, Qupperneq 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 33
✝ Sveinn HelgiKlemenzson
fæddist 29. nóvember
1921. Hann andaðist
aðfaranótt 23. októ-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Auðbjörg Jónsdóttir
húsfreyja, f. 5.5.
1888, d. 14.12. 1977,
og Klemenz Jónsson
bóndi, skólastjóri og
oddviti Vestri-Skóg-
tjörn, f. 1.4. 1876, d.
16.8. 1955. Systkini
Sveins eru: Jón sjó-
maður, f. 31.12. 1907,
d. 23.6. 1936, Eggert skipstjóri, f.
19.9. 1909, d. 24.5. 1987, Guðjón
læknir, f. 4.1. 1911, d. 26.8. 1987,
Guðný Þorbjörg húsfreyja, f. 8.2.
1912, d. 23.9. 1991, Sveinbjörn vél-
stjóri, f. 1.10. 1913, d. 14.9. 1978,
Sigurfinnur bóndi, f. 9.10. 1914, d.
22.1. 1998, Gunnar stýrimaður, f.
28.1. 1916, d. 2.12. 1941, Guðlaug
húsfreyja, f. 5.1. 1918, og Sigurð-
ur múrari, f. 31.8. 1926. Sveinn
átti unnustu, Jóhönnu Sveinsdótt-
ur, f. 3.3. 1925, d. 19.12. 1946. For-
eldrar hennar voru Sveinn Sig-
urðsson og Rósamunda
Eyjólfsdóttir. Dóttir Sveins og Jó-
hönnu, 1) Jóhönna R., f. 24.6. 1946,
maki Ottó Laugdal, f. 30.6. 1932,
d. 26.10. 1995, börn: Pétur og
Lena. Sveinn kvæntist 28. febrúar
1954 Ásu Sigurðardóttur, f. 22.8.
1927, d. 18.9. 1999, og bjuggu þau
á Tjarnarbakka í Bessastaða-
hreppi. Foreldrar Ásu voru Sig-
urður Ámundsson sjómaður, f.
1.2. 1984, d. 1.2. 1985, og Pálína M.
Ásgeirsdóttir hús-
freyja, f. 26.4. 1894,
d. 28.5. 1971. Börn
Sveins og Ásu: 2)
Ingólfur, f. 9. sept.
1953, maki Halla
Hjörleifsdóttir, f. 14.
júlí 1962, börn: Erna
Dís og Sveinn Darri.
Börn frá fyrra sam-
bandi með Margréti
Ástvaldsdóttur, f. 31.
maí 1959, d. 15. des.
1979, Hulda Klara
og Ása. 3) Pálína, f.
11. jan. 1955, maki
Valgeir K. Gíslason,
f. 8. júní 1957, börn: Andri og
Dagný. 4) Ásmundur, f. 23. júní
1956, fráskilinn, unnusta Tammy
Ryan. Börn með Irene Sringer, f.
19. nóv. 1957: Erik Sigurður,
Brian Thor og Katrina Erla. 5)
Jón Guðlaugur, f. 13. ág. 1959,
sambýliskona Jóhanna Siggeirs-
dóttir, f. 4. mars 1950, börn: Helga
María og Jón Snær. 6) Baldvin, f.
31. des. 1960, maki Sigurlína
Helgadóttir, f. 25. okt. 1963, börn:
Grétar, Íris og Ævar. Að auki á
Sveinn fimm barnabarnabörn.
Fyrstu starfsár sín vann Sveinn
hjá föður sínum og Sigurfinni
bróður sínum við bústörf. Þá
stundaði hann jafnframt hrogn-
kelsaveiðar í mörg ár með Sigurði
bróður sínum. Síðar stundaði
hann ýmis verkamannastörf og
þar af síðustu tvo áratugina sem
járnabindingarmaður.
Útför Sveins verður gerð frá
Bessastaðakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Kynni okkar Sveins hófust fyrir
rúmlega tuttugu árum er ég giftist
Ingólfi elsta syni hans. Á þeim tíma
sem síðan er liðinn hef ég kynnst því
hvílíkur öðlingur Sveinn var. Á Álfta-
nesinu bjó hann allan sinn aldur og
þar leið honum vel. Barngóður var
hann og nutu barnabörnin þess að
fara til afa síns, dvelja hjá honum
dagstund hvort sem var í fjörunni
eða úti í túni þar sem svo margt var
hægt að gera. Þeim fannst merkilegt
að horfa á hann slá túnið með orfi og
ljá. Síðastliðin ár naut hann þess að
bjóða börnum sínum og mökum út að
borða þegar allir voru á landinu og
voru ófáar slíkar ferðir farnar. Ein
ferð stendur þó upp úr en það var
ferðin til Arizona árið 2000 þegar
hann fór með okkur öllum í vikuferð
þangað til að heimsækja Ásmund son
hans sem þar býr. Hafði Sveinn aldr-
ei komið þangað en alltaf langað. Í
þessari ferð kynntumst við öll vel og
skemmtum okkur konunglega.
