Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 44
MINNINGAR 44 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Héðinn OlgeirJónsson fæddist í Reykjavík 17. janúar 1929. Hann lést á líknardeild Landspít- ala á Landakoti 17. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Jón Bach Jónasson frá Hrúts- stöðum í Flóa, f. 23.10. 1874, d. 24.12. 1958, og Jónína Jóns- dóttir frá Garði, f. 27.10. 1888, d. 30.1. 1960. Systkini Héðins voru Olga Atlanta Jónsdóttir, f. 13.8. 1908, d. 23.7. 1983, og Jón Marinó Jónsson, f. 29.3. 1911, d. 25.5. 1978. Hinn 25. maí 1956 kvæntist Héðinn Kristjönu Lilju Kristins- dóttur frá Reykjavík, f. 1.10. 1929. Foreldrar hennar voru Kristinn Guðmundur Guðbjartsson frá Sléttu í Aðalvík, f. 11.9. 1895, d. 16.5. 1958, og Salvör Gissurar- dóttir frá Hvoli í Ölfusi, f. 25.5. 1905, d. 2.2. 1937. Börn Héðins og Lilju eru: 1) Kristinn Guðbjartur, f. 11.11. 1953, maki Ingveldur Ein- arsdóttir, f. 11.11. 1961. 2) Salvör Kristín, f. 9.1. 1957, maki Ingþór Pétur Þorvaldsson, f. 6.1. 1960. Börn Salvarar eru: Kristjana Lilja, f. 28.11. 1976, maki Sabri Einar, f. 4.9. 1975, barn þeirra er Lilja Andrea, f. 29.3. 2002, Héðinn Grétar, f. 14.6. 1979, sam- býliskona Eva Dögg Jóhannesdóttir, f. 14.3. 1980, Sara Yvonne, f. 16.7. 1990. 3) Lilja Jónína, f. 29.11. 1958, börn Lilju eru: Olga Krist- ín, f. 7.12. 1983, Egill Axfjörð, f. 26.1. 1987, Atli Axfjörð, f. 9.4. 1988. 4) Sigrún Eir, f. 6.10. 1967, maki Karl-Johan Brune, f. 29.3. 1967, börn þeirra eru: Jón Ingvar, f. 4.4. 1989, og Mikael Uni, f. 10.5. 1996. Héðinn sleit barnsskónum í Vesturbænum, var í Landakots- skóla og tók gagnfræðapróf í Ingi- marsskóla. Síðan lá leið hans í Iðn- skólann í Reykjavík þar sem hann lauk prófi sem húsamálari sem hann vann við í nokkur ár. Í fram- haldi af því fór hann til Bandaríkj- anna þar sem hann lærði bílamál- un sem hann vann við mesta hluta sinnar starfsævi. Héðinn var veiðiáhugamaður mikill og vann á sumrin frá 1974–1983 sem leið- sögumaður í Laxá í Dölum. Útför Héðins fer fram frá Graf- arvogskirkju á morgun, mánu- daginn 25. nóvember, og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Elsku pabbi minn. Ég kveð þig með miklum trega. Hér er svo dapurt inni, ó, elsku pabbi minn, ég kem að kistu þinni og kveð þig í hinsta sinn. Mér falla tár af trega en treginn ljúfsár er – svo undur innilega þau einmitt fróa mér. Ég þakka fræðslu þína um það, sem dugar best, er hjálpráð heimsins dvína og huggað getur mest. Þú gekkst með Guði einum og Guði vannst þitt starf, hið sama af huga hreinum ég hljóta vil í arf. Nú ertu farinn frá mér, en föðurráðin þín, þau eru ávallt hjá mér og óma blítt til mín: Guðs orðum áttu að trúa og ávallt hlýða þeim, það mun þér blessun búa og ber þig öruggt heim. (B.J.) Megi Guð veita okkur öllum styrk á þessari erfiðu stund. Með sárum söknuði. Þín pabbastelpa Sigrún Eir. Þegar minn undurkæri faðir svo sem hann var mér alla tíð er kvaddur sækja að huganum ótal dýrmætar minningar. Mér var það ætíð ljóst hve honum þótti vænt um mig og bar fyrir mér mikla umhyggju allt frá bernskuárum til hins síðasta. Það fannst best á þeirri einstöku hlýju og skilningi sem hann ávallt auðsýndi mér. Hann var skapríkur maður en jafn- framt tilfinninganæmur og þegar honum þótti ég þver gerði hann að því góðlátlegt grín, enda var hann fund- vís á það skoplega í tilverunni, eigandi svo létta lund. Hann var mikill og góður verkmað- ur að hverju sem hann gekk. Hann var lærður húsamálari og fór svo til Bandaríkjanna og lærði þar bílamálun og stundaði svo hvort tveggja af alúð og mikilli