Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 56
FÓLK Í FRÉTTUM 56 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í skugga styrjalda Ljósmyndasýning Þorkels Þorkelssonar stendur yfir í Listasafni ASÍ við Freyjugötu. Á sýningunni eru myndir frá Palestínu og Ísrael sem teknar voru síðastliðið vor ásamt myndum frá ýmsum löndum. Sýningin er liður í verkefni þar sem lýst er lífi fólks sem býr við erfiðar að stæður víða um heim. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18. Sýningin stendur til 8. desember. Eftirtöldum aðilum er þakkaður stuðningurinn: Flugfélagið Atlanta, Rauði kross Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar, BECO Ljósmyndaverslun, ASÍ, Efling, VR, Morgunblaðið. MIKIÐ hefur verið fjallaðað undanförnu um nýjabreiðskífu Bubba Morthens, Sól að morgni. Platan hefur fengið góða dóma, verið mikið spiluð og selst bráðvel, bet- ur en síðustu plötur hans. Margur hefur haft á orði að Bubbi sé að snúa aftur í sviðsljósið og gleymir þá að hann hefur aldrei farið þótt kannski hafi borið meira á öðrum um tíma. Í umfjöllun um Sól að morgni hafa ekki margir haft orð á því sem þeir heyra vel sem gerst þekkja Bubba og tónlistina sem hann hefur hlustað á í gegnum ár- in, þeir sem fóru kannski álíka leið að mörgu leyti, ólust upp við svipaða tónlist. Því má nefnilega halda fram með nokkrum rökum að platan hans Bubba sé drög að tónlistarlegri sjálfsævisögu hans, á henni er að finna alla þá strauma sem mótuðu hann sem tónlistarmann nema blúsinn, eins og hann felst fúslega á þegar það er borið upp við hann; hann hafi vissulega verið að vísa í gamla tíma á Sól að morgni, en blúsinn fái sérskífu síðar. Gömul minning „Kveikjan að þessari plötu, eða blænum á henni, er gömul minn- ing af Heart of Gold,“ segir Bubbi og verður dreyminn á svipinn er hann hverfur aftur í tímann í hug- anum. „Einn dag sumarið 1972 vaknaði ég heima í Vogunum við að þeir Tolli og Hermann komu inn í herbergi til mín í góðum gír, báðir á leið til Kristjanníu. Ég kveikti á útvarpinu áður en ég fór á fætur en það var ég búinn að festa á Radio Luxembourg með tíeyringi, og heyrði byrjunina á lagi, takt og svo munnhörpu og hugsaði „Nei, nýtt Dylan lag“, en þá kom þessi skrýtna rödd – og viðlagið, „Keeps Me Searching for a Heart of Gold“; frábært lag á björtum sólardegi. Mig langaði að fanga þá stemningu þegar ég fór að hugsa um nýja plötu í vor. Það má því segja að ég hafi byrjað með Neil Young og svo komu þeir hinir sem ég hlustaði á á sínum tíma og höfðu afgerandi áhrif á mig sem tónlistarmann, Cat Stevens, Bob Dylan og fleiri og allra þeirra minnist ég í lögum á plötunni. En það voru fleiri, það var meira sem hafði áhrif á mig, eitt fyrsta lagið sem heillaði mig fyrir það hve djöfulleg spenna var í því var „Sympathy for the Dev- il“, en það lag og „Paint it Black“ er það besta sem Stones gerðu. Í hverju einasta lagi á Sól að morgni er ég með eitthvað, tón eða tilvísun. Þannig er lagið „Við tveir“ með sterkan Cat Stevens- blæ, Hún sefur er tilvitnun í Revolver-plötu Bítlanna, „Fyrir löngu síðan“ vitnar í Bob Dylan og svo framvegis. Ég er ekki að stæla eða stela, ég er bara að votta virðingu mína og þakka fyr- ir mig,“ segir Bubbi. Fleira er nýstárlegt við Sól að morgni en vísanir í aðra tónlist- armenn, því Bubbi stýrði sjálfur upptökum á henni, í fyrsta sinn sem hann gerir slíkt, og það af slíkum krafti að platan var tekin upp og hljóðblönduð á 73 tímum sem er óhemju skammur tími. „Það var ekki síst tilvísun í gamla tíma, því þetta gerðu menn á ár- um áður, voru innan við viku að taka upp og hljóðblanda plötu og gáfu út tvær og þrjár plötur á ári,“ segir Bubbi og hlær við. „Það er búið að spila tónlistina sem ég er að fást við 20.000 sinn- um en ég spila hana á minn máta og af heiðarleika. Ég vissi að ég myndi aldrei ná þessum blæ, nema með því að taka plötuna upp á svo skömmum tíma; var hræddur um að ef við færum að liggja yfir henni myndum við fara að hlaða ofan á og hæta við.