Morgunblaðið - 29.10.2002, Side 46
ÞAÐ hefur aldrei þótt sérlega fínt
að fylgja þeim og gagnrýnendur
voru sjaldnast sannfærðir um ágæti
tónlistarinnar en fáar hljómsveitir
hafa notið viðlíka almannahylli og
breska Queen. Fáar sveitir voru
eins eftirsóttar á tónleikum á með-
an Freddie Mercury söngvari var
enn lífs og breiðskífurnar seldust
flestar hverjar í bílförmum. Engar
seldust þó meira en safnplöturnar
enda eru það miklu fremur ein-
staka lög en heilar breiðskífur sem
halda á lofti nafni sveitarinnar, lög
á borð við „Bohemian Rapsody“,
„We Are the Champions“, „We Will
Rock You“, „Somebody to Love“ og
„I Want to Break Free“ svo ein-
ungis örfá eru nefnd. Langsöluhæst
er fyrsta safnplatan, sem
inniheldur öll vinsælustu
lög sveitarinnar fram að
1981, en hún hefur selst í
vel tæplega tuttugu millj-
ónum eintaka. Tvær aðrar
safnplötur fylgdu í kjöl-
farið, annað bindið kom út
sama ár og Mercury féll
frá og dekkar áratuginn
frá því síðasta plata kom
og sú þriðja inniheldur lög
frá sólóferli hans, sjald-
gæfar upptökur og lög
sem tekin voru upp og
unnin eftir daga Merc-
urys. Nú eru allar þessar
þrjár safnplötur komnar
út í fyrsta sinn í einum
eigulegum pakka.
Samhliða nýja safnbox-
inu hefur fyrsti hluti safns
bestu myndbanda sveit-
arinnar verið gefinn í
fyrsta sinn út á mynddiski.
Er um að ræða býsna sögufrægt
safn sem hét á sínum tíma Greatest
Flix er það kom út á myndbandi um
leið og mesöluplatan fyrsta kom út
árið 1981. Queen var um margt
brautryðjandi í gerð tónlistarmynd-
banda, jafnvel þótt Bítlarnir hafi
fyrstir kveikt á kostum þess er þeir
sáu sér engan annan kost vænni en
að búa til stuttar kynningarupp-
tökur með nýjustu lögum sínum til
að sleppa við að þvælast heims-
horna á milli og koma fram í tugum
ef ekki hundruðum sjónvarpsþátta.
Þetta var seint á sjöunda áratugn-
um en þrátt fyrir það hafa margir
talið myndbandið sem Queen gerði
við metsölulagið „Bohemian Raps-
ody“ árið 1975 til sögufrægra frum-
kvöðlamyndbanda, enda var það
gert kannski frekar í sama
tilgangi og tónlistar-
myndbönd eru gerð í dag,
til að vera leikin í þar til
gerðum tónlistarmynd-
bandaþáttum sem síðar
blésu út í heilar stöðvar.
Eftir sterk viðbrögð við
þessu myndbandi, sem
margir hafa apað upp eftir
og er hvað kunnast fyrir
skuggauppstillingu rokk-
ljósmyndarans Mikes
Rocks, fór Queen fyrst
allra sveita að gera mynd-
bönd að staðaldri við smá-
skífur sínar. Gengu mynd-
bönd þessi gjarnan fram af
siðavöndu fólki eins og t.d.
„Fat Bottom Girls“ og
„Bicycle Race“ þar sem
berrassaðar hjólreiðadöm-
ur þóttu síður en svo boð-
legt myndefni. Myndbönd
þessi og mörg önnur sem
sjaldan eða aldrei hafa sést má
finna á þessum nýja mynddiski en
auk þeirra sem myndbandið gamla
innihélt má finna á mynddiskinum
nýja, sem er tvöfaldur, myndskeið
úr Top of the Pops-þáttunum. Þar
að auki eru á mynddiskinum nýja
áður óbirt viðtöl við alla meðlimi og
síðan má sjá þá rekja sögu laga
sinna og tilurð þeirra lag fyrir lag.
Drottningasafn í hljóði og mynd
Margfræg skuggamynd af Queen sem var að finna í
myndbandinu við „Bohemian Rhapsody“.