vandvirkni, allt þar til hann fékk heilablóðfall, að- eins 54ra ára að aldri. Eftir það vann hann þó eins og get- an frekast leyfði, því nægur var starfsviljinn. Það var honum mikið lífslán að komast í kynni við tölvuna og alla þá möguleika sem hún gefur. Við tölv- urnar sínar átti hann góðar stundir allt til hins síðasta en ég hygg að hann hafi átt einar fjórar tölvur. Þetta gaf honum afar mikið. Þakklátum huga er hann kvaddur, einlægar þakkir fyrir óteljandi góðar stundir sem ég átti með honum, hjart- ans þakkir fyrir alla elsku í minn garð ævinlega. Blessuð sé hans kæra minning. Kristinn Guðmundsson. Kvaddur er í dag hinstu kveðju kær tengdafaðir minn. Fyrstu kynni mín af honum eru frá árinu 1989 er hann og tengdamamma komu út til Noregs að „sækja“ dóttur sína, konu mína, og æ síðan var hið besta sam- band milli okkar, því hann var góður tengdafaðir og umhyggjusamur um hag fjölskyldu minnar. Gjarnan var slegið á létta strengi okkar á milli, enda var húmorinn í lagi hjá honum alla tíð. Veiðiáhugi hans var mikill enda var hann um árabil leiðsögumaður veiði- manna á sumrin við Laxá í Dölum. Það var aldeilis gaman að því, þegar hann dró fram ljósmyndaalbúmin sín og sýndi okkur myndir af öllu fræga fólkinu sem hann hafði haft góð kynni af. Og ekki má gleyma kynnum hans af tölvutækninni sem sannarlega voru honum dýrmæt og gefandi. En kærastur er hann mér fyrir alla þá aðstoð og ástúð sem hann sýndi okkur hjónunum og börnum okkar og hversu duglegur hann var að gæta þeirra á árum áður. Við hjónin bjugg- um reyndar hjá þeim tengdamömmu fyrsta árið og sú sambúð var alltaf eins og best varð á kosið. Hann tengdapabbi varð fyrir þung- bæru áfalli á besta aldri, en hann hélt lífsgleði sinni og léttu skapi alla tíð. Ég flyt honum einlægar þakkir fyr- ir samfylgdina og allar góðu stund- irnar sem við áttum saman. Honum fylgir hin hlýjasta þökk fyrir allt sem hann var mér og mínum. Blessuð sé mæt minning hans. Karl-Johan Brune. Elsku afi. Við kveðjum þig og eig- um eftir að sakna þín svo sárt, en við vitum að þú hefur það miklu betra núna, því þú varst orðinn svo mikið veikur, en núna ertu engill sem vakir yfir okkur og passar okkur. Þið amma voruð svo dugleg að passa okkur allt- af og alltaf fengum við paló brjóstsyk- ur, póló eða suðursúkkulaði hjá ykk- ur. Geymum við þessar minningar ásamt mörgum öðrum í hjarta okkar alla tíð. Afi, viltu hlusta á lítið kveðjuljóð frá litla drengnum þínum. Þó héðan burt þú haldir á himins bjarta slóð, í huga býrðu mínum. Og skal ég biðja frelsarann ljúfa að leiða þig til landsins, hinum megin. Hann börnin litlu elskar og bænheyrir því mig. Hann besta ratar veginn. Þó klökk sé kveðjustundin og sorgarnóttin svört og söltum tárum grátið, á lífsins fagra landi vor bíður framtíð björt, því blítt nú huggast látið. (G. Ólafsson.) Guð geymi þig, elsku afi. Jón Ingvar og Mikael Uni. Elsku afi. Það var mjög gaman að þekkja þig og það sakna þín allir, og við vitum að þú ert núna á betri stað þar sem þér líður vel og ert hjá fjöl- skyldunni þinni. Við eigum alltaf eftir að muna eftir hvað þú varst góður við okkur öll og húmorinn þinn var bráð- smitandi. Alltaf varstu frábær við okkur og svo var líka sérstaklega gaman að horfa á sjónvarpið hjá þér því að þú varst svo duglegur að lauma að manni brjóstsykri. Við vitum líka að þú vakir yfir okkur og passar að allt sé í lagi hjá okkur. Svo var líka sérstök stemmning hjá þér á morgn- ana þegar maður vaknaði og fór inn í eldhús og kom þar að þér að lesa dag- blöð. Það var líka gaman þegar maður kom í heimsókn og þú fannst alltaf eitthvað