Morgunblaðið - 10.11.2002, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 10.11.2002, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 B 15 anlegar heimildir um Ísland. Það kemur auðvitað ekkert á óvart, því að allar stríðsþjóðirnar kölluðu bestu ljósmyndara sína til herþjónustu beint eða óbeint. Þannig kom til dæmis Ralph Morse hingað til lands 1943 á vegum Bandaríkjahers og tók myndir fyrir tímaritið vinsæla Life, en hann varð heimsfrægur fyrir stríðsmyndir sínar. Nokkrar af myndum hans héðan eru birtar í bók- inni.“ En Þór segir ekki síður ástæðu til að minnast ýmissa íslenskra ljós- myndara. Svavar Hjaltested, sem gaf út vikublaðið Fálkann, hafi skilið eft- ir sig fleiri myndir frá hernámi Breta en aðrir Íslendingar. Skerfur Svav- ars til bókarinnar sé því mikill og ekkja hans, Lára, hafi sýnt verkinu einstaka velvild. Þór segist einnig hafa notið góðrar fyrirgreiðslu hjá erfingjum að myndum annarra af- bragðs ljósmyndara stríðsáranna, en meðal þeirra voru bræðurnir Eðvarð og Vigfús Sigurgeirsson, Sigurhans Vignir og Þorsteinn Jósepsson. Úrval mynda Þór segist alls ekki hafa keppt að því að birta einungis myndir, sem aldrei hafi birst hér á prenti, þó að sú sé raunin um margar myndanna. Fjöldi bóka um stríðsárin hafi komið hér út, frá því að hann byrjaði myndasöfnun sína og þar sé að finna á víð og dreif margar góðar myndir, sem hann birti nú einnig í bók sinni. Markmið hans hafi hins vegar verið það „að birta bestu myndirnar af við- fangsefnum bókarinnar“. Hér sé um að ræða „úrval úr safni ljósmynda, sem skipta þúsundum, þar sem oft er mjög erfitt að velja og hafna“. Sumt af þeim myndum, sem urðu út undan, verða á ljósmyndasýningu, sem Þór efnir til með Borgarskjalasafni og opnuð verður í Grófarsalnum 1. des- ember nk. Þór segist einnig hafa haft í huga að margt ungt fólk hefði að sjálf- sögðu lítið yfirlit yfir öll þau rit, sem hér hefðu birst um styrjaldarárin. Ungt fólk hefði mikinn áhuga á myndmáli sem það væri vant úr tölvuheiminum. Hann vildi gjarnan vekja áhuga þessa fólks á styrjald- arsögunni með bók sinni og skýra fyrir því við hvaða aðstæður lang- ömmur þeirra og -afar lifðu í landinu á stríðstímum. „Margar gamlar og góðar myndir tel ég líka að öðlist nýtt líf, þegar þær eru nú prentaðar aftur með nútíma- tækni á gæðapappír og ýmsar í stærra broti, en áður. Samhengi myndanna innbyrðis og nákvæmari upplýsingar um viðfangsefni þeirra eiga líka að geta hjálpað lesendum að sjá þær í nýju ljósi.“ Myndgreining með hjálp lögreglu og stjörnufræðings Þór Whitehead segir að hann hefði aldrei getað greint hundruð ljós- mynda bókarinnar, án þess að fá til þess hjálp frá fjölda manns hér heima og erlendis. Óteljandi spurn- ingar hafi vaknað við myndgreining- ar: hvar var myndin tekin, hvað sýnir hún, hvenær var hún tekin, hvað heita mennirnir á myndinni, hvað varð um þá – hvar eru þeir nú? Oftast hafi hann reynt að ná sambandi við fólk, sem sést á myndum, til að for- vitnast frekar um tilefni myndatök- unnar eða skýra viðfangsefni. Að þessu verki hafi einnig komið margir menn, fræðimenn og áhugamenn, sem búa yfir mikilli þekkingu á ein- stökum sviðum stríðssögunnar – og einnig alls óskyldum efnum. Þór við- urkennir, að það hafi tekið sinn tíma að leita til svo margra manna um að- stoð. En hann segir, að það hafi einn- ig verið eitt hið skemmtilegasta við Bandarískir hermenn gefa íslenskum telpum tyggjó út um skotrauf á stein- steyptu vélbyssuvígi. Framandi siðir og ný viðmið fylgdu hermönnunum. Séð til Reykjavíkurhafnar og nágrennis í júní 1942. Andspænis kolabingnum við Arnarhól t.h. er Varðarhúsið, höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins, en í bragganum næst því félagsheimili hins breska KFUM. Nútíminn kemur til Íslands. Flutningabílum, jeppum og öðr- um tækjum skipað upp úr bandarísku flutningaskipi 1941. Erlendu hermennirnir undu almennt hag sínum heldur illa á Íslandi. Tækifæri gafst þó stundum til að sletta úr klaufunum. Hér taka flugmenn úr Hudson-sprengju- sveitinni í Kaldaðarnesi íslenska gæðinga til kostanna. Breskir hermenn vaða aurinn á Eskifirði. Þar gengu um 160 þeirra á land. Flestum þótti þeim vistin á Íslandi erfið. verkefnið að eiga þannig samskipti við og kynnast konum og körlum, sem hafi óspart miðlað af fróðleik sín- um. Þar nefnir hann meðal annarra Friðþór Eydal upplýsingafulltrúa Varnarliðsins, sem sjálfur hafi ritað prýðilegar bækur um stríðsárin, Ragnar J. Ragnarsson framkvæmda- stjóra og