Morgunblaðið - 10.11.2002, Page 26

Morgunblaðið - 10.11.2002, Page 26
26 B SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ bíó Þ AÐ er vel til fundið hjá Ís- lensku kvikmynda- og sjón- varpsakademíunni (ÍKSA) að veita sínar árlegu viðurkenn- ingar í nóvember; þessi ágæti mán- uður telst seint með þeim fjörlegustu og veitir ekki af upplyftingunni. Skammdegið að hellast yfir lands- menn og langur vetur lúrir framund- an. Nú fáum við vonandi sjóaða stjórnendur, rútínan að lærast og full ástæða til að ætla að áhorfendur verði vitni að því að Eddan sé búin að slíta barnsskónum, standi undir vænting- um sem einn merkasti, alla vega frísk- asti viðburðurinn í menningargeiran- um. Eðli málsins vegna á hún að hafa til þess alla burði. Ég ætla að fara sem fæstum orðum um framkvæmd síð- ustu verðlaunaafhendingar en fullyrði að nú getur leiðin aðeins legið upp á við. Það er fyrst til að taka að í ár er kvikmyndaframboðið vel viðunandi hjá dvergþjóðinni, bæði hvað snertir magn og gæði. Sömuleiðis virðist sjónvarpsefnið í ágætu meðallagi. Við erum að gera góða hluti á báðum svið- um í bland við eðlileg mistök og með- almennsku. Vel gerðar og forvitnileg- ar heimildarmyndir hafa einnig sett mark á Edduárið og í það heila tekið erum við að upplifa gott kvikmynda- og sjónvarpsár. Mér telst til að alls hafi sex leiknar, langar myndir verið frumsýndar á Edduárinu, sem hlýtur að teljast af- rek útaf fyrir sig: Regína (jan.); Gemsar (feb.); Reykjavík Guesthouse (mars); Maður eins og ég (ágúst); Hafið (sept) og Fálkar (sept). 2002 stefnir því í að verða eitt, ef ekki stærsta kvikmyndaár í sögunni. Jafn- framt er jöfn og þétt endurnýjun að eiga sér stað þó ekki sé um kynslóða- skipti að ræða í hópi kvikmyndagerð- armanna. Afleiðingin er auðsæ í ferskari og fjölbreyttari efnistökum og breiðara og nýstárlegra efnisvali. Myndirnar eru jafnmisjafnar og þær eru margar. Aðalmynd ársins, Hafið, er byggð á gömlum hefðum þar sem hún er kvikmyndagerð vinsæls leikhúsdrama eftir Ólaf Hauk Símon- arson. Regína er hinsvegar fyrsta söngva- og dansamynd (músikal) þjóðarinnar í anda gömlu Hollywood. Reykjavík Guesthouse er harla óvenjuleg mynd í flórunni okkar, fjallar um lítinn og afmarkaðan heim nokkurra ráðvilltra persóna í tilvist- arkreppu. Maður einsog ég frá höf- undum Íslenska draumsins rambar á milli drama og gamanmyndar um samskipti landans og nýbúanna en Fálkar er vegadrama með vestra og krimmatengingum. Eins og fram kemur hér að neðan spái ég Hafinu glæsilegum yfirburðasigri enda myndin góð og samkeppnin takmörk- uð. Áður hefur verið rætt um óæski- legt samkrull kvikmynda og sjón- varpsefnis sem stingur oft upp koll- inum í ár sem endranær en er og verður hausverkur fólksfæðarinnar. Lítum nú nánar á þau verk og ein- staklinga sem tilnefnd eru til Eddu- verðlaunanna í ár. Sú tilnefning sem ég tel sigurstranglegasta er efst í röð- inni í hverjum flokki, en að auki leyfi ég mér að bæta við nöfnum og verk- um sem á þessum bæ teldust verð- ugar tilnefningar og banka uppá, eins og það er kallað á kjördögum í stjórn- málum. Á áttunda hundrað manns hafa atkvæðisrétt í ÍKSA og vega 70% í kosningunni en kjör almenn- ings á mbl.is vegur 30%. Verðlaunin verða svo afhent í kvöld, sunnudags- kvöldið 10. nóv., í Þjóðleikhúsinu en athöfnin verður jafnframt send í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Bíómynd ársins Hafið Leikstjóri: Baltasar Kormákur. Handrit: Baltasar Kormákur og Ólafur Haukur Símonarson. Fram- leiðandi: Sögn ehf./Blueeyes Prod- uctions. Fálkar Leikstjóri: Friðrik Þór Friðriks- son. Framleiðandi: Friðrik Þór Friðriksson. Handrit: Einar Kára- son og Friðrik Þór Friðriksson. Regína Leikstjóri: María Sigurðardóttir. Handrit: Margrét Örnólfsdóttir og Sjón. Framleiðandi: Friðrik Þór Friðriksson. Valið er ekki flókið í ár. Hafið hefur burði yfir