Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 21
an ég væri í Alþýðuflokknum, nema
ég hefði fullt umboð til þess í bæj-
armálum frá fulltrúaráði og í lands-
málum frá sambandsstjórn og
flokksþingi, en innan Alþýðuflokks-
ins teldi ég mér bæði réttmætt og
skylt að vinna, eins og ég gæti og
hefði gert, að sameiningu flokkanna
og góðu samstarfi. Var þá gengið á
aftökustað sambandsstjórnar og til-
laga Jóns um brottrekstur minn
samþykkt – í allri flokksstjórninni
með 12 gegn 4 atkvæðum, en Guð-
m[undur] Hagalín greiddi ekki at-
kvæði,“ skrifaði Héðinn síðar.
Tillagan, sem samþykkt var,
hljóðaði svo: „Héðni Valdimarssyni
verði nú þegar vikið úr Alþýðu-
flokknum og þar með úr stjórn Al-
þýðusambands Íslands og Alþýðu-
flokksins og úr þeim störfum er
Alþýðusambandið eða Alþýðuflokk-
urinn kann að hafa falið honum.“
Varaformanni Alþýðuflokksins,
Héðni Valdimarssyni, hafði verið vís-
að á dyr.
Sameiningarflokkur alþýðu
— Sósíalistaflokkurinn
Héðinn Valdimarsson stofnaði
Sameiningarflokk alþýðu – Sósíal-
istaflokkinn með kommúnistum og
var kjörinn formaður í lok október
1938. En valdahlutföll hins nýja
flokks voru með allt öðrum hætti en
ef Alþýðuflokkurinn hefði gengið
óskiptur til samstarfs. Sovétríkin
réðust inn í Finnland haustið 1939.
Héðinn tók afstöðu gegn innrás Sov-
étríkjanna en lýðræðissinnaðir sós-
íalistar undir forystu Héðins urðu
undir í atkvæðagreiðslu um að for-
dæma innrás Sovétmanna. Komm-
únistar höfðu betur og fylgdu
Moskvu. Héðinn hafði haft þá sýn að
lýðræðissinnaðir sósíalistar hefðu 2⁄3
atkvæða í sameinuðum verkalýðs-
flokki. Það hafði ekki gengið eftir og
því áttu kommúnistar alls kostar við
lýðræðissinna í stofnunum flokksins.
Hann sagði sig úr Sameiningarflokki
alþýðu – Sósíalistaflokknum.
Látum gleymskuna og
þögnina geyma hann
Löngu síðar, í ræðu í afmælishófi
Alþýðuflokksins 1986, sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson, formaður
Dagsbrúnar, að forystumenn Al-
þýðuflokksins og sósíalista hafi sam-
einast um að „þaga rækilega um
Héðin Valdimarsson“. Guðmundur
sagði: „Draumarnir höfðu ekki ræst.
Þá sagði Brynjólfur Bjarnason [leið-
togi kommúnista] fræga setningu,
sem ekki er mikið á hámælum höfð,
er menn spurðu hann: „Hvað verður
nú um flokkinn þegar Héðinn er far-
inn?“
Brynjólfur svaraði þessu ekki í lík-
ingu, sem höfð var um Jón biskup
Arason forðum: „Öxin og jörðin
geyma hann best.“
En Brynjólfur sagði: „Látum
gleymskuna og þögnina geyma
hann.“
Og það var eins og Brynjólfur hafi
gert bandalag við Alþýðuflokkinn,
líklega í þetta eina sinn á ævinni, að
einnig hann skyldi hafa þetta mottó
um verk Héðins Valdimarssonar og
báðir flokkarnir hafa haldið það síð-
an.
Um stofnun [sósíalista]flokksins
hjá Héðni var mikið deilt og það skal
ekki rakið hér, en Héðinn var glæsi-
legasti og áhrifamesti forystumaður
íslenskrar verkalýðshreyfingar frá
upphafi.“
Og um áhrif og vinsældir Héðins
meðal verkafólks sagði Guðmundur
J: „Við bjuggum í verkamannabú-
stöðum vestur í bæ, á annað hundrað
fjölskyldur og um og yfir 80% þessa
fólks fylgdi formanni byggingar-
félagsins sem jafnframt var formað-
ur Dagsbrúnar. Ég þekki ekkert
hverfi í borginni í dag þar sem 80%
íbúa fylgja formanni Dagsbrúnar …
Héðinn sá fyrir þá skuggalegu þróun
að hér risu tveir verkalýðsflokkar.
Hann vildi leggja sig allan fram við
að gera þetta að einum flokki. Hann
vildi fá verkalýðsflokk í landinu sem
ógnaði íhaldinu.“
Sveik Héðinn eða
sviku hinir?
