Morgunblaðið - 10.11.2002, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 10.11.2002, Qupperneq 17
höfn en bein hans flutt (að hluta eða í heild eða alls ekki, það er umdeilt) til Íslands rúmlega hundrað árum síðar. „Ég ætla ekki út í þá beinasögu hér, hún er alltof flókin,“ segir Guðlaugur og lýkur þar með frásögninni af Jón- asi. „Hávaðinn, þið getið rétt ímyndað ykkur!“ Af lýsingum Guðlaugs að dæma var Kaupmannahöfn enginn sælustaður á fyrrihluta 19. aldar þegar Fjölnis- menn og aðrar sjálfstæðishetjur gengu þar um stræti. „Hávaðinn, þið getið rétt ímyndað ykkur! Hér voru skröltandi hestvagnar og fullar götur af fólki. Á hverju einasta götuhorni Kaupmannahafnar stóðu konur og voru að selja einhvern varning. Sú sem hrópaði hæst hafði náttúrulega mestu möguleikana á að selja. Hér voru náttúrulega skríkjandi börn eins og nú, hrínandi svín inni í bakgörðum og baulandi beljur uppi á þriðju hæð,“ segir Guðlaugur og enn er hlegið. Til útskýringar, varðandi beljurnar á þriðju hæðinni, þá er rétt að það komi fram, að sökum þess hve erfitt var fyrir borgarbúa að nálgast mjólk brugðu margir á það ráð að kaupa kýr úti í sveit og flytja þær til borgarinn- ar. Í borginni var ekki að finna lófa- stóran grasblett fyrir beljurnar að bíta á og ef ekki fannst annað pláss, var kúnum oftar en ekki dröslað upp stiga og inn í íbúðir, jafnvel á þriðju hæð. Þar voru þær fóðraðar á heyi og mykjunni mokað út um gluggann. „Og lyktin, hún var eftir því. Tómas Sæmundsson, einn af Fjölnismönn- um, hann segir frá því í bréfi á einum stað, að hann hefði haft það fyrir venju þegar hann var í Kaupmanna- höfn að fá sér göngutúr um borgar- veggina svo hann gæti andað að sér fersku lofti að utan,“ heldur Guðlaug- ur áfram. Saga á hverju horni Blaðamanni virðist sem sögur af Ís- lendingum hafi gerst á hverju götu- horni enda er það í sjálfu sér ekki ólíklegt. Kaupmannahöfn var um ald- ir höfuðborg Íslands og þangað sóttu Íslendingar menntun og vegtyllur. Enn í dag er borgin meðal vinsælustu áfangastaða íslenskra ferðamanna og það er vandfundin sú erlenda borg sem geymir fleiri íslenska stúdenta. Morgunblaðið/rp „Sjáið þið húsið þarna,“ segir Guðlaugur Arason við Íslendingana sem fylgdu honum um Íslendingaslóðir í Kaupmannahöfn fyrir skömmu.  Guðlaugur Arason fer með ferðamenn um Íslendingaslóðir alla sunnudaga og miðvikudaga frá maí til september, stundvís- lega klukkan 13, en býður upp á ferðir fyrir hópa þess á milli. Nánari upplýsingar fást á Net- inu á slóðinni www.islands- center.dk MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 B 17 ferðalög KANADA Ferð til Winnepeg Í júlí á næsta ári verður í boði ferð til Winnipeg í Kanada en nýlega var skrifað undir samninga milli Vest- urfarasetursins/Snorra Þorfinns- sonar ehf. á Hofsósi, Ferðaskrif- stofunnar Vestfjarðaleiðar og Flugfélagsins Atlanta um leiguflug til Kanada. Samið var um eitt flug með Boeing 747 og eru 470 sæti í boði. Flogið verður til Winnipeg 25. júlí og til baka 6. ágúst. Í fréttatil- kynningu kemur fram að unnið sé að skipulagningu ferða til fleiri staða í Kanada næsta sumar ef næg þátttaka fæst. Ferðirnar eru settar upp með það í huga að auð- velda samskipti fólks af íslenskum uppruna í Vesturheimi og á Íslandi. Áætlað verð fyrir hvert flugsæti er á bilinu 55–60 þúsund krónur. Ferð- irnar verða skipulagðar í samstarfi við forsvarsmenn Íslendingafélag- anna í Kanada og annað áhugafólk um aukin samskipti milli Íslands og Kanada. Í tengslum við leiguflugið er ákveð- ið að Vesturfarasetrið setji upp sérstakan dag í júlí næsta sumar til heiðurs Vestur-Íslendingum, í sam- starfi við Reykjavíkurborg, Lands- bókasafn Íslands og fleiri. Stefnt er að því að um verði að ræða árviss- an viðburð þar sem íslenskir aðilar sameinast um að heiðra minningu íslensku Vesturfaranna. Ljósmynd/ Þröstur S. Valgeirsson Frá vinstri : Auður Björnsdóttir og Elísas Höskuldsson frá Atlanta. Valgeir Þor- valdsson frá Vesturfarasetrinu á Hofsósi. Ágústa Jóhannesdóttir og Kristján M. Baldursson frá ferðaskrifstofunni Vestfjarðarleið.  Ferðaskrifstofan Vestfjarða- leið sér um sölu og skipulagn- ingu ferða og er áhugasömum bent á að hafa samband í síma 562 9950 eða 587 6000 til að fá frekari upplýsingar. Hádegisverðarfundur Félags viðskipta- og hagfræðinga verður haldinn miðvikudaginn 13. nóvember nk. í Setrinu, Grand Hóteli, Reykjavík, kl. 12-13.30.  Hvers vegna hefur það færst í aukana að stjórnendur gerist fjárfestar?  Er hægt að vænta meiri árangurs ef stjórnandi verður eigandi?  Hver er munurinn á að vera stjórnandi og eigandi?  Hvernig er hægt að fjármagna kaup á fyrirtæki?  Hvert er hlutverk fjármálafyrirtækja við „management buyout“?  Hver hefur frumkvæði að kaupum?  Hvers vegna eru fjárfestar reiðubúnir?  Eru íslensk fyrirtæki orðin skuldsettari?  Eru mörg tækifæri á Íslandi til kaupa á fyrirtækjum? Fyrirlesarar: Guðmundur Guðmundsson, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Búnaðarbanka Íslands. Hreggviður Jónsson, forstjóri Pharmanor. Árni G. Hauksson, forstjóri Húsasmiðjunnar. Fundarstjóri: Tómas Otto Hansson, rekstrarráðgjafi. Stjórnandi verður eigandi Kaup stjórnenda á íslenskum fyrirtækjum (management buyout) Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga Vinsamlega skráið þátttöku með tölvupósti fvh@fvh.is eða í síma 551 1317. Verð með hádegisverði er 2.800 kr. fyrir félagsmenn og 3.800 kr. fyrir aðra. Guðmundur Guðmundsson Hreggviður Jónsson Árni G. Hauksson Tómas Otto Hansson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.