Morgunblaðið - 24.11.2002, Blaðsíða 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 43
✝ Olufine K. Thor-sen fæddist í Dale
í Sundfjord í Noregi
27. desember 1934.
Hún lést á Palma
Mallorca á Spáni 27.
október síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Arndís Kristín
húsmóðir og Konråd
Thorsen, sjómaður og
síðar verkamaður.
Olufine giftist 2.10.
1956 Birgi Helgasyni,
organista og söng-
kennara á Akureyri,
f. 22.7. 1934. Þau slitu
samvistir 1978. Börn þeirra eru: 1)
Frumburðurinn dó í fæðingu, 2)
Konráð Jón, f. 1.4. 1958, búsettur á
Akureyri. Hann á fjögur börn, þau
eru: Birgir Óli, f. 12.9. 1984, Jóna
Margrét, f. 10.4. 1985, Sindri Snær,
f. 24.3. 1996, og Lovísa Ösp, f. 16.9.
2001 3) Jóhanna Kristín, f. 31.1.
1962, búsett á Akureyri. Börn
hennar eru þríburarnir Birgitta
Elín, Hanna María og
Fannar Hólm, f. 29.6.
1985. 4) Guðbjörg
Margrét, f. 14.12.
1968, maki Steinþór
Wendel Birgisson, f.
9.2. 1965. Þau eiga
fimm börn, þau eru:
Ólöf Anna, f. 5.3.
1987, dáin sama dag,
Birgir Wendel, f.
14.9. 1988, Steinþór
Wendel, f. 22.6. 1991,
Ólíver Þór Wendel, f.
24.2. 1996, og Jón
Karl Wendel, f. 18.12.
2000. Þau eru búsett
á Árskógströnd.
Olufine lærði barnahjúkrun í
Noregi. Hún kom til Íslands til að
vinna á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri 1955. Hún ætlaði að vera
hér í eitt ár, en kynntist þá Birgi.
Útför Olufine var gerð frá
Höfðakapellu á Akureyri 8. nóv-
ember, í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Mig langar með þessum stuttu
orðum að minnast vinkonu minnar
Olufínu sem lést á Palma á Spáni
eftir erfið veikindi. Hún var í
skemmtiferð með vini sínum, þegar
þessi veikindi herjuðu á hana.
Ferðin var svo til á enda þegar hún
fékk hjartaáfall. Allir vinirnir fóru
heim, en Olufína gekkst undir erf-
iða hjartaaðgerð á sjúkrahúsi á
Spáni. Frá Íslandi var kominn
tengdasonur hennar, Steinþór
Wendel, sem hjúkraði og sinnti
henni þar á fjórðu viku, þar til yfir
lauk. Heilbrigðisþjónustan á Spáni
er ekki eins og við eigum að venj-
ast hér á landi. Þar er ætlast til að
ættingjar komi meira að aðhlynn-
ingu en hér.
Ég kynntist Olufinu, eða Fínu
eins og við kölluðum hana, 1983
þegar ég kyntist Guggu dóttur
hennar. Þá bjuggu þær mæðgur
tvær í Skarðshlíðinni á Akureyri.
Þetta hefur áreiðanlega verið erf-
iður tími hjá Fínu, vegna þess að
við vorum erfiðar á unglingsárun-
um og mjög svo leiðinlegar við
hana á þessum tíma, það er að
segja við gerðum það sem okkur
sýndist. Þetta sér maður í dag.
Enda sagði hún við mig þegar ég
var orðin fullorðin og vaxin uppúr
gelgjunni að hún vonaði það heitt
og innilega að börnin okkar yrðu
betri en við hefðum verið, og bætti
við að það væri nú samt gaman að
sjá hvað hefði ræst úr okkur.
Fína var mjög góð heim að sækja
og átti alltaf snyrtilegt heimili. Hún
var einnig mjög myndarleg í hönd-
unum. Mér eru sérstaklega minn-
isstæðar fallegu norsku peysurnar
sem hún prjónaði á barnabörnin.
Við áttum margar skemmtilegar
stundir saman, alltaf var til kaffi á
könnunni og svo bakaði hún alveg
frábært brauð sem hún sagði að við
værum bara þrjú sem fyndist þetta
svona gott, það er að segja henni,
Birgi dóttursyni hennar og mér.
Það er mér þó sérstaklega minn-
isstætt þegar ég fór að heimsækja
hana suður á Stokkseyri. Í litla
húsið sem hún hafði þar á leigu. Þá
var Fína að vinna við aðhlynningu
á Kumbaravogi sem er dvalarheim-
ili aldraðra. Hún hafði komið sér
mjög notalega fyrir miðað við hvað
húsið sem hún var í var illa ein-
angrað og gamalt. Við fórum í bíl-
túr upp á Selfoss til þess að versla í
litla krúttlega bílnum hennar sem
hún var þá nýbúin að eignast. Það
var svo eldaður góður matur þegar
heim var komið. Við áttum það
sameiginlegt að hafa báðar verið að
vinna við aðhlynningu og höfðum
um svo margt að spjalla.