Myndbandaútgáfa vikunnar
iyah kom nálægt. Myndin The Cat’s
Meow er einnig athyglisverð. Hún er
fyrsta mynd leikstjórans Peter
Bogdanovich í níu ár en hann á að
baki stórmyndirnar The Last Pict-
ure Show og Paper Moon, sem vöktu
á honum gríðarlega athygli í upphafi
áttunda áratugarins.
Svo er það bara spurning hvort
þessar komi til með að ógna sterkri
stöðu My Big Fat Greek Weeding á
toppnum.
Í ÞESSARI viku sveiflar sjálfur
Peter Parker, Köngulóarmaðurinn,
sér inn á myndbandaleigur Íslands.
Myndin sem byggist á ævintýrum
þessa mikilhæfa vefara þykir vel
heppnuð kvikmyndun á teiknisögu-
hetjunni frægu en með aðalhlutverk
fer hinn ungi og efnilegi Tobey Mag-
uire. Það má líka búast við því að
nokkur fyrirferð verði í gam-
anmyndinni 40 days and 40 nights
þessa vikuna en þar skín stjarna
hjartaknúsarans Josh Hartnett
skært. Framleiðendur Bridget Jon-
es’s Diary standa að myndinni en
hún fjallar um ungan mann sem ein-
setur sér að gera það sem margir
myndu telja ómögulegt á þessum
síðustu og verstu: að lifa skírlífi í 40
daga (og það sem erfiðara er, í 40
nætur einnig!).
Vert er að vekja athygli á tveimur
„smærri“ myndum sem út koma í
vikunni. Queen of the Damned er í
dag líklega þekktust fyrir að vera
eitt af síðustu listaverkunum sem
hin syrgða söng- og leikkona Aal-
!"!#$
!"!#$ %
!
!"!#$ %
!
&
&
&
&
&
!"!#$ %
!
&
%
!
&
!"!#$
!"!#$ &
'
&
&
(
!
)
)
(
!
(
!
)
)
)
)
(
!
*
!
(
!
)
)
(
!
)
*
!
(
!
)
)
!!
"#
#
$!
"
%
#
!
& '!
()*
+
,
!
-
(
.
/!
$
-
!
"
!
0
%+
Lói kominn
á leigurnar
Koss á hvolfi: Rómantíkin gleymist
ekki í Spider-Man.
arnart@mbl.is
46 ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. kl. 11-18,
lau. kl. 11-15
Húsgögn
Sérpantanir
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
HL Mbl
Frá leikstjóra American Beauty.
Eitt mesta meistaraverk sem þú munt nokkurn tíman sjá
Það
verður
skorað
af krafti.
Besta breska
gamanmyndin
síðan „Bridget
Jones’s Diary.“
Gamanmynd sem
sólar þig upp úr
skónum. Sat tvær
vikur í fyrsta sæti í
Bretlandi.
Sýnd kl. 5.45. B. i. 16.
SK RadíóX
5 , 7.30 og 10.
Sýnd kl. 4, 5.30, 6.30, 8, 9 og 10.30. B. i. 16.
Gott popp styrkir
gott málefni
Sýnd kl. 4. með ísl. tali.
Fjöldi
aukasýn
inga
1/2Kvikmyndir.comUSA Today SV MblRadíóX
Einn
óvæntasti
spennutryllir
ársins!
1/2Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8 og 10.30. B. i. 16.
1/2Kvikmyndir.is
„DREPFYNDIN“
ÞÞ. FBL
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
skrefi framar
Sýnd kl. 5.50. Bi. 16.
Einn
óvæntasti
spennutryllir
ársins!
1/2Kvikmyndir.is
Frá leikstjóra American Beauty.
Eitt mesta meistaraverk sem þú munt
nokkurn tíman sjá.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20. B. i. 16.
FYRSTI OG
SKELFILEGASTI
KAFLINN Í SÖGU
HANNIBAL LECTER
anthony
HOPKINS
edward
NORTON
ralph
FIENNES
Sýnd kl. 8 og 10.30. B. i. 16.
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
SV Mbl
HK DV
SK RadíóX
Gott popp styrkir
gott málefni
1/2Kvikmyndir.com
USA Today
SV Mbl
RadíóX