Morgunblaðið - 24.11.2002, Page 35

Morgunblaðið - 24.11.2002, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 35 ÁDÖGUNUM átti ég er-indi til Brussel. Á flugifrá Kaupmannahöfnnaut góðs skyggnis ogútsýnis yfir stóran hluta Norður-Evrópu. Mér varð hugsað til landafundasögu Guðmundar Kamb- ans, Vítt sé ég land og fagurt. Afar þéttbýlt svæði blasti við, baðað í sólskini. Þetta var Evró- land. Landnýting- in var augljóslega gríðarleg. Efnum hlaðinn jarðvegur- inn kreisti úr sér jarðargróður í ýms- um litum, verksmiðjur spúðu mis- hreinsuðu eitri, hraðbrautir og járn- brautir tengdu saman bólgnandi borgir fullar af vaxandi fyrirtækjum að renna saman við önnur fyrirtæki og vaðandi í evrum á sífellt stækkandi markaði með sífellt færri aðilum. Ég hef stundum verið að reyna að mynda mér einhverja sæmilega ígrundaða afstöðu til Evrópusam- bandsins en jafnoft gefist upp. Ég er víst ekki einn um að velkjast í vafa, ef marka má þau sundurlausu drög að umræðu um þessi mál sem skjóta upp kollinum annað veifið. Margir halda því fram að við Ís- lendingar séum hvort eð er nauð- beygðir til að lúta Brusselvaldinu og því sé tvímælalaust til bóta að eiga þó formlega aðild að því sem þar fer fram. Þetta er nokkuð skynsamlegt í sjálfu sér, en hvað merkir þetta í raun? Með aðildinni að EES njótum við margs þess sem ES hefur að bjóða og verðum í staðinn að lúta margháttuð- um reglugerðum sem þaðan koma. En við ráðum þó að minnsta kosti ferðinni í okkar málum og innlend stjórnvöld hafa óskorað vald yfir til dæmis fiskimiðunum og hálendinu, góðu og illu heilli. Meðan svo er höf- um við eitthvað að bjóða sem aðrir ásælast. Nokkuð ljóst má telja að ef Ísland gerðist aðili að ES yrði það tæpast á einhverjum sérkjörum. Það myndi skapa einkennilegt fordæmi og vera auk þess sem blaut Evrópustaðal- tuska í andlitið á hinum meðlimunum. Því er líklegt að það sem við kunnum að hafa að bjóða nú yrði þarmeð evr- ópsk sameign og ráðstafað sam- kvæmt því. Í sumum tilfellum gætu minni völd íslenskra ráðamanna auðvitað virst hin mesta guðsblessun. Ég er til dæmis ekki viss um að evrópskum ráðamönnum þætti vit í að greiða það verð sem sumir Austfirðingar hafa nú sett upp fyrir atkvæði sín. Á hinn bóginn er ekki ljóst hve mikinn áhuga og skilning Evrópustjórarnir hefðu til að mynda á stuðningi við íslenska menningu. Svo eru það rökin um peningana. Um kostnað okkar við aðild og fjár- veitingarnar frá Brussel. Þar reikna menn sig austur og vestur allt eftir því hvaða útkomu menn vilja, svo ekki er vænlegt að mynda sér skoðun á þeim grundvelli. Þar fyrir utan er það mikið vafamál í mínum huga, hvort rétt er að byggja skoðanir varð- andi framtíðarstöðu Íslands, með til- liti til sjálfræðis, einvörðungu á fjár- hagslegum forsendum. Slíkt er þó vissulega í fullu samræmi við taum- lausa efnishyggju samtímans. Ég er helst á því að í þessu sam- hengi sé hollt að horfa til sögunnar. Saga Evrópu er ekki beinlínis saga af kærleiksríku heimili, þar sem sam- heldni, samvinna og gagnvæmur skilningur eru leiðarstefin. Hún er þvert á móti tvö þúsund ára saga af linnulitlum átökum milli margra þjóða, þar sem hver hefur sín sér- kenni, sitt tungumál og sína menn- ingu, þótt vitaskuld sé þar margt líkt, enda margar þjóðirnar mótaðar af áþekku umhverfi og lífsskilyrðum. Í Bandaríkjunum er allt annað upp á teningnum en í Evrópu, enda þótt að mestu leyti sé þar um afleggjara Evrópuþjóða að ræða. Saga Banda- ríkjanna er stutt og tilurð þeirra byggist á hinni sammannlegu þrá eft- ir lífsgæðum. Evrópumenn af ólíkum uppruna