Hörð Geirsson minjavörð, sem séu flestum fróðari um herflug á Íslandi, Sævar Þ. Jóhannesson lög- reglufulltrúa, sem safnað hafi minj- um og gögnum frá stríðsárunum og Þórodd Má Árnason vélvirkja og her- bílaáhugamann. Enginn maður hafi nafngreint fleira fólk á myndum bókarinnar en Pétur Pétursson þulur. Vegna starfa sinna hjá Ríkisútvarpinu, áhuga á fé- lagsmálum og gömlum ljósmyndum hafi hann kynnst ótrúlega mörgu fólki á langri ævi og þekkt aragrúa annarra Reykvíkinga í sjón. Pétur sé mikil fróðleiksnáma. Að öðru leyti sé texti bókarinnar að miklu leyti byggður á frumheim- ildum frá öllum þeim löndum, sem þar komi helst við sögu. „Myndir geta verið mjög varasam- ar heimildir og ekki hægt að treysta blint á upplýsingar úr söfnum,“ segir Þór, og nefnir dæmi. „Ég fékk eina ágæta litmynd af herflokki frá þjóð- skjalasafninu bandaríska, sem sagði flokkinn breskan og myndina tekna á Íslandi. Ég sýndi hana einhverjum mönnum, sem sýndist hún helst tekin í Mosfellssveit. En það voru smáat- riði, sem skáru þessa mynd frá öðr- um myndum af Bretum, t.d. voru hermennirnir í gúmmístígvélum, þeir sýndust miklu kraftalegri og við öxl eins þeirra glyttir í merki, sem virtist sýna laufblöð, þegar að var gáð í stækkunargleri. Það kom ekki heim og saman við merki breskra her- fylkja á Íslandi. Ég lét mér þess vegna detta í hug að þetta gætu verið Kanadamenn, sem voru fjölmennir í Mosfellssveit. En Sævar Jóhannes- son lögreglufulltrúi leysti þessa gátu, eins og ýmsar fleiri. Hann hefur viðað að sér miklum fróðleik um her- skjaldarmerki og var fljótur að sjá að laufblöðin gætu ekki verið annað en hluti af laufguðu tré, sem var merki pólskrar hersveitar, er gekk til liðs við Breta. Myndin væri alls ekki tek- in í Mosfellssveit heldur annað hvort í fjalllendi í Mið-Austurlöndum eða á Ítalíu! Ég gæti nefnt ýmis önnur brosleg dæmi, þar sem smæstu atriði hafa skipt öllu við að greina myndir rétt með hjálp glöggra manna, sem hafa forðað mér frá alls kyns villum.“ Jafnvel skuggar og sólargeislar geta verið mikilvægar vísbendingar við stríðssögurannsóknir. Þór segir t.d. frá því að þegar hann hafi verið að ganga frá fyrsta kafla bókarinnar, sem sýnir nokkurn veginn í tímaröð (klukkustund eftir klukkustund), hvernig Bretar lögðu undir sig Reykjavík 10. maí 1940, hafi hann átt í vandræðum með að tímasetja eina mynd. „Úr þessum vanda leysti Þor- steinn Sæmundsson stjörnufræðing- ur, sem fór með myndina niður í Tryggvagötu á sólardegi í kringum 10. maí 2000 og komst að þeirri nið- urstöðu, að Þorsteinn Jósepsson hlyti að hafa tekið hana á tilteknum tíma síðdegis, um klukkan hálfsjö, ef ég man rétt. Þetta dæmdist því sú mynd, sem síðust var tekin þennnan örlagadag og fékk þar af leiðandi sinn rétta sess sem lokamynd í her- námskaflanum með hjálp stjörnu- fræðinnar. Svona vinnubrögð má auðvitað flokka undir sérvisku og smásmygli,“ segir Þór, „og ég hef ekki komist hjá villum frekar en aðrir fræðibókahöf- undar. En markmið mitt var að kom- ast sem næst atburðunum og fólkinu, sem bókin fjallar um: reyna gera verkið eftir því sem kostur er að myndrænni tímavél, sem lesendur gætu notað til að færast á vit fortíðar og skynja eitthvað af andblæ þessara örlagaára.“ Í bók Þórs birtist í fyrsta skipti mynd sem sýnir Dettifoss sökkva á Írlandshafi eftir árás þýsks kaf- báts 21. febrúar 1945. „Þetta er að mínu viti merk- asta mynd bókarinnar,“ segir höfundurinn. „Þessi mynd komst í mínar hendur fyrir algjöra til- viljun og raunar er hún komin hingað til lands fyrir hreina til- viljun. Fyrir rúmum 20 árum var ég samskipa Herði Sigmundssyni sem var þá stýrimaður í afleys- ingum á einum Fossanna. Hörður sagði mér frá því að hann hefði siglt til Suður-Afríku og þar hefði hann kynnst manni sem verið hefði í breska flotanum á Íslandi. Hann mun hafa verið í björg- unardeild flotans og eftir því sem ég veit best á verndartogara sem fylgdi skipalestinni þegar Dettifossi var sökkt. Hann sagði Herði að hann ætti mynd af Dettifossi að sökkva og bauðst til að gefa Herði hana. Ég sagði Herði að ég vildi gjarnan birta myndina þegar þar að kæmi. Því miður varð Hörður bráðkvaddur á besta aldri skömmu eftir að heim var komið. Nú, 20 árum síðar, hafði ég samband við ekkju hans, Þórlaugu Guðmundsdóttur, og fyrsta myndin sem hún fletti upp á í gömlu albúmi var þessi mynd. Hörður safnaði skipa- myndum og hafði gengið sérlega vel frá safninu.“ DETTIFOSS SEKKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.