Morgunblaðið - 10.11.2002, Blaðsíða 27
er áramótaskaupið 2001 það jafn-
skemmtilegasta í óendanlega mörg
og mögur ár og til mikils sóma fyrir
alla sem að því stóðu. Skaupið hefur
frá upphafi verið umræddasti þáttur-
inn í íslenskri dagskrárgerð. Þegar
jafnvel tekst til og nú á ekkert annað
sjónvarpsefni möguleika í þá múg-
sefjun sem slík uppákoma veldur. Á
hinn bóginn er 20/20 óvenju heil-
steypt mynd í alla staði, vel leikstýrt,
skrifuð og leikin og hefur uppskorið
eftir því óvenju margar tilnefningar
sem er sjónvarpsverki mikill heiður.
Hann verður að öllum líkindum að
nægja aðstandendunum.
Sjónvarpsþáttur ársins
Sjálfstætt fólk
Umsjón: Jón Ársæll Þórðarsson.
Dagskrárgerð: Jón Ársæll Þórð-
arsson og Steingrímur Jón Þórð-
arson. Framleiðandi: Stöð 2.
HM 4-4-2
Umsjón: Þorsteinn J. Vilhjálmsson
og Snorri Már Skúlason.
Dagskrárgerð: Þór Freysson, Þor-
steinn J. Vilhjálmsson og Snorri
Már Skúlason. Framleiðandi: Sýn.
Af fingrum fram
Umsjón: Jón Ólafsson. Dagskrár-
gerð: Jón Egill Bergþórsson og Jón
Ólafsson. Framleið.: Sjónvarpið.
Fólk með Sirrý
Umsjón: Sigríður Arnardóttir.
Dagskrárgerð: Kolbrún Jarlsdótt-
ir. Framleiðandi: Skjár einn/Árni
Þór Vigfússon.
Ísland í bítið
Umsjón: Þórhallur Gunnarsson og
Jóhanna Vilhjálmsdóttir. Dag-
skrárgerð: Sigurður Jakobsson.
Framleiðandi: Stöð 2.
Ísland í bítið er hægt og bítandi að
sækja í sig veðrið; Sigríður Arnar-
dóttir er röggsöm og bráðflink við að
halda dampi hvort sem viðmælend-
urnir eru áhugaverðir eður ei og Jón
Ólafsson er þægilega afslappaður,
gjörþekkir tónlistamannaflóruna og
lífgar heilmikið uppá dagskrá ríkis-
stofnunarinnar. Jón Ársæll er engu
að síður öruggur hér; maðurinn er
fæddur sigurvegari og hefur risið
uppúr hópi starfsbræðra sinna um
árabil.
Hver bankar uppá? Ísland í dag; 70
mínútur.
Heimildarmynd ársins
Hver hengir upp þvottinn?
Stjórnandi: Hrafnhildur Gunnars-
dóttir og Tina Naccache. Handrit:
Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Tina
Naccache. Framleiðandi: Krumma
Films.
Tyrkjaránið
Stjórnandi: Þorsteinn Helgason
Handrit: Þorsteinn Helgason
Framleiðandi: Hjálmtýr Heiðdal.
Noi, Pam og mennirnir þeirra
Stjórnandi: Ásthildur Kjartans-
dóttir. Handrit: Ásthildur Kjart-
ansdóttir. Framleiðandi: Litla gula
hænan ehf.
Möhöguleikar
Stjórnandi: Ari Alexander Ergis
Magnússon. Handrit: Ari Alexand-
er Ergis Magnússon. Framleið-
andi: Ergis kvikmyndaframleiðsla í
samvinnu við Íslensku kvikmynda-
samsteypuna.
Í skóm drekans
Stjórnandi: Árni og Hrönn Sveins-
börn. Handrit: Árni og Hrönn
Sveinsbörn. Framleiðandi: Tutt-
ugu geitur, Böðvar Bjarki Péturs-
son.
Hver hengir upp þvottinn er í hópi
sérstökustu og ánægjulegustu heim-
ildarmynda. Úrvinnsla hugmyndar-
innar einkar frumleg og inntakið
framandi og forvitnilegt. Skákar
Tyrkjaráninu í heild þó hluti þeirrar
ágætu myndar teljist hreint afbragð.
Fjarvera Málara Erlends Sveinsson-
ar úr hópi þeirra bestu vekur undrun.
Hver bankar uppá? Málarinn og sálm-
urinn hans um litinn.
Útlit myndar
Tonie Jan Zetterström fyrir leikmynd í
Hafinu.
Ásta Ríkharðsdóttir fyrir leikmynd í
Hvernig sem við reynum og Allir
hlutir fallegir.
