Morgunblaðið - 10.11.2002, Síða 4

Morgunblaðið - 10.11.2002, Síða 4
4 B SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Golli Sigríður Ósk er alla jafna engin pjáturdrós, en þegar Laufey vinkona hennar fékk sér naglalakk, þá stóðst hún einfaldlega ekki mátið. verkefninu, geta þau sótt um 75% endur- greiðslu fyrsta árið, 50% annað árið og 25% þriðja árið. Nú eru 74 einstaklingar úti á vinnu- markaðnum í gegnum þetta kerfi, þar af 14 á Suðurnesjum. Ráðgefandi þroskaþjálfar fylgja þeim í gegnum starfsmat og starfsþjálfun, auk þess að veita nauðsynlegan stuðning á vinnu- stað. Tekist hefur að saxa á biðlista Skammtímavistun er úrræði sem ætlað er að létta álagi af fjölskyldum með fötluð börn frá 2 ára aldri. Með skammtímavistun er foreldrum veittur stuðningur í von um að þeir geti haft börnin sem lengst heima, en sá tími er afar dýr- mætur fyrir alla aðila. Skammtímavistunin get- ur náð allt frá einni helgi upp í 14 daga og fer það eftir fötlun barnsins og aðstæðum þess. Biðlistar eru eftir þessari þjónustu. Einnig er sá valkostur í boði að fundnar séu stuðnings- fjölskyldur fyrir fötluð börn og fjölskyldur þeirra, sem algengt er að taki barnið einu sinni í mánuði, og fái þá greitt fyrir. „Á þessu ári hefur náðst að greiða mjög úr biðlistum eftir skamm- tímavistun fyrir börn og fullorðna,“ segir Sig- ríður. „Við erum komin langt með að mæta þeim þörfum. En búsetubiðlistinn er talsvert langur, þó við höfum bætt við heimilum fyrir 31 einstakling á einu ári.“ Að auki eru þjónustu- íbúðir á vegum Svæðisskrifstofunnar 50 tals- ins, en þar býr fólk sjálfstætt og fær stuðning þroskaþjálfa inn á heimili sín, t.d. við að elda matinn, annast fjármálin og halda heimili. Ætlaði að lækna bróður minn Eldri bróðir Sigríðar var fatlaður, bjó á Skálatúni og svo á Kópavogshæli. Hann var enn vistmaður þegar hún hóf störf þar 18 ára að aldri. „Ég tók þá ákvörðun mjög ung að ég ætl- aði að læra eitthvað voðalega merkilegt og lækna bróður minn,“ segir hún. „Við vorum sex systkinin, hann elstur og barn síns tíma, því þjónustan var mjög lítil. Hann var því ekki nema tíu ára þegar hann flutti alveg að heiman. En þetta var gefandi og skemmtilegur tími sem við áttum saman. Við heimsóttum hann reglu- lega upp í Mosfellsbæ, sem okkur þótti alveg rosalega langt. Við fórum í bíltúr öll fjöskyldan og fórum út af svæðinu til að þjálfa hann í að ganga. Honum fór svo mikið aftur eftir að hann flutti á stofnun vegna þess að hann fékk ekki þá þjálfun sem hann þurfti. Það er sorgarsaga að segja frá því. Aðbúnaðurinn er allt annar í dag.“ Stórkostlegar breytingar Jón Konráð, bróðir Sigríðar, lést árið 1997. „Hann hafði ekki fengið tækifæri til að flytja út af stofnun og inn á heimili,“ segir Sigríður. „Hann var búinn að sækja um, en komst ekki að. Þrátt fyrir að hann væri mikill sjúklingur er ég viss um að hann hefði plumað sig vel á heim- ili og fengið þá þjónustu sem hann þurfti.“ Sig- ríður hefur því orðið vitni að miklum breyt- ingum í aðbúnaði fatlaðra. „Ég útskrifaðist sem þroskaþjálfi árið 1979 og tók við sem deildar- stjóri á Kópavogshæli. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og nú stendur til að flytja síðustu einstaklingana þaðan inn á heimili. Það verður stórkostlegt að fylgjast með því og þarft að einhver rannsaki þær breytingar sem það hefur í för með sér fyrir lífsgæði þeirra.“ Tímar fordóma ekki liðnir Tímar fordóma í garð fatlaðra eru ekki liðnir, að sögn Sigríðar. „Þeir poppa alltaf öðru hverju upp. Við verðum helst vör við þá þegar við för- um af stað með ný heimili fatlaðra úti í sam- félaginu. Þegar keypt eru hús fyrir fatlaða, er greint frá því í grenndarkynningu hjá sveitar- félaginu. Þá koma viðbrögð nágranna við því, t.d. að þeir telji að húsnæðið henti ekki þessari starfsemi. En við værum náttúrlega ekki að kaupa húsnæðið ef við teldum það ekki hentugt. Í raun er fólkið að segja að þessir einstaklingar eigi rétt á því að búa úti í samfélaginu eins og við hin, en bara ekki við hliðina á sér.“ Fordóm- arnir fara þó stöðugt minnkandi eftir því sem fatlaðir verða sýnilegri í þjóðfélaginu, að sögn Sigríðar. „Þeir eru ekki einangraðir uppi í sveit eða á afviknum stöðum eins og á árum áður. Ég held því fram að það sé bæði börnum og full- orðnum heilbrigt og hollt að hafa fatlaða í ná- grenni við sig. Ef börn alast upp í samfélagi við fatlaða, þá læra þau meira umburðarlyndi og þroska betur tilfinningagreindina. Og sem bet- ur fer hefur reynslan sýnt, að fólk skiptir um skoðun þegar við erum komin í hverfið og sér að það hefur ekkert slæmt í för með sér. Áhyggjur eins og að þetta lækki íbúðaverð eða auki umferðina til muna eiga ekki við rök að styðjast.“ Vantar fleira fagfólk Að síðustu er Sigríður spurð að því hvað henni finnist að megi bæti í málefnum fatlaðra. „Það sem háir okkur er mikil starfsmannavelta og fáir faglærðir starfsmenn og þá sérstaklega er skortur á þroskaþjálfum.Við erum alltaf að þjálfa upp nýtt starfsfólk, en það staldrar stutt við, m.a. vegna launa. Það vantar fleira fagfólk og það gerist ekki nema með því að bæta kjör þeirrar stéttar, sem fæst við umönnunar-, þjálf- unar-, uppeldis- og menntastörf. Ég fullyrði að ef metnaður er lagður í þessa vinnu, þá skilar árangurinn sér, jafnvel beint í ríkiskassann. Eins og sést vel á þeim einstaklingum sem við höfum hjálpað að búa sjálfstætt og hasla sér völl á vinnumarkaðnum.“ Sigríður Ósk vinnur með góminn með rofabúnaðinum en með honum velur hún „bliss“-táknin. pebl@mbl.is ’ Ég tók þá ákvörðun mjögung að ég ætlaði að læra eitt- hvað voðalega merkilegt og lækna bróður minn. Við vor- um sex systkinin, hann elstur og barn síns tíma, því þjón- ustan var mjög lítil. Hann var því ekki nema tíu ára þegar hann flutti alveg að heiman. ‘

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.