Morgunblaðið - 10.11.2002, Side 11
Í Austurríki eru framleidd ein-hver mögnuðustu hvítvín ver-aldar. Þau hefur hins vegar afeinhverjum ástæðum ekkiverið að finna á íslenska
markaðnum til þessa, sem er illskilj-
anlegt. Hugsanlega er ástæðuna að
finna í því að ólíkt því sem raunin er
með önnur helstu víngerðarsvæði
veraldar er ekki að finna sérstakan
Austurríkis-flokk hjá ÁTVR og því
falla þau undir flokkinn „önnur vín“
frá Evrópu. Þetta er miður og verð-
um við eflaust af mörgum góðum
vínum af þessum sökum. Aust-
urrísku vínin eru því lítt þekkt hér á
landi. Vonandi mun það breytast og
nú er að minnsta kosti hægt að
nálgast gæðavín frá Austurríki. Um
síðustu mánaðamót bættust á sér-
lista þrjú hvítvín frá einum virtasta
og besta vínframleiðanda Austur-
ríkis, Willy Bründlmayer. Hann
hefur aðsetur í bænum Langenlois á
víngerðarsvæðinu Kamptal. Það
svæði er þekktast fyrir vín úr aust-
urrísku þrúgunni Grüner Veltliner
og þrúgunni Riesling.
Berg-Vogelsang
Grüner Veltliner
Bründlmayer Langenloiser Berg-
Vogelsang Gruner Veltliner 2001 –
grænn og berjamikill ilmur, kíví og
perur. Í munni sýrumikið, kryddað
með nýmuldum hvítum pipar og
grænum ávexti. Það er mikil reisn
yfir þessu víni en einnig titringur,
kjörið með sýrumiklum fiskréttum,
t.d. þegar sítróna er notuð. Kostar
1.690 krónur.
Langenloiser Steinmassel
Riesling 2001
Þurrt, þykkt og feitt yfirbragð,
smjörkennt í bland við ávöxtinn. Í
nefi má greina nýbakaða, ljósa
kransaköku, sykur, möndlur og
djúpan ávöxt. Vínið er langt og mik-
ið og mikið í munni, sýran mikil en
mild og í fullkomnu jafnvægi við
aðra þætti. Kostar 1.910 krónur.
Zöbinger Heiligenstein
Riesling Lyra 2001
Lyra-vínið frá Bründlmayer er
talið eitt af allra bestu vínum Aust-
urríkis og ekki að ófyrirsynju. Það
er stórkostlegt. Ávöxturinn í nefi er
sætur, maður finnur fyrir þroska
þrúgnanna og einkenni vínsins
áþekk þeim er maður finnur í eð-
alsætum vínum þar sem botrytis er
kominn til sögunnar. Vínið hins veg-
ar þurrt og sætan einungis í hinum
mikla ávexti. Hunang, þurrkaðar
apríkósur og hitabeltisávextir í nef-
inu. Það liggur við að maður verði
að segja ávöxtinn ofsafenginn. Stórt
og langt í munni, fullkomin upp-
bygging og unaðslegt bragð. Hvít-
vín gerast ekki mikið betri. Kostar
2.990. krónur.
Vín
S t e i n g r í m u r S i g u r g e i r s s o n
Frábær hvítvín
frá Austurríki
Morgunblaðið/Áslaug
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 B 11
Kjúklingabaunaplantan á rætur sínar
að rekja til Miðjarðarhafslandanna og
baunir hennar (sem eru fræ í fræhylkj-
um), eru ýmist seld þurrkuð eða for-
soðin í dósum.
Þurrkaðar kjúklingabaunir skal alltaf
leggja í bleyti fyrir eldun. Baunirnar
eru mjög orkuríkar (u.þ.b. 360 kal. á 100
g) og eru mjög auðugar af próteinum,
fosfór, kalki og járni. Þær eru notaðar
sem skraut, í mauk, súpur og pottrétti
og eru notaðar mikið á Spáni, S-
Frakklandi og í Mið-Austurlöndum, t.d.
í eftirfarandi réttum: olla podrida, puc-
hero, hummus og cocido. Þær eru klass-
ískt skraut á kúskús og eru einnig not-
aðar í salöt. Baunirnar eru verðugir
staðgenglar linsubauna t.d. í gratín með
Mornay-sósu. Uppskrift fylgir hér:
Leggið baunir í bleyti (magn eftir
vild) og leggið í eldfast fat.
Útbúið eftirfarandi sósu:
KJÚKLINGABAUNIR
Bræðið 3 msk. af smjöri yfir lágum hita
á þykkbotna, djúpri pönnu. Bætið 6
msk. af hveiti saman við og þeytið vel
saman með písk þar til verður til jöfn
blanda. Hellið ½ l af mjólk saman við
og þeytið vel saman með stálpísk og
gætið þess að engir kekkir myndist.
Kryddið með salti og pipar og ögn af
múskat (fer eftir því við hvaða tæki-
færi á að nota sósuna). Sjóðið sósuna
um stund þar til hún hefur öðlast þá
þykkt sem óskað er og hrærið vel í á
meðan. Bætið 70 g af rifnum Gruyère-
osti eða Óðalsosti saman við og látið
bráðna vel saman við. Takið pönnu af
hita og bætið tveimur eggjarauðum
saman við sem blandað hefur verið
saman við 1 msk. af mjólk. Blandið vel
saman, setjið á ný yfir hita og látið
suðu rétt koma upp yfir lágum hita og
hrærið í allan tímann. Takið af hita og
bætið 2 msk. af rjóma saman við, hrær-
ið og hellið yfir baunirnar. Bakið við
170° í 15–20 mín.
MORNAYSÓSA
(BRAGÐBÆTT BÉCHAMELSÓSA)