Gunnar Karlsson fyrir listræna stjórn-
un á Litlu lirfunni ljótu.
Enn eina ferðina spái ég Hafinu
sigri og ætti ekki að undra neinn sem
séð hefur sterka og áhrifaríka leik-
mynd Tonies Jan Zetterström.
Handrit ársins
Baltasar Kormákur og Ólafur Haukur Sím-
onarson fyrir Hafið
Árni Óli Ásgeirsson og Róbert I. Douglas
fyrir Maður eins og ég
Árni Þórarinsson og Páll Kristinn Pálsson
fyrir 20/20.
Þeir Baltasar og Ólafur hafa lífgað
hressilega uppá sviðsverkið, fært það
nær samtímanum og gefið því öfluga
hormónasprautu, flutt það með alfar-
ið jákvæðum árangri af leiksviðinu á
tjaldið.
Hver bankar uppá? Björn Thors,
Börkur Sigþórsson, Unnur Ösp
Stefánsdóttir fyrir Reykjavík Gu-
esthouse.
Fagverðlaun ársins – hljóð og mynd
Valdís Óskarsdóttir fyrir klippingu á
Hafinu.
Harald Paalgard fyrir kvikmyndatöku
Fálka.
Sigurður Sverrir Pálsson fyrir kvik-
myndatöku á Málaranum og sálm-
inum hans um litinn.
Í þessum flokki hefur Valdís vinn-
inginn fyrir snilldarhandbragð við
flókna klippingu Hafsins.
Hver bankar uppá? Jean Louis Vial-
ard, kvikmyndatökumaður Hafs-
ins.
Stuttmynd ársins
Litla lirfan ljóta
Leikstjóri: Gunnar Karlsson.
Handrit: Friðrik Erlingsson.
Framleiðandi: CAOZ hf.
Memphis
Leikstjóri : Þorgeir Guðmundsson.
Handrit: Óttarr Proppé. Framleið-
andi: Glysgirni / S. Björn Blöndal.
Í þessum flokki getur greinarhöf-
undur ekki tekið afstöðu því hann hef-
ur hvoruga myndina séð.
Fréttamaður ársins
Árni Snævarr Stöð 2.
Brynhildur Ólafsdóttir Stöð 2.
G. Pétur Matthíasson Sjónvarpið.
Árni er fremstur meðal jafningja.
Þaulreyndur, skeleggur, skarpur og
síðast en umfram allt kankvís – sem
er mikil guðs gjöf í hvaða starfi sem
er, ekki síst í sjónvarpsfréttamennsk-
unni sem einkennist oftar en ekki af
níðþunga alvörunnar.
Tónlistarmyndband ársins
If (Land & synir)
Leikstjórar: Samúel Bjarki Péturs-
son og Gunnar Páll Ólafsson.
Framleiðandi: Hugsjón kvik-
myndagerð.
Á nýjum stað (Sálin hans Jóns míns)
Leikstjórar: Samúel Bjarki Péturs-
son og Gunnar Páll Ólafsson.
Framleiðandi: Hugsjón kvik-
myndagerð.
Hvernig sem ég reyni (Stuðmenn)Leik-
stjóri: Ragnar Bragason.Framleið-
endur: Sigurður Helgason og Jak-
ob Frímann Magnússon.
Hér gildir það sama og í stutt-
myndaflokknum.
Heiðursverðlaun ÍKSA
Magnús Magnússon
Fyrir áratugalöng störf sín í fjöl-
miðlum – í Bretaveldi, vel að merkja.
Var engan að hafa hér heima? Þó
Magnús sé mætur maður minnir valið
óneitanlega meira á störf orðunefnd-
ar en ÍKSA.
Sjónvarpsmaður ársins
Val hans fór fram á mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2002 B 27
bíó
Kringlufjarki er…
vörur + afsláttur
Afgreiðslutími
verslana:
Fimmtudag
10.00 til 21.00
Föstudag
10.00 til 19.00
Laugardag
10.00 til 18.00
Sunnudag
13.00 til 17.00
Veitingastaðir og
Kringlubíó eru
með opið lengur
á kvöldin.
Opið í
Ævintýralandi:
Fimmtudag
14.00 til 18.30
Föstudag
14.00 til 19.00
Laugardag
11.00 til 18.00
Sunnudag
13.00 til 17.00
www.kringlan.is upplýsingasími 588 7788 skrifstofusími 568 9200
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
K
R
I
19
25
9
1
1/
20
02
fimmtudag - föstudag - laugardag - sunnudag
Gerðu frábær kaup fyrir jólin
Opið frá kl. 13.00-17.00 í dag