Sveinn var alla tíð mjög ljúfur og
þægilegur í alla staði. Hann bar sig
ávallt vel, svo hávaxinn og hraustleg-
ur í útliti enda var ósjaldan sagt við
hann að hann væri unglegur. Sveinn
var ern og hélt góðri heilsu þar til nú
á vordögum en þá hrakaði heilsu
hans hratt. Þegar maður hugsar til
baka sitja eftir góðar minningar eins
og stundirnar þegar við sátum úti í
grasinu hjá Sveini og hann sagði mér
frá lífinu hér áður fyrr og við rædd-
um allt milli himins og jarðar.
Efst í huga mér er þakklæti fyrir
að hafa fengið að kynnast góðum
manni sem Sveinn var.
Þín
Halla.
Þegar ég kynntist tengdaföður
mínum bjó hann ásamt Ásu konu
sinni á Álftanesi í fallegu umhverfi
við sjóinn. Í því umhverfi ólst hann
upp og bjó síðan alla ævi. Álftanesið
var honum ávallt hugleikið. Það kom
fyrir að hann var hjá okkur hjónum í
nokkra daga eftir að hann hætti að
vinna. Í hvert sinn mátti merkja
söknuð eftir stuttan stans. Hann
saknaði náttúrunnar af nesinu og ná-
lægðarinnnar við sjóinn og það kom
ókyrrð í gamla manninn.
Sveinn var rólyndismaður og var
lítið fyrir að láta bera á sér. Hafði þó
sínar skoðanir sem sumar hverjar
héldust fram í andlátið, eins og póli-
tískar skoðanir. Hann stóð með sín-
um mönnum þótt hann ræddi það
sjaldan. Hann var heilsuhraustur
fram undir það síðasta og ótrúlega
vel á sig kominn, teinréttur í baki
fram á síðustu stundu. Fór í sund á
hverjum degi og hafði endalausan
áhuga á veðrinu. Sáust þeir bræður
Sveinn og Finnur oft úti á túni að spá
í veðrið, en þeir bjuggu alla tíð ná-
lægt hvor öðrum. Svo heilsuhraustur
var Sveinn að þegar hann var um sjö-
tugt var hann að hjálpa mér að moka
holur fyrir pall sem ég var að smíða.
Eitthvað fannst gamla manninum
þetta ganga hægt, svo hann rak mig
upp úr holunni og fór sjálfur að
moka. Hart fannst mér að sjá það
ganga mun betur hjá honum, gamla
manninum, en mér. Enda er það ekki
fyrir hvern sem er að vinna við járna-
bindingar til sjötugs eins og hann
gerði.
Það var alltaf gaman að koma í
sveitina úti á nesi, þar sem „búskap-
ur“ var með gamla laginu. Sveinn sló
til dæmis alltaf lóðina hjá sér með
orfi og ljá.
Nú hefur þú yfirgefið sveitina þína
og ert kominn í aðra sem er örugg-
lega ekki síðri. Far þú í friði.
Valgeir.
Elsku afi Sveinn.
Það er erfitt að hugsa til þess að þú
sért farinn frá okkur á þessum köldu
vetrardögum. Er ég sit hér og hugsa
um þig fyllist ég af hlýjum minning-
um og brosi í gegnum tárin. Þú varst
alltaf svo góður við alla og aldrei var
langt í brosið. Ég sakna þín sárlega
og þakka guði fyrir öll árin sem ég
fékk að eiga með þér.
Hvíldu í friði elsku afi.
Með söknuði kveð ég.
Stundin líður, tíminn tekur
toll af öllu hér
sviplegt brotthvarf söknuð vekur
sorg í hjarta mér.
Þó veitir yl í veröld kaldri
vermir ætíð mig
að hafa þó á unga aldri
eignast vin sem þig.
Þú varst ljós á villuvegi,
viti á minni leið
þú varst skin á dökkum degi
dagleið þín var greið.
þú barst tryggð í traustri hendi
tárin straukst af kinn
þér ég mínar þakkir sendi
þú varst afi minn.
(Hákon Aðalsteinsson.)
Þín
Erna Dís.