héldu á slóðir sem þeim voru öllum jafnókunnar, hrifsuðu landið úr höndum frumbyggjanna og margir nýttu vinnuafl afrískra þræla til að komast í álnir. ES hefur líkt og Bandaríkin vissu- lega myndast á grundvelli eftirsóknar eftir auknum lífsgæðum, en óljósara er frá hverjum á að taka þau og hverjir eiga að vinna skítverkin. Samstarf og samvinna eru góð og gild. Samruni er annað. Haldi menn að fámenn eyþjóð komi til með að hafa verulegt vægi sem hluti af millj- ónasamfélagi ES er rétt að þeir spyrji sig fyrst um áhrif sveitar- stjórnarmanna á fámennum stað á landsbyggðinni á stjórn landsins. Úr flugvélinni á leið heim frá meg- inlandinu blöstu víðerni Íslands við mér, ennþá víð, ennþá fögur. Ennþá höfum við eitthvað sem aðrir ásælast. Ennþá. Evróland: Þröngt sé ég land og magurt HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson tundra@vortex Sérhæfðir sölumenn í atvinnuhúsnæði! FRANZ@holl.is Hóll — Alltaf rífandi salaAGUST@holl.is FJÖLDI EIGNA TIL SÖLU OG LEIGU! Ekki hika við að hringja í okkur félagana, Franz, gsm 893 4284, Ágúst gsm, 894 7230. Cranberry FRÁ Þvagvandamál H á g æ ð a fra m le ið sla A ll ta f ó d ýr ir FRÍHÖFNIN -fyrir útlitið Opið hús Skipholt 7 - lúxusíbúð Í einkasölu, stórglæsileg 2ja herbergja 58,7 fm íbúð á 3. hæð í litlu fjölbýlishúsi. Mjög falleg innrétting í eldhúsi, góð stofa með hurð út á stórar svalir er snúa í suður. Stórt svefnherbegi með góðum skápum. Baðherbergi með sturtu, flísalagt í hólf og gólf. Gólfefni íbúðar er parket og flísar. Sameign hreint til fyrirmyndar, hús klætt að utan. Sérstæði bak við hús. Áhv. 6,2 m. V. 10,5 m. Magnús verður með heitt á könnunni í dag milli kl. 14-16. KAMBSVEGUR 6 5 herb. hæð með bílskúr Opið hús í dag kl. 14-17 Erum með í einkasölu sérstak- lega fallega og mikið endurnýj- aða 5 herbergja hæð í góðu þrí- býli á þessum vinsæla stað. Gott hol, rúmgóð stofa, borðstofa, eldhús, endurnýjað baðherbergi, 3 svefnherbergi og þvottaher- bergi. Góður 28 fm bílskúr. Fal- legur garður. Þak er nýlegt. Ásett verð 16,4 millj. LAUS STRAX. Verið velkomin. GRANASKJÓL 21 OPIÐ HÚS - MILLI KL. 14 OG 17 Í DAG Falleg sérhæð í tvíbýlishúsi á rólegum stað í vesturbæ. Tvennar góðar svalir, sérgarður og stórt gróðurhús. Hæðin sjálf er 111 fm, m.a. 2 saml. stofur, snyrting og gott baðherbergi, auk sameignar með aukainngangi og stóru, góðu þvottahúsi. Bílskúr 34,9 fm með vatni og rafmagni ásamt geymslu. Verð 18,9 millj. Suðurlandsbraut 54, við Faxafen, 108 Reykjavík. Sími 568 2444, fax 568 2446. Grundartangi 34 - Mosfellsbæ Fallegt 80,1 fm raðhús á rólegum stað í Mosfellsbæ. 2 svefnherb, fallegt eldhús m. mahóní innrétt- ingu, stór stofa, baðherbergi með kari og sérþvottahús. Eikarparket og flísar á gólfum. Sérlega fallegur garður í suður. Fallegt og gróið hverfi. Húsið er til sýnis í dag á milli kl. 12 og 15. Uppl. gefur Katrín í síma 566 7185. Verð kr. 12,9 millj. Sími 585 8080 - Fax: 586 8081 - www.fastmos.is Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali. Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali F A S T E I G N A S A L A SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK SÍMI 533 1616 FAX 533 1617 RAUÐAGERÐI 52 - MEÐ BÍLSKÚR OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-17 Góð ca 110 fm miðhæð ásamt 20 fm herbergi í kjallara svo og 40 fm jeppa- bílskúr. Áhv. góð langtímalán ca 10,2 millj. Laus fljótlega. Verð 16,5 millj. KRISTÍN OG GUÐBRANDUR SÝNA EIGNINA Í DAG MILLI KL. 14 OG 17. OPIÐ Á LUNDI Í DAG Á MILLI KL. 12 OG 14

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.