keppinautana og reyndar kemur á óvart að Fálkar, jafngölluð og hún er efnislega, sé í hópi útvaldra. Regína er duggunarlítil fjölskyldu- skemmtun sem skilur heldur ekki eft- ir sig stór spor í kvikmynda- sögu landsmanna. Hafið er sterkt og svipmikið verk sem tekur tæpitungulaust á risavaxinni meinsemd í sam- tímanum, kvótakerfi sem hægt og bítandi er að drepa heil byggðarlög og koma fisk- veiðunum á hendur örfárra aðila, sameiningar- og yfirtökubraski manna sem hugsa aðeins um hagnaðarvonina. Hún er orð í tíma töluð um þessa ótrúlegu kollsteypu og rís hátt, einkum í upphafi. Fjölskyldudramað er ekki jafnathyglisvert en myndin sem dregin er upp af íslensku sjávarplássi er sann- arlega umhugsunarverð. Hafið er þrátt fyrir allt full af hnitmið- uðum, biksvörtum húmor, vel leikin og gerð og í það heila tekið með frambærilegri íslenskum myndum síðari árin. Hver bankar uppá? Maður eins og ég. Leikstjóri ársins Baltasar Kormákur fyrir Hafið. Gunnar Karlsson fyrir Litlu ljótu lirfuna. Óskar Jónasson fyrir 20/20 og Áramótaskaupið 2001. Ekki er vanda- samara að spá fyrir um sigurvegarann í þess- um ágæta flokki. Baltasar hefur tek- ist að hrista upp í og flytja þunglama- legt stofudrama í hringiðu athafna- og mannlífs í dæmigerðu sjávarþorpi. Skapar fjölmargar magnaðar senur og sterka heildarmynd og hefur full- komin tök á leikhópi sem er sannkall- að augnakonfekt. Óskar Jónasson gerði besta ára- mótaskaup í áraraðir og 20/20, þessa líka fínu sjónvarpsmynd (sem naut sín enn betur þegar hún var sýnd í heilu lagi um síðustu helgi). Óskar væri vel að Edduverðlaunum kominn sem besti leikstjóri sjónvarpsefnis – ef þeim flokki væri fyrir að fara og geldur að auki fyrir yfirburði Hafsins í ár. Hver bankar upp á? Friðrik Þór Frið- riksson sem leikstýrir óaðfinnan- lega gölluðu handriti Fálka – sem á hinsvegar lítið erindi á meðal bestu mynda ársins. Karlleikari ársins í aðalhlutverki Gunnar Eyjólfsson í Hafinu. Hilmir Snær Guðnason í Hafinu og Reykjavík Guesthouse Rent a Bike. Keith Carradine í Fálkum. Hollywoodstjarnan og stórsjarm- örinn Keith Carradine sýnir framúr- skarandi fagmennsku í Fálkum þó hlutverkið sé ekki burðarmikið og stundum ráðleysislegt. Það er engin spurning að Hilmir Snær, einn okkar frambærilegasti leikari, fær miklu betra tækifæri til að sanna hæfileika sína í Hafinu og Reykjavík Guest- house en á prúðmannlegu vappi um leikmynd Mávahláturs – þar sem honum dugði að vera sætur. Þeir fé- lagar eygja þó tæpast möguleika í ár í þessum flokki því Gunnar Eyjólfsson, með alla sína hæfileika og reynslu í kvikmyndum og á sviði og yfirgnæf- andi persónutöfra, varpar risavöxn- um skugga á keppinautana. Hann er hjartað í Hafinu og fer óaðfinnanlega með aðalhlutverkið. Hver bankar uppá? Jón Gnarr í Maður eins og ég. Leikkona ársins í aðalhlutverki Elva Ósk Ólafsdóttir í Hafinu. Guðrún S. Gísladóttir í Hafinu. Halldóra Geirharðsdóttir í Regínu. Bestu kvenhlutverkin í ár eru í Hafinu. Þær Elva Ósk og Guðrún S. Gísladóttir skila þeim eftirminnilega vel og gera mikið fyrir góða mynd. Ragnheiður (Guðrún) er yfir höfuð betur skrifað hlutverk á meðan bak- grunnur Áslaugar (Elva Ósk) er óskýrari og innkoma hennar sem eig- inkona „góð til munns og handa“ (einsog Erró orðar það svo skilmerki- lega) verður seint talið með sterkari atriðum myndarinnar. Á móti kemur að Áslaug er sundurleitari karakter og krefst meiri breiddar í túlkun. Það er nánast útilokað að gera upp á milli þeirra. Eigum við ekki að segja að stafrófið ráði úrslitum! Halldóra er í miklu áliti á þessum bæ, hæfileikarík og eftirsótt leikkona. Hennar tími er ekki í ár en hún mun ekki þurfa lengi að bíða. Hver bankar uppá? Stephanie Che í Maður eins og ég. Karlleikari ársins í aukahlutverki Jón Sigurbjörnsson í 20/20. Sigurður Skúlason í Hafinu og Gems- um. Þorsteinn Guðmundsson í Maður eins og