“ Bubbi segist hafa byrjað með fjörutíu laga bunka sem hann tálgaði niður í tuttugu og níu lög, þá í fimmtán sem hann tók upp prufur af og valdi loks úr. „Ég ákvað að geyma mikið af góðum lögum, enda vildi ég ná fram ákveðinni stemningu á plötunni, sýna á henni þrjár hliðar. Fyrst gleðina yfir að vera edrú, að eiga börn og konu sem þraukað hefði í sextán ár með mér í gegnum súrt og sætt. Þá er tilvísun í neysluna hjá mér í laginu „Þar sem gems- arnir aldrei þagna“. Loks er það svo fyrirgefningin í „Skjól hjá mér þú átt“, sem er líka upphaf að nýju lífi, og þótt „Sálmurinn“ sé um dauðann er hann óður til lífsins og vonarinnar.“ Eitt lag sker sig svolítið úr textalega, „Elliðaárþulan“, sem Bubbi segir að hafi fengið að fljóta með fyrir bítlakennda og gamaldags laglínuna. „Textinn passar kannski ekki inn í við fyrstu sýn, en hann á þó heima á plötunni fyrir það að hann segir frá horfnum heimi, eða heimi sem er að hverfa,“ segir Bubbi og heldur áfram að spá í stök lög, nú mótmælasöngvana; „Fyrir löngu síðan“, „Hvað kemur mér það við“ og „Þá verður gaman að lifa“. „Ég á nóg af predikunartextum en valdi þessa þrjá vegna þess að þeir eru allir lausir við reiði, laus- ir við „Ég veit betur“ yfirlýs- ingar. „Þá verður gaman að lifa“ er þannig írónískur fyrst og fremst, en „Hvað kemur mér það við“ hlutlaus skoðun á sjálfum mér og samfélaginu. „Fyrir löngu síðan“ finnst mér svo vera besti mótmælatexti sem ég hef gert, enda er ekki neinn einn litur í gegnum textann, ég er að taka fyrir þá hræðilegu hugsun þegar leið- togarnir segja „Við erum að gera þetta í þjóðarhag“. Stalín drap þrjátíu millj- ónir í þjóðarhag, Hitler var að gera það sama og Bush er að fara í stríð í þjóð- arhag.“ Óður til gleðinnar Bubbi er jafnan með mörg járn í eld- inum, segist vera með fleiri en eina plötu í huga þó að þessi sé rétt komin út. „Fyrst er það blúsplata, plata með órafmögnuðum blús sem mig langar að gera með Guðmundi Péturssyni. Svo er það barnaplata, mig langar til að fá fé- laga mína í Stríði og friði til að gera með mér, plötu sem væri góð fyrir börn, sem horfir upp til barnanna. Svo er það jólaplata, plata með gömlum viki- vökum og skrímsla- kvæðum sem hefur verið lengi í smíð- um. Síðan er það platan með lögum við ljóð eftir Matth- ías Johannessen, ég er byrjaður að semja við hana og langar til að taka hana upp á næsta ári sem eins konar hliðarverkefni. Það eru nokkur ljóð eftir Matthías sem ég losna ekki við úr höfðinu, tíu eða tólf ljóð sem mig langar til að semja lög við og taka upp.“ Aðalmálið er samt platan nýja, sem Bubbi segist yfirmáta ánægð- ur með, ekki síst hvernig honum finnst sér hafa tekist að skipa lög- um á hana þannig að hún vísi í það sem hafði mest áhrif á hann sem ungan mann, „en á sama tíma get ég sagt: svona er líf mitt, þetta er gleði mín, þetta er óður til gleðinnar.“ Óður til gleðinnar Langt er síðan breiðskífu með Bubba Morthens hefur verið eins vel tekið og Sól að morgni, sem kom út fyrir stuttu. Árni Matthíasson ræddi við Bubba um hinar fjölmörgu tilvísanir sem er að finna á skífunni. Því má halda fram með nokkrum rökum að platan hans Bubba sé drög að tónlistarlegri sjálfsævisögu hans, á henni er að finna alla þá strauma sem mót- uðu hann sem tónlistarmann nema blúsinn. Morgunblaðið/Golli ATVINNA mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.