Morgunblaðið - 24.11.2002, Side 28

Morgunblaðið - 24.11.2002, Side 28
28 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ VITIÐ þið hvað 29milljónir Banda-ríkjamanna gerðusíðastliðið fimmtu- dagskvöld? Þeir horfðu á loka- þátt annarrar þáttaraðarinnar af Piparsveininum. Ekki hefur verið horft svona mikið á sjón- varpsstöðina ABC, sem sýnir Piparsveininn, síðan í mars 1999 þegar hún sýndi, fyrst sjónvarpsstöðva, viðtal við Monicu Lewinsky eftir skand- alinn í Hvíta húsinu. Þá hefur einstakur þáttur í sjónvarps- þáttaröð ekki fengið svona mikið áhorf síðan í apríl 1997 þegar Ellen DeGeneres ,,kom út úr skápnum“ í þáttaröðinni Ellen sem sýnd var á stöðinni NBC. Það þótti fréttnæmt að loka- þáttur Piparsveinsins skyldi bursta hina árlegu tískusýn- ingu nærfatarisans Victoria’s Secret sem sýnd var á stöðinni CBS sama kvöld, en tískusýn- ingin er jafnan með allra vin- sælasta sjónvarpsefni. Merki- legt nokk þá virðast karlmenn hafa meiri áhuga á tískusýn- ingunni en konur – þeir eru líklega að velja jólagjafir á sín- ar heittelskuðu – en konur eru hins vegar í meirihluta þeirra sem sitja límdir við Pip- arsveininn. Telur dagblaðið New York Times áhorfstöl- urnar frá því á fimmtudags- kvöld þannig sýna hver ræður yfir fjarstýringunni á flestum heimilum – eða réttara sagt hverjar. Eins og þeir vita sem hafa fylgst með fyrstu þáttaröðinni af Piparsveininum sem sýnd var á Skjá einum í haust, ganga þættirnir út á að 25 ungar konur keppa um ástir náunga sem er sagður vera karlkostur í allra hæsta gæða- flokki. Hann ,,kynnist“ stúlk- unum og í hverjum þætti eru nokkrar ,,reknar heim“, svona eins og í Lúdó, og í lokaþætt- inum eru bara tvær eftir og þá er þetta fyrst orðið áhugavert. Dramað nær hámarki í réttu hlutfalli við styrkleika þeirrar mannlegu niðurlægingar sem kann að eiga sér stað á skján- um. Í umfjöllun New York Times um raunveruleika- sjónvarp nú í vikunni voru færð rök fyrir því að skömm og niðurlæging séu einmitt það sem slíkir sjónvarpsþættir ganga út á: ,,Gleymum kynlífi og ofbeldi,“ segir NYT, ,,nið- urlæging er það sem selur í dag“. Og þegar plottin í þeim raunveruleikaþáttum sem eru í bígerð í bandarísku sjónvarpi eru skoðuð, er auðvelt að skilja slíka fullyrðingu. Stöðin FOX undirbýr þáttaröð sem ber nafnið ,,Will“ eða Erfðaskráin og gengur út á að fjölskyldu- meðlimir keppa sín á milli um arf sem auðugur ættingi eft- irlætur þeim. Á kapalstöðinni HBO er þáttaröðin ,,Cat- house“ í vinnslu, en þar var falinni myndavél komið fyrir í hóruhúsi í Nevada-fylki. Fylgst er með því þegar við- skiptavinir bera upp erindi sitt og óskir, fyrst við ,,afgreiðslu- borðið“ og svo við sjálfar vændiskonurnar, án þess þó að sjálf ,,viðskiptin“ séu sýnd. Samkvæmt upplýsingum HBO mega áhorfendur meðal annars hlakka til að fylgjast með vandræðalegum til- burðum 22 ára hreins sveins, hvers móðir var viðstödd samningaviðræðurnar, og fleira í þeim dúr. Þá er tekið fram að af þeim 50 aðilum sem ,,náðust“ á mynd í þessum vafasömu erindagjörðum, skrifuðu allir nema þrír upp á samþykki sitt fyrir að nota mætti efnið í sjónvarpsþátt- unum. Þannig virðist þrá Banda- ríkjamanna eftir því að komast í sjónvarp með sterkari öflum í tilveru þeirra. Það skal enginn segja manni að þetta fólk þrái svona heitt upp til hópa að láta niðurlægja sig. Auðvitað myndi flest af þessu fólki vilja koma fram í sjónvarpi við mun huggulegri aðstæður. En það langar samt svo mikið til að koma í sjónvarpinu að það læt- ur sig hafa þann hluta af leikn- um sem er niðurlægjandi, úr því ekkert annað býðst. Og fjöldinn allur af ungum konum bíður í röðum eftir því að komast að í þáttunum um Piparsveininn og ennþá fleiri horfa. Femínistar hafa klórað sér í hausnum yfir þessari staðreynd þungir á brún, enda séu kynhlutverkin sem þarna birtast til háborinnar skamm- ar. Og hvað sem manni kann að finnast um slíka gagnrýni – enda hljóti að vera í lagi að ,,leika“ sér með kynhlutverk í afþreyingarefni – þá virðist nokkuð ljóst að framleiðendur þáttanna (og þátttakendur) eru ekkert að grínast í gam- aldags afstöðu sinni til kynjanna. Þetta kemur fram þegar ,,kvenútgáfan“ af þátt- unum – Piparmeyjan – er kynnt til sögunnar, en innan skamms verður sýnd þáttaröð þar sem einhleyp kona velur úr hópi karla. Einhleypa kon- an sem þar um ræðir er til dæmis búin að gefa út opin- berar yfirlýsingar um að hún sé ekki drusla og þess háttar. Það þurfti piparsveinninn ekki að gera. NYT telur reyndar að þessi hugmynd eigi ekki alveg eftir að gera sig, enda sé miklu ,,samþykktara“ að karlar keppist um hylli konu en að konur keppist um hylli karls. Þar af leiðandi verði Pip- armeyjan með mun lægri nið- urlægingar-stuðul og þar af leiðandi mun minna áhorf. En piparsveinninn frá því nú á fimmtudagskvöld, Aaron, gerði það sem kollegi hans úr fyrri þáttaröðinni, Alex, treysti sér ekki til að gera; hann bað sinnar heittelskuðu. Hún játaðist honum á meðan tárin runnu niður kinnarnar á henni og um leið og sýningu þáttarins lauk héldu þau sam- an blaðamannafund í New York þar sem þau ræddu með- al annars um tilfinningar sín- ar. Reyndar höfðu þau ekki hist síðan í september (þegar bónorðið var borið upp), en frá því að vinnslu þáttanna lauk hafa þau alls ekki mátt hittast – ef einhver hefði séð þau sam- an hefði allt verið ónýtt. Þau eru bæði sannfærð um að þau hafi tekið heillavænlega ákvörðun og hlakka til að kynnast ,,utan þáttanna“. Sú sem lenti í ,,öðru sæti“ borðaði snakk á meðan hún horfði á þáttinn með vinkonum sínum á á hótelherbergi á Manhatt- an. Haft er eftir henni að hún sé ,,ennþá ástfangin af hon- um,“ en hún hafi ekki getað hugsað sér að vera með nein- um öðrum síðan ógæfan dundi yfir. Það er varla annað hægt en að taka ofan fyrir slíku snilldar sjónvarpsefni. 29 milljónir manna hafa varla á röngu að standa. Eða hvað? Birna Anna á sunnudegi Niðurlæging- in selur Morgunblaðið/Jóra bab@mbl.is Þ AÐ er víðar en hér á landi sem þess er minnst með eftir- minnilegum hætti að í ár eru 100 ár liðin frá fæðingu nóbelskálds okkar Íslendinga, Halldórs Lax- ness. Í New York var fyrir skömmu opnuð sérstök Lax- ness-sýning: Halldór Laxness: Skáld elds og íss, til þess að minnast þess að hundrað ár eru liðin frá fæðingu skáldsins, þar sem ljósmyndir og bókmenntatextar frá ferli skáldsins eiga að varpa ljósi á líf og störf þess. Það eru skrifstofa aðalræðismanns Íslands í New York og The American-Scandinavian Foundation sem í sameiningu eiga heiðurinn af þessari sýningu sem opnuð var með viðhöfn í Scandinavia House við Park Avenue 58 í lok síðasta mánaðar og mun hún standa til næstu áramóta. Sjálfstætt fólk, frægasta og vinsæl- asta bók Laxness í Bandaríkjunum, var gefin út á nýjan leik fyrir örfáum árum, en hún hafði mjög lengi ver- ið ófáanleg vestra. Eins og kunnugt er varð bókin Sjálfstætt fólk fyrst alþjóðlega þekkt þegar hún var valin í „Book-of-the-Month Club“ árið 1946. Daginn sem Laxness-sýningin var opnuð í Scandinavia House í New York voru íslenskir og bandarískir rithöfundar og fræðimenn sam- an komnir í þessu glæsilega húsi, ásamt fjölda ráðstefnugesta, í sal Viktors Borge, til þess að ræða verk skáldsins út frá ýmsum sjón- arhornum, hvort sem var íslenskri bókmennta- hefð eða spurningunni um það hvar Laxness raðaði sér í heimsbókmenntunum. Þau Pétur Már Ólafsson, frá Vöku-Helgafelli, George C. Schoolfield, pró-fessor emeritus frá Yale háskóla,Gerður Kristný Guðjónsdóttir rithöf- undur og Halldór Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Eddu – miðlunar og útgáfu, fluttu stutt framsöguerindi í fyrrihluta dag- skrárinnar, sem Ólafur Jóhann Ólafsson stýrði og var ætlað að vera fremur fræðilegs eðlis. Síðari hluti Laxness-dagskrárinnar var með óformlegra sniði, þar sem pallborðsþátttak- endur sátu og skiptust á skoðunum um skáldið, kvenpersónur hans, stíl, klæðaburð hans, áhrif hans á tískuna, lífsskoðanir hans og pólitík, auk þess sem spurningunni var velt upp hvort nób- elskáldið hefði verið hégómlegt og veikt fyrir skjalli hvers konar, en einhverjir