Morgunblaðið - 10.11.2002, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 10.11.2002, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 B 21 bílar BRIMBORG hf., umboðsaðili Volvo, hefur fengið nýjan og breyttan Volvo XC70 Cross Country með dísilvél og aflmeiri bensínvél. Jafnframt er hann kynntur með breyttum drif- búnaði. Nýja dísilvélin er með samrás- arinnsprautun af nýjustu gerð. Með þessari tækni fæst aukið afl, minni eldsneytisnotkun, minni mengun og síðast en ekki síst hljóðlátari vél. Vélin gefur 163 hestöfl og togar 340 Nm við aðeins 1.750 snúninga. Vélin er óvenjulétt enda framleidd úr létt- málmsefnum og vegur minna en 185 kg. Minni þyngd vélar hefur ekki ein- göngu áhrif á eyðslu bílsins heldur ekki síður á aksturseiginleika þar sem undirstýring á sér síður stað. Aflmeiri bensínvél Volvo XC70 er einnig kynntur núna með enn kraftmeiri bensínvél. Rúmtak vélarinnar hefur verið aukið í 2.500 rsm sem skilar auknu togi og hestöflum sem núna eru 210 talsins. Fjórhjóladrifsbúnaður Volvo XC70 hefur einnig breyst. Nýtt rafeinda- stýrt fjórhjóladrif frá HALDEX skynj- ar stöðugt breytingu á hraða bílsins, snúningi á stýri og hjólum og sendir skilaboð í sérstakt stýrikerfi sem uppfærir skilaboð til drifsins 500 sinnum á sekúndu. Þannig næst fram hámarksgrip og öryggi við erfið aksturskilyrði. Volvo XC70 Cross Country með nýj- um vélum og drifbúnaði. Ný dísilvél og drifkerfi í Volvo XC70 HUGSANLEGT er að General Motors hefji sölu í Evr- ópu á aflmikl- um, tveggja dyra sportbíl, Holden Mon- aro, sem fram- leiddur er í Ástralíu af dótturfyrir- tækinu Holden. Monaro var öll- um að óvörum sýndur á bás Vauxhall, annars dótt- urfyrirtækis GM, á bílasýningunni í Birmingham í síðasta mánuði. Þar var hann sýndur án þess að vera merktur nokkrum framleiðanda. Ástralíumaðurinn Kevin Wale, sem er einn af æðstu yfirmönnum Vaux- hall, segir að tilgangurinn með því að sýna Monaro í Birmingham sé að kanna viðbrögð almennings við bíln- um. „Við tökum ákvörðun um hvort af innflutningi verður á næstu þremur til sex mánuðum.“ Samstarfsmenn Wale hjá Opel í Evrópu fylgjast grannt með framvindunni en í Evr- ópu myndi Monaro kosta um 41.000 evrur, um 3,6 milljónir ÍSK. Holden flytur bílinn út til Bandaríkjanna þar sem hann er seldur sem Pontiac GTO. Monaro vegur um 1.640 kg og er með 5,7 lítra, 302 hestafla V8-vél, þeirri sömu og er að finna undir vél- arhlíf Chevrolet Corvette. Bíllinn nær 250 km hámarkshraða og hröðun úr kyrrstöðu í 100 km á klst. tekur 6,8 sekúndur. Holden Monaro til Evrópu? Monaro er með 302 hestafla V8 vél. Faxafeni 14 568 9915 www.hreyfing.is Hreyfing í 6 vikur fram að jólum og þú ert í betra formi fyrir hátíðirnar líkamlega sem andlega. Ertu í formi fyrir jólin? Jólatilboð 4.990 kr.aðeins jólaboð jólahlaðborð jólaföt jólaball jólamatur jólaglögg aðfangadagskvöld áramótaveisla nýárskvöld ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.