Vilmundur Gylfason, sem í upp-
hafi níunda áratugarins klauf Al-
þýðuflokkinn og stofnaði Bandalag
jafnaðarmanna, kvaðst í blaði sínu,
Nýju Landi, er hann gaf út um tíma,
hafa vitað til þess að Héðinn hafi leit-
að eftir því að koma inn í Alþýðu-
flokkinn á ný. „En heiftin var enn
svo mikil, að því var hafnað. Það voru
mistök,“ skrifaði Vilmundur í grein
sem hann nefndi: Sveik Héðinn eða
sviku hinir? Einar Þorsteinsson,
gjaldkeri Olíuverzlunar Íslands,
sagði sig úr Alþýðuflokknum með
Héðni en gekk þó ekki til liðs við
kommúnista. Hann hélt tengslum við
forystumenn Alþýðuflokksins. Lúð-
vík Gizurarson, hæstaréttarlögmað-
ur og tengdasonur Einars, segir að
tengdafaðir sinn hafi að frumkvæði
Héðins gerst milligöngumaður um
að opna honum leið í Alþýðuflokkinn
á ný en forystumenn krata hafi alfar-
ið hafnað því. Einar Þorsteinsson
hafi skýrt honum frá því. Lúðvík
segir jafnframt að Jóhanna Egils-
dóttir hafi staðfest þetta í samtali við
sig löngu síðar. Það gilti einu þó öfl-
ugasti málsvari flokksins meðal
verkafólks leitaði inngöngu á ný.
Forystusveit Alþýðuflokksins vildi
ekki sættast við Héðin Valdimars-
son.
Héðinn Valdimarsson einbeitti sér
að störfum fyrir Olíuverzlun Íslands
– sem hafði umboð fyrir British
Petroleum Company – sem hann
hafði haft forgöngu um að setja á
stofn 1927. 3. október fagnaði Olís 75
ára afmæli. Héðinn lést í september
1948, aðeins 56 ára gamall.
Þeir létu dæluna ganga – Saga Olís í 75
ár 1927–2002 eftir Hall Hallsson er gef-
in út af Olís í tilefni að 75 ára afmæli
fyrirtækisins. Bókin er 557 bls. að lengd
og prýdd fjölda mynda.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 21
JARSKALÖND OG FURÐUHEIMARF
AUSTURLANDAHRAÐLESTIN
UM RÚSSLAND, SÍBERÍU, MONGÓLÍU OG KÍNA,
2. ágúst – uppselt, biðlisti. Þetta er hin eina sanna
Orient Express Austurlandahraðlest eins og við
minnumst hennar úr sögu Agöthu Christie „Morðið í
Austurlandahraðlestinni“. Ólýsanlegt ævintýri út í gegn!
Sjáðu myndirnar og fáðu ferðalýsinguna, ferðin verður
ekki endurtekin!
ÆVINTÝRI Í AMASÓN
GALAPAGOS – EKVADOR í október. Þessi ferð á engan
sinn líka, ekki missa af henni! Hittu heimamanninn
Robby Delgado, náttúrulífsfræðing, sem kemur alla leið
úr Amasón til að kynna landið sitt Ekvador. Fjölbreytt og
fræðandi, glóðvolgar ferðafréttir úr síðustu ferð!
Vistvænar Veraldarferðir
Skólavörðustígur 21a • 101 Reykjavík • Sími: 511 40 80
Símbréf: 511 40 81 • info@embla.is • www.embla.is
Fjarskaferðaklúbbur Emblu – nýr spennandi ferðaklúbbur fyrir framsækna ferðamenn — skráðu þig í Norræna Húsinu!
Embluferð
öðruvísi ferð
HÁTÍÐ Í HEIMSBORGINNI
LONDON 12. des. með Jakobi Frímanni Magnússyni. Einstakt
tækifæri! Ný sýn á heimsborgina þar sem Jakob fer þekktar en
jafnframt ótroðnar slóðir. Dagsskráin kemur á óvart! Nokkur sæti
laus
SÓL OG SÆLDARLÍF – BARBADOS
BARBADOS 10. jan. – Aðeins 20 manna hópur, síðustu sætin!
Eyjan Barbados í Karíbahafi er rómuð fyrir ljúft loftslag og
fagrar strendur. Tamarind Cove er meðal bestu gististaða á
eynni. Þetta er jólagjöfin í ár!
BORGUNDARHÓLMUR
PERLA EYSTRASALTSINS, 31.maí-uppselt, 7. júní nokkur sæti.
Kynnist þessari fallegu náttúruperlu OG sólskinsbænum Svaneke
í fylgd Gunnars Bierings læknis og leiðsögumanns.Vikuferð þar
af 2 nætur í Kaupmannahöfn. Sérhönnuð ferð fyrir eldri borgara
PÁSKAR Í PARADÍS
MÁRITÍUS 15. apríl – aðeins 20 manna hópur, sérhönnuð lúxus-
ferð fyrir Íslendinga með íslenskri fararstjórn. Máritíus var valin
þriðja fallegasta eyja í heimi af lesendum Condé Nast Traveller.
Gististaður Emblu Paradise Cove er engu líkur, frábær aðbúnað-
ur, glæsilegur stíll og ómótstæðilegur sælkeramatur. Njóttu flugs
á fyrsta farrými með Air Mauritius, lúxusflugfélaginu
Velkomin á ferðaveislu Emblu í Norræna Húsinu mánud. 25. nóvember kl. 20:00