til þess að spjalla um, hvort sem það voru veiðiferðir með Neil Armstrong eða það nýjasta í tölvuiðn- aðinum, og síðan flest annað milli himins og jarðar. Mikið hefði samt verið gaman ef þú og litla barnið hefðuð fengið að hittast en við vitum að þú átt eftir að líta nið- ur til okkar og kíkja á hana þegar hún fæðist. Við trúum því að við eigum eftir að hitta þig aftur, elsku afi, en þangað til langar okkur að kveðja þig með þess- um orðum; Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði er frá. (V. Briem.) Við elskum þig og söknum þín mik- ið. Þín barnabörn Olga, Egill og Atli. Elsku afi. Mikið þykir okkur leitt, að geta ekki verið viðstödd útför þína, til þess að kveðja þig í hinsta sinn. En við erum á Íslandi í huganum og fylgj- um þér. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur og verið okkur. Megi Guð geyma þig og vaka yfir þér. Hinstu kveðjur. Kristjana, Sabri og Lilja Andrea. Nú er elsku afi minn dáinn, og ég á eftir að sakna hans mikið. Þótt ég hafi búið í Noregi mestan hluta af lífi mínu á ég samt margar minningar um þig sem ég mun alltaf geyma í hjarta mínu. Ég veit að þér líður vel núna og ert orðinn engill hjá Guði. Mig langar svo að skrifa minningargrein um þig en ég kann það ekki, svo að ég ætla í staðinn að kveðja þig með fallegu ljóði sem ég sá: Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ég elska þig, afi. Kveðja. Sara-Yvonne. HÉÐINN JÓNSSON Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURÐAR SIGURGEIRSSONAR húsasmíðameistara, Hverfisgötu 42, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans Kópavogi og Heimahlynningar Krabbameinsfélagsins. Guð blessi ykkur öll. Jenný Karla Jensdóttir, Elísabet Sigurðardóttir, Guðjón Guðmundsson, Ingibjörg Sigurðardóttir, Jón Gunnar Baldursson, Jenný Rut Sigurgeirsdóttir, Stein Simonsen, Sigurður Guðjónsson, Guðrún Kamilla Sigurðardóttir, Selma Jónsdóttir, Magnús Jónsson. Hjartans þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð og vinarþel við andlát og útför ástkærs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR Þ. SIGURÐSSONAR, Hjöllum 15, Patreksfirði. Hrönn Vagnsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Skúli Berg, Sigurður Pétur Guðmundsson, María Petrína Berg, Margrét Guðmundsdóttir, Vignir Bjarni Guðmundsson, Þorbjörn Guðmundsson og barnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegr- ar frænku okkar og uppeldissystur, GUÐRÚNAR MARGRÉTAR ÁRNADÓTTUR, Seljahlíð, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á hjúkrunarheimilinu í Seljahlíð fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Ólafur Örn Árnason, Ásta Árnadóttir, Sigrún Árnadóttir, Sigríður Árnadóttir. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS SIGURÐSSONAR fyrrverandi kaupmanns í Straumnesi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu í Skógarbæ fyrir góða umönnun. Kristín Sigtryggsdóttir, Sigtryggur Jónsson, Lína Margrét Þórðardóttir, Sigurður Jónsson, Jófríður Halldórsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Róbert Melax, Ágústa Jónsdóttir, Helgi Baldvinsson, Steingrímur Jónsson, Ásta Davíðsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginkona mín, móðir mín og amma okkar, NÍNA HEIÐRÚN JÓNSDÓTTIR, frá Seyðisfirði, Sævangi 24, Hafnarfirði, sem lést föstudaginn 15. nóvember sl., verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju á morgun, mánu- daginn 25. nóvember, kl.13.30. Trausti Hólm Jónasson, Inga Jóna Traustadóttir, Trausti Rúnar Egilsson, Sigurður Benedikt Egilsson, Berglind Ósk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.