ég. Hér gæti slagurinn vísast orðið einna tvísýnastur. Jón Sigurbjörns- son er einn af ástsælustu og lang- reyndustu leikurum þjóðarinnar. Bú- inn að draga sig talsvert í hlé og á því sjálfsagt eitthvað minni möguleika á að komast í tæri við þennan heiður en keppinautar hans. Á hinn bóginn er hlutverk hans í smærri kantinum og í sjónvarpsmynd sem breytir engu um að Jón túlkar það frábærlega og gerir „Afa“ að einni af eftirminnilegri per- sónum í mannhafi Kolaportsins í 20/ 20. Sigurður Skúlason býr til ljóslif- andi einstaklinga í Hafinu og Gems- um, reyndar líka í 20/20, þannig að 2002 er magnað ár á ferli þessa gæða- leikara sem einkum hefur verið við- loðandi útvarpsleikrit og leikhús. Það leynir sér ekki að nú verður breyting á. Þorsteinn Guðmundsson stal hins- vegar heilli kvikmynd, varpaði skugga á meðleikara sína í Maður eins og ég. Hafði vissulega best skrif- aða hlutverkið og smjattaði á því. Í þessum flokki getur allt gerst en ég hef á tilfinningunni að Jón merji sig- ur. Hverjir banka uppá? Sigurður Sigur- jónsson í Maður eins og ég; Harald G. Haralds í 20/20 og Stefán Eiríks- son í Reykjavík Guesthouse. Leikkona ársins í aukahlutverki Herdís Þorvaldsdóttir í Hafinu. Kristbjörg Kjeld í Hafinu. Sólveig Arnarsdóttir í Regínu. Að öðrum ólöstuðum á Herdís Þor- valdsdóttir þennan flokk með húð og hári. Hún er ein aðalslagæðin í gang- verki Hafsins, kraftmikil, galvösk og skapar óheflaðri persónu en maður átti von á úr þessari áttinni. Krist- björg er traust sem endranær en fer með bragðdaufara og vanþakklátara hlutverk. Aukinheldur fékk hún verð- launin í fyrra. Sólveig Arnardóttir er ein af okkar efnilegustu leikkonum af yngri kynslóðinni og gerir allt vel í Regínu en á væntanlega takmarkaða möguleika í hinar langsjóuðu stöllur sínar í ár. Hverjar bankar uppá? Nína Dögg Fil- ippusdóttir í Hafinu og Katla Mar- grét Þorgeirsdóttir í Maður eins og ég. Leikið sjónvarpsverk ársins Áramótaskaup RÚV 2001 Framleiðandi: Sjónvarpið. Handrit: Hallgrímur Helgason, Hjálmar Hjálmarsson og Óskar Jónasson.Leikstjóri: Óskar Jónas- son. Í faðmi hafsins Framleiðandi: Í einni sæng, Nýja bíó. Handrit: Hildur Jóhannesdótt- ir, Jóakim Reynisson og Lýður Árnason. Leikstjórar: Jóakim Reynisson og Lýður Árnason. 20/20 Framleiðandi: Óskar Jónasson. Handrit: Árni Þórarinsson og Páll Kristinn Pálsson. Leikstjóri: Óskar Jónasson. Til að byrja með botna ég ekki al- veg í tilvist Í faðmi hafsins í þessum flokki þar sem hún var altént hugsuð sem bíómynd, sýnd á almennum sýn- ingum í kvikmyndahúsi, gagnrýnd sem slík. Á hún því ekki að keppa sem slík? Keppnin mun engu að síður standa á milli Áramótaskaupsins og 20/20. Einsog áður hefur komið fram Hafið hugann dregur Eddu-afhendingin er aftur komin inná fjalir Þjóðleikhúss- ins sem Sæbjörn Valdimars- son telur góðan fyrirboða þess sem koma skal á fjórðu hátíð kvikmynda- og sjón- varpsakademíunnar í kvöld. Hann skoðar spilin og spáir einkar hagstæðu sjóveðri. ÍKSA veitir Edduverðlaunin í fjórða skiptið í kvöld SPÁ - Leikari ársins í auka- hlutverki: Jón Sigurbjörnsson fyrir 20/20. SPÁ - Leikkona ársins í aukahlutverki: Herdís Þorvaldsdóttir í Hafinu. SPÁ - Leikari ársins í aðalhlutverki: Gunnar Eyjólfsson í Hafinu. SPÁ - Leikkona ársins í aðalhlutverki: Elva Ósk Ólafsdóttir í Hafinu. Morgunblaðið/Golli SPÁ - Hafið: Besta mynd, Baltasar Kormákur leikstjóri ársins, Baltasar og Ólafur Haukur Símonarson handrit ársins, Valdís Óskarsdóttir fagverðlaun árs- ins fyrir klippingu og Tonie Jan Zetterström fagverðlaun fyrir útlit myndar. SPÁ - Heimildarmynd ársins: Hver hengir upp þvottinn? eftir Hrafnhildi Gunnarsdóttur. SPÁ - Sjónvarpsþáttur ársins: Sjálfstætt fólk í umsjón Jóns Ársæls Þórðarsonar. SPÁ - Leikið sjónvarpsefni ársins: Áramótaskaupið undir stjórn Óskars Jónassonar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.