Á Stokkseyri veikist Fína og
kom þá heim til Guggu og fjöl-
skyldu á Árskógssandi, bjó hún hjá
þeim þar til hún fékk litla íbúð fyr-
ir aldraða, sem má segja að sé í
bakgarðinum hjá Guggu. Það var
stutt að fara á milli heimilanna fyr-
ir þær. Það veit ég að Guggu
fannst mjög gott að vera búin að fá
mömmu sína heim aftur og Fínu
fannst það mjög gott líka, því hún
gat þá fylgst með strákunum og
komin aftur til fjölskyldunnar þótt
henni fyndist oft erilsamt hjá þeim.
Ég vil þakka fyrir að hafa fengið að
kynnast Fínu og allar okkar góðu
stundir sem við fengum að eiga
saman.
Elsku Gugga, Steinþór og synir,
Hanna og börn, Konni og börn. Ég
votta ykkur samúð mína og megi
góður Guð styrkja ykkur í sorginni.
Sigrún Helga
Sigurhjartardóttir.
OLUFINE K.
THORSEN
✝ Árni Guðjónssontrésmíðameistari
frá Oddsstöðum í
Vestmannaeyjum
fæddist 12. mars
1923. Hann lést á
líknardeild Landspít-
alans í Kópavogi 16.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Guðrún Gríms-
dóttir (1888–1981) og
Guðjón Jónsson
(1874–1959), bóndi
og smiður á Odds-
stöðum í Vestmanna-
eyjum. Árni var
næstyngstur fjögurra alsystkina,
og lifa hann tvö þeirra, þau Guð-
laugur og Vilborg. Af tólf hálf-
systkinum frá fyrra hjónabandi
föður hans með Matteu Guðlaugu
Pétursdóttur frá Þorlaugargerði
komust átta til fullorðinsára, og lif-
ir eitt þeirra, Ósk, bróður sinn. Auk
sig þrjú börn. Með Guðrúnu Lauf-
eyju Guðjónsdóttur frá Hreiðars-
stöðum í Svarfaðardal, sem er lát-
in, átti hann Guðjón Hreiðar
byggingatæknifræðing. Er hann
kvæntur Ingibjörgu Ottósdóttur,
og eiga þau þrjú börn: Baldvin Ottó
viðskiptafræðing, Guðrúnu Svövu
hjúkrunarfræðinema og Árna
Björn trésmíðanema. Með Ingi-
björgu Stefánsdóttur á Sauðár-
króki, sem er látin, átti hann tvö
börn: 1) Stefán verslunarmann,
sem kvæntur var Þórunni Oddnýju
Þórhallsdóttur. Þau skildu. Börn
þeirra eru: Ingibjörg, við lyfja-
fræðinám við Háskóla Íslands,
Brynhildur skrifstofustúlka og
Haukur nemi. 2) Helgu, sem er
mynd- og handmenntakennari á
Laugarvatni. Er hún gift Helga
Baldurssyni frá Syðra-Hóli í Eyja-
firði, skólastjóra við Grunnskólann
á Laugarvatni. Börn þeirra eru
Ingibjörg nemi við Háskóla Íslands
í stjórnmálafræðum og bókmennt-
um og Baldur dýralæknir í Noregi.
Útför Árna fer fram frá Dóm-
kirkjunni á morgun, mánudaginn
25. nóvember, og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
þess átti hann tvö upp-
eldissystkini, Hjörleif
Guðnason og Jónu
Pétursdóttur, sem
einnig lifa hann. Eftir
barnaskólanám lauk
Árni prófi við Gagn-
fræðaskólann í Vest-
mannaeyjum og síðar
við Iðnskólann í Vest-
mannaeyjum. Hann
lærði trésmíði í Eyjum
hjá Guðmundi Böðv-
arssyni. Síðan fluttist
hann rúmlega tvítug-
ur til Norðurlands og
settist að á Sauðár-
króki. Rak hann þar með öðrum
trésmíða- og byggingarfyrirtæki
til ársins 1952, er hann fluttist suð-
ur til Reykjavíkur. Þar setti hann á
fót trésmíðaverkstæði, sem hann
rak meðan heilsan leyfði. Hann átti
heimili í Reykjavík til æviloka á
Sólvallagötu 41. Hann lætur eftir
Þegar ég mæli nokkur kveðjuorð
um mág minn, Árna Guðjónsson frá
Oddsstöðum í Vestmannaeyjum, er
ekki nema vonlegt að margar svip-
myndir komi upp í hugann eftir
hálfrar aldar góða viðkynningu við
hann og hina mætu, skemmtilegu
og samheldnu og jafnframt fjöl-
mennu fjölskyldu hans. Setti hún
óneitanlega mikinn svip á þjóðlíf
Vestmannaeyinga frá því um alda-
mótin 1900 og alla 20. öld og gerir
enn í dag á ýmsum sviðum eyja-
skeggja. Var það mér því mikil
ánægja að tengjast þessari fjöl-
skyldu traustum böndum.