Nú hefur Sveinn frændi kvatt okk-
ur. Við frændfólk hans, sem ólumst
upp á Álftanesinu þegar það var sveit
og búskapurinn lifibrauð margra,
minnumst Sveins sem bónda í sam-
starfi við Finn frænda.
Búskapurinn snerist um kýr, kind-
ur, hænsni og grásleppuveiðar. Því
var ávallt mikið að gera hjá Sveini og
Finni en við krakkarnir vorum flest
vinnumenn og tókum fullan þátt í bú-
skapnum. Margt var þá brallað og
stundum ýmis prakkarastrik gerð en
alltaf bárum við óttablandna virðingu
fyrir Sveini, því við vissum að hann
var hraustur mjög. Þegar búskapur-
inn minnkaði sneri Sveinn sér að öðr-
um störfum, s.s. byggingarvinnu.
Sveinn var mjög duglegur en ekki
sérlega mannblendinn.
Hann hafði þó gaman af að spjalla
og sérstaklega var gaman að hitta þá
báða, Svein og Finn, undir húsvegg
og var þá rætt um öll heimsins mál.
Finnur kvaddi fyrir nokkrum ár-
um en nú kveðjum við Svein.
Ég vil þakka fyrir samfylgdina og
að hafa fengið að búa á sömu torfu og
þessir föðurbræður mínir.
Kristján Sveinbjörnsson.
SVEINN
KLEMENZSON
Afi var alltaf frekar hress.
Hann bjó alla tíð á Álftanesi. Mér
fannst hann alltaf þekkja dýrin í
umhverfi sínu mjög vel. Eitt sinn
þegar ég var hjá honum tók hann
strax eftir því að það var lítill sel-
ur úti í sjónum. Hann var vanur að
horfa með kíki út á sjó og fylgjast
með dýralífinu þar. Afi minn var
mikill dýravinur. Mér þykir svo
vænt um þig afi og ég sakna þín,
en ég veit að þar sem þú ert núna
líður þér vel.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Dagný.
HINSTA KVEÐJA
Erfidrykkjur
Heimalöguð kaffihlaðborð
Grand Hótel Reykjavík
Sími 514 8000
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
systir,
SIGURLAUG JÓNSDÓTTIR,
Vatnsnesvegi 21,
Keflavík,
lést á heimili sínu mánudaginn 21. október.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 31. október kl. 10.30.
Drífa Björk Atladóttir, Kári Valur Sigurðsson,
Styrmir Ingi Kárason,
Ýmir Atli Kárason,
Sindri Freyr Atlason,
Elen Eik Gunnarsdóttir, Kristján Davíðsson,
Kristbjörn Jónsson,
Valgerður Jónsdóttir.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐNA ÞORLEIFSSONAR,
frá Naustahvammi,
Neskaupstað.
Þórarinn V. Guðnason, Katrín Gróa Guðmundsdóttir,
Sveinn Þórarinsson, Guðrún Sigurðardóttir,
Þorgeir V. Þórarinsson,
Ólöf Erla Þórarinsdóttir, Hjalti Auðunsson,
Freysteinn Þórarinsson, Steinunn Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar og bróðir,
GUÐMUNDUR KJARTAN RUNÓLFSSON,
lést í Los Alamitos, Kaliforníu, að kveldi sunnu-
dagsins 27. október.
Lára Kjartansdóttir,
Sigurður Ragnar Kjartansson,
Svana Runólfsdóttir,
Valgarð Runólfsson.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
OLUFINE K. THORSEN,
Öldugötu 4D,
Árskógssandi,
lést að morgni sunnudagsins 27. október.
Konráð Jón Birgisson,
Jóhanna Kristín Birgisdóttir,
Guðbjörg Margrét Birgisdóttir, Steinþór Wendel
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ARNBJÖRG ARADÓTTIR
frá Grýtubakka,
Þingvallastræti 16,
Akureyri,
lést á Kristnesspítala fimmtudaginn 24. október.
Útförin fer fram frá Grenivíkurkirkju föstudaginn
1. nóvember kl. 14.00.
Aðalbjörg Baldursdóttir,
Sigríður Baldursdóttir, Páll Kjartansson,
Sigrún Baldursdóttir,
Margrét Baldursdóttir, Ólafur Einarsson,
Jónas Baldursson, Guðrún Eyvindsdóttir,
Bryndís Baldursdóttir, Jón E. Berg,
Ari Baldursson, Kolbrún Reynisdóttir,
Guðmundur Baldursson, Elisabeth Kvelland,
barnabörn og barnabarnabörn.