töldu að upp- lýsingar um slíkt væru til í skjölum bæði frá leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA, og frá þeirri fyrrverandi sovésku, KGB. Umræðan í þessum hluta var þannig bæði á alvarlegum og gamansömum nótum. Þau sem tóku þátt í þessum hluta dag-skrárinnar voru Susanna Kaysen, höf-undur bókanna Girl, Interrupted ogFar Afield, Brad Leithauser skáld- sagnahöfundur og bókmenntagagnrýnandi og höfundur að kynningunni í Sjálfstæðu fólki, (nýju útgáfunni), Einar Kárason rithöfundur, Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur og Gerður Kristný Guðjónsdóttir rithöfundur og það var Örnólfur Thorsson sem leiddi þennan hluta dagskrárinnar. Það var kannski ekki svo ýkja margt sem kom á óvart í þessari ágætlega líflegu dagskrá, en þó hygg ég að ýmislegt kunni fremur að hafa vakið forvitni þeirra Bandaríkjamanna sem voru viðstaddir dagskrána en Íslendinganna. Brad Leithauser er sennilega einn ákaf-asti aðdáandi Laxness í gjörvöllumBandaríkjunum og þótt víðar væri leit-að. Hann skrifaði fræga grein í The New York Times Literary Review fyrir all- mörgum árum, sem nefndist The Book of My Life sem útleggst auðvitað Bók lífs míns, og engan skyldi undra að það var bókin Sjálfstætt fólk sem reyndist vera bók lífs hans. Það var Brad Leithauser og hluti af því sem hann hafði til málanna að leggja þetta síðdegi í New York, sem fékk mig til þess að hugsa hversu mjög það er dýrmætt fyrir okkur Ís- lendinga að menn eins og hann skuli taka ást- fóstri við nóbelskáldið okkar, því þeir taka sér það sannarlega fyrir hendur, að breiða út skáldskap hans, rétt eins og trúboðarnir breiða út fagnaðarerindið. Brad sagði frá því að hann ætti alltaf 15 til 20 eintök af Sjálfstæðu fólki á heimili sínu og þeg- ar hann fengi gesti sem hann teldi að gætu ver- ið móttækilegir fyrir Laxness og skáldskap hans leysti hann þessa gesti sína gjarnan út með bókargjöf og þeir hyrfu á braut með eintak af Sjálfstæðu fólki undir handleggnum! Er þetta ekki frábært! Mér finnst í raun að maður eins ogBrad ætti bara þegar í stað að fáfálkaorðuna.Hann sagði gestum einnig frá því að hann hefði hitt Halldór Laxness fyrir nokkrum árum, í einni af mörgum Íslands- heimsóknum sínum – mig minnir að það hafi verið 1995. Hann sagði að skáldinu hafi talsvert verið farið að förlast þegar þetta var, en engu að síður hafi þeir átt ánægjulegan fund. Hann kvaðst hafa sagt Halldóri Laxness frá því að hann ætti alltaf tiltekinn fjölda af bókum hans heima hjá sér og hann leysti síðan gesti sína út með gjöfum. Við þá frásögn hans hafi andlit skáldsins ljómað af gleði og hann því glaðst að sama skapi. Það var sérdeilis ánægjulegt að eyða dags- stund þarna í Scandinavia House, í þessum glæsilega sal sem heitir í höfuðið á Viktor Borge, og hlýða á þessar umræður til heiðurs minningu nóbelskáldsins okkar. Til gamans má geta þess hér, að Viktor Borge gaf eina milljón dollara þegar verið var að gera salinn og fyrir vikið fékk hann að velja sér sæti – eitt sæti, sem er honum merkt. Það sést hins vegar alls staðar að úr salnum, hvaða sæti Borge á, því hans sæti er hið eina með rauðu áklæði – öll önnur eru með bláu áklæði. Svo er það líka framarlega til vinstri, og mér var sögð sú saga, að hann hefði valið einmitt þetta sæti, því þaðan sást hvað best á hendur píanóleikarans uppi á sviði! Þeir sem eiga leið um New York fram til ára- móta, væru alls ekki sviknir af því að heim- sækja þessa fallegu, sameiginlegu menningar- miðstöð Norðurlanda, sem má með sanni lýsa sem stolti Norðurlandanna í New York og bregða sér um leið á Laxness-sýningu. Á alltaf 20 eintök af Sjálfstæðu fólki til að gefa Brad Leithauser, rit- höfundur og bók- menntagagnrýnandi, einn ákafasti aðdáandi Laxness í gjörvöllum Bandaríkjunum. AF LISTUM Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is Morgunblaðið/Agnes Bragadóttir Magnús Bjarnason, aðalræðismaður ræðisskrifstofunnar í New York, í ræðustól í sal Viktors Borge.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.