Árni ólst upp í stórum systk-
inahópi og lét fljótt til sín taka við
venjuleg störf á heimili foreldra
sinna. Þá fór hann margar ferðir
með föður sínum og bræðrum til
lundaveiða í Elliðaey og þótt vel lið-
tækur við þær veiðar.
Sem ungur maður stundaði hann
einnig ýmsar íþróttir með jafnöldr-
um sínum, einkum knattspyrnu og
glímu.
Árni hafði hleypt heimdraganum
nokkrum árum áður en ég slóst í
hóp Oddsstaðafólksins árið 1953.
Hafði hann lært trésmíði í heima-
högum sínum, enda var hann hagur
í höndum og velvirkur. Hélt hann
fljótlega til Norðurlands og settist
að á Sauðárkróki. Rak hann þar
trésmíðaverkstæði og margs konar
byggingarstarfsemi í samvinnu með
öðrum og eins víða um sveitir Mið-
Norðurlands. Trúlega muna margir
eldri Skagfirðingar eftir honum frá
þessum árum.
Um það leyti, sem við systir hans
settum saman bú hér í Reykjavík,
hafði Árni flutzt að norðan hingað
suður og tekið á leigu herbergi með
Ingólfi, bróður sínum, á Sólvalla-
götu 41 hjá Sigurlaugu Björnsdótt-
ur frá Deildartungu í Borgarfirði.
Bjó hann þar alla tíð síðan enda var
hann rólyndur maður að eðlisfari og
lítt gefinn fyrir breytingar. Var
hann einstaklega nægjusamur mað-
ur og áreiðanlegur í öllum viðskipt-
um. Af sjálfu sér leiðir að hann var
mikill aufúsugestur á heimili okkar
alla tíð.
Þegar Árni kom hingað suður
setti hann á stofn trésmíðaverk-
stæði sem lengst var í Súðarvogi 7.
Þangað leitaði margur, sem þurfti
aðstoðar við, enda var hann bón-
góður og vildi hvers manns vanda
leysa. Rak hann verkstæði sitt fram
á síðustu ár við miklar vinsældir.
Vissi ég vel, að hann átti traustan
viðskiptamannahóp enda var hann
vinmargur. Þegar hann hætti sjálf-
ur allri vinnu leigði hann öðrum
verkstæði sitt með öllum vélum.
Sjálfur vissi ég til að hann kom nær
daglega á verkstæðið hin síðustu ár
og naut þess að hitta gamla félaga
sína sem unnið höfðu undir sama
þaki. Hélt hann því óslitið til dán-
ardægurs þótt hann væri sýnilega
orðinn helsjúkur af þeim vágesti
sem herjar svo grimmilega á mörg
okkar og eirir engu.
Ljóst var að Árna var hvíldin
kærkomin enda sagði hann oftar en
einu sinni við mig á dánarbeði sín-
um að þessu væri senn lokið. Jafn-
greindur og Árni var gerði hann
sér ljóst að hérvistardagar hans
voru senn á enda.
Hann lézt 16. þ.m., nær áttræður
að aldri.
Árna auðnaðist ekki að eignast
konu og mynda eigið heimili en
hann lætur eftir sig þrjú mann-
vænleg börn og átta barnabörn.
Var aðdáanlegt hversu vel þau
reyndust honum í hinu stutta en
stranga dauðastríði.
Við Villa, börnin okkar og fjöl-
skyldur þeirra, kveðjum góðan
bróður, mág og frænda með virð-
ingu og söknuði og þökkum honum
samfylgdina.
Börnum hans og fjölskyldum
þeirra sendum við hugheilustu sam-
úðarkveðjur.
Hvíl þú í friði, góði vinur og mág-
ur, eftir langan og farsælan ævidag.
Jón Aðalsteinn.
ÁRNI
GUÐJÓNSSON
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
LEGSTEINAR
Komið og skoðið
í sýningarsal okkar eða
fáið sendan myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
ARINBJÖRN KOLBEINSSON
læknir,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík fimmtudaginn 28. nóvember kl. 13.30.
Sigþrúður Friðriksdóttir,
Magnús Kolbeinsson,
Andri Arinbjarnarson,
Sturla Arinbjarnarson, Anna Margrét Ólafsdóttir,
Kolbeinn Arinbjarnarson, Björk Bragadóttir
og barnabörn.
Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og vinur,
ÁRNI GUÐJÓNSSON
húsasmíðameistari,
Sólvallagötu 41,
Reykjavík,
sem andaðist á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi laugardaginn 16. nóvember, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 25. nóvember kl. 13.30.
Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.
Guðjón Hreiðar Árnason, Ingibjörg Ottósdóttir,
Stefán Árnason,
Helga Árnadóttir, Helgi Baldursson,
afabörn,
Sigurlaug Björnsdóttir.